Dagur - 22.05.1987, Blaðsíða 20
DMTO
Akureyri, föstudagur 22. maí 1987
Gerið góða kvöldstund enn betri.
Leikhústilboð Smiðjunnar.
Rjómalöguð humar- og krabbasúpa bragðbætt með koníaki.
Glóðarsteiktar lambalundir bornar fram
með rjómasoðnum kartöflum.
Kaffi og konfekt.
Húsavík:
Hlutkesti réð ráðn-
ingu starfsmanns
Hlutkesti réð ráðningu starfs-
manns að íþróttamannvirkjum
og æskulýðsmiðstöð Húsavík-
urbæjar í gær. Tveir umsækj-
Akureyri:
Samræmd
próf í
íslensku
-ekki óeðlilegar útkomur
Nú berast óánægjuraddir frá
íslenskukennurum í grunnskól-
um á höfuðborgarsvæðinu,
varðandi mikið fall í sam-
ræmdu prófunum í íslensku.
Talað er um allt að 30-50% fall
hjá nemendum í þessari grein.
Það er í þrem skólum á Akur-
eyri, sem próf þessi eru tekin,
en þeir eru Gagnfræðaskólinn,
Glerárskólinn og Oddeyrar-
skólinn.
Skólastjóri Gagnfræðaskólans
Sverrir Pálsson, vildi ekki tjá sig
um þetta mál, þar sem skólaeink-
unnir hafa ekki verið færðar og
einkunnir verða ekki birtar fyrr
en það hefur verið gert.
í Glerárskóla fengust þær upp-
lýsingar, að meðaleinkunn ís-
lenskuprófanna væri eitthvað lægri
en þeir hefðu átt von á. Talað var
um að prófið hefði verið snúið,
nemendum hefði þótt það létt, en
gildrur hefðu leynst í því.
Indriði Úlfsson, skólastjóri
Oddeyrarskóla tjáði blaðamanni,
að skólinn hefði komið vel út úr
samræmdu prófunum. Meðal-
einkunn í íslensku hefði verið
örlítið lægri en í fyrra, en skýring
væri hugsanleg á því. Nú hefði
nefnilega verið aukið vægi mál-
fræðinnar á kostnað stafsetn-
ingar, og gæti það hugsanlega
verið skýring á misvæginu, þar
sem málfræðiþátturinn hafi verið
dálítið snúinn. VG
endur hlutu jafn mörg atkvæði
að lokinni kosningu í bæjar-
stjórn og því fór sem fór.
Alls sóttu 6 manns um tvær
stöður. Tillögur komu fram um
tvo umsækjendur þegar málið var
tekið fyrir í íþróttanefnd og því
var það sent til atkvæðagreiðslu í
bæjarstjórn.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar
urðu þau að Guðný Stefánsdóttir
hlaut sjö atkvæði en Hafliði Jó-
steinsson og Sveinn Pálsson hlutu
fjögur atkvæði hvor. í reglugerð
er ákvæði um að ef atkvæði
standi á jöfnu eftir skriflega
atkvæðagreiðslu skuli hlutkesti
ráða. Forseti bæjarstjórnar bað
því bæjarstjóra að kasta upp
„tíkalli" til að úrskurða hvor
mannanna skyldi ráðinn. Upp
komu loðnurnar sem valdar
höfðu verið handa Sveini Páls-
syni. IM
Fyrsta skóflustungan að safnaðarheimili Akureyrarkirkju var tekin við hátíðlega athöfn í gær. Séra Birgir Snæ-
björnsson, sóknarprestur, tók fyrstu skóflustunguna í sólskini og hita að viðstöddum hátíðargestum.
Byggingamarkaðurinn á Dalvík:
Tréverk blandar sér í baráttuna
„Við auglýstum upp úr ára-
mótum 106 fermetra íbúðir
með bflskúr og fólk sýndi
þessu vissulega áhuga en
enginn var með lánsloforð
undir höndum þannig að
undirtektir voru frekar
dræmar. Við ætlum að fara út í
minni íbúðir, 75 fermetra íbúð-
ir í raðhúsi. Þetta eru þriggja
herbergja íbúðir og við bind-
um frekar vonir við að geta selt
þær en þessar stóru,“ sagði
Bragi Jónsson framkvæmda-
stjóri Tréverks hf. á Dalvík.
Tréverk fékk tvær lóðir í vetur
undir raðhús og Bragi sagðist
vilja taka þátt í þessu því honum
litist ekkert á það að aðilar úr
Reykjavík (Viðar hf.) kæmu til
Dalvíkur og byggðu. „Ég er ekki
viss um að Akureyringar yrðu
- raðhúsaíbúðir í startholunum
en mikil hreyfing væri á markað-
inum. Hann sagði einnig að
stærri íbúðirnar með bílskúrnum
væru ekki út úr myndinni, ef fólk
ánægðir ef aðilar sunnan úr
Reykjavík kæmu þangað og
byggðu 100 íbúðir, sem er svipað
hlutfall og þessar 10 sem þeir ætla
að byggja hér,“ sagði Bragi.
