Dagur - 17.02.1990, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 17. febrúar 1990
motarkrókur
Hallfreður
Örgumleiðason:
Táknræn mynd fyrir kjarasamningana. Til vinstri er smánartaxtalaunþeginn sem er búinn að herða sultarólina í
botn. Til hægrí er síðan fulltrúi launþegans í samninganefnd í góðum holdum.
Þórarinn segist bestur í uppvaskinu, enda hali hann keypt uppþvottavél
fyrir nokkrum árum. Mynd: kl
„Matarkrókur“ vikunnar:
Betri í „standard“
kallaréttum
- segir Þórarinn E. Sveinsson sem fékk
uppskrift af kjúklingasalati hjá konunni
Matarkrókurinn hefur
nú breytt um svip eins
og lesendur taka vafa-
laust eftir. Framvegis
er ætlunin að hafa það
snið á, að uppskriftirn-
ar verði fengnar með
áskorunum manna á
milli. Sá sem ríður á
vaðið er Þórarinn E.
Sveinsson, mjólkur-
samlagsstjóri hjá KEA
með meiru og gefur
hann lesendum upp-
skrift. af köldu kjúkl-
ingasalati og heima-
bökuðum hornum
með.
„Ég skal íúsiega vidurkenna
það hér og nú, að það er því
miður ekki mín deild að elda
mat hcima hjá mér, nema þessa
„standard" kallarétti cins og
slátur og grjónagraut, pylsur,
bjúgu og hamborgara. Ég er
nokkuö góður í þessunt réttum
og sömuieiðis er ég cinstaklega
góður í að hella upp á kaffi og
opna gosflöskur og nrjólkur-
fcrnur. Mín deiid er miklu frek-
ar að laga til eftir matinn. Upp-
vaskið cr mitt verk, enda keypti
ég uppþvottavél fyrir nokkrum
árum.-'
Pegar hér var komið sögu,
ákváðum við að ganga hreint til
verks og fengum uppskriftina
beint frá Ingu Einarsdóttur, eig-
inkonu Þórarins. Hún sagði að
uppskriftina hcfði hún fyrst
prófað á námsárunt þeirra í
Noregi en þar byrjuðu sömu-
leiðis tilraunir þeirra með ger-
bakstur enda Norðmenn dug-
legir við hann. Og hér fáum við
uppskriftirnar:
Kalt kjúklingasalat
I grillaður kjúklingur - kaldur
1 lítil dós mais
1 lítil dós anaitas í eigitt safa
4 gróft rifnar gulrœtur
I salathöfub, t.d. iceberg
l rauð paprika
Kjúklingurinn er skorinn í
bita. Safanum af maís og anan-
as er hellt, ananasinn, paprikan
og salatið cr skorið t bita og öllu
blandað saman í skál.
Sósa með
I dl majones
1 dós sýrðttr rjómi
2 tsk. sinnep
c.a. 6 dropar tabasco sósa
örlítið af cayenne pipar
Með þessu er boröað nýtt
brauð eða heimabökuð horn og
fylgir hér uppskrift af þeirn frá
Þórarni og Ingu:
Horn
400 g hveiti
100 g heilhveiti
3,5 dl mjólk
75 g sntjörlíki
2 tsk. salt
50 g pressuger
2 tsk. sykttr
Egg til penslunar, birki
eða sesantfræ ef vill
Bræðið smjörlíkiö og hitiö
mjólkina í c.a. 37 gráður. Gerið
er sett útí og þurrefnum svo
blandað samanvið. Deigið er
látið hefast í c.a. 1 klukku-
stund. Skiptið því næst deiginu í
3 hluta, hver hluti er flattur út
og skipt í 6-8 þríhyrninga
(sneiðar). Rúllið hverri snciö
upp, breiða endanum fyrst. Lát-
ið hornin lyfta sér í c.a. hálfa
klukkustund, penslið þau með
eggi og setjið fræ á ef þess er
óskað. Bakist við 250 gráður í
10-15 mínútur.
Þórarinn skorar á samflokks-
konu sína, Úlfhildi Rögnvalds-
dóttur bæjarfulltrúa í næsta
þátt. Aðspurður hvers vegna
sagði Þórarinn að hann hefði
borðaö hjá henni og ekki orðið
minni maður af, í orðsins fyllstu
merkingu. Úifltildur hefurtekið
áskoruninni og fá lesendur að
sjá uppskrift frá henni að hálf-
um mánuði liðnum. VG
Góðan daginn, ágætu launþeg-
ar. Það er bjart framundan því
launahækkanirnar fara að
streyma í umslögin. Langir og
strangir samningafundir skil-
uðu að vanda miklu pappírs-
flóði, fjölmiðlafári, orðagjálfri
og andvökunóttum, en að
þessu sinni virðast samnings-
aðilar hreinlega hafa gleymt að
semja um kauphækkanir. í
fávisku minni hélt ég að kjara-
samningar væru til þess fallnir
að semja um kaup og kjör.
