Dagur - 04.12.1987, Side 24
Akureyri, föstudagur 4. desember 1987
Tilboð Bautans í desember
í hádeginu: Innkaupadiskurinn:
Kaldir kjöt- og fiskréttir ásamt súpu og salatbar kr. 450.
í kaffinu: Búðarrápsdiskurinn:
Snitta, kökusneið og kaffi kr. 180.
Jólaglögg.
Afsláttartilboö
til félagsmanna KEA
- í flestum sérverslunum og
kjörbúðum kaupfélagsins
I dag og á morgun eru síðustu
forvöð fyrir félagsmenn í KEA
að notfæra sér 10 prósent
afsláttartilboð kaupfélagsins.
Um er að ræða sérstakan af-
slátt af staðgreiddri vöruúttekt í
öllum deildum Vöruhúss KEA
DNG:
Kanada næst
Kristján Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri og Reynir Ei-
ríksson markaðsstjóri hjá
DNG eru nvkomnir frá
Nýfundnalandi þar sem þeir
afhentu sjávarútvegsskóla í
borginni St. Jones, tvær færa-
vindur til reynslu. Þetta er
fyrsta skref fvrirtækisins inn á
Kanadamarkað.
Aðdragandi þessa er sá að á
sjávarútvegssýningunni í Laugar-
dalshöll í sumar koin fulltrúi
skólans að máli \ið þá DNG-
menn. Maður þessi sér um útgerð
fiskibáts sem skólinn hefur
nýlega fest kaup á til þess að gera
ýmsar tilraunir með \ eiðarfæri og
annað. Manninum \ar boðið
hingað norður og á sjó þar sem
hann sá færavinduna í notkun.
Niðurstaðan \ ar sú að liann fór
fram á það við forráðamenn
fyrirtækisins að þeir kæmu vestur
og kynntu sjálf\ irku færavind-
una. I gegnum skóla þennan fara
árlega um 200 fiskimenn. aðal-
lega frá Nýfundnalandi.
..bað er verið að kanna hvort
vindurnar henta þessum markaði
og ég held að þetta sé mjög gott
sem fvrsta skrefið í markaðssetn-
ingu þarna." sagði Reynir í sant-
tali við Dag. Kanadamenn hafa
lítillega kynnst sjálfvirkum færa-
vindum en þær hafa ekki náð
neinni fótfestu á markaðinum.
Reynir sagði engan vafa leika á
möguleikum þessa markaðar,
spurningin væri hvort þeir gætu
nýtt sér hann sem skyldi. „Við
flýtum okkur hægt,“ sagði hann.
ET
og raflagnadeild. Einnig er um
að ræða afslátt í byggingavöru-
deild og véladeild.
Hvað byggingavörudeild varð-
ar þá er veittur 10% staðgreiðslu-
afsláttur af verkfærum, gólfefn-
um og öllunr málningarvörum. í
véladeild er sami afsláttur veittur
af bifreiðavörum og varahlutum.
Af stærri rafmagnstækjum,
húsgögnum og gólfteppum mið-
ast 10% afslátturinn við afborg-
unarverð. Þessi kjör gilda einnig
um sömu vöruflokka í öllum
verslunum KEA utan Akureyrar.
Björn Baldursson, fulltrúi
kaupfélagsstjóra á verslunar-
sviði. sagði að í raun jafngilti
þetta afsláttartilboð 10% afslætti
á meginþorra sérvöru í verslun-
um KEA. Segja má að afsláttur-
inn í ár sé í raun meiri en hefur
tíðkast áður í afsláttartilboðum
KEA. Hann er hærri. t.d. af raf-
magnstækjum. og nær til fleiri
vörutegunda.
Félagsmenn KEA eru hvattir
til að notfæra sér þetta góða
tilboð. en sérstök athvgli er vakin
á að flestar sérvöruverslanir og
matvöruverslanir kaupféiagsins
verða opnar frá kl. 10.00-16.00 á
morgun. laugardaginn 5. des-
ember. EHB
Varla hefðbundið desemberverk.
Mynd: TLV
Fjárveitinganefnd:
Heimavist
MA í athugun
I fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar er gert ráð fyrir 3,7
miljónum króna til viðgerða og
endurbóta á húsnæði Mennta-
skólans á Akureyri. Ekki er
gert ráð fyrir neinum fjármun-
um til hönnunar eða skipu-
lagningar á viðbyggingu heima-
vistar menntaskólans. Jóhann
Sigurjónsson skólamcistari
MA hefur þó sótt um 2,5 millj-
ónir til fjárveitinganefndar, en
vill þó ekki gefa neitt út á það
hvort hann telji líklegt að
umsóknin fá náð fyrir augum
fjárveitinganefndar.
„Ég var nú að vona að við
myndum geta hafiö framkvæmdir
vorið 1989, en Jón Baldvin er
fastheldinn á budduna. En málið
er að það er búið að samþykkja
A og þá hlýtur B að koma á eftir,
eða a.rn.k. lítið b. Við verðum
því að vona það besta, en þessi
fjárveiting myndi fara í undir-
búning og hönnun verksins.“
í samtali við Dag sagði Pálmi
Jónsson alþingismaður, en hann
á sæti á fjárveitinganefnd, að
nefndin væri nú að fara yfir allar
þær umsóknir sem henni hafa
borist og því of snemmt að segja
nokkuð um málefni heimavistar
MA. AP
Loðnuverksmiðjan á Raufarhöfn:
Starfsmenn hóta að ganga út
- „Fljótræði,“ segir Árni Sörensson verksmiðjustjóri
Hálfgert upplausnarástand rík-
ir nú í loðnuverksmiðju Síldar-
verksmiðja ríkisins á Raufar-
höfn. Búið er að loka fyrir
loðnumóttöku því starfsmenn
hafa hótað að ganga út á laug-
ardaginn. Þeir eru óánægðir
með það að laun þeirra voru
lækkuð þegar bræðsla hófst í
nóvember en þeir höfðu verið
yfirborgaðir yfir sumarmánuð-
ina. Arni Sörensson verk-
smiðjustjóri var inntur eftir
forsögu þessa deilumáls:
„Þegar bræðslu lauk í vor var
kaupið hækkað við menn til að
halda þeim hérna yfir sumartím-
ann, enda voru miklar fram-
kvæmdir hér í byggingarvinnu og
Er jólahangikjötið gamalt?
