Dagur - 07.04.1990, Síða 20
Sauðárkrókur:
Góð sala hjá
Hegranesinu
- söluverðið
24,5 milljónir
Hegranes SK-2 seldi mjög
vel í Bremerhaven í gær-
morgun. Aflinn var rúm 180
tonn, mest karfi. Söluveröiö
var 24,5 milljónir og meðal-
verö á kíló var 133 krónur.
Þetta er hæsta verð í krón-
um talið sem togari frá
Sauðárkróki hefur fengið
fyrir sölu erlendis.
Skafti SK.-3 seldi 140 tonn í
Reykjavík í vikunni. Mjög
viðunandi verð fékkst fyrir
aflann. Skagfirðingur SK-4
landaði 145 tonnum á Sauðár-
króki í gær. Næg vinna verður
því í frystihúsunum við Skaga-
ijörð fram að páskum.
„Þetta hefur verið sérstak-
lega góð vika hjá okkur. Allir
togararnir hafa fengið full-
fermi á stuttum tíma og svo
toppsala hjá Hegranesinu í
gær,“ sagði Gísli Svan útgerð-
arstjóri hjá Skagfirðingi. kg
Fiskiðja
Raufarhafnar:
Rauðinúpur
með 100 tonn
Stofnmælingatúr Rauðanúps
ÞH-160, togara Jökuls hf. á
Raufarhöfn, fyrir Hafrann-
sóknastofnun er nú lokið og
togarinn aftur farinn að
veiða fyrir Fiskiðju Raufar-
hafnar.
Síðastliöinn mánudag kom
Rauðinúpur til hafnar úr
fyrsta túrnum að loknu rann-
sóknaverkefninu og lagði
hann upp ein 100 tonn. Togar-
inn fór síðan aftur út á þriðju-
dagskvöld.
Haraldur Jónsson, útgerð-
arstjóri Jökuls, sagði í samtali
við Dag að nú væru hjólin far-
in að snúast af fullum krafti
hjá Fiskiðju Raufarhafnar eft-
ir fremur litla vinnslu í ljar-
veru togarans. Það væri því til-
tölulega bjart yfir mönnum í
Fiskiðjunni þessa dagana. SS
Helgarveðrið:
Er komið vor?
Vorið er á næsta leiti og
jafnvel líkur á að nú sé þaö
komið ef marka má spá-
dóma veöurfræðinga á
Veðurstofu íslands fyrir
næstu daga.
Helgarveðrið á Norðurlandi
mun verða á þá leið að suð-
vestanáttir ráða ríkjum um allt
land og þýðir það að búast má
við einhverri vætu vestantil en
betra veðri eftir því sem austar
dregur. Á Norðausturlandi má
jafnvel búast við léttskýjuðu
veðri og hita. í dag veröur hit-
inn kominn yfir frostmark og á
sunnudag og mánudag er spáð
4-6 stiga hita. VG
Höepfnersbryggjan á Akureyri rifin
Starfsmenn Akureyrarhafnar
hófust í vikunni handa við að
rífa gömlu Höepfnersbryggj-
una á Akureyri. A síðasta ári
var ákveðið að bryggjan
skyldi rifin en vegna mikilla
framkvæmda við Fiskihöfn-
ina, var því verki og ýmsum
öðrum frestað þá.
Að sögn Guðmundar Sigur-
björnssonar hafnarstjóra, er
bryggjan orðin úr sér gengin og
hættuleg. „Fað er ráðgert að
koma þarna á Höepfnerssvæð-
inu upp aðstöðu fyrir siglinga-
klúbbinn Nökkva, þar sem hægt
verður að vera með m.a. eins
manns skútur og seglbretti. En
ég á ekki von á því að byggð
verði hafnarmannvirki aftur á
þessum stað,“ sagði Guðmund-
ur.
Óvíst er hvenær hafist verður
handa við að byggja upp fyrir
siglingaklúbbinn. Að sögn Guð-
mundar er áhugi fyrir því að
staðsetja aðstöðuna aðeins
sunnar á svæðinu, þar sem það
er talið henta betúr starfsemi
siglingaklúbbsins. -KK
Kaupfélag Hún-
vetninga, Blönduósi:
Slæm afkoma
á síðasta ári
Aíkoma Kaupfélags Húnvetn-
inga á Blönduósi var léleg á
síðasta ári. Veltuaukning var
um 7% sem er mun minna en
verðlagshækkanir á sama
tíma. Mun betri afkoma var
hjá Sölufélagi Austur-Hún-
vetninga. Verulegur samdrátt-
ur varð þó í sauðfjárinnleggi
eða um 8%. Helstu orsakir erf-
iðleika í rekstri Kaupfélagsins
má rekja til inikils fjármagns-
kostnaðar og slæmrar eigin-
fjárstöðu.
Tap kaupfélagsins nam um
átján milljónum króna sem er
minna en árið á undan en þá var
tapið.um tuttugu og sjö milljónir.
Tap áður en fjármagnskostnaður
er reiknaður var um 300 þús. árið
1989. Samanborið við 1988 er
það bætt afkoma en þá var tap
utan fjármagnskostnaðar um 13
milljónir.
