Dagur - 17.02.1990, Blaðsíða 20
Loðnan:
Bræla var komin á loðnumið-
unum fyrir suðaustan land í
fyrrinótt og því lítil veiði. A
timmtudag var hins vegar
besta veður og þá veiddu 18
skip 11240 tonn af loðnu.
Guðmundur Ólafur ÓF var á
leið til Ólafsfjarðar með 600 tonn
í gær og Súlan EA og Örn KE
voru bæði á leið norður fyrir land
með fullfermi í gær. Loðnunefnd
hafði þá borist óstaðfestar fréttir
af því að skipin ætluðu til löndun-
ar á Siglufirði.
Nú hafa í heild veiðst 454 þús-
und tonn af loðnu á vertíðinni.
Eftir áramót eru komin 400 þús-
und tonn á landi og segja má því
að síðari hluti vertíðarinnar hafi
bætt þann fyrri upp. JÓH
Nemendur VMA munu reka útvarp á Opnum dögum í skólanum og hefjast útsendingar kl. 13.00 í dag. Sent verður
út í sex daga og geta bæjarbúar hlustað á útsendingarnar á FM 104,9. Mynd: kl
Líflegur opinn fundur á Kópaskeri sl. fimmtudagskvöld:
Okkur sýnist að KNÞ verði
tæpast forðað frá gjaldþroti
- sagði Sigurður Guðmundsson,
forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar
„Eg legg til að Byggðastofnun
verði flutt til Kópaskers,“ voru
orð Jóhanns Helgasonar, bónda
á Leirhöfn í Presthólahreppi, á
fjölmennum opnum fundi í
grunnskólanum á Kópaskeri
sl. limmtudagskvöld með
alþingismönnum Norðurlands-
kjördæmis eystra, fulltrúum
Samvinnubankans og Byggða-
stofnunar. Til fundarins var
boðað vegna alvarlegrar stöðu
Presthólahrepps og þeirra
miklu erfiðleika sem atvinnulíf
á staðnum stendur frammi
fyrir.
Tilvitnuð orð Jóhanns Helga-
sonar voru kannski meira í gamni
en alvöru en þó var greinilegt að
alvara bjó að baki. Miklar
umræður urðu á fundinum og í
máli manna mátti greina ugg með
stöðu mála.
Sigurður Guðmundsson, for-
stöðumaður þróunarsviðs Byggða-
stofnunar, talaði mjög tæpi-
tungulaust um ástandið í hreppn-
um og fannst mörgum heima-
manna að óþarfa svartnættis gætti
í hans málflutningi.
„Okkur sýnist að kaupfélaginu
verði tæpast forðað frá gjald-
þroti,“ sagði Sigurður m.a. í sinni
ræðu. „Sennilega er gjaldþrot nú
dýrara og erfiðara en ef það hefði
komið til fyrr. Sannast þar að illu
er best af lokið.“
Sigurður sagði aðjjegar Sæblik
hf. hafi fest kaup á Arna á Bakka
ÞH á sínum tíma hafi starfsmenn
Byggðastofnunar verið því mót-
fallnir. „Engu að síður var í þau
kaup ráðist. Fegar upp frá því
dæmi var staðið hafði Byggða-
stofnun þurft að afskrifa um 24
milljónir króna, en það sem verra
var; sveitarfélagið var í fjárhags-
legri rúst.“
„Ef við Byggðastofnunarmenn
kæmum hér til að segja að fram-
undan séu blómatímar, þá vær-
urn við að blekkja ykkur og það
viljum við ekki gera. Petta
svæði líður nú fyrir það ábyrgðar-
leysi sem viðhaft var í sambandi
við Sæblik hf. og þó sérstaklega
þegar Árni á Bakka var keyptur.
Af þeim sökum stendur nú sveit-
arsjóður uppi með vandamál sem
er miklu stærra en svo að það
verði leyst af þeim íbúum sem eftir
eru í hreppnum, þrátt fyrir að
tekist hafi að lækka skuldir og
bjarga málum fyrir horn, í bili að
minnsta kosti. Slíkt má að sjálf-
sögðu aldrei gerast aftur, hvorki
hér né annars staðar. Af þessum
ástæðum er tómt mál um að tala
að sveitarsjóður ráðist á næstu
árum í neinar framkvæmdir eða
rekstur til að bæta þjónustu við
íbúða staðarins.“
Þrátt fyrir þá dökku mynd sem
Sigurður dró upp af ástandinu í
Presthólahreppi sagði hann þó að
ekki væri allt jafn svart. Stærsti
nýsköpunarmöguleiki byggðar-
lagsins væri fólginn í nýtingu
jarðhita. „Núna er nær eingöngu
um að ræða fiskeldi en í framtíð-
inni gæti fleira komið til. Byggða-
stofnun hefur stutt rækilega við
bakið á Silfurstjörnunni og þar
sýnist okkur hafa tekist betur til
en víða.“
Sjá nánar um fundinn á bls. 2.
óþh
Kaupfélag Eyfirðinga:
Höepfner áfram opin
- vöruverð lækkað
Matvöruverslun KEA að Hafn-
arstræti 20, betur þekkt sem
Höepfner, verður áfram í full-
um rekstri og opnunartími hef-
ur verið ákveðinn óbreyttur.
