Dagur - 17.02.1990, Page 13
Laugardagur 17. febrúar 1990 - DAGUR - 13
Sveitahraðkeppni BA
og Sjóvá-Almennra:
Sveit Grettis
í efsta sæti
Sveit Grettis Frímannssonar er
efst eftir eitt spilakvöld af
þremur í sveitahraðkeppni
Bridgefélags Akureyrar og
Sjóvá-Almennra. Keppnin
hófst í Félagsborg s.l. þriðju-
dagskvöld en verður fram
haldið þriðjudaginn 20. feb. og
líkur svo þriðjudaginn 27.
febrúar.
Ellefu sveitir taka þátta í
keppninni en staða efstu sveita er
þessi: stig
1. Grettir Frímannsson 303
2. Örn Einarsson 292
3. -4. Stefán Vilhjálmsson 277
3.-4. Hermann Tómasson 277
5. Zarioh Hamadi 276
6. Sigfús Hreiðarsson 272
7. Ormarr Snæbjörnsson 271
Reglugerð
um
landverði
Menntamálaráðherra hefur
sett reglugerð um landverði.
Byggist hún á breytingu sem
Alþingi samþykkti sl. vor á
lögum nr. 47/1971 um náttúru-
vernd.
Reglugerðin snýr fyrst og
fremst að eftirliti og fræðslu land-
varða í þjóðgörðum og friðlýst-
um svæðum sem eru í umsjá
Náttúruverndarráðs. Hlutverk
landvarðanna er að gæta þess að
ákvæði friðlýsingar og náttúru-
verndarlaga séu virt, auk þess
sem þeir koma á framfæri upplýs-
ingum og fræðslu til ferðafólks
um náttúru og sögu þeirra svæða
sem þeir vinna á.
Kveðið er á um það í reglu-
gerðinni að Náttúruverndarráð
skuli standa fyrir opnum nám-
skeiðum fyrir alla þá sem hafa í
hyggju að vinna við Iandvörslu.
F>ar er megináhersla lögð á
náttúrufar og þjóðlíf á íslandi,
náttúruvernd og umhverfisrétt,
umhverfisfræðslu og dagleg störf
við landvörslu.
Náttúruverndarráð hefur sam-
þykkt að þessi námskeið skuli
haldin á tveggja ára fresti, og
verður væntanlega auglýst eftir
þátttöku í næsta námskeið í lok
þessa árs.
Landverðir starfa nú á vegum
Náttúruverndarráðs í þjóðgörð-
unum í Skaftafelli og Jökulsár-
gljúfri og í friðlöndum að Fjalla-
baki og á Hornströndum. Þá hef-
ur Náttúruverndarráð samstarf
við ferðafélög um landvörslu í
Herðubreiðarlindum, Hvanna-
lindum, á Hveravöllum og í
Landmannalaugum.
Nýfar
vörur
Blóma-
húsið
GrÍérárgötu 28
Síxni 22551
Opið til kl. 21.00 alla daga
15. febrúar 1990
BREYTING Á
REGLUGERÐUM
Læknaþjónusta
Greiðslur hjá heimilislækni og
heilsugæslulækni.
0 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis á dagvinnu-
tíma þ.e. á milli kl 0800 og 1700. Inni-
falin er ritun lyfseðils.
500 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis utan dag-
vinnutíma og á helgidögum. Innifalin
er ritun lyfseðils.
400 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings á dag-
vinnutíma.
1000kr.-Fyrir vitjun læknis til sjúklings utan
dagvinnutíma.
Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp og
komur á göngudeild, slysadeild og
bráðamóttöku sjúkrahúss.
900 kr. - Fyrir hverja komu til sérfræðings, á
göngudeild, slysadeild og bráðamót-
töku sjúkrahúss.
300 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja
komu til sérfræðings, á göngudeild,
slysadeild og bráðamóttöku sjúkra-
húss.
Greiðslur fyrir rannsóknir og
röntgengreiningu.
300 kr. - Fyrir hverja komu.
100 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja
komu.
