Dagur - 28.03.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 28. mars 1992
Fréttir
Foreldrafélag Oddeyrarskóla:
Mótmælir hugmyndum um að flytja
íþróttaaðstöðu bama úr hverfinu
Á aðalfundi Foreldrafélags
Oddeyrarskóla á Akureyri 17.
mars sl. var samþykkt ályktun
Sauðárkrókshöfn:
Ný bryggja
í stað
Syðra plans
Samkvæmt framkvæmdaáætlun
fyrir Sauðárkrókshöfn fyrir
árin 1993-1996, á að byggja
nýja bryggju í stað Syðra plans
og lengja Norðurgarð. Eftir
framkvæmdirnar mun m.a.
bætast við gott lægi í höfninni
fyrir vélarvana skip að sögn
Snorra Björns Sigurðssonar,
bæjarstjóra.
A næsta ári á samkvæmt áætl-
un hafnarstjórnar að byrja á nýrri
bryggju í stað Syðra plansins og
er reiknað með 73,2 milijónum
króna í þær framkvæmdir. Árið
1994 á síðan að ljúka við nýju
bryggjuna og er áætlað að það
kosti 13,2 milljónir króna. Þá
verður einnig dýpkað á nokkrum
stöðum í höfninni og samkvæmt
áætluninni eiga þær framkvæmdir
að kosta tæpar 27 milljónir
króna.
Árin 1995 og 1996 er stefnt að
því að ráðast í 60 metra lengingu
á Norðurgarði og dýpkun fremst
við hann auk viðlegubryggju úr
timbri sunnan Syðra plans.
„Syðra planið er náttúrlega
ónýtt og við teljum að það sé
nauðsynlegt að byggja nýja
bryggju þar. Með tilkomu hennar
myndast einnig viðbótar við-
legupláss fyrir togara og verður
það samkvæmt líkanstilraunum
besta lægið í höfninni. Þar
myndu menn t.d. þora að vera
með vélarvana skip og vegna þess
skapast miklu betri aðstæður til
viðgerða á stærri skipum hér í
höfninni," segir Snorri Björn.
SBG
þar sem harðlega er mótmælt
hugmyndum um að flytja
íþróttaaðstöðu barna úr hverf-
inu og þess er krafist að staðið
verði við framkvæmdaáætlun
skólanefndar um byggingu
íþróttahúss við skólann á árun-
um 1992-1994.
Tilefni þessarar ályktunar eru
umræður að undanfömu um þann
möguleika að leggja íþrótta-
skemmuna af sem íþróttamann-
virki og börn úr Oddeyrarskóla
sæki íþróttatíma í öðrum íþrótta-
húsum bæjarins.
Áslaug Traustadóttir, formað-
ur foreldrafélagsins, segir mjög
brýnt að byggja íþróttahús við
Oddeyrarskóla og það sé almenn
skoðun foreldra barna í skólan-
um. „Það er mjög mikil andstaða
við að börnin sæki íþróttakennslu
í önnur íþróttahús í bænum.
Flutningur á börnunum hefði í
för með sér að aldrei væri hægt
að hafa samfelldan skóladag og
þau yrðu alltaf gestkomandi í því
íþrótthúsi sem yrði fyrir valinu.
Það þarf einfaldlega aðstöðu fyrir
börnin á þeirra heimavelli,“ sagði
Áslaug. óþh
Hér er tjakkurinn óþarfur.
Mynd: Golli
Frumvarp til lyQalaga:
Einokunaraðstaða lyfsala verði afiiumin
Fram er komið nýtt frumvarp
til lyfjalaga á Alþingi sem að
standa nokkrir þingmenn
Framsóknarflokksins. Þar er
Varnarliðið í Keflavík:
Keypti íslenskar matvörur
f\TÍr 72 milljónir í fyrra
Nýr samningur hefur verið
gerður milli íslenskra og
bandarískra stjórnvalda um
kaup varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli á íslenskum land-
Veðurstofan:
Ljómandi spá
Það mun hitna og kólna á víxl
um helgina en veðursveiflurn-
ar verða þó ekki tiltakanlega
miklar. Á morgun verður
komin austan eða suðaustan
átt með 2-3 stiga hita. Á
Norðurlandi verður að mestu
úrkomulaust.
Veðurstofa íslands gerir ráð
fyrir þvi að vindur verði orðinn
norðaustlægur á mánudaginn og
þá kólnar á ný. Norðanlands er
búist við éljum og vægu frosti.
SS
búnaðarafurðum á tímabilinu
1. aprfl 1992 til 31. mars 1993.
Samkvæmt samningnum kaup-
ir varnarliðið allt að 6 þúsund
pund af hökkuðu nautakjöti,
12 þúsund pund af kjúklingum
og 120 þúsund pund af
eggjum.