Þá verður vöruverð í verslun-
inni lækkað, að sögn Björns
Baldurssonar, fulltrúa kaup-
félagsstjóra á verslunarsviði.
Rekstur Höepfner hefur gengið
brösuglega um skeið og af þeim
sökum var gripið til aðgerða til
hagræðingar í rekstri. Starfs-
mönnum var sagt upp og áttu
uppsagnir að taka gildi um næstu
mánaðamót. Þeir hafa nú allir
verið endurráðnir.
Að sögn Björn Baldurssonar
hafa fundist sparnaðarleiðir og
náðst hefur að hagræða í rekstri
verslunarinnar. Hann segir að
vöruverð verði lækkað og eftir
lækkun það sama og í kjörbúð í
Brekkugötu 1. „Við lækkum
vöruverðið og treystum því að
það skili sér í aukinni verslun í
vaxandi bæjarhluta," sagði
Björn.
Björn sagði að ekki væri ætlun-
in að breyta skipulagi verslunar-
innar, NETTÓ-búð í Hafnar-
stræti 20 væri t.d. ekki á dagskrá,
enda hentaði húsnæðið ekki fyrir
slíka verslun. óþh
ístess hf.:
Starfsmenn á vaktir á ný
Starfsmenn fóðurverksmiðj-
unnar Istess hf. á Akureyri,
eru farnir að vinna á tveimur 8
tíma vöktum á ný en frá því í
nóvember hefur einungis verið
unnin dagvinna í verksmiðj-
unni. Að sögn Einars Sveins
Ólafssonar verksmiðjustjóra,
hafa þessar vaktir verið settar
á vegna aukinnar fóðursölu
bæði hér heima og í Færeyj-
um.
„Það er ekki hægt að segja
annað en að útlitið sé bjart hjá
okkur og að við sjáum heiðan
Kjarasamningarnir og bændur:
Mun fleiri lýstu áuægju sinni
Gunnlaugur Júlíusson, hag-
fræðingur Stéttarsambands
bænda, kynnti bændum á
Eyjafjarðarsvæðinu í fyrra-
kvöld nýgert samkomulag
bænda, vinnuveitenda og verka-
lýðshreyflngarinnar sem gert
var í tengslum við kjarasamn-
ingana. Fram komu nokkrar
raddir á fundinum sem lýstu
efasemdum með að fórn
bænda yrði þeim til góðs en þó
var yflrgnæfandi meirihluti
fundarmanna ánægður með
samningana.
Rætt var á fundinum um þá
fyrirvara sem eru í samkomulag-
inu og þótti mörgum þeir tryggja
að ef mál þróuðust á annan veg
en gert er ráð fyrir í forsendum
kjarasamninganna þá fengju
bændur sitt við endurskoðun.
Einnig kom sterklega í Ijós á
þessum fundi að bændum þykir
þetta samkomulag hafa verið
stórt skref í þá átt að bæta ásjónu
bændastéttarinnar út á við.
Þeir sem næst þessari samn-
ingagerð höfðu staðið töldu að
bændur hafi í tengslum við sámn-
ingana nánast verið settir upp við
vegg og ekki hefði verið urn ann-
að að ræða en gera samkomulag-
ið þar sem erfitt hefði verið fyrir
bændur að bera ábyrgð á því ef
samningar hefðu farið út um
þúfur. JÓH
himin,“ sagði Einar Sveinn enn-
fremur.
ístess kaupir loðnumjöl frá
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. og
fékk þaðan 500 tonn um síðustu
helgi, á von á 500 tonnum um
helgina og öðrum 500 tonnum
um næstu helgi. í verksmiðju
ístess hf. vinna nú 13 manns. -KK
Stjórnun fiskveiða:
HaJldór og Jakob á
firndi á Akureyri
Sjávarútvegsráðuneytið gengst
fyrir kynningarfundi á Akur-
eyri, um nýtt frumvarp um
stjórnun fiskveiða sem lagt
hefur verið fram á Alþingi.
Fundurinn verður haldinn á
Hótel KEA á sunnudaginn og
hefst kl. 16.00.
Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra og Jakob Jakobs-
son forstjón Hafrannsókna-
stofnunar, munu fara yfir frum-
varpið á fundinum en á eftir
vcrða almennar umræður. -KK
Helgarveðrið:
Leiðinlegt og ekld ætlað ferðafólki
„Þeir sem ætla að ferðast um
helgina ættu að gera það í
dag,“ sagði Magnús Jónsson
veðurfræðingur í gær, en hann
spáir ótryggu veðri um helg-
ina. „Veðrið verður orðið ansi
leiðinlegt hjá ykkur á morgun,
víðast hvar verður hvasst og
skafrenningur.“
Magnús segir að vindátt verði
austlæg í dag sem þýði oft ágætis
veður á Akureyri, en hins vegar
er hún leiðinleg á annesjum og
ættu Dalvíkingar, Ólafsfirðingar
og Siglfirðingar að finna fyrir því.
I dag má jafnvel búast við snjó-
'komu nteð og því ekkert ferða-
veður, eins og Magnús sagði.
Á morgun er sömuleiðis búist
við snjókomu á Norðurlandi, þó
viss möguleiki sé á að austurhluti
Norðurlands sleppi. VG
400 þúsund tonn
á land eftir áramót