Dagur - 17.02.1990, Page 11
Laugardagur 17. febrúar 1990 - DAGUR - 11
er um ferðamenn en í Waikiki.
á norðurhluta eyjarinnar þar
Gamalt Búddahof, Byodo-In, skammt frá húsinu í Kaneohe þar sem ég bjó,
Frá Honolulu
urinn var ekki sem verstur né heldur kol-
krabbakjötið. Bragðið? Ætli ég verði ekki
að nota sömu lýsingu á því og gamli
bóndinn austur á landi sem fékk að
smakka nýstárlegan rétt á öðrum bæ og
sagði hann hafa verið „dæmislíkastan
nashyrningskjöti" ! En einhvern tíma
brennir sá sig sem öll soðin vill smakka.
Akkílesarhæll minn var poi-grauturinn,
gerður úr jarðstöngli tarójurtarinnar sem
lengi var ein helsta fæða frumbyggja
Hawaii. Grautur þessi líkist að áferð og
útliti jógúrt nema hvað hann er grár og
bragðið líkast því sem maður getur
ímyndað sér af bráðnu gúmmíi. Sakir
eðlislægrar háttvísi minnar, sem iðulega
kemur mér í koll, lét ég þess getið eftir að
hafa smakkað lítillega á poi-inu að bragð-
ið væri „einkar áhugavert". Þetta hefði
ég betur látið ósagt því að gestgjafar
mínir töldu sig hafa hitt fyrsta útlending-
inn sem kynni að meta poi. Skipti því
engum togum að þeir settu fyrir mig kúf-
aðan disk af þessu gráa supli með mjólk
og sykri út á. Var nú ekki annað virðing-
arvænna en að reyna að koma þessu nið-
ur með góðu eða illu - og jókst ógleði mín
með hverri skeið. Einhvern veginn tókst
mér að klára af diskinum en ég átti líka
brýnt erindi á baðherbergið á eftir. Vina-
fólk mitt gladdi mig svo með því við
brottförina að séð yrði til þess að birgðir
yrðu til af poi-graut næst þegar ég kæmi
í heimsókn.
Mér varð ekki svefnsamt nóttina eftir
poi-átið og hafði því nógan tíma til að
hlusta á herbergisfélaga minn við iðju
sína. Það var smáeðla eða „gekkói" sem
lítt lét á sér kræla á daginn en varð þeim
mun starfsamari eftir að ljósin voru
slökkt. Gekkóar eru skordýraætur og
þykja mikil þarfaþing í húsum á Hawaii.
Frá einu fínasta hverfi Honolulu þar sem húsin kosta tugi milljóna. Hér kynnu þeir
að búa Magnum einkaspæjari og hjartaknúsarinn Richard Chamberlain.
Þeir hafa sogblöðkur á fótum og fara
hratt yfir veggi og gólf á næturna í leit að
matföngum. Hljóðin sem þeir gefa frá sér
minna á skoltaskelli í manni sem tyggur
með of víðan falskan góm í munni; og er
notalegt að sofna út frá þeim. Eins og títt
er um íslendinga stendur mér rótgróinn
beygur af öllu skordýrakyns og gestgjaf-
ar mínir voru ekki búnir að stríða mér lít-
ið fyrir heimsóknina á allri skordýrafán-
unni sem ég ætti eftir að sjá á Hawaii.
Þ.á m. er eitt einkennisdýra eyjanna:
Fljúgandi kakkalakkar. Raunar eru skor-
dýr plága í húsum á Hawaii og þótt víða
sé ekkert gler í gluggum eru þar alls stað-
ar þéttriðin vírnet í staðinn til að varna
kvikindunum inngöngu. En lánið lék við
mig: Ég sá engan fljúgandi kakkalakka
og moskítóflugurnar létu mig alveg í
friði. Ég á það örugglega mest að þakka
„herbergisfélaga" mínum sem lét ekki
sitt eftir liggja við að tryggja mér sálar-
og svefnfrið. Lifi gekkóarnir!
Á ferð um Oahu
Velsældin á Hawaii olli því smám saman
að kaup verkafólks á plantekrum hækk-
aði svo mjög að sykurrófur og ananas
þaðan var ekki lengur samkeppnisfært
við framleiðsluna frá láglaunasvæðum
Suður- og Mið-Ameríku. En þá kom ann-
að til bjargar: Ferðamannaútvegurinn
sem nú er aðalatvinnugrein eyjaskeggja.
