Dagur - 13.07.1988, Side 19

Dagur - 13.07.1988, Side 19
13. júlí 1988-DAGUR - 19 íþróttir Meistaramót G.S.S. í golfi: Sigurinn tryggður í síðasta höggi - Örn Sölvi setti niður 6 m langt pútt Meistaramót Golfklúbbs Sauð- árkróks fór fram á Hlíðarenda- velli 6.-9. júlí sl. 39 keppendur í 6 flokkum mættu til leiks. Blíðskaparveður var fram á síðasta mótsdag, en þá var dumbungsveður með rigning- arúða. Spennandi keppni var í flestum flokkum, aðallega í 1. flokki, en þar réðust úrslit á síðustu brautinni. Örn Sölvi Halldórsson stóð uppi sem sigurvegari í 1. flokki, fór síðustu holuna á einu höggi undir pari og átti 6 metra pútt í lokin sem tryggði honum sigur- inn. Stefán Pedersen átti tvö Opna Húsa- víkurmótið - um helgina Um næstu helgi fer fram Opna Húsavíkurmótið í golfi. Mótið hefst á laugardag og því lýkur á sunnudag en leiknar verða 36 holur, með og án forgjafar. Keppt verður í karla-, kvenna- og unglingaflokki. Katlavöllur á Húsavík er í mjög góðu ástandi núna og er búist við góðri þátttöku í mótinu, en öllum er að sjálfsögðu heimil þátttaka. Skráning fer fram í síma 41000 á Húsavík og lýkur henni á föstudagskvöld kl. 20. högg á Örn Sölva fyrir síðustu holuna en mistókst púttið á flöt- inni og varð einu höggi á eftir Erni. 1. flokkur lék 72 holur, 2., 3. og eldri flokkur unglinga léku 36 holur, kvennaflokkur lék 18 holur og yngri flokkur unglinga lék 9 holur. Lítum á úrslit mótsins. 1. flokkur: 1. Örn Sölvi Halldórss. 343 högg 2. Stefán Pedersen 344 högg 3. Steinar Skarphéðinsson 347 högg 2. flokkur: 1. Hjörtur Geirmundsson 183 högg 2. Páll Þorsteinsson 193 högg 3. Kári Valgarðsson 194 högg 3. flokkur: 1. Björn J. Björnsson 223 högg 2. Gunnar B. Sveinsson 228 högg 3. Gunnar Guðjónsson 234 högg Kvennaflokkur: 1. Málfríður Haraldsdóttir 125 högg 2. Valgerður Sverrisdóttir 143 högg 3. Kristín Snorradóttir 156 högg Eldri flokkur unglinga: 1. Halldór Halldórsson 234 högg 2. Guðjón Gunnarsson 246 högg 3. Kári Björn Þorsteinsson 279 högg Yngri flokkur unglinga: 1. Róbert Sverrisson 65 högg 2. Fannar Haraldsson 70 högg 3. Andri Sigurgeirsson 73 högg -bjb A lið 6. flokks KA ásamt þjálfara sínum, Þorvaldi Örlygssyni. Þetta er liðið sem keppti á Tommamótinu í Vest- mannaeyjum á dögunum. Liðið gerði sér síðan lítið fyrir og sigraði í Norðurlandsriðli 6. flokks um helgina. Mynd: gj Knattspyrna 6. flokkur: KA sigraði glæsi- lega í G-riðlinum KA sigraði glæsilega í Norður- landsriðli Islandsmótsins í knattspyrnu 6. flokks. Keppni í riðlinum fór fram á Akureyri um síðustu helgi. Leikið var í tveimur flokkum, A og B, og sigraði KA í báðum flokkun- um. KA tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppni þessa ald- ursflokks en hún fer fram helg- ina 23.-24. júlí. í flokki A liða varð Völsungur í 2. sæti og Tindastóll í 3. sæti. bæði í flokki A og B liða Sl. laugardag áttust við á Ólafsfjarðarvelli lið Leifturs og Tindastóls í 3., 4. og 5. flokki. Heimamenn urðu hlut- skarpari í þeim viðureignum, unnu tvo leiki en Tindastóll vann einn. Leiftur vann 2:1 í 5. flokki. Fyrir heimamenn skoruðu Steinn Gunnarsson og Albert Arason og fyrir Tindastól skoraði Ómar Sig- marsson, sem er nýhættur að spila sem markvörður og farinn að leika úti á vellinum. Stór sigur vannst hjá 4. flokki Leifturs á Tindastóli, eða 5:0. Hetja Leifturs í þeim leik var Samúel ívar Bergmann, en hann skoraði 4 mörk. Birnir Björnsson gerði eitt mark. Tindastóll náði sigri í síðasta leiknum í 3. flokki, skoraði tvö mörk gegn engu marki Leifturs. Þau komu á fyrstu 15 mínútum Samúel skoraði 4 mörk - fyrir Leiftur gegn Tindastóli leiksins og Orri Hreinsson og Grétar Karlsson sáu um að skora þau. -bjb Knattspyrna yngri ílokka: Völsungur sigraði UMFS Dalvík Dalvíkingar áttu ekki mikla möguleika þegar þeir mættu Völsungum á Húsavík í íslandsmóti yngri flokka í knattspyrnu um síðustu helgi. Leikið var í þremur flokkum og lauk öllum leikjunum með öruggum sigri Völsungs. 