„Notum aðeins nýtt kjöt“
- segir Óli Valdimarsson, sláturhússtjóri KEA
Vegna fréttar í fréttatíma
Stöðvar 2 á dögunum þar sem
greint var frá því að reykhús
Sambandsins notaði aðeins
gamalt kjöt í reyk fyrir jólin
var haft samband við Óla
Valdimarsson, sláturhússtjóra
KEA á Akureyri til að grennsl-
ast fyrir um hvort þessum mál-
um væri eins varið hér fyrir
norðan.
„Nei, hér notum við aðeins
nýtt kjöt þ.e. frá því í sláturtíð-
inni í haust þar að auki er kjötið
heldur ekki sprautusaltað. Fólk
hefur mikið spurt um hvort hér sé
reykt gamalt kjöt fyrirjólin en
svo er alls ekki,“ sagði Oli.
Nýtt og pækilsaltað.
Mynd: 'II.V
Hangikjötssala frá Kjötiönað-
arstöð KEA hefur verið góð
undanfarin ár og hafa verið seld
um 45 tonn af hangikjöti í des-
embermánuði og um 30 tonn í
nóvember. Óli segir að svo virð-
ist sem eftirspurn eftir hangkjöti
frá KEA sé heidur að aukast ekki
síst að sunnan en þangað fer
nálægt helmingur hangikjötsins
frá KEA fyrir jólin.
Óli sagði að á haustin væri
gömlu kjöti ekið úr sláturhúsum
á landsbyggðinni suður og þar
væri þetta kjöt gjarnan notað í
hangikjöt. Hér er á ferðinni
offramleiðsla sem ekki hefur ver-
ið hægt að flytja út né nýta á ann-
an hátt. JÓH
endurnýjun á verksmiðjunni.
Þetta var gert í öllum verksmiðj-
um sem eru í samfloti með okkur
í kjaramálum. Það var gert skrif-
legt samkomulag um þessa yfir-
borgun og tekið fram að hún gilti
fram að bræðslu, en ekki lengur
en til 1. september nema sérstak-
lega yrði um það samið. Bræðsla
hófst ekki hér fyrr en í nóvember
og þetta sumarkaup var látið
gilda hjá mönnum hér þangað til.
Þegar bræðsla hófst var' síðan
tekinn upp sá kauptaxti sem gild-
ir samkvæmt kjarasamningum
verksmiðjanna við Vinnuveit-
endasamband íslands.“
Árni sagðist álíta að þetta væru
fljótræðislegar aðgeröir hjá
starfsmönnunum. Þeir heföu far-
ið fram á kauphækkun sem ekki
hefði verið hægt að verða við,
engar forsendur fyrir hendi enda
væri verið að vinna að gerð samn-
inga fyrir næsta ár. Núgildandi
samningar renna út um áramót,
en Árni sagði að starfsmennirnir
hefðu hótað að ganga út á laugar-
daginn ef þeir fengju ekki
umbeðna kauphækkun.
„Meðan þetta vofir yfir höfum
við ekki getað tekið við loðnu.
Við vorum komnir með það mik-
ið í þrær að við verðum ekki bún-
ir með það á laugardaginn. Þetta
er leiðindaástand, loðnan er hér
hérna rétt úti fyrir, aðeins um 6
tíma sigling á miðin. En mér
finnst þetta liggja Ijóst fyrir.
Bræðslusamningurinn gildir til
áramóta og yfirborgunin í sumar
kom honunt ekkert við. En ég á
allt eins von á því að þetta mál sé
að leysast,“ sagði Árni að lokum.
SS
Loðnuveiðar:
Næst heil vika?
Lodnuveiöar hafa gengið vel
það sem af er þessari viku og
vonast menn jafnvel eftir að
þetta verði fyrsta heila vikan
sem eitthvað veiðist. Frá því á
sunnudag hafa um 48 þúsund
tonn komið á land og hjá
mörgum verksmiðjum er allt
geymslurými fullt.
Nú hafa 39 skip hafið veiðar og
að jafnaði eru 15-20 skip á veið-
um í einu. Miðin eru nú austur af
Kolbeinsey og norður af Mel-
rakkasléttu og er loðnan á aust-
urleið.
Um miðjan dag í gær höfðu 10
skip tilkynnt um afla, samtals um
6000 lestir. Loðnuverksmiðjurn-
ar á Þórshöfn, Vopnafirði, Siglu-
firði og Ólafsfirði voru þá með
allt fullt af loðnu og gátu ekkert
tekið við fyrr en ef til vill í
gærkvöld. Mestu hefur því verið
landað á Austfjarðahafnir.
Krossanesverksmiðjan geymir
ekki loðnu og hafa Akureyrar-
skipin Súlan og Þórður Jónasson
séð henni fyrir hráefni. ET