Samkvæmt upplýsingum frá
utanríkisráðuneytinu verður verð
afurðanna hið sama og á síðasta
samningstímabili. Greiddir verða
4,35 dollarar fyrir pundið af
nautakjöti, 2,96 dollarar fyrir
pundið af kjúklingum og 1,50
dollarar fyrir pundið af eggjum.
Samningurinn felur í sér að varn-
arliðið kaupi nautakjöt, egg og
kjúklinga fyrir jafnvirði 14,5
milljóna íslenskra króna.
Á árinu 1991 keypti varnarlið-
ið íslenskar matvörur fyrir sam-
tals 1,2 milljónir bandaríkjadala,
eða tæplega 72 milljónir króna,
og vegur mjólk þyngst í þessum
kaupum. JÓH
lagt til að einokunaraðstaða
lyfsala verði afnumin og komið
á virkari samkeppni í heildsölu
og smásölu lyfja með það að
markmiði að lækka lyfjaverð.
Með samþykkt frumvarpsins
yrði prósentuálagningu lyfja af-
numin og komið á nýju fyrir-
komulagi við lyfjainnkaup. Skip-
uð yrði lyfjakaupanefnd sem
fengi það hlutverk að leita til-
boða í lyf á alþjóðlegum markaði
eftir því hvar verð og skilmálar
gerist hagstæðastir hverju sinni.
Afnám einokunaraðstöðu lyf-
salanna þýðir jafnframt að lyf-
sölustöðum um landið gæti
fjölgað. Þá yrði Lyfjaverðlags-
nefnd, Lyfsölusjóður og Lyfjaeft-
irlit ríkisins lagt niður. Flutnings-
menn frumvarpsins telja að verði
það að lögum megi reikna með
lækkun lyfjaverðs um 7-10% og
dragi þá einnig úr kostnaði ríks-
ins vegna lyfjakaupa um 2-300
milljónir króna. Reynsla norskra
og sænskra heilbrigðisyfirvalda sé
sú að með þessu fyrirkomulagi
megi lækka lyfjaverð um 7-10%.
JÓH
Norðurland eystra:
Freyr skipaður dómstjóri
- Ólafur Ólafsson skipaður héraðsdómari
dómari við héraðsdóm Norður-
lands eystra, frá 1. júlí 1992 að
telja.
Þá hefur forseti íslands skipað
Ólaf Börk Þorvaldsson, settan
héraðsdómara, til þess að vera
hérðsdómari við héraðsdóm
Austurlands, frá 1. júlí 1992 að
telja. Einnig Jónas Jóhannsson,
settan hérðasdómara, til þess að
vera héraðsdómari við héraðs-
dóm Vestfjarða, frá 1. desember
1992 að telja. Jafnframt var Jónas
settur héraðsdómari við héraðs-
dóm Vestfjarða frá 1. júlí að telja
til 30. nóvember 1992. -KK
Dómsmálaráðherra hefur skip-
að Frey Ófeigsson, héraðs-
dómara, til þess að vera dóm-
stjóri hérðasdóms Norður-
lands eystra til næstu 6 ára, frá
og með 1. júlí 1992 að telja.
Jafnframt störfum héraðsdóm-
ara hefur hann verið settur til að
gegna störfum dómstjóra við hér-
aðsdóm Norðurlands eystra frá
og með 24. mars að telja til og
með 30. júní 1992.
Forseti íslands hefur skipað
Ólaf Ólafsson, settan héraðs-
dómara, til þess að vera héraðs-
Frumvarpið um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum:
Hroðvirknislega imnið frumvarp sem veiðimenn hljóta að mótmæla
- segir Sigmundur Ófeigsson, skotveiðimaður á Akureyri
Frumvarp til laga um vernd,
friðun og veiðar á villtum fugl-
um og spendýrum, öðrum en>
hvölum, er nú til umfjöllunar á
Alþingi. I fyrstu umræðu um
málið komu fram gagnrýnis-
raddir á frumvarpið og segir
Sigmundur Ófeigsson, skot-
veiðimaður á Akureyri, að það
beri þess öll einkenni að vera
hroðvirknislega unnið og ekki
til þess fallið að koma á góðri
stýringu á veiðum hérlendis.
Hann segist ekki sjá annað en
skotveiðimenn muni hafa uppi
mótmæli við frumvarpið og
æskilegast sé að það verði ekki
samþykkt í núverandi mynd.
