Dagur - 17.02.1990, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 17. febrúar 1990
Hreiðar “Kuggi“
Hreiðarsson,
eigandi
Blómaskálans
Vínar í Eyjafirði
greinir frá
veitingarekstri,
brúarsmíði,
vélsleðum
og ýmsu öðru
„Við erum verslunarstjórar, auglýsingastjórar, sjáum um blómaverslun, veitingarekstur, bensínsölu og guð má vita hvað. Svo hafa krakkarnir okkar
lagt sitt af mörkum og unnið hér baki brotnu.“ Þórdís Bjarnadóttir og Hreiðar Hreiðarsson. Myndir: kl
Hann átti sér draum og lét hann rætast.
Það kostaði margan svitadropann en með mikilli þrautseigju var
langþráðu takmarki náð sumarið 1984, þrátt fyrir þá trú margra að
draumurinn byggðist á ofurmannlegri bjartsýni.
Hreiðar Hreiðarsson, oftast nefndur Kuggi í Skák, lét allar
hrakspár sem vind um eyru þjóta og opnaði fullskapað hugarfóst-
ur, Blómaskálann Vín við Hrafnagil. Tæpra sex ára braut blóma-
skálans hefur oft á tíðum verið þyrnum stráð en hann hefur smám
saman skapað sér nafn og eigandinn er bjartsýnn á framtíðina.
Helgarblað Dags rekur að þessu sinni garnir úr Hreiðari um Vín,
ferðamannaþjónustu, brúarsmíði, vélsleða og fleira.
„Þetta er auðvitað mjög erilsamt, ekki síst
vegna þess að reksturinn mæðir mest á okk-
ur hjónunum. Við erum verslunarstjórar,
auglýsingastjórar, sjáum um blómaverslun,
veitingarekstur, bensínsölu og guð má vita
hvað. Svo hafa krakkarnir okkar lagt sitt af
mörkum og unnið hér baki brotnu. Án
þeirra hefði þetta verið afar erfitt.
Segja má að 70% af rekstrinum sé veit-
ingasala. Blómin hafa haldið sínum hlut en
óneitanlega hefur þrengst um á þeim mark-
aði. Fólk sem lítur hér við kaupir mest kaffi
og brauð. Þá er ísinn alltaf vinsæll og vin-
sældir hans fara vaxandi," segir Hreiðar
þegar ég bið hann að segja mér í stuttu máli
frá starfsemi Vínar.
Blómaskálinn Vín er við Hrafnagil í
Eyjafirði, aðeins nokkrum kílómetrum
sunnan Akureyrar. Hreiðar telur staðsetn-
inguna góða og vill álíta að slíkur rekstur
gangi ekki á Akureyri. „Ég tel það vera
minn styrk að vera fyrir utan bæinn. Akur-
eyringar vilja setjast upp í bílinn og fá sér
kaffi út í sveit. Ef eitthvað er hugsa ég að í
framtíðinni verði Vín of nálægt Akureyri."
Fékk garðyrkjuna í æð
Hreiðar er fæddur og uppalinn spölkorn frá
Hrafnagili, í Laugabrekku, sem tilheyrir
Kristnestorfunni. „Maður eyddi öllum sín-
um æskustundum í kringum hælið, sem
kannski var ekki mjög aðlaðandi leik-
svæði," segir hann og brosir.
Foreldrarnir heita Hreiðar Eiríksson og
Ragnheiður María Pétursdóttir. „Pabbi er
með þeim fyrstu sem útskrifuðust með garð-
yrkjupróf frá Garðyrkjuskóla ríkisins. Peg-
ar hann kom norður tók hann land á leigu
og byggði á því tvö gróðurhús. Maður
reyndi að hjálpa til og fékk því garðyrkjuna
fljótlega í æð.“
Hreiðar fékk sem smápolli það sérkenni-
lega gælunafn Kuggi. Ekki segist hann vita
hvernig á þessari nafngift stóð, en hann hafi
heyrt að pabbi hans hafi fyrstur byrjað að
nefna hann þetta. Til gamans má geta þess
að í Menningarsjóðsorðabókinni er orðið
kuggur gefið og merking þess lágvaxinn
gildur maður. Sú merking á hins vegar ekki
með réttu við spengilegan Kugga, eiganda
Vínar.
Sveinspróf í húsgagna- og húsasmíði
Á unglingsárunum vann Hreiðar með
skólanum á vinnustofu SÍBS í Kristnesi og
16 ára gamall hóf hann að læra þar hús-
gagnasmíði undir handleiðslu Friðriks
Kristjánssonar frá Tjörnum. Leiðin lá síðan
í Iðnskólann þar sem lokið var við bóklegt
nám í húsgagnasmíði. „Málin þróuðust
þannig að ég hætti fljótlega í húsgagnasmíð-
inni og Sveinn Jónsson í Kálfsskinni réði
mig í húsasmíðar. Á þessum tíma tók að
halla undan fæti í húsgagnasmíði í landinu
auk þess sem mér fannst ég frekar vera á
réttri hillu í húsasmíðinni.
Ég eignaðist marga og góða félaga í
vinnuflokknum hjá Sveini. Stærsta verkefn-
ið var smíði skólans hér á Hrafnagili. Ég fór
á samning hjá Sveini og þurfti ekki nema
tvö ár ofan á sveinspróf í húsgagnasmíðinni
til þess að ljúka sveinsprófi í húsasmíði.
Síðar náði ég mér í meistararéttindi í fag-
inu."
Med Alladin-ofna í brúarvinnu
Eftir þrjú ár hjá Sveini, sem Hreiðar kallar
„alveg stráheilan kall", lá leiðin til Akureyr-
ar. Par rugluðu þau Hreiðar og Þórdís
Bjarnadóttir kona hans saman reitum og
festu kaup á íbúð. Hreiðar fékk vinnu sem
flokksstjóri hjá Vegagerðinni við brúar-
smíði og skúrasmíði á vetrum.