Dagur - 07.04.1990, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 7. apríl 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SlMI: 96-24222 ■ SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON.
RITSTJ.FULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON. UMSJ.MAÐUR
HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON. BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (Iþr.),
KÁRI GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
UÓSM.: KRISTJÁN LOGASON. PRÓFARKAL.: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSH.: RlKARÐUR B. JÓNASSON. AUGLÝSINGASTJ.:
FRlMANN FRlMANNSSON. DREIFINGARSTJ.: HAFDlS FREYJA
RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Skrípaleikur við endur-
byggingu Pjóðleikhússins
Það hefur vart farið fram
hjá mörgum að til stendur
að gera viðamiklar endur-
bætur á Þjóðleikhúsinu. Það
var löngu orðið tímabært að
ráðast í slíkar framkvæmdir
enda hefur viðhald Þjóð-
leikhússins verið í algeru
lágmarki allt frá því það var
byggt. Þessi merka lista- og
menningarmiðstöð þjóðar-
innar hefur því látið mjög á
sjá í tímans rás. Það hefur
hins vegar risið mikill
ágreiningur um þá leið sem
valin var við endurbygging-
arstarfið. í stað þess að
endurnýja innanstokks-
muni en láta húsið halda
sinni upprunalegu mynd
innan dyra, var ákveðið að
umbylta gamla skipulaginu
og skapa nýtt leikhús inni í
gömlu „skelinni“. Þessi
ákvörðun hefur mælst mis-
jafnlega fyrir og meira að
segja starfsmenn leikhúss-
ins skiptast í tvo andstæða
hópa. Annars vegar eru
þeir sem vilja að húsinu
verði bylt innanstokks en
hins vegar eru þeir sem
vilja að nauðsynlegustu
lagfæringar verði gerðar án
þess að breyta hið minnsta
upprunalegu svipmóti
hússins. Síðarnefndi hópur-
inn er í reyndar miklum
minnihluta meðal starfs-
manna Þjóðleikhússins.
Fyrir Alþingi liggur nú
þingsályktunartillaga frá
Eiði Guðnasyni, þingmanni
Alþýðuflokks, þess efnis að
hætt verði við fyrirhugaðar
breytingar á Þjóðleikhús-
inu. 122 arkitektar hafa
afhent forseta Sameinaðs
Alþingis undirskriftalista,
þar sem þeir lýsa fullum
stuðningi við þingsályktun-
artillögu Eiðs. Þeir vilja ekki
að verk hins merka arki-
tekts, Guðjóns Samúels-
sonar, sem hannaði Þjóð-
leikhúsið á sínum tíma,
verði „eyðilagt" með þess-
um hætti.
En deilan um endurbygg-
ingu Þjóðleikhússins er
ekki einungis fagurfræði-
legs eða tilfinningalegs
eðlis. Hún snýst ekki síður
um verulega fjármuni.
Fram hefur komið að áfall-
inn kostnaður vegna
hönnunar og ráðgjafar við
endurbygginguna nam
hvorki meira né minna en
49 milljónum króna þann 1.
febrúar síðastliðinn. Þar af
fékk embætti Húsameistara
ríkisins 20 milljónir króna í
sinn hlut á tímabilinu. Sér-
staka athygli hefur vakið að
af þessum 49 milljónum er
ljósritunarkostnaður um
432 þúsund krónur! Þessar
tölur eru ótrúlega háar og
með öllu óafsakanlegt ef
reyndin verður sú að lagt
hafi verið í þennan kostnað
að ófyrirsynju.
Deilan um endurbygg-
ingu Þjóðleikhússins er
þegar orðin mesti skrípa-
leikur. Dagur ætlar ekki að
blanda sér í deiluna um það
hvort umbylta eigi innvið-
um Þjóðleikhússins ellegar
láta það halda upprunaleg-
um svip. Hins vegar vekur
blaðið athygli á því hve
skammarlega er farið með
almannafé ef raunin verður
sú að tæpum 50 milljónum
króna hafi verið kastað á
glæ. Þá sem bera ábyrgð á
slíkum hringlandahætti og
vitleysu þarf að draga til
ábyrgðar. BB.
Umhverfi- Heilbrigði
í dag, 7. apríl 1990, er alþjóða-
heilbrigðisdagurinn. Hann er að
þessu sinni helgaður þemanu
„ Umhverfi - Heilbrigði“.
Mönnum er sífellt að verða
ljósari sú staðreynd að stöðugt
fleiri sjúkdómar stafa af spill-
ingu mannsins á umhverfi sínu
og að vistkerfi heimsins er stór
hætta búin vegna þeirrar iðn-
þróunar sem átt hefur sér stað. í
viðleitni sinni til að auka þæg-
indi á heimilum og við vinnu
búa menn til ný og fullkomnari
tæki og framleiða ný og ný efni,
en slík framleiðsla hefur oft í
för með sér rnengun sem veldur
skaða á lífríki og umhverfi.
Slíkur skaði veldur svo síðar
skaða á heilsu okkar.
Nú er svo komið að jörðinni
er mikil hætta búin vegna meng-
unar. Sífellt fleirum er að verða
það ljóst og stöðugt bætast fleiri
í hópinn sem vilja stöðva þá
uggvænlegu mengun sem tröll-
ríður heiminum. Mengun í einu
landi getur valdið víðtækum
afleiðingum í nágrannaríkjum
og í heiminum öllum.
íslendingar hafa fram undir
þetta talið að þeir búi við besta
og hreinasta umhverfi í heimi.