Miðstöð hans er eins og áður segir á
Oahu, nánar tiltekið í Waikiki. Þar eru
flest hótelin og vinsælustu baðstrend-
urnar. Auðurinn sem ferðamennirnir
færa með sér veldur því að Hawaii er nú
eitt fylkja Bandaríkjanna án atvinnuleys-
is. Ástæðan fyrir því að fólk flyst ekki
þangað unnvörpum frá öðrum stöðum er
eingöngu hátt lóða- og íbúðaverð. Það er
mun hærra en á íslandi, hvað þá á
meginlandi Bandaríkjanna, og í fínustu
hverfum Honolulu getur gott einbýlishús
á íslenskan mælikvarða kostað allt að 60
milljónir.
Mig langar til að gefa löndum minum
heillaráð: Ef þið hafið einungis áhuga á
sól, strand- og næturlífi þá er engin
ástæða fyrir ykkur til að eyða peningum í
ferð til Hawaii. Það er ekkert það í
Waikiki sem ekki má fá fyrir minna verð
annars staðar, t.d. við Miðjarðarhafið. Að
vísu er gaman að berast með ólgandi
manniðunni milli glæsilegra verslana-
halla eftir að skyggja tekur en á daginn
er Waikiki eins og hver önnur baðströnd.
Það er hins vegar full ástæða til að sækja
Hawaii heim fyrir njótendur náttúru og
menningar. Þá er besta ráðið að leigja
sér bíl og aka um Oahu-eyju sem er raun-
ar yfrið verkefni í fyrstu ferð til Hawaii
þótt ekki sé eyjan stór i ferkílómetrum:
Aka má hringinn í kringum hana á einum
degi. En þar er margt að staldra við og
skoða. Nauðsynlegt er að eyða lungan-
um úr einum degi í Menningarmiðstöð
Pólýnesíu í Laie á norðausturströndinni.
Menningarmiðstöð þessi, sem rekin er af
Brigham Young háskólanum og að
mestu mönnuð stúdentum frá Hawaii og
öðrum Suðurhafseyjum, er nokkurs kon-
ar sambland af safni og skemmtigarði.
Þar fá gestir að njóta og taka þátt í
menningu frumbyggjanna, m.a. með
kennslu í ýmiss konar handbrögðum og
dansi. Deginum lýkur svo með glæsilegri
skrautsýningu og veislu að pólýnesísk-
um sið (luau). Öðrum degi þarf svo að
eyða í Sædýrasafninu á suðausturströnd
eyjarinnar þar sem sæljón og höfrungar
leika ótrúlegustu listir og skoða má
gamlan hvalbát - en hvalveiðar voru um
tíma mikilvæg atvinnugrein á Hawaii.
Nokkru sunnar er svo náttúrlegt
sædýrasafn: Hanauma-flói þar sem lit-
prúðir fiskar synda um og éta úr lófa
strandgesta.
Þannig mætti lengi telja. Þessi litla eyja
Oahu er með fjölda þjóðgarða og safna
nánast óþrjótandi skoðunarefni fyrir
áhugasaman ferðamann. Auk þess er
náttúmfegurðin víða slík að við Paradís
eina er að jafna; já, slík að draumsýnin
gamla um dulúð eyjanna bliknar frammi
fyrir veruleikanum. Honolulu, þar sem
„bylgjan brotnar", er einnig mjög
skemmtileg borg fyrir þá sem hætta sér
burt frá Waikiki. Ég mæli með Minjasafn-
inu (Bishop Museurn) og Arizona-minnis-
merkinu sem reist er yfir flaki eins þeirra
herskipa sem Japanar sökktu í Pearl
Harbour. Þá er nóg af lokkandi
„Kringlum" fyrir kaupglaða og matsölu-
húsum með úrvali frá öllum heimshorn-
um. Bestu sjávarréttamáltíð sem ég hef
borðað um dagana fékk ég á veitinga-
húsi John Dominis sem er mjög í dýrari
kantinum en kostaði þó aðeins tæpar
4500 krónur fyrir tvo.
Fyrir þá sem hafa vit á að varast poi-
graut verður heimsóknin til Hawaii eitt
óslitið ævintýri. Það er aðeins einn galli
við ferð eins og mína. Vinafólk mitt var
svo duglegt við að aka mér milli áhuga-
verðra staða að ég fékk ekki að eyða
nema dagsstund á ströndinni. Ég sneri
því heim á leið aftur nánast jafnfölur og
fyrr. Þar með var ekki nema tveggja
kosta völ: Svo að nokkur tryði því að ég
hefði dvalið um nær tveggja vikna skeið
á Hawaii varð ég að kaupa mér tíma á
sólbaðsstofu á Akureyri eða skrifa þessa
grein. Ég valdi seinni kostinn.
Höfundur, sem kennt hefur við M.A., stundar dokt-
orsnám i heimspeki.