Dagur - 02.11.1991, Blaðsíða 2

Dagur - 02.11.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 2. nóvember 1991 Fréttir Norrænt dagsverk: Yfir flórar milljónir söfiiuðust á landinu Talið er að rúmar fjórar rnillj- ónir hafi safnast á Norrænum starfsdegi til styrktar bágstödd- um börnum í Brasilíu á dögun- um en þau nemendafélög sem tóku þátt í söfnuninni eru nú sem óðast að skila af sér. A milli fjögur og fimm þúsund nemendur framhaldsskólanna í landinu tóku þátt í verkefninu og svo vel þótti takast til að rætt hefur verið um að efna til samskonar starfsdags síðar. Verkalýðsfélag Húsavíkur: Atkvæðagreiðsla um verk- faUsboðun Atkvæðagreiðsla um almenna verkfallsboðun er á döfinni hjá Verkalýðsfélagi Húsavíkur. Á fundi stjórnar og trúnaöar- mannaráðs sl. fímmtudag var ákveðið að boða til almenns félagsfundar, sem haldinn verður í næstu eða þarnæstu viku. Á fundinum verður ákveðið hvernig standa skuli að atkvæða- greiðslu meðal félagsmanna um almenna verkfallsboðun. Annað- hvort mun atkvæðagreiðsla um verkfallsboðunina fara fram á fundinum sjálfum, eða að hún verður víðtækari, til að tryggja sem besta þátttöku. IM Helgarblað Dags: Unglingasíða Unglingasíðan hefur göngu sína á ný í helgarblaði Dags í dag. Hún hefur verið fastur liður í helgarblaðinu yfír vetrarmánuðina undanfarin ár. Umsjón með unglinga- síðunni hefur Iris Guð- mundsdóttir. Pessi blaðsíða verður helg- uð unglingum, eins og nafnið bendir til, viðhorfum þeirra og áhugamálum. íris tekur fús- lega við öllum ábendingum og geta unglingar komið skila- boðum til hennar m.a. með því að senda bréf á ritstjórn Dags merkt „Unglingasíðan“. Unglingarnir verða á dagskrá hálfsmánaðarlega til vors. SS Helgarblað Dags: Börnín okkar Hestaþáttur Kristínar Lindu Jónsdóttur er nú kominn í vetrarfrí en það er Kristín Linda hins vegar ekki. Hún mun sjá um nýjan þátt í helgarblaðinu hálfsmánað- arlega í vetur og nefnist hann Börnin okkar. Þessi nýi þáttur hefur göngu sína í blaðinu í dag. Kristín Linda leitar upplýsinga um flest sem viðkemur meðgöng- unni og í næsta þætti bregður hún sér í heimsókn á fæðingar- deildina. Börnin okkar er þáttur fyrir núverandi og verð- andi foreldra. SS Nemendur úr 15 framhalds- skólum tóku þátt í Norræna starfsdeginum ýmist með því að ráða sig til starfa í einn dag hjá fyrirtækjum og einstaklingum eða starfa við merkjasölu. Talið er að safnast hafi yfir fjórar millj- ónir króna og Hjálparstofnun kirkjunnar mun síðan sjá um að koma söfnunarfénu til þeirra verkefna sem styðja á í Brasilíu. Að sögn Jóhannesar Tómassonar hjá Hjálparstofnun kirkjunnar ríkir veruleg ánægja með hversu vel tókst til og dagana 8. og 9. nóvember næstkomandi er fyrir- hugaður fundur með forsvars- mönnum nemendafélaganna um á hvern hátt söfnun með þessu sniði verði endurtekin. Mikill vilji er fyrir því að framhald verði á þessu starfi og hvort unnt verði að gera þetta að föstum lið í starfi framhaldsskólanna annað hvort árlega eða með lengra millibili. PI Akureyri: írlandsfarar óhressir mjög Farþegar sem ætluðu frá Akureyri til írsku borgarinnar Dyflinnar í gærmorgun máttu bíta í það súra epli að sitja og bíða hálfan daginn í eyfírskri þoku. Þar með var fyrsti dag- urinn í þriggja daga ferð nær ónýtur og bar töluvert á kvörtunum þess efnis að við- komandi ferðaskrifstofa ætlaði ekki að bæta þeim tjónið. Fullbókað var í ferðina og biðu 170 manns eftir því að þotan gæti lent á Akureyrarflugvelli í gær- morgun. Brottför var kl. 7 en svartaþoka grúfði yfir Eyjafirði. Heldur var að létta til um hádeg- ið og fengust þær upplýsingar á Akureyrarflugvelli að farþegar ættu að mæta kl. 14, svo framar- lega sem völlurinn yrði opinn. Ekki var ljóst hvernig málið fór þegar fréttin var skrifuð. Að sama skapi var ekki ljóst hvernig viðkomandi ferðaskrif- stofa ætlaði að bregðast við þess- ari seinkun en allt stefndi í það að fyrsti dagurinn í Dyflinni yrði afar stuttur. Allt flug um Akureyrarflugvöll lá niðri í gærmorgun nema hvað vél Flugfélags Norðurlands fór til Egilsstaða. SS Gamla brúin í Laxárdal var tekin í burtu í heilu lagi. Mynd: Svavar Jónsson Laxá í Aðaldal: Tvær brýr endurbyggðar - mikil samgöngubót í Laxárdal og við Brúa Mikil samgöngubót hefur orð- ið við Laxá í Aðaldal. Tvær brýr hafa verið endurnýjaðar; ný brú hefur verið byggð í Laxárdal og við Brúa hefur ný brú verið byggð yfir gömlu brýnnar. Alls er Laxá brúuð á sex stöðum, þar sem akfært er yfir, auk þess sem ein göngubrú er uppi í Laxárdal. I Laxárdal var