Við höfum líka talið okkur trú
um að mengunarhætta á íslandi
stafi ekki frá innlendri starfsemi
heldur komi hættan öll frá iðn-
ríkjunum út í hinum stóra
heimi. Petta styðjum við gjarn-
an þeim rökum að mengandi
fyrirtæki eru fá, við framleiðum
orku með vatnsaflsvirkjunum
og hitum húsin með heitu vatni.
í ræðum og riti tala framá-
menn þjóðarinnar um að við
sölu íslenskra matvæla og í
ferðamálum beri okkur að aug-
lýsa þá ímynd, að íslenskt
umhverfi sé hreint og ómengað.
Okkur hlýtur því að bregða
við fréttir um að strendur lands-
ins séu síst minna mengaðar en
í iðnríkjum Evrópu og loft-
mengun vegna bílaumferðar sé
með því mesta sem þekkist mið-
að við höfðatölu.
Við vitum að gróðureyðing
hefur verið mikil á landinu og
við höfum ekki náð að halda í
horfinu, hvað þá snúa dæminu
við. Aftur og aftur fáum við að
sjá á sjónvarpsskjánum myndir
af lélegri umgengni við landið
og ruslahauga á víð og dreif. Á
götum bæja og meðfram þjóð-
vegum getur oft að líta yfir-
gengilegt rusl. Fólk mengar loft
hvert fyrir öðru með tóbaks-
reyk, óþarfa lausagangi bifreiða
o.fl.
Ég hygg að öllum sé ljóst að
við höfum ekki sinnt umhverfi
okkar sem skyldi. Okkur skortir
þó ekki lengur reglugerðir til að
fara eftir heldur fyrst og fremst
breyttan hugsunarhátt gagnvart
umhverfinu. Margir einstakl-
ingar leggja á sig ómælda vinnu
við að fegra garðinn sinn, en
sumir þeirra reka svo fyrirtæki
Valdimar Brynjólfsson.
þar sem allt er í drasli, eða
mengunarbúnaði ábótavant.
Allt of margir skola hugsunar-
laust mengandi efnum í fráræsi
eða henda á hauga. Ráðamenn
í landstjórn og sveitarstjórnum
skera oftast við nögl fjárveiting-
ar til mengunarvarna og ann-
arra umhverfismála. Skapast
það sennilega af því að í mörg
horn er að líta og þrýstihóparnir
í öðrum málaflokkum duglegri
að vekja athygli á sínum hugð-
arefnum.
Svörin sem fást þegar spurt er
af hverju fer svo lítið fé til
umhverfismála eru: „Önnur
verkefni eru brýnni í dag“,
„vandamálið er ekki stórt hjá
okkur miðað við hjá öðrum
þjóðum“ og „það skiptir engu
máli á heimsmælikvarða hvern-
ig við tökum á málinu“.
Deginum í dag er einmitt ætl-
að að breyta slíkum hugsunar-
hætti og höfða til þess að hver
einstaklingur leggur sitt af
mörkum á „Jörðinni okkar“.
Því fleiri einstaklingar sem
leggja sitt af mörkum, því meiri
áhrif verða af fyrirbyggjandi
aðgerðum þeirra á „umhverfið
okkar“ og þannig á „heilbrigði
okkar“.
ísland á að vera og hefur alla
burði til að vera til fyrirmyndar
í umhverfismálunt, en þá verða
allir að leggjast á eitt; einstakl-
ingar, fyrirtæki, félagasamtök
og ráðamenn sveitarfélaga og
þjóðar.
Verkefni til úrbóta eru ótal
ntörg og hér verða aðeins nefnd
dæmi um nokkur þeirra.
Úrbætur við vatnsveitur. Enn
býr fjöldi íslendinga við ófull-
nægjandi vatn.
Urbætur í sorpmálum. Öllu
er hent á hauga hvort sem
möguleiki er til að endurnýta
það eða ekki. Sömuleiðis er allt
of lítið hugsað um hvort um-
hverfið spillist af því sem hent
er.
Úrbætur í frárennslismálum.
Aðeins lítið brot af skólpi er
hreinsað áður en það fer í við-
taka, hvort sem það eru vötn, ár
eða sjór.
Úrbætur í gróðurvernd og
landgræðslu. Skynsamleg nýt-
ing landsins er nauðsynleg, en
jafn brýnt er að takast á við
gróðureyðinguna.
Bætt umgengni við landið.
Allir þurfa að hugsa um um-
hverfið sem sína eign og ganga
um það eins og garðinn sinn.
Minni loftmengun. Verið er
að gera ráðstafanir til að tak-
marka notkun klórkolefna sem
eyða ósonlaginu. Við getum
valið úðabrúsa með öðrum drif-
efnum. Við gætum einnig hætt
að láta bílana ganga í hæga-
gangi að óþörfu. Með því að
draga úr ökuhraða bíla minnk-
unt við mengun og við gætum
dregið úr notkun einkabíla með
því að nota almenningsfarar-
tæki eða með því að ganga.
Fleiri dæmi verða ekki tekin
hér en allir eru hvattir til að
hugleiða málið og átta sig á því
samhengi sem er milli umhverf-
is og heilbrigðis.
Við höfum alla burði til að
skapa íslandi ímynd hreinleika
lofts, láðs og lagar sem verða
innan fárra ára eftirsóknarverð-
ustu lífsgæðin á Jörðinni.
Við skulum því tileinka okk-
ur slagorðin sem Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin hefur val-
ið í tilefni dagsins.
„Jörðin okkar - Heilbrigði
okkar“ „Hyggðu að heimi við
dagleg störf“.
Valdimar Brynjólfsson,
framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar.