Dagur - 04.12.1987, Page 1

Dagur - 04.12.1987, Page 1
70. árgangur Akureyri, föstudagur 4. desember 1987 232. tölublað Dalvík: Fiskvinnsluskóli í undirbúningi Nefnd sem skipuð er af sjávar- útvegsráðuneyti vinnur nú að athugun og undirbúningi að uppsetningu fiskvinnsluskóia á Dalvík. Tveir fulltrúar í nefnd- inni koma úr ráðuneytinu og tveir fulltrúar eru heimamenn, þeir Gunnar Aðalbjörnsson, frystihússtjóri og Trausti Þor- steinsson, forseti bæjarstjórn- ar. Ef leyfi fæst til að setja skólann á fót er vilji fyrir að hann taki til starfa næsta haust. Gunnar Aðalbjörnsson sagði í samtali við Dag að nú væri unnið að kostnaðaráætlun fyrir upp- setningu skólans. Kostnaður er talinn vera um 5-6 milljónir króna en húsnæði fyrir kennsluna er til á staðnum. Stefnt er að því að útskrifaðir verði fiskiðnaðarmenn úr skólan- um. Námið tekur 5 annir eða tvö og hálft ár og er bæði bóklegt og verklegt. í framhaldi af þessu námi geta nemendur farið í Fisk- dagar til jóla vinnsluskólann í Hafnarfirði og útskrifast þaðan sem fisktæknar eftir 2 annir. Búið er að senda út bréf til að kanna hug fólks til þessa náms og hafa þegar ýmsir sýnt þessu áhuga. Gunnar sagðist telja full- komnar aðstæður fyrir slíkan skóla á Dalvík enda hefur bærinn verið mjög vaxandi útgerðarbær á undanförnum árum. Þegar nefndin verður búin að gera kostnaðaráætlun og sínar til- lögur varðandi skólann munu gögnin verða send menntamála- ráðuneyti til ákvarðanatöku. JÓH Herra Ijósmyndari, viltu brjóta rúðuna fyrir mig? Mynd: TLV Sauðárkrókur: Hráefnisskortur vegna siglinga togaranna Fiskvinnslufólk á Saudárkróki sér nú fram á mjög rýran jóla- mánuð vegna siglinga togar- anna á staðnum. Allt útlit er fyrir að hráefnisskortur frá miðri þessari viku muni vara í það minnsta næstu tvær vik- urnar. Skafti mun selja í Þýskalandi í næstu viku og stefnt er að sölu Hegraness í Englandi þann 17. Gangi það eftir er í besta falli hægt að búast við fiski úr Skafta í jóla- vikunni og vonast eftir hráefni frá fiskmörkuðunum. Drang- eyjan, sem búin er með kvótann, mun fara fara á veið- ar fyrir Ólafsfirðinga er hún kemur úr slipp. „Ég átti ekki von á þessum siglingum togaranna núna, allra síst vegna þess að Drangeyjan er í slipp og togarar því bara tveir á veiðum. Svo finnst mér það skjóta svolítið skökku við, að við ásamt flestum aðilum hér fyrir norðan erum búnir að borga 10% meira en aðrir fyrir fiskinn, frá því fiskverð var gefið frjálst í vor. Einmitt í þeim tilgangi að stöðva útflutning á fiski, bæði með gám- um og með siglingum skipanna. Það hefur þö ekki gert betur en svo að togarar Útgerðarfélags Skagfirðinga hafa aldrei siglt meira en á þessu ári. Mér finnst þetta nokkuð mikið ábyrgðar- leysi hjá þeim í útgerðinni og benda má á að sumar útgerðir hafa það fyrir reglu að láta skip sín ekki sigla. Má þar nefna Útgerðarfélag Akureyringa,“ sagði Einar Svansson hjá Fiskiðj- unni, aðspurður um þessi mál. í báðum frystihúsunum á Króknum, Fiskiðjunni og Skildi er lausráðið fólk komið á atvinnuleysisbætur. Það fast- ráðna heldur að sjálfsögðu dag- vinnunni, en verður af bónus- greiðslum. Gísli Kristjánsson hjá Hrað- frystihúsinu á Hofsósi sagðist reikna með að ná endum saman svo framarlega sem gæftir leyfðu og fiskirí héldist hjá línubátunum tveim, Hafborginni og Víkur- berginu. En þeir hafa verið með um 6 tonn yfir daginn undanfar- ið. -þá Akureyri: Verða dagheimilin rekin fóstrulaus? - „Neyðamrræði,“ segir dagvistarfulltrúi Fóstruskorturinn á Akureyri tekur á sig æ alvarlegri niynd. Að sögn Sigríðar M. Jóhanns- dóttur dagvistarfulltrúa liggja nú fyrir 5 uppsagnarbréf frá fóstrum og hún bjóst jafnvel við fleiri uppsögnum á næst- unni. Ef fram fer sem horfír verða dagvistir bæjarins allt að því fóstrulausar upp úr ára- mótum og Ijóst að grípa verður til róttækra aðgerða hið bráð- asta. Á fundi félagsmálaráðs sl. mánudag var samþykkt bókun þar sem skorað er á kjaranefnd og bæjarráð að leita leiða til að fá fóstrur aftur til starfa. Sem dæmi um ástandið sagði Sigríður að um áramótin verða tvö dagheimili án forstöðumanna, auk þess sem ekki verður hægt að manna nýti heimili sem á að taka í notkun. Félagsmálaráð hefur falið Sig- ríði að sækja um undanþágu til menntamálaráðuneytisins til að fá að ráða fólk með aðra uppeld- ismenntun til að veita heimilun- um tímabundna forstöðu. „Með þessari undanþágu getum við fengið að reka heimilin fóstrulaus um tíma, en við viljum helst ekki þurfa að grípa til þess ráðs að reka heimilin með ófaglærðu starfsfólki eingöngu. Þetta væri neyðarúrlausn," sagði Sigríður. „Við erum það fáar fóstrur í starfi að það munar mikið um hverja sem út fer. Ég býst við að fá fleiri uppsagnir meðan launin eru svona lág. Ég er mjög svart- sýn á fóstrumálin í dag. Þær fara í betur borguð störf og ég get ekki séð að þetta muni breytast meðan ekkert er gert í kjaramál- um fóstra,“ sagði Sigríður að lokum. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.