Dagur - 17.02.1990, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 17. febrúar 1990
Almennur fundur heimamanna með þingmönnum og fleirum á Kópaskeri sl. fimmtudagskvöld:
„Vona að fundurinn sé upphaf
að betri tíð í Presthólahreppi“
- sagði Ingunn St. Svavarsdóttir, oddviti
jFundurinn á Kópaskcri hófst um kl. 19 og stóð til miðnættis. Fundurinn var vel sóttur og málefnalegar umræður.
Mynd: óhþ
„Ég vona að þessi fundur verði
upphafið að betri tíð í Prest-
hólahreppi.“ Þetta voru loka-
orð Ingunnar St. Svavarsdótt-
ur, oddvita Presthólahrepps, á
opnum fundi hreppsbúa með
þingmönnum Norðurlandskjör-
dæmis eystra og embættis-
mönnum á Kópaskeri sl.
fimmtudagskvöld.
Fundurinn var vel sóttur og
tóku margir til máls, bæði heinta-
menn og gestir. Vandamálið sem
byggðarlagið stendur frammi fyr-
ir er stórt og umræðuefni fundar-
ins því víðfeðmt og snerti marga
málaflokka.
í framsögu sinni sagði Ingunn
St. Svavarsdóttir, oddviti, að
atvinnuástand væri með versta
móti sem stendur. Vegna hráefn-
isskorts væri hvorki rækjuvinnsla
né saltfiskverkun starfrækt um
þessar mundir og það leiddi
óneitanlega hugann að byggða-
kvóta. Hún sagði að kaupfélagið
á staðnum væri að lognast út af.
Uppsagnir hefðu tekið gildi og
þónokkrir misst atvinnuna. Hún
sagði að ljósið í myrkrinu væri
stofnun tveggja fyrirtækja, Tré-
lits sf., sem veitt hefði 6-7 manns
atvinnu síðan fyrir jól og Véla-
verkstæðis Hauks Oskarssonar,
sem veitir 3-4 mönnum atvinnu.
Fram kom hjá Ingunni að
mikillar óvissu gæti með framtíð
verslunar á staðnum, en síðustu
mánuði hefur Kaupfélag Þingey-
inga séð um þann rekstur.
„Spurningin er hvort hægt væri
að fá skýrari línur með framtíð
kaupfélagsrekstursins. Hvað
verður eftir, ef af gjaldþroti
verður. Okkur finnst vera meira
en tímabært að fá þetta á hreint,“
sagði Ingunn.
Hún sagði að þrátt fyrir núver-
andi svartnætti í atvinnumálum á
Kópaskeri missti fólk ekki kjark-
inn og þar væri öflugt félagslíf.
Hún nefndi að í hreppnum væru
starfandi 12 félög.
Þá nefndi Ingunn að þessa dag-
ana væri verið að koma á fót
dagvist fyrir aldr^ða þrisvar í
viku, í samstarfi við Dvalarheim-
ili aldraðra í Þingeyjarsýslu.
„Við eigum okkur draum um
hitaveitu. Það mun kosta okkur
um 50 milljónir króna að koma
hitaveitu í gagnið í samstarfi við
Öxfirðinga. Það er sárt til þess að
vita að héðan flyst fólk meðal
annars til þess að lækka heimilis-
útgjöld og fer til staða þar sem
kyndingarkostnaður er lægri á
meðan við þurfum 40-50 sekl af
97 gráðu heitu vatni upp úr Selja-
landsholunni sem við eigum okk-
ar hlut í hér fyrir botni Öxarfjarð-
ar. Sveitarfélagið hefur ekki bol-
magn til að ráðast í þessa fram-
kvæmd óstutt," sagði Ingunn.
I lok ræöu sinnar sagði Ingunn
að þrátt fyrir gott mannlíf á
Kópaskeri þrifist þar enginn án
fjölbreyttra atvinnutækifæra.
Hún lagði og áherslu á að efla
þyrfti samvinnu milli sveitar-
félaga, m.a. í sláturhúsamálinu
og úrvinnslu á eldisfiski.
Lokaorð Ingunnar voru eftir-
farandi: „Ef máltækið sem hljóð-
ar svo „þegar neyðin er stærst er
hjálpin næst“ reynist satt, þá gæti
ég vel trúað að verðlaunavísan á
þorrablótinu okkar reyndist líka
sönn:
Brátt við heyrum kópa káta
kyrja nýjan þorrabrag.
Ei þeir hyggja undan láta
ögn þó blási um þeirra hag.
Garðari Eggertssyni var tíð-
rætt um gjaldþrot Arlax hf. og
stöðu þess fyrirtækis nú. Hann
sagði að búið væri að leggja í 60-
170 milljóna króna fjárfestingu á
Kópaskeri og til þess að ljúka
uppbyggingu stöðvarinnar þar
þyrfti viðbótarfjármagn. Hann
nefndi að orðað hafi verið sam-
starf aðila á Fáskrúðsfirði við
þrotabú Árlax og áætlanir þar að
lútandi lagðar fyrir Byggðastofn-
un. Hins vegar hefðu engin svör
borist.
