Dagur - 07.04.1990, Qupperneq 13
Laugardagur 7. apríl 1990 - DAGUR - 13
poppsíðon
Umsjón: Magnús Geir Guömundsson
XYZ-XYZ:
Ófrumlegt en frískt
XYZ er ein af þeim óteljandi
hlómsveitum sem tilheyra hinni
geysimiklu þungarokksbylgju
sem hófst í Bandaríkjunum í
kringum 1982. Reyndar nær
uþpruni hljómsveitarinnar mun
lengra aftur, en í þeirri mynd sem
hún er nú í hefur hún starfað í
nærfellt fjögur ár, eða frá árinu
1986. Gerir XYZ út frá Los Ange-
les og er skipuð þeim Terry llous
sem syngur, gítarleikaranum
March Richard, Pat Fontaine
bassaleikara og trommuleikaran-
um Paul Monroe og eru llous og
Fontaine stofnendur hennar. Er
þessi samnefnda plata jafnframt
fyrsta plata XYZ og kom hún út
síðla síðasta árs í Bandaríkjun-
um. Tónlist sveitarinnar er mjög í
anda svonefnds hefðbundins
eða venjulegs þungarokks og
eru áhrif frá sveitum eins og
Dokken og Europe auk eldri
sveita á borð við Y & T og Van
Halen áberandi. Upptökustjórn
plötunnar annast einmitt höfuð-
paur Dokken sálugu Don Dokken
og því ekki undarlegt að áhrifa
Efnileg sveit á uppleið.
hans gæti á plötunni. Á henni eru
tíu lög og eru flest þeirra vel
áheyrileg. Ákveðinn frískleika-
blær er yfir lagasmíðunum eins
og oft fylgir þegar nýjar sveitir
eiga í hlut, en hins vegar er ekki
frumleikanum fyrir að fara en það
á þó aðeins við í lakari lögum
plötunnar. Bestu lögin finnst mér
vera Maggy, eitt af þessum sem
maður gríþur strax, Follow The
Night, lag með nokkrum Suður-
ríkjarokksblæ og loks Nice Day
to Die, keyrslurokkari eins og
þeir gerast bestir. í heildina er
óhætt að segja að þessi frum-
burður XYZ er allrar athygli verð-
ur og ættu aðdáendur þunga-
rokks ekki að láta plötuna
framhjá sér fara.
Sýnum Subaru Legacy
1,8 GL árg. 1990
í sýningarsal okkar
að Bifreiðarverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar, Óseyri 5,
laugardaginn 7. apríl og sunnudaginn 8.
apríl frá kl. 14.-17. báða dagana.
Einnig verða á sýningunni Nissan bifreiðar.
The Missíon - Carved in Sand:
Nýrokk í betri kantinum
Komið og skoðið glæsilega bíla.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
_____________________________/
Carved in Sand er fjórða breið-
skífa nýrokkssveitarinnar The
Mission, en hinar þrjár eru, Gods
Own Medicine (1986), The First
Chapter (1987) og Children
(1988). Varð hljómsveitin til með
þeim hætti að söngvarinn/gítar-
leikarinn Wayne Hussey og
bassaleikarinn Craig Adams
klufu sig út úr annarri hljómsveit
sem þeir störfuðu saman í The
Sisters of Mercy en þeir höfðu
fengið sig fullsadda af ofríki
höfuðpaurs þeirrar sveitar And-
rew Eldritch, og stofnuðu The
Mission ásamt gítarleikaranum
The Mission hrifnir af Sandskrift.
Hitt og þetta
Músiktilraunir í nánd
Eins og undanfarin ár stendur
æskulýðsmiðstöðin Tónabær í
Reykjavík fyrir Músíktilraunum nú
í apríl. Sem fyrr verða fjögur
undanúrslitakvöld og síðan eitt
allsherjar úrslitakvöld sem verður
þann 28. apríl. Hefur Poppsíðan
haft fregnir af því að á sfðasta
undanúrslitakvöldinu þann 26.
mun hljómsveit héðan frá Akur-
eyri koma fram. Heitir sveitin því
kinduga nafni „Maður upp í tré“
og hefur á efnisskránni „létt
alvörupopp" ef skilja má Bassa-
leikara sveitarinnar Jón Stefán
Einarsson rétt. Aðspurður kvað
Jón Stefán þá félagana vera hóf-
lega bjartsýna á árangur enda
væri þetta meira til gamans gert
en hitt. Svo er bara að sjá hversu
langt þeir komast á spilagleðinni.
Heart:
Stórsveitin Heart frá Seatle í
Bandaríkjunum sem leidd er af
þeim systrum Ann og Nancy
Wilson, hefur nú sent frá sér nýtt
lag og nefnist það All I wanna do.
Er lagið undanfari nýrrar plötu
sem út kemur nú á næstunni og
kallast Brigade.
Og þá loks aftur að útgáfu-
fregnum nýjum og nýlegum. Litla
systir Michael Jacksons, Janet
Jackson er búin að senda frá sér
nýja plötu og heitir hún því sögu-
lega nafni Rhythm Nation 1814.
Hin skemmtilega kanadíska sveit
Cowboy Junkees er sömuleiðis
komin með nýja plötu, þá aðra í
röðinni og nefnist sú The Caution
Horses. Gamli rokkarinn Dave
Edmunds er ekki dauður úr öllum
æðum því ný skífa er væntanleg
frá honum í apríl og nefnist hún
Close to the flame. Þá má þess til
gamans geta að Edmunds er ein-
mitt skipuleggjandi minningar-
tónleikanna um John Lennon sem
fjallað var um hér á undan. Af
(Dungarokksskífum er vert aö
nefna plötu frá fyrrum gítar-
leikara Helloween Kai Hansin og
félögum hans í Gamma Ray og
heitir hún Heading for tomorrow,
og frá nýrri mjög efnilegri sveit
XYZ en platan þeirra kallast ein-
faldlega XYZ.
Simon Hinkler og trommu-
leikaranum Mick Brown. Carved
in Sand er líkt og fyrri plötur The
Mission blönduð af kröftugu rokki
og þjóðlagatónlist í dulúðugum
stíl, og þá er ekki laust við að
nokkura áhrifa frá U2 gæti á
henni, og þá sérstaklega í laginu
Butterfly on a Wheel. Var Butter-
fly on a Wheel reyndar fyrsta lag
plötunnar sem gefið var út á
smáskífu og náði það tólfta sæti
breska vinsældalistans. Erfitt er
að tína út bestu lög á plötunni
þar sem hún hljómar mjög heil-
steypt, en nefna má lög eins og
Deliverance, Amelia og Paradise
(Will shine like the Moon), sem
öll eru góð dæmi um nýrokk í
betri kantinum. Upptökustjórn
Carved in Sand annaðist Tim
Palmer sem einnig tók upp fyrstu
skífu The Mission Gods own
Medicine. Er upptaka hans mjög
góð og á hún sinn þátt í gæöum
plötunnar.
„Fermingar
og áfengi
eiga ekki samleið.
Eyðileggjum eKKi hátíðleiKa fermingar-
innar með neyslu áfengra dryKKja.
Munum að bjór er einnig áfengi."
Vímulaus Æska,
húsmæðraféjag Reykjavíkur,
Prestafélag íslands,
Áfengisvarnarráð,
Átak til Ábyrgðar.
Í.V.T.