Dagur - 07.04.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 7. apríl 1990
Umdeildur úrslitaleikur í bikarkeppni Blaksambandsins í dag:
Leitt að stuðningsmenn blakíþróttarinnar
á Akureyri fá ekki leikinn heima
- segir í yfirlýsingu stjórnar Blaksambands íslands
Blaksamband íslands sendi í
gær frá sér yfirlýsingu vegna
þeirrar umræðu og blaðaskrifa
sem verið hafa að undanförnu
um úrslitaleik í bikarkeppni
BLÍ, milli KA og Þróttar, sem
fram fer á Húsavík kl. 14.00 í
dag.
í yfirlýsingunni segir m.a.:
„Stjórn og mótanefnd BLÍ
hafði fulla heimild samkvæmt
reglugerð um bikarkeppni BLÍ
og reglugerð um frestanir leikja
til að færa umræddan leik. Raun-
ar var ekki um frestun að ræða
heldur breytingu á leikstað. Enda
kærði Þróttur ekki þessa breyt-
ingu til blakdómstóls þar sem
þeim var ljóst að stjórn og móta-
nefnd BLI fór að lögum.
Það skal tekið skýrt fram að
stjórn BLÍ seldi ekki KA þennan
úrslitaleik á kr. 130.000. Þróttur-
um var fullkunnugt um það að
sterklega kom til greina að flytja
leikinn til Akureyrar, yrði ekki
um beina sjónvarpsútsendingu að
ræða. Það réð síðan úrslitum um
tilfærslu á leiknum þegar stað-
festing fékkst á því að ekki gæti
einu sinni orðið um sjónvarps-
upptöku að ræða færi leikurinn
fram í Digranesi 7. apríl. BLÍ
gerði síðan samkomulag við KA
um að sjá um framkvæmd leiks-
ins gegn því að þeir fengju þann
ágóða af leiknum sem yrði
umfram kr. 130.000,“ segir í yfir-
lýsingu BLÍ. Þar er einnig greint
frá tilkynningu Próttara þess efn-
is að liðið mætti ekki til leiks yrði
hann haldinn á Akureyri. Aðeins
hefði verið hægt að flytja leikinn
annað með samþykki beggja liða
og varð því sæst á að fara með
hann til Húsavíkur. Síðan segir í
niðurlagi yfirlýsingar BLÍ:
„Það að færa leikinn til Akur-
eyrar er nákvæmlega sama staða
og Reykjavíkurfélögin hafa búið
við undanfarin 15 ár sem bikar-
keppnin hefur farið fram. Þau
hafa í öll skipti nema eitt verið að
Aðalfundur
Aðalfundur Funa verður haldinn í Freyvangi
þriðjudagskvöldið 10. apríl n.k. og hefst kl.
21.00.
leika á heimavelli gegn þeim ut-
anbæjarfélögum sem hafa komist
í úrslit.
Stjórn BLÍ þykir leitt að dyggir
stuðningsmenn blakíþróttarinnar
á Akureyri skuli hafa misst af því
að fá þennan merkisleik í heima-
bæ sinn í þetta sinn. Jafnframt
vill stjórnin benda þeim sömu á
að ekki er löng leið frá Akureyri
til Húsavíkur og vonast til að sjá
sem flesta þar.“ JÓH
ístess hf.:
KEA leggur fram 10 milljónir
Á aðalfundi ístess hf. sem
haldinn var á fimmtudaginn í
Keflavík, var ákveðið að auka
hlutafé fyrirtækisins þannig að
það verði 200 miiljónir króna.
Til þess að svo megi verða
þurfa hluthafar að leggja fram
töluverðar upphæðir, því hlutafé
ístess nam 80 milljónum króna í
fyrra, en það ár og árið áður
þurfti að afskrifa óinnheimtan-
legar skuldir, samtals 38 milljón-
ir.
