Dagur - 04.12.1987, Side 5
4. desember 1987 - DAGUR - 5
Nýi lyftarinn er auðveldur í notkun. Hann getur staflað fullhlöðnum 40 feta
gámum í fjórar stæður, en lyftigetan er 34 tonn.
Reykjavík:
Eimskip bætir
við tækjakost
Fyrir skönimu fékk Eimskipa-
félag íslands nýjan gámalyft-
ara til notkunar á athafnasvæði
sínu við Sundahöfn. Lyftarinn
er framleiddur af Caterpillar
verksmiðjunum og fluttur inn
af umboðsaðila þeirra á íslandi,
Heklu hf.
Vaxandi notkun gáma og þörf
á betri nýtingu geyinslusvæðis
hefur kallað á nýja tækni í lyfti-
tækjum og hafa Caterpillar verk-
smiðjurnar svarað þeirri þörf
með því að framleiða lyftara,
sem flýtir mjög fyrir stöflun og
tilfærslu á gámum.
Lyftarinn er 65 tonn að þyngd
og getur staflað fullhlöðnum 40
feta gámum í fjórar stæður, en
lyftigetan er 34 tonn.
Hann er ákaflega auðveldur í
meðförum enda er þvermál
beygjuhrings aðeins um 15 metrar
og stjórnbúnaður allur vökva-
knúinn. Þá er í lyftaranum eins-
konar gjörgæslukerfi (EMC) sem
varar stjórnandann við, ef
eitthvað fer úrskeiðis varðandi
stjórnun eða vélbúnað í takinu.
Að gefnu
tilefni
- vegna skrifa fram-
kvæmdastjóra Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar
Vegna skrifa Inga Björnsson-
ar, framkvæmdastjóra Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar í
Dag og aðra fjölmiðla, þar sem
m.a. kemur fram að félagið
hafi stutt DNG þegar verið var
að stofna fyrirtækið, vill Davíð
Gíslason hjá DNG að eftirfar-
andi komi fram.
Þegar DNG var stofnað, var
eina aðstoðin sem fyrirtækið þáði
frá Iðnþróunarfélaginu lán, sem
tekið var á tímabilinu 1981-1982
að upphæð krónur 300 þúsund til
sex mánaða, en sú upphæð nam
u.þ.b. eins og hálfs mánaðar
launagreiðslum fyrirtækisins til
starfsmanna.
Ef nefna á einn aðila umfram
annan á svæðinu sem studdi
aðstandendur fyrirtækisins við
stofnun þess má, að sögn Davíðs,
þá helst nefna Sparisjóð Glæsi-
bæjarhrepps.
Þetta hafði allt átt sér stað fyrir
tíð Inga Björnssonar og hefur því
e.t.v. ekki verið honum ljóst fyrr
en nú. VG
■
' BÓKflFORLflGSBÓK)
Verð kr. 2.250,00.
GEKK ÉG YFIR
SJÓ OG LAND
eftir Kristján Róbertsson
Hér segir frá þeim miklu umbrotum
sem áttu sér stað í lifi fólks í
Vestmannaeyjum a siðari hluta 19.
aldar. þegar íslenskir mormónatrú-
boðar birtust þar og fóru að boða
nýtt fagnaðarerindi sem ekki hafði
heyrst hér a landi áður.
Þetta er bæði furöuleg og fróðleg
saga, sem margir munu áreiðanlega
hafa gaman af að kynna ser.
Opið laugardaginn
5. desember
frá kl. 10-16.
Munið 10% jólaafsláttinn okkar
Á föstudagskvöld verður klikkað stuð í Zebra.
Verslunin Perfect verður með tískusýningu
og öll nýjustu popplögin glymja um húsið.
Bjartmar Guðlaugsson svíkur okkur
ekki aftur, hann kemur og spilar í Zebra
á laugardagskvöld.
Missið ekki af járnkarlinum og
týndu kynsloðinni.
WEBRA*
Veitingastaður, Hafnarstræti 100, sími 25500
VEXTIR A
VERÐBRÉFAMARKAÐI
Vikan 30.nóv.- 4. des. 1987 P
Vextir umfram Vextir
Tegund skuldabréfs verðtryggingu % Alls%
jSpariskírt. ríkissjóðs
lægst 8,0% 36,7%
hæst 8,5% 37,4%
Skuldabréf banka og sparisjóða
lægst 9,3% 38,4%
hæst 9,7% 38,9%
1 Skuldabréf stórra fyrirtækja
Lind hf. 11,0% 40,5%
Glitnir hf. 11,1% 40,6%
SS 11,2% 40,8%
| Verðtryggð verðskuldabréf
lægst 12,0% 41,8%
hæst 15,0% 45,6%
1 Einingabréf
Einingabréf 1 gengi4.12.’87 2.468,- 13,2% 43,3%
Einingabréf 2 1.444,- 9,0% 38,0%
Einingabréf 3 1.522.- 12,0% 41,8%
Lífeyrisbréf 1.241,- 13,2% 43,3%
Fjárvarsla Kaupþings Norðurlands hf. mismundandi eftir sam-
setningu verðbréfaeignar.
Heildarvextir annarra skuldabréfa en einingabréfa eru reiknað-
ir út frá hækkun lánskjaravísitölu síðastliðna 3 mánuði. Raun-
og.nafnávöxtun Einingabréfa og Lífeyrisbréfa er sýnd miðað
við hækkun þeirra síðastliðna 3 mánuði.
Flest skuldabréf er hægt að endurselja með litlum fyrirvara.
Einingabréf er innleyst samdægurs gegn 2% innlausnargjaldi.
Spariskírteini eru seld á 2-3 dögum og flest önnur skuldabréf
innan tveggja vikna. Fé í Fjárvörslu Kaupþings Norðurlands er
oftast hægt að losa innan viku.
ATH! Hægt er að greiða keypt verðbréf með gíróseðli og fá
þau síðan send í ábyrgðarpósti.
441KAUPÞING
NÖRÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 • Akureyri • Sími 96-24700