Dagur - 17.02.1990, Page 17
I
Laugardagur 17. febrúar 1990 - DAGUR - 17
efst f hugo
Engin æsifrétta
mennska hér
Hugtökin jákvætt og neikvætt eru oft viö-
höfö um fjölmiðlun og þá sérstaklega hið
síöarnefnda. Fjölmiðlar eru sakaöir um
aö greina aöeins frá gjaldþrotum og öör-
um miður skemmtilegum atburöum í
þjóðlífinu en láta þess ógetiö sem vel er
gert. Viö sem störfum hjá fjölmiðlum
verðum auðvitað að skoöa gagnrýni af
þessu tagi og ganga úr skugga um hvort
hún eigi viö rök að styðjast. Kröfuna um
hlutlausa fréttamennsku veröur að virða
svo fólk missi ekki allt traust á fjölmiðlun-
um, en á hinn bóginn getum við ekki ráð-
ið því hvort einstök mál séu í eðli sínu
neikvæð eða jákvæð. Gjaldþrot fyrir-
tækja geta aldrei verið jákvæð en okkur
er skylt að greina frá þeim gjaldþrotum
sem við fréttum af. Á sama hátt er okkur
skylt að geta þess þegar fyrirtæki ganga
vel eða koma með merkilegar nýjungar,
en af einhverjum ástæðum fréttum við
mun sjaldnar af slíkum atburðum. Ætli
almenningur telji fréttir ekki vera fréttir
nema þær séu neikvæðar?
Dagur er háður lesendum sínum í
sambandi við efnisöfiun. Blaðamenn
leita frétta um allt Norðurland og fá líka
stundum upphringingar eða ábendingar.
Þannig fæðast fréttirnar. Að sjálfsögðu
vakir það ekki fyrir okkur að smjatta á
einhverjum hörmungum eða bágindum
og við tökum jafn fúslega við fréttum
burtséð frá því hvort þær teljast góðar
eða slæmar. Blaðamaður sem kominn
er með ákveðið mál í hendurnar vinnur
úr því og skýrir frá staðreyndum. Þetta
virðast ekki allir skilja. Stundum rjúka
menn upp og kenna blaðamanni um orð
sem höfð eru orðrétt og innan gæsa-
lappa eftir nafngreindum viðmælanda.
Þeir segja jafnvel upp blaðinu vegna
þess að þeir eru ekki sáttir við einhver
ummæli sem þar birtast.
Ég get auðvitað aðeins talað fyrir
munn blaðamanna Dags þegar ég segi
að við höfum frjálsar hendur í fréttaflutn-
ingi. Okkur er ekki fyrirskipað að ráðast
á neinn eða hlífa öðrum, aðeins að upp-
lýsa lesendur um þaö sem er að gerast í
kringum okkur. Þessu virðist öfugt farið
t.d. á DV. Það er engu líkara en að
fréttastefna blaðsins sé í því fólgin að
ráðast á íslenskan landbúnað. Ég er
hræddut um að það yrði sprenging ef
Dagur færi að birta svipaðar „fréttir" um
ákveðna atvinnugrein, s.s. lögfræöi eða
tannlækningar. Sem betur fer þurfum við
ekki að þola slík höft. Þið getið litið á
fréttir Dags í vikunni sem er að líða. Þær
koma úr ýmsum áttum og eru meira að
segja langflestar jákvæðar. Auðvitað
fréttum við ekki af öllu sem er að gerast,
en þar geta lesendur komið til hjálpar og
bent okkur á hvaö er á seyði. En nú er
rýmið á þrotum og læt ég staðar numið.
Stefán Sæmundsson.
TIL SÖLU
EÐA LANGTÍMA LEIGU
Fyrsta flokks skrifstofuhúsnæði
Staðsetning:
Húsnæðið er á 2. hæð, að austan í Tryggvabraut 22.
Góð aðkeyrsla að sunnan og norðan (snjóbræðslu-
kerfi) og næg bílastæði, laus við þrengsli miðbæjarins
og aðkeyrsluvandamál Glerárgötunnar.