yfirbyggð brú sem sett var upp þar 1963. Brúin var það þröng að snjóruðnings- tæki komust ekki yfir hana og vandræði voru með búfjárílutn- inga á stórum bílum. Brúin var tekin niður þannig, að krani lyfti undir annan brúar- sporðinn meðan vinnuvél dró brúna yfir á bakkann hinumegin. í nýju brúna voru notaðir tveir stálbitar, hvor um sig 31,70 metr- ar á lengd og 1,36 m á hæð. Vegagerðin flutti bitana frá Reykjavík í Laxárdalinn og munu þeir vera með lengstu bit- um sem svo langt hafa verið fluttir. Nýja brúin er mikil sam- göngubót í Laxárdal, að sögn Svavars Jónssonar hjá Vegagerð- inni. Við Brúa voru gömlu brýnnar, sem byggðar voru 1930, hækkað- ar og breikkaðar. Á þær og við voru settir steypuklumpar sem undirstöður, síðan stálbitar og brúargólf. Nú er aðeins eftir að lækka veginn að vestanverðu við brýnnar en þegar er orðin allt önnur aðstaða að fara þarna um. Brýnnar virkuðu orðið ákaflega ótraustvekjandi á vegfarendur auk þess sem brattur og bugðótt- ur vegur lá að þeim. IM Ný lög um mannanöfn tóku gildi í gær: „Mjög til bóta og létta störf presta“ - segir sr. Birgir Snæbjörnsson, sóknarprestur á Akureyri Ný lög um mannanöfn öðluð- ust gildi í gær á Islandi. Jafn- framt falla úr gildi lög um mannanöfn, nr. 54 frá 1925 sem og 67. gr. laga nr. 10 frá 1983. „Nýju lögin eru mjög til bóta og létta störf presta það er lýtur að skírninni. Nú skal skipa mannanafnanefnd sem semur skrá um eiginnöfn sem heimil teljast. Áður var þessu á þann veg farið að skrá um eiginnöfn er ekki mátti nota átti að liggja frammi hjá prestum. Pessi skrá var aldrei samin og því var það ótta- legt kvalræði að standa í stappi við foreldra vegna nafna er ekki eru heirnil. Nú eru prestar lausir allra mála hvað þetta varðar,“ sagði sr. Birgir Snæbjörnsson, sóknarprestur á Akureyri. í sumar sagði Hallgrímur Snorrason, hagstofustjóri, í sam- tali við Dag að nýju mannanafna- lögin væru til mikilla bóta. „Frá sjónarmiði Hagstofunnar er mesta breytingin sú að við teljum okkur nú hafa fengið löggjöf sem er framkvæmanleg,“ sagöi hag- stofustjórinn. Nýju lögin um mannanöfn eru í fimm köflum. Fyrsti kaflinn tek- ur til eiginnafna. Þar segir að hverju barni skal gefa eiginnafn, þó ekki fleiri en þrjú. Hér hefur orðið breyting á því í eldri lögum Nýja félagsmiðstöðin á Húsavík: Fékk nafiiið Keldan Keldan, nefnist nýja félags- miðstööin á Húsavík sem tekin var í notkun við hátíðlega athöfn sl. fímmtudag. Breyt- ingarnar sem gerðar voru á húsnæðinu kostuðu rúmlega 2,5 milljónir króna og húsgögn voru keypt fyrir 600 þúsund. Þetta kom fram í ávarpi Lilju Skarphéðinsdóttur, formanns æskulýðs- og íþróttanefndar Húsnæðið er hið vistlegasta og virtust fulltrúar eldri og yngri borgara, sem koma til með að nýta húsnæðið, hinir ánægðustu með aðstöðuna. Karl Ingólfsson, fulltrúi eldri borgara, lék á harmoníku við opnunarathöfnina en fulltrúi yngri kyrislóðarinnar var Guðni Bragason sem lék á trompet ásamt Norman Dennis. Pað var Einar Njálsson, bæjar- stjóri, sem átti hugmyndina að nafninu. Fyrir nokkrum áratug- um stóð bær sem bar nafnið Kelda aðeins ofar en félagsmið- stöðin er til húsa. Og nú hætta krakkar, karlar og kerlingar á Húsavík að taka á sig krók og stynga sér beint inn í Kelduna, í norðurenda félagsheimilisins. IM Lilja Skarphéðinsdóttir, formaður æskulýðs- og íþróttanefndar, flutti ávarp við vígslu Keldunnar. Mynd: IM voru nöfnin aðeins tvö. Eigin- nafn skal vera íslenskt eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Pað má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Eiginnafn má ekki heldur vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Hvorki má gefa stúlku karl- mannsnafn né dreng kvenmanns- nafn og samkvæmt lögunum er skylt að gefa barni nafn innan sex mánaða frá fæðingu þess. Lögin um mannanöfn taka til margra þátta og fólk er hvatt til að kynna sér lögin. Efnisatriðin eru mörg og margt er breytt frá fyrri lögum. Dr. Guðrún Kvaran sem er formaður mannanafnanefndar sagði við blaðamann Dags í sumar. „Mesti ávinningur lag- anna er að í þeim gætir ekki mis- ræmis milli kynja, körlum og konum er gert jafnt undir höfði í öllum atriðum.“ ój Lokahóf KRA í Dynheimum Lokahóf KRA verður haldið í Dynheimum kl. 13.30 í dag, laugardaginn 2. nóvember. í lokahófinu verða afhent verðlaun fyrir árangur á knatt- spyrnusviðinu á liðnu sumri. Leikmaður ársins og markakóng- ar fá viðurkenningu og fleira mætti nefna, en sjón er sögu rík- ari. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.