Dagur - 04.12.1987, Blaðsíða 3
4. desember 1987 - DAGUR - 3
Jólakonfektinu pakkað.
Mynd: TLV
Upphituð gatna-
mót á Króknum
Áður en endurnýjun á matbiki
aðalumferðaræðar Sauðár-
króks, Skagfirðingabrautar og
Aðalgötu var framkvæmd nú í
haust, var komið fyrir varma-
leiðslum í gatnamótum Skag-
firðingabrautar og Hegra-
brautar.
Umferð er mjög mikil um þessi
gatnamót, svo mikil að á aðalum-
ferðartímanum í hádeginu þarf
lögreglan að hafa þar umferðar-
stjórn með hendi. Ekki hefur
bætt út skák að tíðurn hefur
myndast þarna hálkublettur. Af
þessum ástæðum urðu þessi
gatnamót fyrir valinu þegar
ákveðið var að gera tilraun með
upphitun í gatnakerfi bæjarins. í
smáskotinu á dögunum var ekki
að sjá annað en varmakerfið í
gatnamótunum gerði sitt gagn, en
þá var nýbúið að hleypa vatni á
kerfið. Eitthvað mun vera um
upphitun gatna í Reykjavík, en
slíkt hefur ekki þekkst hér nyrðra
fram að þessu. -þá
Sérsamband
hestaíþrótta
innan ÍSÍ
„Þetta þýðir að íþróttaráð
Landssambands hestamanna
var lagt niður og sérsamband
hestaíþrótta innan Iþrótta-
sambands Islands stofnað í
staðinn. Nú eru allar hesta-
íþróttir, hverju nafni sem þær
nefnast, __ komnar innan
vébanda ÍSÍ,“ sagði Jón Ólaf-
ur Sigfússon, formaður hesta-
mannafélagsins Léttis á Akur-
eyri.
Stofnfundur sérsambandsins
var haldinn á Húsavík um síðustu
helgi. Að sögn Jóns Ólafs er það
mjög eðlileg þróun að hesta-
íþróttir færist nú alfarið til ÍSÍ því
slíkar íþróttir eru löngu viður-
kenndar sem keppnisíþróttir á
stórmótum erlendis.
„Við erum búnir að vinna að
því í mörg ár að fá inngöngu í ÍSÍ
en það tókst ekki fyrr en núna.
Lög íþróttasambandsins kveða á
um að þegar sex félög eða fleiri á
sama áhugasviði séu komin í
sambandið sé þeim skylt að
stofna sérsamband. Nokkrar
íþróttadeildir innan hestamanna-
félaganna á landinu voru gengnar
í sambandið og því var tímabært
að stofna slíkt sérsamband,"
sagði Jón Ólafur.
Sérsambandi hestaíþrótta hef-
ur ekki verið valið nafn, enn sem
komið er. Framkvæmdastjóri
LH, Guðmundur Ó. Guðmunds-
son, verður starfsmaður þessarar
deildar. EHB
Jólaþrenna
Nú er fyrsta Happaþrennuári
Happdrættis Háskólans senn
að Ijúka. Því lýkur með Jóla-
þrennunni í desember. Happa-
þrennan hefur fallið íslending-
um mjög vel í geð. Viðtökurn-
ar hafa verið framar björtustu
vonum enda stóð ekki á
landanum að setja þar enn eitt
höfðatölu-heimsmetið!
Alls hafa vinningshöfum verið
greiddar 230 milljónir. Þar af
hafa 70 íslendingar fengið hálfa
milljón króna og enn fleiri munu
bætast í hóp hinna heppnu áður
en árið er allt!
Þessa dagana er verið að dreifa
Jólaþrennunni á sölustaðina. Sú
nýbreytni er við Jólaþrennuna að
vinningum fjölgar og þar með
aukast vinningslíkur um leið.
Þannig fellur nú vinningur á
meira en sjötta hvern miða.
Ágóða af sölu Happaþrennunnar
ver Háskólinn til brýnna fram-
kvæmda. Nú stendur einmitt á
því harðasta að auka húsnæði og
tækjabúnað til að skólinn standist
menntunarkröfur samtímans.
meVSSp;iitom""kaí
ifrbtáM-25.700
I \nnbV99^y^----
t
14-W.2SL9M 9
, ;60:;SS^
kassettút®tó
r.
Bt\úwarp
örbV'9iu0Ss
snúningsdisks^
Vet bltaKL
*»*«$**
meMa9aSn sKr. 16300
M,r\ráR'COP,OW^PUS
ftdave'ar ira
Panasonic 3 ™ f\e\ra.
3Ö \nnbV99^u aSS
erb trá MJ590----------
Vasad'skó-
\\ferb tr®
þússfraum
Owarpsisek' V
22ov 09 rattr'oöv
Ver&Jlákó__-------------
Verð miðast við staðgreiðslu.
Góðir greiðsluskilmálar.
Filmumóttaka
KVUIIIbd Ijósmyndafilmur,
skoðaðu verðið hjá okkur.
Það kemur þægilega á óvart.
V/ NaUSt © 96-26088 • Glerárgata 26 • 600 Akureyri
RAÐGREIÐSLUR
1 . *
y-Æ * /.\ VBBb