Elli- og örorkulífeyrisþegar skulu
aldrei greiða samanlagt hærri fjár-
hæð en kr. 3000 á einu almanaksári
fyrir sérfræðilæknishjálp, komu á
göngudeild, slysadeild, bráðamót-
töku sjúkrahúss, rannsóknir og
röntgengreiningu.
Allir eiga að fá kvittanir fyrir þessum
greiðslum. ~
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir.
Innifalinn í greiðslu er kostnaður vegna hvers
kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar.
Lyjjakostnaður
Greiðslur fyrir lyf.
550 kr. - Fyrir lyf af bestukaupalista.
170 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja
lyfjaafgreiðslu af bestukaupalista.
750 kr. - Fyrir önnur lyf sem greidd eru af
sjúkratryggingum.
230 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir önnur
lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum.
Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfja-
skammt, eða brot úr honum.
Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfja-
búð fást ókeypis ákveðin lyf, við tilteknum
langvarandi sjúkdómum. Læknar gefa vottorð til
Tryggingastofnunar ríkisins í þeim tilvikum, sem
réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi.
SKÝRINGAR Á FRAMKVÆMD REGLUGERÐAR NR. 62/1990 UM GREIÐSLUÞÁITTÖKU SJÚKRATRYGGÐRA
í LÆKNISHJÁLP O.FL.
Koma til helmilis- eða hellsugæslulæknis
Koma til heimilis- eöa heilsugæslulæknis á dagvinnutíma er sjúkl-
ingi ætíð að kostnaðarlausu. Það skiptir ekki máli hvort um er að
ræða bráðakomu eða komu skv. tímapöntun.
Vegna komu til heimilis- eða heilsugæslulæknis utan dagvinnu-
tima greiðir sjúklingur kr. 500 nema læknir hafi beinllnis sjálfur
ákveðið að sinna læknisstarfinu utan dagvinnutíma.
Sjúklingur greiðir fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rann-
sóknastofu heilsugæslustöðvar (ef sérstakur starfsmaður sér um
rannsóknastofuna). Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en
kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkul ifeyrisþega) i
hverri komu.
Koma til sérfræðings
Fyrir komu til sérfræðings og endurteknar komur til sérfræðinga
greiðir sjúklingur í hvert skipti kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulíf-
eyrisþega).
Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og
rannsóknir á rannsóknastofu ef um það er að ræða. Sjúklingur
greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir
hvort fyrir elli- og örorkuIffeyrisþega) í hverri komu.
Fari sjúklingur í aðgerð og svæfingu greiðir hann aðgerðarlækni kr.
900 og svæfingalækni kr. 900 (kr. 300 + 300 fyrir elli- og örorkulíf-
eyrisþega).
Koma á slysavarðstof u
Sjúklingur greiðir kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulífeyrisþega)
vegna komunnar.
Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og
rannsóknir á rannsóknarstofu ef um það er að ræða. Sjúklingur
greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir
hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu.
Rannsóknirá rannsóknarstofu
Sjúklingur greiðir kr. 300 (elli og örorkulífeyrisþegar kr. 100) fyrir
hverja komu til rannsóknar á rannsóknastofu heilsugæslustöðvar,
sjúkrahúss eða annarrar stofnunar. Þótt hluti rannsóknarsýnis sé
sendur annað til rannsóknar greiðir sjúklingur ekki viðbótargjald
vegna þess. Sendandi sýnis skal gera grein fyrir því á rannsóknar-
beiðni hvort sjúklingur sé þegar búinn að greiða vegna rannsókn-
ar, sem fram fór á sýnistökustað.
Röntgengreining
Vegna hverrar komu til röntgengreiningar, á heilsugæslustöð eða
annars staðar, skulu sjúklingar greiða kr. 300 (kr. 100 fyrir elli- og
örorkul íf eyrisþega). Ekki skiptir máli hvaðan sjúklingurkemur, þ.e.
frá heilsugæslulækni, heimilislækni eða sérfræðingi.
Hvers kyns önnur innheimta hjá sjúkiingum en að framan greinir,
þ.m.t. vegna einnota vara, umbúða o.þ.h., eróleyfileg.
HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS