Dagur - 17.02.1990, Síða 18
oí „ diiíiAn — nppj- iRíiiflcj!- Tl' innRh'iKruiR I
18 - DAGUR - Laugardagur 17. febrúar 1990
Góð heimsókn til KFUM
og K á Akureyri
Miðvikudaginn 21. febrúar n.k.
er væntanlegur í stutta heimsókn
til Akureyrar, Ulrich Porzany,
aðalframkvæmdastjóri KFUM í
Vestur-Þýskalandi. Porzany er
staddur hér á landi í boði hinna
ýmsu leikmannahreyfinga innan
íslensku þjóðkirkjunnar. Hann
talar á samkomum í Bústaða-
kirkju í Reykjavík frá 18.-25.
feb. að miðvikudeginum 21. frá-
töldum, en þá verður hann, sem
fyrr segir hér á Akureyri og talar
á samkomu í félagsheimili
KFUM og K í Sunnuhlíð. Sam-
koman hefst kl. 20.30. Ulrich
Porzany er áhrifamikill predik-
ari. Hann hefur tekið talsverðan
þátt í alþjóðlegu samstarfi innan
kirkjunnar m.a. í Lausanne-
hreyfingunni, og var einn af
ræðumönnunum á Lausanne II
ráðstefnunni í Manila á Filippseyj-
um sl. sumar. Að sjálfsögðu eru
allir velkomnir á samkomuna í
Sunnuhlíð og eru allir þeir, sem
áhuga hafa á Kristni og eflingu
trúarlífs, hvattir til þess að koma
og hlýða á þennan merka predik-
ara. Porzany flytur mál sitt á
ensku en túlkað verður jafnharð-
an á íslensku.
Leikfélag MA:
Síðdegisvaka á suramdag
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri fagnar 50 ára afmæli
sínu um þessar mundir. Af þessu
tilefni boðar leikfélagið til síð-
degisvöku í Möðruvallakjallara
kl. 16 á sunnudaginn.
Á síðdegisvökunni ætla félagar
úr LMA að rifja upp leikrit sem
félagið hefur sett upp á undan-
förnum fjórum árum. Fluttir
verða kaflar úr verkunum.
Einnig verða önnur atriði á
dagskrá og óvæntar uppákomur.
Priðji bekkur stendur fyrir kaffi-
sölu meðan á skemmtuninni
stendur og þá verða myndir til
sýnis úr sögu Leikfélags Mennta-
skólans á Akureyri.
TILKYNNING
Frá föstudegi 16. febrúar verður starfsemi raf-
eindaverkstæðis Raflands hf. hætt.
Viljum við þakka viðskiptavinum okkar viðskiptin á
liðnum árum og benda þeim á verkstæði Hljómvers
við Glerárgötu.
Raftækjaverslunin verður starfrækt
áfram.
01
Sl
Rafland hf.
Rafeindaverkstæðl
Raftækjaverslun
Sunnuhllð 12 • P.O.Box 516 602 Akureyri ■ Sími 96-25010
Nýtt úr notuðu!
Endurvinnslan hf. KA-heimilinu við
Dalsbraut tilkynnir:
Opið virka daga frá kl. 13.00-18.00, nema á
miðvikudögum er lokað.
Munið aðra móttökustaði einnota umbúða á
Norðurlandi.
[MWRMHSIAN Hf
KA-heimilinu við Dalbraut.
Sími 23482.
hvað er að gerast
Guðmundur Ármann í nýrri vimiustofu
í dag, laugardaginn 17. febrúar kl. 16-20 opnar Guðmundur Ármann nýja
vinnustofu í Listaskálanum, Kaupvangsstræti 16 (bak við Myndlistarskól-
ann). Af þessu tilefni heldur Guðmundur sýningu á grafík og málverkum.
Sýningin verður opin kl. 16-20 alla virka daga, en kl. 14-20 um helgar. Þessa
mynd tók KL af Guðmundi í nýju vinnustofunni. SS
Eyfirðingafélagið í Reykjavík:
Árshátíð um aðra helgi
Tónlistarskólinn
á Akureyri:
Tónleikar á
sunnudagiim
Örnólfur Kristjánsson sellóleik-
ari og Nigel Lillecrap píanóleik-
ari munu halda tónleika næst-
komandi sunnudag, 18. febrúar,
kl. 17.00 á sal Tónlistarskólans á
Akureyri.
Örnólfur stundaði nám við
Tónlistarskóla Kópavogs hjá Páli
Gröndal og við Tónlistarskólann
í Reykjavík hjá Gunnari Kvaran.
Hann stundaði framhaldsnám við
Mannes College of Music í New
York þar sem hann lauk prófi
árið 1988.
Nigel Lillecrap er Englending-
ur og stundaði hann nám við
Royal Northern College of Music
í London.
Örnólfur og Nigel eru báðir
starfandi sem kennarar við Tón-
listarskólann á Akureyri. Á efnis-
skránni eru verk eftir J.S. Bach,
Vivaldi, Brahms og Fauré.
Priggja daga hugleiðslunámskeið
verður haldið á Akureyri dagana
23. til 25. febrúar. Námskeiðið er
ætlað byrjendum í hugleiðslu og
hugrækt, og er ætlað fólki sem
vill opna sig fyrir betri skilningi á
sjálfu sér á vatnsberaöld. Einn
Árshátíð félagsins verður haldin í
Félagsheimili Kópavogs, Fann-
borg 2, laugardaginn 24.02. 1990.
Húsið verður opnað kl. 19.00
og borðhald hefst kl. 20.00.
Fjölbreyttur matur við allra
hæfi.
Ræðumaður kvöldsins verður
Halldór Blöndal.
þáttur kennslunnar fjallar um þá
tegund hugleiðslu sem er grund-
völlur huglækninga einstaklings-
ins á eigin líkama. Upplýsingar
gefur Árný í síma 21312, milli kl.
19 og 21 næstu kvöld.
Mjög eftirsóknarverðir happ-
drættisvinningar, m.a. 2 málverk
eftir hinn ágæta listamann Krist-
inn G. Jóhannsson á Akureyri,
flugferðir milli Reykjavíkur og
Akureyrar og margt fleira.
Hin bráðskemmtilega hljóm-
sveit Birgis Gunnlaugssonar sér
um fjörið.
Vonast er til að þeir Eyfirðing-
ar í heimahögum, sem staddir
verða sunnanlands um þessa
helgi, noti tækifærið og skemmti
sér með okkur.
Forsala aðgöngumiða verður
miðvikudaginn 21.02. 1990 í
félagsheimilinu milli kl. 20.00 og
22.00. Bráðnauðsynlegt er að
sækja miðana og panta borð á
þeim tíma.
Utanbæjarfólk getur pantað
miða í síma á sama tíma.
Allar upplýsingar gefa: Lilja,
sími 43295; Anna, sími 43159;
Gunnlaug, sími 41202.
Akureyri:
Hugleiðslimámskeið
íyrir byrjtMidur
Utsafo
Útsalan hefst
mánudaginn
19. febrúar
Utsata
'Jliku.vQ’iiLun J>teínunnú.t_
—Hafnarstræti 98 • Akureyri • Sími (96) 22214-