Dagur - 07.04.1990, Síða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 7. apríl 1990
bílar
Toyota 4-Runner
Enn einn japanskur jeppi hefur
nú numið land hér og er þar á
ferðinni bíll frá Toyota. 4-Runn-
er hefur fengist á ýmsum
mörkuðum í nokkur ár, einkum
var hann þó ætlaður Bandaríkja-
mönnum eins og svipaðir bílar
frá keppinautunum, svo sem
Nissan Pathfinder, Mitsubishi
Pajero og Jeep Cherokee, svo
einhverjir séu nefndir. Fyrstu
gerðirnar báru þess nokkur
merki að 4-Runner var ættaður
úr pallbtladeildinni (pickup) hjá
Toyota. Þessi nýja gerð hefur
reyndar enn svipmót bræðra
sinna úr þeirri deild en Toyota
hefur lagt í talsverðar breytingar
til að færa 4-Runnerinn nær
keppinautunum í flokki luxus-
jeppa.
Utlit bíla er auðvitað smekks-
atriði en ekki get ég sagt að mér
þyki 4-Runner fallegur bíll.
Hann er hár frá vegi og kemur
dálítið fyrir sjónir eins og hann
hafi verið „græjaður" til í bt'lskúr
áð næturþeli. Nú má ekki skilja
þetta þannig að það sé eitthvað
slæmt. Þvert á móti er bíllinn nær
því útliti og hæð frá vcgi sem
margir vilja hafa jeppana sína og
jeppar ættu e.t.v. að vera.
Auk hæðarinnar er óvenjulega
mikið króm á bílnum og þetta
tvennt fer einhvern veginn ekki
fullkomlega saman í mínum
bókum.
Þegar inn í bílinn er komið er
hægt að gleyma útlitinu alvcg því
þar er ekkert sem minnir á
háfættan jeppa nema útsýnið yfir
venjulega fólksbíla í kring. Inn-
réttingin jafnast á við það sem
þekkist í betri fólksbílum. Sætin
eru ágæt og mælaborðið og
stjórntækin sömulciðis. Miðstöð
og loftræsting vinna ágætlega og
sama er að segja um allan búnað
í bílnum, svo sem sóllúgu og raf-
magnsrúður. Rýrnið er mikið,
einkum farangursrými. Ofurlítiö
meira pláss mætti vera fyrir far-
þega í aftursætinu, þar cr óþarf-
lega lágt til lofts og þröngt um
fætur, en lítið við því að gera því
afturhjólin eru þannig staðsctt aö
ekki er auðvelt að hafa aftursætið
aftar í bílnum. Farangursrýmið
er þeim mun stærra og hægt er að
leggja niður aftursætið. Hins veg-
ar er afleitt að ganga um farang-
ursrýmið því Toyota hefur álpast
til að setja á bílinn afturhlera scm
er hengslaður að neöan. Efri
hlutinn er rafdrifin rúða sem
dregst niður í hlerann, sem síöan
opnast aftur og niður. Þar með
ná meðalmenn ekki nema rétt
inn fyrir þröskuldinn í farangurs-
rýminu og vissara að vera ekki í
Umsjón:
Úlfar
Hauksson
sparifötunum þegar maður riðlar
á hleraskrattanum. Auk þess
sýndist mér vera hætta á að hler-
inn skemmist þegar hann er opn-
aður í vetrartíð því klaki og snjór
safnast á stuðarann undir hleran-
um sem síðan leggst ofan á klaka-.
bunkann ef hann er opnaður. Ég
trúi ekki öðru en Toyota breyti
þessum útbúnaði fljótlega, þó
svo að líklega fáist meiri styrkur í
afturenda , bílsins meö svona
hlera en níejð heilli hurð. Stað-
setning varahjólsins er aftur til
fyrirmyndar, undir gólfi farang-
ursrýmis, þ.e. inni í bílnum, en
hangir ekki utan á eða rænir
miklu rými til hliðar í farangurs-
geymslunni eins og í flestum
keppinautunum.
Frágangur á öllu, utan og
innan, er sérlega góður eins og
vænta má frá Toyota.
Undirvagninn er talsvert
breyttur í þessari nýju gerð af 4-
Runner. Sjálstæð fjöðrun er að
framan, með þverörmum og
snerilfjöörun (torsion), en að aft-
an er stífur ás, festur með fjórum
langsörmum og Panhardstöng
ásamt gormafjöðrun. Þannig er
hjólabúnaðurinn nú með
nákvæmari og stöðugri festingar
en var á eldri gcrðinni, sem hafði
blaðfjaðrir að aftan.
Fjöðrunin er nokkuö slaglöng
og ræður vel viö stærri ójöfnur en
er svolítið stíf að aftan, ef bíllinn
cr óhlaðinn. Samræmið er mun
betra þegar dálítiö hlass er komið
í hann. Fjöðrunin nýtursín betur
utan alfaraleiða en á venjulegum
vegum, enda er 4-Runner
og frenist öflugur jeppi.