Garðar sagði að krefja yrði
stjórnvöld svara um það hvert
hlutskipti Kópaskersbúa ætti að
vera í nýrri byggðastefnu. Hann
sagði að á meðan engin svör bær-
ust væri ekki von til þess að
nokkrum manni dytti í hug að
fjárfesta í hvorki laxeldi né öðru
á Kópaskeri.
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, sagði að eins og
fram hefði komið væru málefni
nokkurra byggðarlaga til skoðun-
ar í ríkisstjórn, Byggðastofnun
og hjá Atvinnutrygginga- og
Hlutafjársjóði. Kópasker væri
einn þeirra staða. Hann fullviss-
aði fundarmenn um að stjórnvöld
gerðu allt sem í þeirra valdi stæði
til að snúa þróun mála við og
ekki yrði staðar numið fyrr en
viðhlítandi lausn finndist. Guð-
mundur sagði að Kópasker hefði
orðið útundan í björgunaraðgerð-
um stjórnvalda á síðasta ári í
gegnum áðurnefnda sjóði, en
ástæðuna mætti e.t.v. rekja til
þess að þar væri ekki eitt atvinnu-
fyrirtæki öðru fremur sem gæti
talist burðarás.
Guðmundur varpaði því m.a.
fram að ástæða væri til að huga í
ríkari mæli að samvinnu sveitar-
félaga á NA-svæðinu og það sama
gilti um mörg önnur svæði
landsins.
í máli Halldórs Blöndal,
alþingismanns, kom fram að
samgöngumál væru mikilvægur
þáttur í að snúa við öfugþróun í
byggðamálum. Hann upplýsti að
Gefla hf. væri með umsókn á
borði Hlutafjársjóðs og ekki væri
hægt að trúa öðru en að sjóður-
inn og Byggðastofnun myndu í
sameiningu leggja málinu með
einhverjum hætti lið.
Halldór sagði nauðsynlegt að
nýta húsnæði sláturhússins á
staðnum með einum eða öðrum
hætti. Hann varpaði þeirri spurn-
ingu fram hvort ekki væri ástæða
til að skoða einhverskonar
niðursuðu í því sambandi
Landbúnaðarráðherra, Stein-
grímur J. Sigfússon, sagði að na-
svæðið hefði orðið mjög illa úti í
samdrætti í landbúnaði, einkum
sauðfjárframleiðslu á undanförn-
um árum. Hann sagðist telja að
þau svæði sem stæðu höllum fæti
í byggðalegu tilliti, eins og NA-
svæðið, ættu að hafa forgang í
sauðfjárframleiðslu. Slíkri stýr-
ingu hefðu forsvarsmenn bænda
hins vegar verið nokkuð tregir að
koma á og inætti að ýmsu leyti
skilja það.
Ráðherra vék að sláturhúsa-
málinu og sagði orðið mjög brýnt
að hagsmunaaðilar á NA-svæðinu
kæmu ser saman um sameigin-
lega niðurstöðu og hún þyrfti að
Iiggja fyrir sem allra fyrst því lítill
sem enginn tími væri til stefnu.
Anna Helgadóttir sagðist telja
að rót vandans væru stjórnvalds-
aðgerðir. Með markvissum hætti
væri stefnt á borgríki við Faxa-
flóa og um leið verið kerfisbundið
unnið að því að draga allan þrótt
úr landsbyggðinni.
Jón Grímsson ræddi um rann-
sóknir Orkustofnunar-manna á
setlögum í Öxarfirði og niður-
stöður þeirra sem ótvírætt bentu
til þess að þarna væri lífrænt gas,
ekki ósvipað og á olíusvæðum.
Hann vitnaði til skýrslu sem Jarð-
hitadeild Orkustofnunar hefði í
apríl sl. sent til Iðnaðarráðuneyt-
is þar sem fram kæmi sú skoðun
að nauðsynlegt væri að fylgja
þessum gasfundi eftir með ítar-
legri rannsókn, ekki síst vegna
þess að slík rannsókn gæti haft
þýðingu fyrir mat manna á líkum
þess að olíu- eða gaslindir sé ein-
hversstaðar að finna í þykkum
setlögum undan Norðurlandi.
í ljósi þessa sagði Jón óskiljan-
legt að þessu máli hefði ekki ver-
ið gefinn neinn gaumur og engu
líkara væri en þetta væri feimn-
ismál. Hann lét í ljós þá von að
fjárveitingavaldið brygðist skjótt
við og veitti fjármunum til þess-
ara rannsókna.