Að innan:
Húsnæðið er allt nýinnréttað.
★ Stærð, um 170 m2 að innanmáli og 200 m2 með sameign.
★ Lýsing, vönduð niðurhengd Ijós.
★ Gott andrúmsloft, slitsterkur nýr linoliumdúkur á mestum
hluta gólfflatar.
★ Tengingar, rafmagns- og tölvulagnir í veggstokkum, sér
tengi fyrir tölvur.
★ Bjart húsnæði, opið, útsýni út fjörðinn, rúmgóð kaffistofa
(og bakarí á neðri hæðinni), steypt skjalageymsla með
hillum.
★ Innifaldir nokkrir lengdarmetrar af áföstum beykifráleggs-
borðum í vinnuhæð og álrimlagardínur eru fyrir öllum
gluggum.
★ Tengt símakerfi getur fylgt með.
Verð og greiðslukjör:
Verð er undir framreiknuðu kostnaðarverði.
Langtíma greiðsluskilmálar eru vel til umræðu.
Nánari upplýsingar veita: Valtýr og Gunnar í síma
26600.
Ijósvakorýni
Stephan G. Stephansson
kvað:
Bundinn gestur að ég er
allra best ég gleymi
þegar sest á sumri hér
sól í Vesturheimi.
Næstu vísu orti Sveinn
Hannesson. Tilefnið virðist
liggja ljóst fyrir.
Hafði ungur hóf við Svein.
Hreyfðu ei þungum nótum.
Eiturslunginn á hann flein
undir tungurótum.
Pá koma þrjár gamanvísur
eftir Ólínu Jónasdóttur.
Endurfundir:
Peim hefur verið þörfað sjást,
þrá í æðum blossar.
Skyldu þeir í ætt við ást
allir þessir kossar.
Lækningin:
Ást ei fipast enn sitt starf,
úr þér hripar gigtin
og í svipan einni hvarf
árans piparlyktin.
Piparsveinninn:
Öruggt rennir út á svið,
unaðs kennir sálin.
Hann er enn að álpast við
ásta- og kvennamálin.
Halldór Friðriksson mun hafa
kveðið þessa vísu í sjúkra-
húsi. Hann var frá Helgastöð-
um í Reykjadal:
Svefns á vængjum víða fer,
verður Ijúft að dreyma
ef í blundi birtast mér
brekkurnar mínar heima.
Þóra Sigurgeirsdóttir er síðar
bjó að Hrappsstöðum í Kinn,
orti þessa 14 ára að aldri:
Roðna fjöll í árdagseldi
ymur loft af fuglasöng.
Par sem ríkir vorsins veldi
verður engum nóttin löng.
Baldvin skáldi kvað:
Reykjadalur reynist skárst
rauna sviptur trega.
Par er heilög hjónaást
haldin allavega.
Baldvin stóð að slætti er þessi
vísa varð til:
Grundu á er gott að slá
gilið háa viður.
Fagurbláum fyrir Ijá
falla stráin niður.
Þessi ágæta vísa er eftir
Jóhann Ólafsson í Miðhús-
um.
Proskun andans má sín mest,
metum land og framann
með að vanda verk sem best
vinna og standa saman.
Jón Jónsson Skagfirðingur
kvað:
Ég vil heyra hetjuraust
helst það léttir sporin
þess, sem yrkir undir haust
eins og fyrst á vorin.
Páll Jónsson á Laugum sá pilt
og stúlku sitja saman á mið-
stöðvarofni og vísa varð til:
Unga parið eitt ég sá
áðan, hvar það tafði á meðan
vermdist heitum ofni á
ást, sem hafði kólnað neðan.
Á hundavaði, heita þessar
vísur Torfa Guðlaugssonar:
Hálfa ævi heilann braut
hvort af leiddi skaði,
áfram þó ég eins og naut
æddi á hundavaði.
Og þegar lífs ég lít um veg
líst mér einfalt svarið.
Á hundavaði hefi ég
helming leiðar farið.
Pó að fúinn fari knör
finnst mér lítill skaði
eða lúinn Ijúki för
lífs á hundavaði.