Annars kom það mér svolítið á
óvart hve rásfastur og stöðugur 4-
Runnerinn er á vegi, því hann
virðist svo hár og rnjór að stöðug-
lciki er ekki það fyrsta sem í hug-
ann kemur. Bíllinn hefur ágæta
aksturseiginleika og hrekkir
ökumann ekki með neinu
óvæntu. Hann er ennfremur
mjög lipur og þægilegur í akstri
þrátt fyrir 1900 kg cigin þyngd.
Vökvastýrið á ekki hvað minnst-
an þátt í því, það er mjög létt,
e.t.v. óþarflega létt, en nægilega
nákvæmt.
Vélin er- V-6, 3,0 Iftra með
beinni eldsneytisinnspýtingu og
skilar 143 hö. Hún er hljóðlát og
þýðgeng og sæmilega kraftmikil,
nema helst á mjög litlum snún-
ingshraða, kann best við sig milli
2500 og 4000 sn/mín. Eiginleikar
vélarinnar falla því e.t.v. betur
að þjóðvegaakstri en erfiðum
torfæruakstri enda þótt ekkert sé
út á aflið að setja. Bíllinn virðist
meira að segja nokkuð kvikur í
innanbæjarakstri, snöggur upp
og hljóðlátur og stöðugur á vegi.
Hins vegar sýna erlendar mæling-
ar að vélin muni vera nokkuð
þorstlát, en reynsluakstur okkar
var of stuttur til að mark sé tak-
andi á eyðslunni þá.
Gírkassinn er 5 gíra og auk
þess er millikassi með háu og
lágu drifhlutfalli. Skiptingar eru
liprar og hægt er að tengja og af-
tengja framdrifið á ferð. Driflæs-
ing að aftan er fáanleg. Við fór-
um í stuttan torfærutúr og sann-
færðumst um að 4-Runner getur
mikið í ófærð, m.a. vegna þess
hve hár hann er. Ekki væri þó
verra að hafa vél sem hægt væri
að pína niður á lægri snúnings-
hraða, þegar mikið liggur við
(t.d. öfluga díselvél).
Toyota 4-Runner er enn einn
valkosturinn fyrir þá sem vilja
eiga jeppa. Hann er jafnoki bestu
Hlerinn er frekar misheppnaður á 4 Runner.
fólksbíla hvað varðar innréttingu
og frágang, en hefur fjöðrun og
aksturseiginleika sem eru mun
•fjær fóiksbílum, enda kröftugur
jeppi. Bíllinn er samt sem áður
þægilegur í akstri og umgengni,
ef frá er talinn afturhlerinn, og
því hentar hann ágætlega jeppa-
fólki sem vill alvöru tæki en þarf
líka annað slagið að skutla
„tengdó“ milli húsa.
Úlfar Hauksson.
Innréttingarnar jafnast á við það sem gerist i vönduðum fólksbílum.
Gerð:
Toyota 4-Runner, 5 dyra jeppi, vél að framan, afturdrif, tengjanlegt
framdrif.
Vél og undirvagn:
V-6-strokka, fjórgengis bensínvél, vatnskæld, slagrými 2959 cm,
borvídd 87,5 mm, slaglengd 82,0 mm, þjöppun 9,0:1, 143 hö við
4600 sn/mín, 240 Nm við 3400 sn/mín, bein eldsneytisinnspýting,
2 yfirliggjandi knastásar.
Drif á öllum hjólum, afturdrif með tengjanlegu framdrifi, millikassi
með háu og lágu drifi, 5 gíra gírkassi.
Sjálfstæð fjöðrun að framan með þríhyrndum örmum að ofan og
neðan snerilfjöðrun (Torsinon Bar), gasdemparar og jafnvægis-
stöng. Að aftan stífur ás með 4 langsörmum og Panhardstöng,
gormum, gasdempurum og jafnvægisstöng.
Vökvastýri, aflhemlar, diskar að framan, skálar að aftan, hand-
bremsa á afturhjólum.
Hjólbaröar 215 R 15 M+S, eldsneytisgeymir 65 lítra.
Mál og þyngd:
Lengd 447,0 cm; breidd 169,0 cm; hæð 174,5 cm; hjólahaf 262,5
cm; sporvídd 143,0/142,5 cm; eigin þyngd ca. 1877 kg; hámarks-
þyngd 2.430 kg.
Framleiðandi: Toyota Motor Corp.
Innflytjandi: Toyota, P. Samúelsson og Co. hf., Kópavbgi.
Umboð: Bílasalan Stórholt, Akureyri.
Verð: Ca. 2.300.000 kr.