3. flokkur Völsungs vann stærsta sigurinn en þeir unnu 8:0. Reynir Björnsson, Jónas Grani Garðarsson og Arnar Bragason skoruðu allir tvö mörk og þeir Ásmundur Arnarson og Ingvar Berg Dagbjartsson skoruðu eitt mark hver. í 4. flokki sigraði Völsungur 5:2. Róbert Skarphéðinsson skoraði þrívegis fyrir Völsung en þeir Árni Guðmundsson og Rún- ar Sigmundsson skoruðu einu sinni hvor. Ekki tókst að afla neinna upplýsinga um marka- skorara UMFS Dalvíkur. í 5. flokki lauk leiknum 6:1. Guðni Rúnar Helgason skoraði þrjú mörk fyrir Völsung, Halldór Stefánsson tvö og Jónas Einars- son eitt. Ekki er heldur vitað hver skoraði fyrir UMFS Dalvík í þessum leik. JHB Knattspyrna yngri flokka: KS sigraði Hvöt 12:0 - í 5. flokki KS-ingar reyndust sterkari en Hvöt þegar yngri flokkar fé- lagsins mættust á Siglufirði á sunnudag. Leikið var í 4. og 5. flokki og lauk báðum leikjun- um með sigri KS. Leikur 4. flokks var mjög jafn og spennandi og hefði sigurinn getað fallið hvoru liðinu sem var í skaut. Það voru þó Siglfirðingar sem reyndust sterkari þegar upp var staðið og náðu þeir að tryggja sér 1:0 sigur með marki Mikaels Björnssonar. í 5. flokki höfðu Siglfirðingar hins vegar gífurlega yfirburði og unnu stórsigur, 12:0. Marka- kóngur þeirra Siglfirðinga, Agn- ar Þór Sveinsson, var atkvæða- mikill í þessum leik og skoraði fimm mörk. Ragnar Hauksson skoraði fjögur og þeir Kjartan Sigurjónsson, Guðni Haraldsson og Davíð Aðalsteinsson skoruðu eitt mark hver. Þá hélt 2. flokkur KS suður á land um helgina og lék tvo leiki. Báðir töpuðust þeir illa, en KS- ingar gátu ekki farið með sitt sterkasta lið þar sem meistara- flokkur KS var að ieika í gærkvöld. Fyrst var leikið gegn UBK og tapaðist sá leikur 7:0. Daginn eftir var síðan leikið við ÍR og lauk honum með 15:1 sigri ÍR. Það var Guðlaugur Birgisson sem skoraði eina mark KS. JHB Völsungur varð einni í 2. sæti í flokki B liða og Þórsarar í 3. sæti. Úrslit leikja í riðlinum urðu þessi: A lið: UMF Fram-Þór 1:1 UMFS Dalvík-Leiftur 0:1 KA-KS 2:0 Tindastóll-Völsungur 2:2 UMF Fram-UMFS Dalvík 1:3 Leiftur-KA 1:1 KS-Tindastóll 2:5 Þór-Völsungur 1:3 KA-UMF Fram 3:0 Tindastóll-Leiftur 2:1 Völsungur-KS 4:2 UMFS Dalvík-Þór 0:2 UMF Fram-Tindastóll 1:3 UMFS Dalvík-KA 2:5 Leiftur-Völsungur 1:5 Þór-KS 2:2 Völsungur-UMF Fram 3:0 Tindastóll-UMFS Dalvík 3:0 KS-Leiftur 3:3 KA-Þór 4:0 UMF Fram-KS UMFS Dalvík-Völsungur KA-Tindastóll Þór-Leiftur Leiftur-UMF Fram KS-UMFS Dalvík Völsungur-KA Tindastóll-Þór B lið: KS-KA Þór-Leiftur Völsungur-Tindastóll Tindastóll-KS Völsungur-Þór KS-Völsungur Leiftur-KA KS-Þór Tindastóll-Leiftur Þór-KA Leiftur-Völsungur Tindastóll-KA KS-Leiftur KA-Völsungur Þór-Tindastóll B-lið KA ásamt Þorvaldi Örlygssyni þjálfara. Mynd: GJ Hin árlega firma- og félagakeppni KA fer fram á grasvelli félagsins dagana 25. og 26. júlí. Þátttökugjald er þaö sama og í fyrra kr. 7.500 fyrir eitt lið og kr. 13.000 fyrir tvö. Liðin skulu vera búin að skrá sig fyrir 20. júlí í síma 23482. Nánari upplýsingar veitir Þormóöur í sama númeri.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.