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, sagði að á sl.
sumri hefðu þingmenn kjör-
dæmisins í bréfi til orkumála-
stjóra óskað eftir að þetta mál
yrði skoðað. Hann upplýsti að
málið hefði síðan farið rétta
boðleið á borð fjárveitinganefnd-
ar en ekki hefðu fundist fjármun-
ir þetta árið til rannsókna. Guð-
mundur sagðist telja að ekki væri
um svo háar fjárhæðir að ræða,
sem samkvæmt rannsóknaráætl-
un væru ætlaðar á þessu ári til
þessa verkefnis, að Örkustofnun
ætti að geta af sinni fjárveitingu
lagt málinu lið.
Stefán Valgeirsson, alþingis-
maður, sagði að breyta þyrfti
hugsunarhætti í þjóðfélaginu og
með samstilltu átaki yrði að snúa
við þeirri öfugþróun í byggða-
málum sem hvarvetna blasti við í
landinu. Hann sagði stjórnvöld-
um bera skylda til að bregðast við
vanda Kópaskers og annarra
byggða sem ættu við svipaðan
vanda að etja.
Málmfríður Sigurðardóttir,
alþingismaður, sagði að þrátt fyr-
ir mikla erfiðleika mætti ekki
missa sjónar af því að Presthóla-
hreppur og NA-svæðið ætti miklar
auðlindir. Hún nefndi heita vatn-
ið og nýtingu þess í fiskeldi og
æðarvarpið. Málmfríður benti á
að atvinnuleysi á landsbyggðinni
kæmi verst við konur og þess
vegna hefði Kvennalistinn lagt til
stofnun sérstakrar kvennadeildar
við Byggðastofnun.
Skólastjóri grunnskólans á
Kópaskeri, Pétur Þorsteinsson,
sagði að Byggðastofnunarmenn
þyrftu ekki að gera sér ferð norð-
ur í land til þess að segja heima-
mönnum ítarlega frá hversu mik-
ið hefði fækkað fólki á svæðinu
á undanförnum árum. Hann
beindi þeirri spurningu til fulltrúa
Byggðastofnunar hvort stofnunin
hefði hugað að stuðningi við fjar-
vinnslustofur á landsbyggðinni.
í svari Sigurðar Guðmunds-
sonar kom fram að Byggðastofn-
un hefði komið að því máli, t.d. á
Selfossi, Vík í Mýrdal og nú síð-
ast á Hvammstanga. óþh
Kópasker:
Áskorun sem samþykkt var á ftmdinum
„Almennur fundur hreppsbúa
Presthólahrepps með þing-
inönnum kjördæmisins ásamt
embættismönnum haldinn á
Kópaskeri 15. febrúar 1990
beinir þeim tilmælum til ríkis-
stjórnarinnar og Byggðastofn-
unar að leitað verði allra leiða í
samráði við heimaaðila til að
renna styrkum stoðum undir
atvinnulíf í hreppnum á ný.
Er þar fyrst og fremst átt við
framleiðslugreinar, sem eru og
eiga að vera kjölfesta byggðar-
innar, en hafa oröið fyrir þung-
um áföllum.
Fundurinn telur að hér sem
annars staðar sé fjölbreytni í
atvinnulífi forsenda l'yrir stöð-
ugri búsetu og hér dugi því eng-
in ein aðgerð, heldur þurfi að
huga að öllum möguleikum og
sem bestri nýtingu á þeim
mannvirkjum, sem fyrir eru:
1. Vinna þarf að því að
útvega aukinn kvóta, bæði
rækju- og bolfiskkvóta, til að
skapa sjávarvinnslufyrirtækjum
á staðnum rekstrargrundvöll og
möguleika á að halda uppi
stöðugri atvinnu. Vel mætti
hugsa sér að leysa þau mál í
tengslum við aðgerðir á
Þórshöfn.
2. Matfiskeldinu á Kópaskeri
verði komið á legg á ný, í
tengslum við þær aðgerðir sem
eru í farvatninu í seiðaeldinu í
Ártungu í Kelduhverfi. Reyk-
ing cldisfisks verði endurvakin á
staðnum.
3. Tryggt verði að sú aðstaða
og fjárfesting sem liggur í slát-
urhúsinu á Kópaskeri verði nýtt
til slátrunar og/eða úrvinnslu
sauðfjárafurða, þannig að það
skapi sem inesta atvinnu árið
um kring.
4. Byggðastofnun verði falið
að aðstoða heimamenn við
undirbúning og stofnun alhliða
matvælavinnslufyrirtækis, sem
m.a. geti nýtt og unnið úr
sauðfjárafurðum og eldisfiski.
5. Gripið verði til sérstakra
ráðstafana til að bæta stöðu
sveitarfélaga eins og Presthóla-
hrepps, sem standa höllum fæti,
vegna undangenginna áfalla í
atvinnu- og byggðamálum.
6. Fundurinn skorar á fjár-
veitingavaldið að veita fé til að
áætlun um rannsókn á auðlind-
um í jörðu í Öxarfirði sern
starfsmenn Orkustofnunar
gerðu í apríl 1989 verði hrint í
framkvæmt nú þegar."