Nýir hluthafar koma inn í
ístess hf., meðal þeirra eru Hrað-
frystistöð Þórshafnar og Byggða-
stofnun, eins og áður hefur kom-
ið fram. Akureyrarbær leggur
fram aukið hlutafé í hlutfalli við
eign sina í fyrirtækinu. Eignar-
hlutur Kaupfélags Eyfirðinga í
ístess minnkar, en að sögn Magn-
úsar Gauta Gautasonar, kaupfé-
lagsstjóra, mun KEA leggja fram
10 milljónir króna, sem er undir
eignarhlutfalli þess í ístess.
„KEA og aðrir hluthafar skipta
okkar gamla eignarhlut á milli
sín,“ segir hann. EHB
Egilsstaðir:
Innbrot og ákeyrsla
Bíl var ekið á handrið Lag
arfljótsbrúar aðfaranótt
fímmtudags. Ökumaður var
einn í bílnum og rotaðist hann
við ákeyrsluna, enda var um
feikna högg að ræða og hann
ekki í bílbelti. Ökuinaðurinn
slapp þó ótrúlega vel frá þessu
óhappi, en bíllinn er mikið
skemmdur, eða ónýtur, og
brúarhandriðið stórskemmt.
Innbrot var framið á Egilsstöð-
um sömu nótt, er rúða var brotin
í húsi vöruflutningafyrirtækis
Ingimars Þórðarsonar. Farið var
inn á skrifstofu og stolið þar um
60 þúsundum í peningum úr
ólæstri hirslu. Einnig var farið
inn í ólæst hús flutningabifreiðar,
og stolið myndavél úr skjalatösku
sem þar var. Lögreglan vinnur að
rannsókn málsins. IM
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Tillaga um inngöngu í L.H.
Áríðandi er að sem flestir félagsmenn mæti
vegna tillögu um inngöngu í L.H.
Stjórnin.
-------------— \
AKUREYRARB/ÍR
Almennar
kaupleiguíbúðir
Akureyrarbær auglýsir lausar til umsóknar sex
íbúðir, 3ja og 4ra herbergja, í fjölbýlishúsi við
Helgamagrastræti 53, á kjörum almennra kaup-
leiguíbúða (sbr. lög um Húsnæðisstofnun ríkisins
nr. 86/1988 30.-47. gr.). íbúðirnar verða væntan-
lega fullbúnar í október 1990.
Með íbúðum þessum hyggst Akureyrarbær meðal
annars auðvelda fólki með stækkandi fjölskyldu
að auka við sig húsnæði, gefa ungu fólki kost á
leigukjörum framan af veru sinni á Akureyri, laða
fólk með ferskar hugmyndir í atvinnumálum til
bæjarins og eins fólk með menntun og verkkunn-
áttu sem hingað til hefur skort.
Skilyrði fyrir úthlutun eru:
a) Að umsækjandi hafi fullan lántökurétt hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins.
b) Að umsækjandi hafi nægar tekjur til að standa
straum af kostnaði við leigu eða kaup.
c) Að umsækjandi eigi ekki íbúð fyrir.
Eyðublöð ásamt upplýsingabæklingi um almenn
kaupleigukjör fást á bæjarskrifstofunum, Geisla-
götu 9. Hagsýslustjóri Akureyrarbæjar veitir frek-
ari upplýsingar.
Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofurnar
eigi síðar en 30. apríl 1990 ásamt umbeðnum
fylgiskjölum.
Bæjarstóri.
Krossanes:
Hlutaféð verður 250 milljónir
Ákveðið hefur verið að selja
hlutabréf í Krossancsi hf. fyrir
35 milljónir króna á frjálsum
markaði, að sögn Sigfúsar
Jónssonar, bæjarstjóra og
stjórnarformanns Krossaness
hf.
Sigfús segir að verið sé að
undirbúa uppbygginguna en hún
fari ekki á fullt fyrr en í sumar.
