Dagur - 07.04.1990, Page 17
Laugardagur 7. apríl 1990 - DAGUR - 17
efst í hugo
Blaðamannastéttin
og streitan
Hinn dæmigeröi íslendingur fyrri alda stend-
ur mörgum manninum fyrir hugskotssjónum
sem harðger vinnuþjarkur, þungbrýnn og
lotinn í herðum vegna þeirra byrða sem lífiö
hefur lagt á hann, umkringdur krakkaskara,
ömmum, öfum og húsdýrum en þrátt fyrir allt
- rólegur og æðrulaus. Hann veit af fenginni
reynslu að æsingur og óöagot borgar sig
aldrei og gengur því til allra starfa af fullkom-
inni rósemi.
En nú er öldin önnur. Fregnir berast af
sérstakri könnun sem gerð var meðal hinna
ýmsu starfsstétta og var tilgangurinn að
finna út hvort þær þjáðust af streitu eða ekki.
Auðvitað veitti ekki af könnun sem þessari
því fólk verður vitanlega að fá vitneskju um
hvort því líði vel eða ekki. Annað eins hefur
nú verið kannað og í því sambandi má
nefna hina frægu sögu sem Guðmundur
Jaki segir gjarnan af Félagsvísindastofnun
Háskólans en eftir miklar rannsóknir komust
starfsmenn hennar að þeirri niðurstöðu að
meirihluti (slendinga borðaði kvöldverð kl. 7!
En þetta var útúrdúr. Niðurstöður „streitu-
könnunarinnar" eru vitanlega hið alvarleg-
asta mál. Ég komst t.d. að því að ég tilheyri
sérstökum áhættuhóp í þessum efnum,
blaðamannastéttinni, en meðlimir hennar
eru víst afar „stressaðir." Ég fylltist auðvitað
skelfingu við þessi tíðindi. Reyndar taldi ég
þetta fráleitt eiga við sjálfan mig enda er ég
að öllu jöfnu með eindæmum rólegur. En
það var af umhyggju fyrir vinnufélögum mín-
um sem ég ákvað að kryfja þetta vandamál
og reyna að finna leiðir til úrbóta.
Spurningarnar sem vöknuðu hjá mér voru
þrjár. Er þetta rétt og ef svo er hvað veldur
og í þriðja lagi hvað er til ráða? Þar sem ég
ber virðingu fyrir vísindunum þá svaraði ég
fyrstu spurningunni fljótt játandi enda hafði
ég svo sem litla ástæðu til að efast eftir að
hafa horft gagnrýnum augum á fólkið í kring-
um mig. Næsta verkefni var því að leita or-
sakanna og það reyndist öllu erfiðara
úrlausnar. Eg hafði einhvern tímann heyrt
því fleygt að fréttaþurð ylli streituköstum hjá
blaðamönnum en vissi að það gat ekki átt
við á þessu svæði þar sem ætíð er úr
gnægð frétta að velja. I þungum þönkum
vafraði ég fram í kaffistofu fyrirtækisins og
þar blasti lausnin við mér. A borðinu stóð
hvæsandi kaffikanna og við hana löng röð
illa haldinna blaðamanna að ná í dropann
sinn. Ég gerði mér samstundis grein fyrir því
að kaffi er undirrót alls ills. Of langt mál er að
telja upp allan þann óskunda sem kaffi getur
gert í mannslíkamanum, hér nægir að nefna
að það er afar örvandi og ýtir því undir
streitueinkenni. Allir blaðamenn sem standa
undir nafni drekka kaffi í lítravís á hverjum
degi og eitthvað verður undan að láta.
I framhaldi af þessari uppgötvun reyndist
auðvelt áð svara þriðju spurningunni. Ég
geri það hér með að tillögu minni að blaða-
menn hlýði kalli landlæknis og snúi sér að
vatnsdrykkju. Það gæti reynst erfitt en líf
þeirra myndi vissulega taka stakkaskiptum.
Og hugsið ykkur bara hve ýmis orðatiltæki
myndu breytast. Menn myndu ekki lengur
fara í kaffi heldur færu þeir í vatn, þeir
myndu mæla sér mót á vatnshúsum, o.s.frv.
Og allir vitanlega sallarólegir!
Jón Haukur Brynjólfsson.
skák
Deildakeppni Skáksambandsins:
Snjallar viimingsskákir
úr fórum Norðlendinganna
Norðlenskar sveitir stóðu sig
vel í Deildakeppni Skáksam-
bands Islands, eins og við höf-
um áður greint frá. Margar
góðar skákir litu dagsins Ijós
og ætlar Gylfi Þórhallsson að
sýna okkur tvær sigurskákir
keppenda frá Skákfélagi Akur-
eyrar.
Lítum fyrst á skák úr viðureign
Taflfélags Reykjavíkur (norð-
vestur) og B-sveitar Skákfélags
Akureyrar í 1. deild, en TR sigr-
aði 5:3. Þessi staða kom upp í
skák Boga Pálssonar, sem er með
hvítt og á leik, og Andra Áss
Grétarssonar:
a b c d e f g h
21. Hxb2l! - Dxb2
22. Bxg5! - Db4
(Ekki gengur 22. - hxg5, 23.