Ekki sagðist hann heldur vera
ánægður með það að Akur-
eyringar (Híbýli) fengju umyrða-
laust verkefni á Dalvík s.s.
nýbyggingu fyrir Sæplast. „Pað
verður að sporna við því að utan-
aðkomandi aðilar yfirtaki bygg-
ingamarkaðinn hér, það er óþol-
andi að svona lagað skuli geta
gerst,“ sagði Bragi.
Bragi sagði að þeir hjá Tré-
verki væru síður en svo hættir við
að byggja í sumar. Þeir væru að
fara í gang með að auglýsa íbúðir
og settu traust sitt á minni íbúð-
irnar. Þær hentuðu vel þeim sem
væru að kaupa í fyrsta sinn og
þær væru líka hentugar til leigu,
vildi kaupa þá myndu þeir
byggja. Það stefnir því greinilega
í mikið byggingasumar á Dalvík.
SS
Kísiliðjan við Mývatn:
Jámiðnaðarmenn
gengu út
- vegna deilna um verksvið
Allir járniðnaðarmenn við Kís-
iliðjuna hf. við Mývatn, 10 að
tölu, gengu út í gærmorgun.
Astæðan er ágreiningur við
forráðamenn verksmiðjunnar
Norðurlandsumdæmi eystra:
Olafur settur fræðslustjóri
- fleiri bókanir gerðar en kemur fram í athugasemd Þráins Þórissonar, segir Magnús Stefánsson
Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra setti í gær Ólaf
Guðmundsson skólastjóra á
Egilsstöðum í embætti
fræðslustjóra í Norðurlands-
umdæmi eystra. Umsækjendur
um starfið voru auk Ólafs þeir
Sturla Kristjánsson fyrrverandi
fræðslustjóri umdæmisins og
Guðmundur Ingi Leifsson
fræðslustjóri Norðurlands-
umdæmis vestra.
„Ég neitaði að skrifa undir
stuðningsyfirlýsingu við endur-
ráðningu Sturlu I fræðslustjóra-
starfið og ítrekaði það í bókun,
að ég styddi Ólaf Guðmundsson,
þar sem beiðni minni um at-
kvæðagreiðslu var ekki sinnt.11
Það er því rangfærsla hjá Þráni
að ekki hafi komið fram neinar
aðrar bókanir, ályktanir eða til-
lögur á fundinum," sagði Magnús
Stefánsson frá Fagraskógi í gær,
en hann á sæti í Fræðsluráði
Norðurlandsumdæmis eystra.
í gær birtist grein í Degi eftir
Þráinn Þórisson, formann
Fræðsluráðs, um fræðslustjóra-
málið. Þar segir Þráinn að engin
atkvæðagreiðsla hafi farið fram á
fundi Fræðsluráðs og tvær bókan-
ir gerðar. Þá hafi sex fræðsluráðs-
menn skrifað undir og samþykkt
ályktun þess efnis að þeir styðji
umsókn Sturlu Kristjánssonar
um starfið. Með því að nefna þá
sex með nafni, sem skrifuðu und-
ir ályktunina, upplýsir hann í
raun hver sjöundi aðilinn er, því í
ráðinu sitja sjö fulltrúar.
„Það er rangt, að ekki hafi ver-
ið gerðar fleiri bókanir eða born-
ar upp fleiri tillögur en kemur
fram í grein Þráins. Fundargerðir
Fræðsluráðs eru opnberar og
hægt er að ganga úr skugga um
þetta, hvenær sem er. Hvað varð-
ar þagnarbindindið um þessi mál
þá koma svo margir við sögu,
bæði hér fyrir norðan og suður í
ráðuneyti, að fréttir af málum
hljóta alltaf að síast út. Það kem-
ur mér á óvart á Þráinn segi, að
ekki hafi verið gerðar fleiri
bókanir en þær, sem hann telur
upp í grein sinni. Það er ekki
beint hægt að segja að atkvæða-
greiðsla hafi farið fram en ég
ítrekaði það tvisvar eða þrisvar á
fundinum að gengið skyldi til
atkvæða. Það var ekki gert því
beiðni mín um atkvæðagreiðslu
var aldrei tekin fyrir sagði Magn-
ús Stefánsson. EHB/ET
um verksvið iðnaðarmanna
annars vegar og ófaglærðra
verkamanna hins vegar.
í Kísiliðjunni er nú unnið að
viðhaldsstörfum líkt og alltaf er
gert vor og haust. Við þessi störf
vinna bæði faglærðir og ófaglærð-
ir og til þessa hefur ekki komið til
deilna um verksvið þessara
tveggja hópa.
Reynir Sigurðsson trúnaðar-
maður járniðnaðarmannanna
sagði í samtali við Dag að undan-
farin ár hefði þetta smám saman
verið að þróast út í það sem nú
hefur gerst, að verkamenn séu
komnir inn á verksvið iðnaðar-
manna. Reynir sagði að málið
snerist alls ekki um það að þeir
misstu vinnu vegna þessa heldur
væri þetta „prinsipmál“. Reynir
sagði að þeir myndu mæta nú í
dag og sjá til hvort eitthvað hefði
breyst. I gær funduðu þeir með
sér um málið.
Róbert B. Agnarsson fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar sagð-
ist vonast til að þetta mál leystist
í rólegheitum en hann eins og
Reynir sagði það vera á við-
kvæmu stigi. Róbert sagðist
myndu ræða við mennina í dag
um lausn málsins. ET