Staða viðskiptamanna er svip-
uð og verið hefur. „Við verðum
þó varir við þá þróun að hæstu
skuldir lækka ekki. Peir sem
verst eru staddir eru í miklum
erfiðleikum með að rétta sig af,“
sagði Guðsteinn Einarsson kaup-
félagsstjóri.
Bætta afkomu Sölufélagsins
má þakka endurskipulagningu í
slátrun og einnig hafa verðlags-
mál færst til betri vegar. Rekstr-
arhorfur hjá Kaupfélagi Hún-
vetninga fyrir 1990 eru nokkuð
góðar. Samkvæmt rekstraráætlun
má búast við betri afkomu heldur
en verið hefur um árabil. kg
Kjaradeila sjómanna:
Heimild til verkfallsboðimar í 14 félögum
„Nú eru 14 aðildarfélög búin
að samþykkja að veita heimild
til verkfallsboðunar og ég
Kolbeinsey ÞH-10 seldi afla
sinn í Bremerhaven í Þýska-
landi í gærmorgun fyrir hæsta
meðalverð sem íslenskt skip
fékk fyrir afla erlendis í jiessari
viku, að sögn Kristjáns Asgeirs-
sonar framkvæmdastjóra ís-
hafs.
Kolbeinsey landaði 173,5
tonnum. Heildaraflaverðmæti
var rúmlegar 24,9 milljónir og
meðalverð 143,65 kr fyrir kg.
Uppistaða aflans var karfi.
Hinn togari Húsvíkinga, Júlíus
Havsteen landaði einnig í gær, 50
tonnum af rækju á Húsavík. Um
12 tonn af aflanum voru fryst um
borð fyrir Japansmarkað en af-
gangurinn fer til vinnslu á Húsa-
vík. Aflaverðmæti rækjunnar er
um 7 milljónir svo togarar
reikna með að mörg félög til-
kynni um niðurstöðu úr kosn-
ingum um eða eftir helgina,“
Húsvíkinga lönduðu alls fyrir 32
milljónir í gær. IM
Páskabjórinn sem Sana sendi
nýlega frá sér á markaðinn
virðist heldur betur hafa slegið
í gegn, því hann er nú nánast
ófáanlegur þó víða sé leitaö.
„Jú, það er rétt, það er allt
uppselt frá okkur og sömu
sögu er víst að segja frá ílest-
um útsölum ÁTVR,“ sagði
Magnús Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri Sana á Akur-
eyri. „Það er auðvitað mjög
ánægjulegt hversu góðar við-
sagði Hólmgeir Jónsson hjá
Sjómannasambandi íslands
um stöðuna í kjarainálum
sjómanna.
Sjómenn hafa í öllum félögun-
um 14 verið nær einhuga um að
veita heimild til boðunar
verkfalls. Fyrir helgina höfðu
þrjú félög á Norðurland tilkynnt
niðurstöðu til Sjóinannasam-
bands íslands, þ.e. Sjómannafé-
lag Eyjafjarðar, Verkalýðsfélag
Þórshafnar og Sjómannafélag
Ólafsfjarðar.
Deiluaðilar hafa ekki hist á
tökur bjórinn fékk þó við vild-
um gjarnan eiga meira til að
geta annað eftirspurn.“
Magnús segir að þeir hjá Sana
hafi rennt blint í sjóinn varðandi
framleiðslu á páskabjórnum.
Lagaður var bjór í 4-5 þúsund
kassa í allt og virðist hann hafa
selst upp á viku.
„Það var rffandi sala í þessum
bjór og liann seldist upp á einni
viku,“ sagði Haukur Torfason út-
sölustjóri ÁTVR á Akureyri.
samningafundum frá formanna-
fundi Sjómannasambandsins þar
sem samþykkt var að félögin öfl-
uðu sér heimildar til boðunar
verkfalls. Hólmgeir sagðist ekki
eiga von á að samningafundur
verði boðaður fyrr en afgreiðslu
verði lokið í öllum aðildarfélög-
um Sjómannasambandsins. Þau
eru um 40 talsins.
„Enda hefur það enga þýðingu
að boða til fundar fyrr. Við fáum
sömu svör áfram en við vonum
auðvitað að hreyfing komist á
ineð þessum þrýstingi,“ sagði
Hólmgeir. JOH
Haukur sagði að um væri að ræða
2.000 kippur eða 12.000 flöskur
og sagði hann að mikið væri spurt
um bjórinn og ætti sú eftirspurn
vafalaust eftir að aukast þar sem
enn væri jú rúm vika í páskana.
Sömu sögu var að segja frá út-
sölum ÁTVR á Sauðárkróki og
Siglufirði. Á Sauðárkróki .seldist
bjórinn upp strax á fyrstu dögun-
um og er mikið spurt eftir honum
þar. Á Siglufirði voru nokkrar
kippur eftir í gær en búist var við
að þær kláruðust þann dag. VG
Húsavík:
Kolbeinsey með hæsta
meðalverð vikimnar
- fékk tæpar 25 milljónir í Pýskalandi
Páskabjór Sana sló í gegn:
Seldist upp á einni viku