Dagur - 07.04.1990, Blaðsíða 7
Laugardagur 7. apríl 1990 - DAGUR - 7
„En það er hið eilífa líf að
þekkja þig, hinn eina sanna
Guð, og þann sem þú sendir,
Jesúm Krist. “ (Jóh. 17:3.)
Þekkjum viö Drottin Jesúm
einungis sem sögulega per-
sónu, eöa þekkjum viö hann
sem lausnarann er kom í
heiminn til að sætta okkur við
Guð? Þekkjum við hann á
sama hátt sem lærisveinninn
Tómas er að lokum sagði:
„Drottinn minn og Guð minn!"
(Jóh. 20:28.)
Hið sanna eilífa líf er ekki
annars staðar að finna en í
Guði. Við þurfum að þekkja
Krist og kannast viö hann,
sem þann er kom frá himnum
til að deyja fyrir okkur svo að
við mættum eignast fyrirgefn-
ingu og frið við Guð.
Jesús ræddi oft um það að
eignast eilíft líf. Hér skilgreinir
hann í hverju þetta líf í Guði er
fólgið. Sannur kristindómur
felst í því, að eiga persónulegt
samfélag við Guð og að
þekkja hann sem vin og hjálp-
ara. Farvegurinn fyrir þetta
samfélag er bænin og traustið
á hans orði.
Að þekkja Krist er að taka
við honum og trúa á hann,
hlýða honum og elska hann.
Sá sem þekkir hinn eina
sanna Guð hefir þegar tileink-
að sér hans orð og hjálpræð-
isverk. Því fylgir mikill skilning-
ur á, hvað Guð hefir í Kristi
Jesú gjört mikla hluti fyrir alla
synduga menn.
Vissulega er hægt að kynn-
ast Guði í dýrð sköpunar-
verksins, sem við sjáum allt í
kringum okkur. En það er
samt ekki leiðin til þess að
eignast hið eilífa líf. Sú leið
tiggur um Golgata, þ.e. fyrir
trúna á hinn krossfesta og
upprisna frelsara. „Sá sem
hefir soninn á lífið, sá sem
ekki hefir Guðs son, á ekki
lífið. “ (1. Jóh. bréf 5:12.)
Lífið í Guði gefur mikla fyll-
ingu, bæði innri frið og sanna
gleði. Það felst í því að sann-
reyna það sem Guð hefir sagt
og leitast við að fara eftir hans
vilja. Allt líf brýst fram í ein-
hverri mynd, sem ekki leynist.
Lífið í Guði verður að raun-
veruleika hjá þeim sem trúir á
hann og lærir að þekkja hann í
bæn og daglegu samfélagi.
Þetta líf er eftirsóknarvert og
þess virði að lifa.
Spurningin er: Þekkjum við
Krist eins og Páll postuli, sem
sagði: „Ég er krossfestur með
Kristi. Sjálfur lifi ég ekki
framar, heldur lifir Kristur í
mér," eða erum viö í hópi
þeirra sem „segjast svo sem
þekkja Guð, en afneita honum
með verkunum". (Tít. 1:16.)
Sannkallað
PÁSKATILBOÐ
fyrir alla íslenska ostavini
15-20%
afsláttur!
DALABRIE
INNBAKAÐUR
DALABRIE
DALA YRJA
CAMEMBERT
DIÚPSTEIKTUR
CAMEMBERT
PORTSALUT
GRÁÐAOSTUR
Birgðu
þig upp fyrir páskana
í næstu búð
VIKULEGAR
VIÐKOMUHAFNIR
IIMNANLANDS
- ÍSAFJÖRÐUR.......„.FÖSTUD./ÞRIÐJUD.
- HÚSAVIK......................ALLA LAUGARDAGA
~ DALVÍK ..........,ALLA MÁNUDAGA
~ AKUREYRI..........ALLA MÁNUDAGA
- SAUÐÁRKRÓKUR......ALLA LAUGARDAGA
- SUOUREYRI/ÞINGEYRI FÖSTUD./ÞRIÐJUD.
- PATREKSFJ./BÍLDUD...FÖSTUD./ÞRIÐJUD.
- VESTMANNAEYJAR...ALLA FIMMTUDAGA
FRÁ REYKJAVIK..................ALLA FIMMTUDAGA
TIL REYKJAVÍKUR....ALLA MIÐVIKUDAGA
iinoB
IMCAKinJffi
AUK/SlA k9d21-513