Veiðikort er það nýmæli í
frumvarpinu sem skotveiðimenn
setja spurningarmerki við. Um
þetta atriði segir: „Umhverfis-
ráðherra ákveður með reglugerð
að allir þeir sem stunda veiðar á
villtum dýrum, öðrum en rott-
um og músum, skuli afla sér veiði-
korts, gegn gjaldi sem umhverfis-
ráðherra ákveður. Á veiðikorti
skal getið nafns handhafa, svæðis
sem kortið gildir á, gildistíma-
bils, tegunda og fjölda dýra af
hverri tegund sem viðkomandi
hefur leyfi til að veiða. Korthafi
skal ætíð bera kortið á sér á veið-
um svo og á leið til og frá veið-
um. Hann skal framvísa því ef
þess er óskað. Korthafi skal
árlega skila skýrslu um veiðar
sínar á gildistíma korts áður en
nýtt kort er útgefið. Gjald þetta
skal renna í sjóð er notaður verði
til rannsókna og stýringar á stofn-
um villtra dýra. Umhverfisráð-
herra er heimilt að ákveða í
reglugerð um veiðikort að þeir
sem stundi veiðar á villtum dýr-
um skuli hafa lokið sérstöku prófi
um villt dýr og umhverfi þeirra
og hæfni til veiða.“
„Nú er ég ekki á móti því að
halda utan um veiði en þá yfir-
byggingu sem á að byggja í kring-
um þetta líst mér illa á,“ segir
Sigmundur. „En hvað varðar
veiðikortin þá kemur ekkert fram
í frumvarpinu hvernig sú fram-
kvæmd er hugsuð. Gilda þessi
veiðikort t.d. fyrir ákveðin
svæði? Og þegar talað er í frum-
varpinu um kvóta til veiða þá
vaknar sú spurmng hvort hann
verði þá framseljanlegur. Og
hvernig á að fylgja því eftir að
menn veiði samkvæmt þessum
veiðikortum. í raun og veru er
allt á huldu um þessi kort því
frumvarpið veitir ráðherra heimild
til að setja hverju sinni reglugerð
um þau. Þess vegna getur ráð-
herrann stjórnað veiðunum sam-
kvæmt eigin geðþótta.“
Sigmundur bendir á að í frum-
varpinu sé engin tilraun gerð til
að skera úr í því deilumáli hvað
teljist til afréttar og hverjir hafi
yfirráð yfir þeim löndum. Taka
heiðargæsareggja verði nú heimil
sem annars staðar í heiminum sé
bönnuð. „Fyrir hverja er verið að
þessu. Þetta er ekki fyrir sport-
veiðimenn. Þessi eggjataka hefur
aldrei verið heimil hér á landi og
til hvers er allt í einu núna verið
að leyfa hana,“ segir Sigmundur.
Auk þess segir hann að sam-
kvæmt frumvarpinu megi ekki
nota hálfsjálfvirk eða sjálfvirk
skotvopn með skothylkjahólfum
sem taki fleiri en tvö skot en ekki
verði annað séð en nú sé heimilt
að nota margskota pumpur.
„Þarna er verið að rýmka lögin
frá því sem verið hefur. Segul-
tæki og hljóðgafar eru bönnuð
við veiðar og það er í góðu lagi
en hins vegar eru snörur og
snöruflekar bannaðir. Þetta er
Grímseyjar-veiðiaðferðin í svart-
fuglinum þar sem geldfuglinn er
veiddur á sjónum en hann fer
ekki upp í björgin. Þarna er ráð-
ist gegn þessari tilteknu veiðiað-
ferð.“
Fleiri atriði í lista frumvarpsins
yfir óleyfilegan veiðibúnað bend-
ir Sigmundur á. Hann staðnæmist
við þann lið sem segir að bannað
sé að nota hunda til þess að
hlaupa uppi bráð nema við
minkaveiðar.
„Þýðir þetta að ég megi ekki
fara með hund í rjúpnaveiðar?
Nú eru Skandinavíuþjóðir að
taka þá reglu upp að mönnum er
óheimilt að fara til veiða nema
með hund á þeim forsendum að
veiðimaðurinn týni 30% af bráð
sinni hundlaus en 5% ef veiði-
hundur sé með manninum. Þarna
erum við að stíga skrefið í öfuga
átt við nágrannaþjóðir Okkar.“
Aðspurður um jákvæðar hliðar
frumvarpsins segir Sigmundur að
stýring á veiðum sé af hinu
góða. „Það er óeðlilegt áð við
getum drepið eins og okkur
sýnist. Til dæmis erum við að
nýta sameiginlegan gæsastofn á
móti Bretum og hvað myndum
við segja ef þeir fengju að skjóta
gæsir eins og þá lystir, allar þær
milljónir manna sem þar hafa
byssuleyfi. Við getum því ekki
hugsað sem svo að við séum svo
fáir að það þurfi ekki að tak-
marka veiðarnar hjá okkur. Þessi
tilraun er ekki til þess fallin að
koma góðu skipulagi á þessi mál
en að mínu mati er raunhæfasta
leiðin sú að skotveiðifélögin þurfi
sjálf að bera ábyrgð á veiðunum
og því að ekki fari aðrir til veiða
en þeir sem hafa tilskilin leyfi og
ekki síður að þeir séu hæfir til
veiða. En frumvarpið, eins og
það er, er ekki í neinum tengsl-
um við raunveruleikann.“ JÓH