Dxg5+ - Dg7, 24. Dd8+ - Df8,
25. Dxc7 og hótunin er hrókur á
e3 og síðan g3 og hvítur vinnur.
En svarta staðan er samt töpuð.)
23. De3 - f4
24. De7 - Be6
25. Bh7+ - gefið, enda mát í1
næsta leik.
Bogi Pálsson halaði inn flesta
vinninga í sveitinni, fékk 5'/>
vinning af 7 mögulegum. Jón
Árni Jónsson fékk 4]/í af 7 og
Magnús Teitsson 4 af 6.
Mátstef Þórleifs
í úrslitaleiknum í þriðju deild
milli Taflfélags Akraness (2Vi v.)
og Unglingasveitar Skákfélags
Akureyrar (3'/2 v.) kom upp eftir-
farandi staða í skák Árna Böðv-
arssonar og Þórleifs Karlssonar,
sem er með svart og á leik:
a b c d e f g h
Hvítur hefur fórnað liði og lagt
allt tromp á a-peðið, síðasti
leikurinn var 29. a6, og ljóst að
peðið yrði ekki stöðvað nema að
gefa hrók fyrir það og staðan því
orðin jafnteflisleg. En Þórleifur
sá lengra og fann snjalla vinn-
ingsleið.
29. - g3!
(mátstef í vændum)
30. a7 - Ha2!!
31. a8=D - Hexa8
32. gefið.
Þórleifur og Örvar Arngríms-
son fengu flesta vinninga í sveit-
inni, eða 5 af 6, og Smári Teits-
son fékk 4 v. af 5. Drengirnir
tefla í 2. deild næsta vetur. SS
Öxnadalshreppur
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram
eiga aö fara 9. júní 1990 liggur frammi að Auðnum,
frá 8. apríl til 6. maí 1990.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist til
sveitarstjórnar Öxnadalshrepps eigi síðar en 25.
maí 1990.
Öxnadalshreppur, 7. apríl 1990.
f------------------------N
Skíðafatnaður
Verðum með Davidson skíðafatnað til
sölu í Portinu, laugardaginn 7. apríl
frá kl. 10.00-16.00.
★ Mjög hagstætt verð.
✓
Alafoss hf. Akureyri
V_______________________________/
Nauðungaruppboð.
Miðvikudaginn 1. apríl 1990, kl. 17.00ferfram nauð-
ungaruppboð á lausafé að Hólabraut 11, Akureyri.
Selt verður að kröfu skiptaréttar Akureyrar, fatnaður,
ýmis smávarningur o.fl. úr þrotabúi Marks s.f.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með
samþykki uppboðshaldara.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis hjá undirrituðum.
Uppboðshaldarinn á Akureyri, 5. apríl 1990.
Arnar Sigfússon, ftr.
NORÐURLANDARÁÐ
ÍSLANDSDEILD
Norðurlandaráð auglýsir stöðu aðalritstjóra
tímaritsins Nordisk Kontakt lausa til
umsóknar.
Tímaritið Nordisk Kontakt er gefið út af Norðurlandaráði.
Hlutverk þess er að fjalla um norrænt samstarf, störf þing-
anna og þjóðfélagsmál á Norðurlöndum almennt. Út eru
gefin sautján tölublöð á ári.
Tímaritinu er ætlað að beina upplýsingum til stjórnmála-
manna, embættismanna, fréttamanna og annarra, sem
áhuga hafa á norrænu samstarfi og þjóðfélagsmálum á
Norðurlöndum.
Aðalritstjóri (chefredaktören) er ábyrgur útgefandi tímarits-
ins og ber ábyrgð á útgáfu og fjármálum þess. í ritstjórn
sitja með aðalritstjóranum fimm ritstjórar, sem aðsetur
hafa hver í sínu norrænu landi og sem hafa það hlutverk
að sjá tímaritinu fyrir efni þaðan.
Umsækjendur skulu vera vel ritfærir, hafa reynslu af
stjórnun og störfum við fjölmiðla. Góð kunnátta í einu öðru
norrænu máli en íslensku er nauðsynleg. Önnur mála-
kunnátta og háskólamenntun eru æskileg.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um stöðu
þessa.
Staða þessi er auglýst í öllum norrænu löndunum, en
vinnustaðurinn er skrifstofa forsætisnefndar Norðurlanda-
ráðs, Tyrgatan 7 í Stokkhólmi.
Samningstíminn er fjögur ár. Mögulegt er að framlengja
hann um tvö ár. Aðalritstjórinn þarf að geta hafið störf eigi
síðar en 15. september 1990. Launakjör eru samnings-
atriði.
Nánari upplýsingar veita eftirtaldir aðilar: Gustaf
Stjernberg, aðstoðarframkvæmdastjóri skrifstofu forsætis-
nefndar, og Einar Karl Haraldsson, núverandi aðalritstjóri
tímaritsins Nordisk Kontakt, í síma 9046 8 143420, og
Snjólaug Ólafsdóttir, skrifstofustjóri íslandsdeildar Norður-
landaráðs, í síma 91 11560.
Umsóknir, þar sem m.a. skal tilgreina launakröfur
skulu hafa borist til forsætisnefndar Norðurlandaráðs
(Nordiska rádets presidium) eigi síðar en 26. aprfi n.k.