Ekki er búið að undirrita samn-
inga um véla- og tækjakaup.
Bragi Jóhannsson hafði sam-
band við Dag í gær og bað um
að koma eftirfarandi skilaboð-
um á framfæri:
Dagbókin hans Dadda:
Síðasta sýningar-
helgi í Freyvangi
Leikfélag Öngulsstaðahrepps og
Ungmennafélagið Árroðinn hafa
að undanförnu sýnt leikritið,
Dagbókin hans Dadda í Frey-
vangi.
Verkið hefur gengið mjög vel
og fengið góðar viðtökur. Um
helgina eru hins vegar síðustu
sýningar á verkinu. I kvöld kl.
21.00 verður næst síðasta sýning
en síöasta sýningin verður annað
kvöld kl. 21.00 í Freyvangi.
Hlutafé í Krossanesi verður
250 milljónir króna. Akureyrar-
bær hefur skrifað sig fyrir 200
milljónum, útgerðarmenn fimm
loðnuskipa fyrir 15 milljónum en
reynt verður að selja hlutabréf
upp á 35 milljónir króna á opnum
hiutabréfamarkaði.
Sigfús segir að erfitt sé að svara
þeirri spurningu hversu háar
skuldir muni hvíla á Krossanesi
eftir uppbygginguna, en hann
Sonur hans, Bergur Már
Bragason, brá sér á skíði í Hlíð-
arfjall með skólasystkinum sín-
um í 5. bekk Barnaskóla Akur-
eyrar sl. miðvikudag og snéri
heim tómhentur. Einhver hafði
tekið skíðin hans, vonandi í mis-
gripum. Umrædd skíði eru ný,
frá því um síðustu jól, og skaði
Bergs Más því mikill. Þau eru af
gerðinni Fischer Competion
RC4, blágræn að lit, með Tyrol-
ia-bindingum. Skíðin eru 160 cm
löng.
Við eftirgrennslan kom í ljós
að í hótelinu að Skíðastöðum eru
í óskilum nákvæmlega eins skíði,
nema þau eru tíu cm styttri, 150
cm, og mun verr með farin. Bind-
ingar eru einnig af gerðinni Tyr-
ola.
Því er beint til þess sem tók
skíðin að hafa samband í síma
22772 eða að skila skíðunum í
hótelið í Hlíðarfjalli og láta
starfsmenn þar vita.
giskar á 400 til 500 milljónir
króna. Sigfús var að lokum
spurður að því hvort til stæði að
skipta um starfsmenn í yfirstjórn
verksmiðjunnar. „No comment,“
svaraði Sigfús. EHB
Stjórn Byggða-
stofnunar:
15 milljóna
króna byggða-
styrkur til UNÞ
Á fundi stjórnar Byggða-
stofnunar sl. fimmtudags-
kvöld var ákveðið að 40
milljónir króna af lánum
stofnunarinnar til Út-
gerðarfélags Norður-Þing-
eyinga hf. á Þórshöfn og
Hraðfrystistöðvar Þórshafn-
ar hf. verði greiddar með B-
hlutdeildarskírteinum
Hlutafjársjóðs Byggðastofn-
unar.
Á sama fundi samþykkti
stjórn Byggðastofnunar heim-
ild til forstjóra að lána allt að
70 milljónir króna til Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar hf. til
að leggja fram sem hlutafé í
Útgerðarfélagi Norður-Þing-
eyinga, en lánið verði tryggt
með veði í Stakfelli ÞH-360.
Ennfremur samþykkti stjórn
Byggðastofnunar að fjár-
magna til bráðabirgða 15
milijónir króna byggðastyrk til
ÚNÞ, en þessi samþykkt er í
framhaldi af orðum forsætis-
ráðherra í bréfi til stofnunar-
innar þar að lútandi. óþh
HlíðarQall:
Tók einhver 160 cm löng
Fischer-skíði í misgripiim?