Dagur - 07.04.1990, Síða 3
Laugardagur 7. apríl 1990 - DAGUR - 3
frétfir
Verkalýðsfélag Húsavíkur:
Býður stuðning stofni bærinn Þróunarsjóð
Stjórn Verkalýðsfélags Húsa-
víkur hefur samþykkt tillögu
um að stofnaður verði Þróun-
arsjóður Húsavíkur, sem setji
sér að hafa til ráðstöfunar að
lágmarki 100 milljónir, og hef-
ur tillagan verið send Bæjar-
stjórn Húsavíkur með áskorun
um að hún beiti sér fyrir mál-
inu. I samþykktinni er Húsa-
víkurbæ ætlað að hafa for-
göngu um stofnun sjóðsins, en
leitað verði til annarra stærstu
aðila í atvinnulífi staðarins um
þátttöku og allra annarra, sem
kynnu að vilja gerast eignar-
aðilar að sjóðnum, en gert er
ráð fyrir að 25% af fjármagni
sjóðsins verði hlutafé eigenda
hans en 75% verði fjármagnað
með skuldabréfakaupum.
Verði af stofnun sjóðsins,
býðst Verkalýðsfélag Húsavíkur
til að leggja fram allt að 10% af
nefndri upphæð til sjóðsins, þar
af 25% sem hlutafé. í samþykkt-
inni lýsir stjórn félagsins yfir
þungum áhyggjum af stöðu at-
vinnumála á Húsavík. „Atvinnu-
leysi á árinu 1989 var meira held-
ur en um áratugaskeið og eins og
horfir núna, með minnkandi
þorskkvóta og mjög alvarlegri og
Aktu eins og þú vilt
aöaoriraki!
b|umferoar
;UM EINS OG MENN' RAD
versnandi stöðu í sjávarútvegi
heimamanna eru horfur á því að
staða atvinnumála muni enn
veikjast, ef ekkert verður að
gert. Stjórn félagsins telur að allir
ábyrgir aðilar í atvinnulífi staðar-
ins verði að leggjast á eitt til að
breyta þróun þessara mála með
það að markmiði að sækja fram
til betri stöðu atvinnumála og
bættrar efnahagslegrar stöðu
samfélagsins. Það verður ekki
gert með skjótvirkum hætti án
þess að öflugt tæki bætist í fisk-
veiðiflota Húsavíkur. Stjórnin
minnir á ályktun aðalfundar
félagsins frá síðasta ári um þessi
mál, sem send var til bæjarstjórn-
ar,“ segir í samþykkt stjórnar
sem ítrekar nefnda ályktun. Hún
fjallaði um stofnun þróunarsjóðs
og nú býður stjórnin beinan
stuðning við stofnun slíks sjóðs.
Bæjarráð vísaði tillögunni til
atvinnumálanefndar. Nefndin
tekur undir það álit að fljótvirk-
asta leiðin til að bæta efnahags-
lega stöðu samfélagsins sé að
öflugt tæki bætist í fiskveiðflot-
ann, og telur viljayfirlýsingu
Verkalýðsfélagsins um þátttöku
mikils virði. En þar sem aðgang-
ur að veiðiheimildum og skipa-
markaði sé mjög takmarkaður er
talið rétt að fela þeim fyrirtækj-
um sem starfa að veiðum og
vinnslu, og bærinn er eignaraðili
að, að hafa forgöngu í þessum
málum, stofna til þess sérstakt
hlutafélag, eða gera aðrar þær
ráðstafanir sem til þarf.
Athuga þarf nánar hvaða val-
kostir séu fyrir hendi um stofnun
þróunarsjóðs og hvort ekki sé
rétt að markmið slíks sjóðs sé
almenn þátttaka í atvinnuupp-
byggingu, heldur en að hann sé
stofnaður til að sinna sérstöku
verkefni. segir í áliti nefndarinn-
ar. Fundargerð atvinnumála-
nefndar liggur fyrir bæjarstjórn-
arfundi nk. þriðjudag. IM
Húsvíkingar fá nýjan snjótroðara í dag
I dag kl. 11 verður þessum glænýja snjótroðara gefið nafn og fer athöfnin fram við bæjarskrifstofurnar á
Húsavík. Fjöldi sktðabarna og áhugafólks um skíðaíþróttina ætlar að mæta og fagna þessu langþráða tæki,
sem án efa mun koma að góðum notum í skíðabrekkunum fyrir páskahelgina. Mynd: im
Horft i norður a bakhlið husins
Sólrikar svalir og gróðursæll garður
Horft í suður á framhlið húsins.
I forgrunni má sjá rumgóð bílastæði.
Óseyri 8, pósthólf 463
602 Akureyri, sími 96-21800
FJÖLMISMENN
Nú byggjum við hús fyrir þá sem vilja eignast vand-
aða og fallega íbúð á góðum stað. Fyrirhuguð bygg-
ing verður reist á mótum Borgarbrautar og Bröttu-
síðu á Akureyri og munu framkvæmdir væntanlega
hefjast í júní á þessu ári.
Fyrir þá sem hafa áhuga, verða upplýsingar veittar í
síma 96-21800, en einnig verður sýning á teikningum
og öðru sem bygginguna varðar á skrifstofu okkar,
Óseyri 8 Akureyri frá og með þriðjud. 10. apríl.