Dagur - 19.12.1990, Side 8
8 B - DAGUR - Miðvikudagur 19. desember 1990
Óshim viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla ogfarsœls komandi árs
Þökkum viðskiplin
SBA | SÉRLEyfisbIlar akureyrar s/f
Gránufélagsgötu 4, símar 23510, telefax 27020
Hvað gera þau um jólin?
Okkar bestu óskir
um gleðileg jól
og farsœld á komandi ári
sroKtg
SKOVERKSMIDJA
GLERAREYRUM
AKUREYRI SÍMI 96-26111
Félag aldraðra
á Akureyri
óskar félags- og stuðningsmönnum sínum
gleðilegra jóla, þakkar störfin og
allan veittan stuðning á árinu 1990
Stjórnin
Bestu jóla- og nýársóskir
sendum við öllum
viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
Þökkum viðskiptin á árinu
Bl BLIKKRÁSf
Hjalteyrargötu 6, pósthólf 71
602 Akureyri, sími 96-26524
Gleðileg jól
og farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin
JAPISS
akuim
SKIPAGATA1 - SIMI 96 25611
Jólahaldið er
nokkuð hefðbundlð
á milli ára
Hvað gera íslendingar uin jólin? Liggja þeir á meltunni,
borða og lesa góðar bækur j'íir hátíðamar? Em flestir
að gera það sama og er jólaliald íslendinga með nokkuð
svipuðu sniði á milli ára? í þessu sambandi má telja
noldcuð víst að dagsltráin hjá einstökum fjölslíj ldum sé
nánast eins ár eftir ár. Til þess að fá nánari innsýn í
það hvernig jólahaldi er háttað, var haft samband við
nokkra valinkunna Norðlcndinga og þeir spurðir þeirr-
ar spurningar, hvernig dagskráin sé hjá þeim um jóla-
hátíðina.
Guðmundur
Sigurbjömsson
bafmirsijóri
á Akureyri:
„Maður gerir nánast alltaf það
sama um jólin. Pað má segja að
jólin hjá mér hefjist í hádeginu á
Þorláksmessu, með því að heint-
sækja, ásamt hópi manna, góðan
félaga ,og borða hjá honum vel
kæsta vestfirska skötu. - Og
þetta er ég búinn að gera í ein 15
ár á þessum degi.
Jólatréð er yfirleitt skreytt á
Þorláksmessukvöld og síðan ér
aðfangadagurinn nokkuð hefð-
bundinn í faðmi fjölskyldunnar.
Maður nýtur þess náttúrlega að
borða góðan mat á aðfangadag
en þegar færst hefur ró yfir
fólkið, koma foreldrar og tengda-
foreldrar í heimsókn.
Jóladagur og annar í jólum
fara að stórum hluta í lestur
góðra bóka og laufabrauðsát.
Undanfarin ár höfurn við farið í
mat til ættinga á jóladagskvöld og
á annan í jólum. Annars eru jólin
hjá mér og minni fjölskyldu
nokkuð hefðbundin ár frá ári.
Ég vonast til að fá eitthvað gott
að lesa um jólin en það hefur nú
orðið misbrestur á því undanfar-
in ár að fá lesefni í jólagjöf."
Bjami Hafþór
Helgason
sjónvarpss tjóri
og fféttamaður:
„Jólin hjá mér verða með mjög
hefðbundnu sniði eins og ég geri
ráð fyrir að verði hjá flestum.
Það hefur nú ekki tíðkast hjá
okkur nein sérstök hefð á Þor-
lákssmessu, fyrir utan þáð að
fjölskyldan skreytir jólatréð þá
um kvöldið. Ég reyni nú haga
kaupunum á jólatrénu á þann
hátt, að barrnálarnar verði ekki
allar dottnar af á annan í jólum.
Þorláksmessudagur er nokkuð
óvenjulegur að þessu sinni, þar
sem versianir verða lokaðar og
því verður ekki um neina jóla-
verslun að ræða þann daginn.
Á aðfangadag höldum við okk-
ar jól eins og hingað til og borð-
um þá svínahamborgarhrygg að
venju. Þá reikna ég með að fá
pakka og hann má alveg vera
harður. Eg er sjálfur alinn upp
við það að borða rjúpur á jólum
og það hefur verið ákveðið tilboö
í gangi hjá eiginkonunni þess efn-
is að hafa einnig rjúpur á borðum
á aðfangadag en ég hef hafnað
því. Það er nú einu sinni svo að
jólin eru ekki síst hátíð barnanna
og ég ætla leyfa þeim að alast upp
við lyktina af svínahamborgar-
hryggnum á þessum degi og
blanda ekki rjúpnalyktinni inn í
það. Þó að mér þyki rjúpur
heimsins besti matur, er ég ekki
viss um að eiginkonan eða börn-
in samsinni því.
Á jóladag sækjum við tengda-
foreldrana heim og snæðum með
þeim. Á milli jóla og nýárs
bregðunt við okkur til Húsavík-
ur, á æskustöðvar mínar, og þá fæ
ég rjúpur hjá mömmu og hlakka
mikið til, því í Grafarbakka er
alltaf tekið vel á móti okkur.“
Guðný
Sverrisdóttir
sveitarsijóri
Grýtubakkahrepps:
„Jólahaldið hjá ntinni fjölskyldu
er nokkuð formfast. Á Þorláks-
messu er viss hefð hjá mér en þá
heimsæki ég konu útibússtjóra
kaupfélagsins á staðnum og svo
verður einnig í ár. Loks fer loka-
spretturinn í tiltektinni fram og
þá skreytum við jólatréð einnig
þann dag. Það hefur nú verið
hefð hjá Grenvíkingum í gegn-
um tíðina að setja ekki upp mikið
af jólaljósum og útiskreytingum
fyrr en á Þorláksmessu.
Jólin sjálf hefjast formlega kl.
18 á aðfangadag eins og hjá flest-