Launþegar, þessir venjulegu
vinnuþrælar sem fá rækilega
sundurliðaða launaseðla frá
atvinnurekendum, hafa þurft
að grípa til sultarólarinnar
einn ganginn enn og axla mikla
kaupmáttarskerðingu. Samn-
ingar voru loks lausir þegar
ólin var komin í þrengsta gat
og bjóst maður þá við ein-
hverri leiðréttingu, ekki síst til
handa óbreyttu láglaunafólki
og smánartaxtaþrælum. En sú
von brást, þú getur farið tvisv-
ar til rakarans næsta árið fyrir
kjarabæturnar, launþegi
góður, það er allt og sumt.
Sjálfur er ég að hugsa um að
sleppa því að fara til rakarans
og kaupa mat fyrir það litla
sem þjóðarsáttin skilar mér.
Eða kannski blóm handa kon-
unni á konudaginn. Hitt er svo
annað mál að maður getur sætt
sig við rýra kauphækkun ef
verðbólgan kemst niður á heil-
brigt stig, verðlag hækkar ekki
og greiðslubyrði lána snar-
minnkar. Vissulega er óráðlegt
að gera út á slíkar forsendur
því það eru of margir eigin-
gjarnir og gráðugir menn í
þjóðfélagi voru til að slíkt geti
gengið upp. Auðvitað á matur,
innlendur sem innfluttur, eftir
að hækka í verði. Sömuleiðis
þjónusta og flestir liðir sem
telja í framfærsluvísitölunni.
Það er ekki pólitískur vilji fyrir
þjóðarsátt.
Eiginlega ætlaði ég að fjalla
um snjó og snjómokstur í dag,
en þar er afskaplega heitt mál
á ferðinni og óráðlegt að
blanda sér í þær deilur. Á hinn
bóginn getur maður óhræddur
fjasað um kjaramál því enginn
hefur áhyggjur af þeim lengur.
Gott dæmi um þennan sof-
andahátt er hrikalega léleg
þátttaka í atkvæðagreiðslu um
samningana í flestum stéttar-
félögum. Það er engu líkara en
að langsoltin alþýða hafi gefið
upp alla von og láti nú bjóða
sér næstum hvað sem er án
þess að æmta eða skræmta.
Skopfígúrur á borð við Guð-
mund og Ásmund sýna leikræn
tilþrif á mannamótum en
klappa sér á ístruna þess á
milli, hæstánægðir með hlut-
skipti sitt.
En ég var að ræða þjóðarsátt
og væntanlegar verðhækkanir.
Þær eru víða vísitölutryggðu
hækkanirnar í þjóðfélagi voru.
Hitaveitan hækkar, afnota-
gjöld, verðtryggð lán, svo og
vörur og þjónusta af ýmsu tagi.
Og það er nokkuð sama hvaða
fyrirheit eru gefin, innkaupa-
karfan verður sífellt dýrari.
Eftirlit er lélegt og því miður
eru kaupmenn margir hverjir
duglegir að smyrja á og breyta
verði. Kannski skilja þeir ekki
hvað átt er við með hugtakinu
þjóðarsátt. Besta vörnin er
verðskyn neytenda. Látið í
ykkur heyra, skrifið í blöðin
þegar þið sjáið menn rugla
saman þjóðarhag og eiginhags-
munum.
Jæja, það er best að vera
ekki svartsýnn. Það á eftir að
koma í ljós hvernig þjóðarsátt-
in reynist. Þessi furðulega vest-
ræna neysluþjóð af víkinga-
kyni getur staðið saman þegar
á reynir. Við stöndum vel sam-
an þegar strákarnir okkar
vinna glæsta sigra í handbolt-
anum. Líka þegar tollar eru
lækkaðir á bílum, eldgos og
snjóflóð herja á byggðarlög,
lambakjöt sett á útsölu og
þannig mætti halda áfram að
nefna dæmi um samstöðu ís-
lendinga. Sannarlega hjart-
næmt.
Stundum hef ég bent á þá
einföldu staðreynd að við get-
um öll lifað mannsæmandi lífi
ef við vinnum saman og reyn-
um að skipta kökunni á réttlát-
an hátt. Ég ætla því að halda í
vonina, dansa með hinum og
bölsótast þegar bíllinn situr
fastur en brosa þegar launin
standa í stað. Brosa í bankan-
um, kíma við gluggaumslögum
og skellihlæja í helgarinn-
kaupaferðum. Sláist í förina og
brosið með.
Kætumst yfir
kjaraskerðingTi