Umsjón:
Jón
Bjarnason
frá Garðsvík
Þá koma heimagerðar vísur.
Á fjörugum dansleik:
Víst er rétt að varast má
viðbrögð glettin fríðra svanna
en hér er létt að hrasa á
hálublettum freistinganna.
Á leiðinlegum félagsfundi:
Daufur finnst mér fundurinn,
fáir menn og kerling ein,
enda hímir andi minn
eins og dróg við hestastein.
Jón Rafnsson orti er hann fór
um Meyjarskarð að vorlagi:
Oft á mínum vegi varð
visin jörð og lítil spretta.
Margoft fór ég meyjarskarð
miklu gróðursælla en þetta.
Næstu vísurnar þrjár kvað
Haraldur Zophoníasson.
Þorri.
Sýndi veðra dillidans
dróttum, þorri góður.
Festi í vitund frónbúans
fagran minjagróður.
Þíðviðri. (Sléttubönd.)
Sjatna fannir, geislagamm
geysa vorið lætur.
Vatnahrannir falla fram.
Frerasporið grætur.
Veðurbreyting.
Brugðið er átt til betra veðurlags.
Blíður er svipur þessa maídags.
Góðviðrisblika vefur himins höll.
Hýrvindar blása vestur yfir fjöll.
LAHDSBANKI
í S L A N D S
NÁM A-N
NÁMU NÁMSSTYRKIR
Landsbanki íslands auglýsir eftir umsóknum um
tvo styrki sem veittir verða NÁMU-félögum.
á’i Einungis aðilar að námsmannaþjónustu
Landsbanka íslands, NÁMUNNI, eiga rétt á að
sækja um þessa styrki.
B Allir þeir, sem gerst hafa félagar í NÁM-
UNNI fyrir 15. mars 1990, eiga rétt á að sækja um
styrk vegna þessa námsárs.
B>i Hvor styrkur er að upphæð 100 þúsund
krónur og verða þeir afhentir í byrjun apríl 1990.
gj Umsóknir er tilgreini námsferil, heimilishagi
og framtíðaráform, skal skilað til Landsbanka ís-
lands eigi síðar en 15. mars næstkomandi.
B.HB Umsóknir sendist til:
Landshanki íslands, Markaðssvið,
b.t. Ingólfs Guðmundssonar,
Austurstrœti 11, 155 Reykjavík.
Náman er nafn á heildarþjónustu Landshanka íslands, sem er sér-
staklega sniðin að þörfum námsfólks. Allir námsmenn 18 ára og eldri
eiga rétt á að sœkja um aðild að þessari þjónustu.
t NÁMUNNl er nú m.a.:
- Einkareikningur með yfirdráttarheimild, 3 ókeypis tékkhefti,
einkareikningslán o.fl.
- Kjörbók, háir vextir, ekkert úttektargjald efkeypt eru verðbréf.
- Visa-kort strax við upphaf viðskipta.
- Námslokalán, allt að 500.000,-, lánstimi allt að 5 ár, viðtal við
bankastjóra óþarft.
- Ráðdeild, þjónusturit Landsbankans, ókeypis áskrift.
- Filofax-minnisbók, ókeypis eftir 6 mánaða skilvís viðskipti.
- Slyrkveiting, tveir styrkir á hverju ári.
- Dreifing og móttaka gagna fyrir Lánasjóðinn, eyðublöð og
bœklingar LÍN liggja frammi í afgreiðslum Landsbankans. Af-
henda má öll gögn sem eiga að fara til LÍN í afgreiðslum
bankans. Viðkomandi afgreiðslustaður sér siðan um að koma
gögnunum til LÍN samdœgurs.
- Ráðgjöf og upplýsingar, sérstök mappa með upplýsingum, út-
reikningum á greiðslubyrði lána o.fl.
Til að öðlast þessi réttindi þarf aðeins að stofna Kjörbók og Einka-
reikning. Peir námsmenn sem fá lán frá LÍN verða einnig að leggja
námslánin inn á Einkareikning.
I