Dagur - 28.03.1992, Blaðsíða 23
Laugardagur 28. mars 1992 - DAGUR - 23
Blússkref númer tvö
Gary Moore heldur áfram aö feta sig á blúsbrautinni á nýju plötunni After
Hours.
Þaö kom mörgum á óvart er gít-
arleikarinn góðkunni frá írlandi,
Gary Moore, söðlaöi um á ferli
sínum, úr þungu melódísku rokki
yfir í blús, með plötunni Still got
the blues árið 1990. Fram til þess
hafði Moore náð ágætum árangri
á ferlinum í rokkinu m.a. gert lög
eins og Out in the fields og
Emþty rooms vinsæl auk þess
auðvitað að hafa skapað sér
nafn sem einn allra besti og virt-
asti gítarleikari rokksins á seinni
árum. (Poppsíðan hefur áður
fjallað ítarlega um feril kappans,
þannig að ekki verður farið nánar
út í þá sálma hér.)
Það varð hins vegar viss vendi-
punktur hjá Moore með plötunni
After the war árið 1989, því sú
plata stóð ekki undir þeim vænt-
ingum sem við hana voru
bundnar, þótt hún hefði ýmislegt
til síns ágætis. Það varð því
tímabært að reyna eitthvað nýtt
og varð blúsinn fyrir valinu. Var
það reyndar engin tilviljun, því
Moore hafði lengi alið með sér
þann draum að gera blúsplötu,
enda blúsinn sú tónlist sem hann
hefur orðið fyrir mestum áhrifum
af. (Hans fyrirmyndir í gítarleik
eru m.a. Albert King, Roy
Buchanan og Peter Green úr
Fleetwood Mac. Allir blúsgítar-
leikarar af Guðs náð.)
Er skemmst frá því að segja að
þessi umsöðlun heppnaðist mjög
vel hjá Moore og seldist Still got
the blues í um þremur milljónum
eintaka. Var platan ekki hvað síst
vel heppnuð vegna hlutar blús-
jöfranna Albert King og Albert
Collins á henni, en þeir settu
sterkan svip á hana með spili í
sínu hvoru laginu. Þá má ekki
gleyma hinum miklu vinsældum
sem titillagið náði, ekki hvað síst
hér á landi.
Nú er Gary Moore mættur með
annað blúsverk, After Hours, og
gefur það fyrirrennara sínum lítið
eða ekkert eftir. Rær hann þar að
mestu á sömu mið, hefur fengið
Albert Collins aftur til liðs við sig,
en í stað Alberts King hefur hann
síðan fengið hinn „kónginn", B.B.1
King, til að spila í einu lagi og
syngja. Lögin sem um er að
ræða með þeim eru annars veg-
ar The blues is alright eftir Little
Milton með Collins og hins vegar
Since I met You baby með King
(lagið er eftir Moore). Fara þeir á
kostum ásamt Moore í þessum
lögum, sem bæði eru kraftmiklir
blúsar. Önnur lög á After Hours
eru sum hver af svipuðum toga
og á SGTB t.d. eins og Story of
the blues, sem er af líkri ætt og
Still got the blues lagið og The
hurt inside sem svipar nokkuð til
Midnight blues. Þetta eru þó eng-
ar endurtekningar og er fjöl-
breytnin ekki síður mikil á After
Hours en á Still got the blues í
lagavalinu.
Fleiri lög sem nefna má sérstak-
lega eru Jumpin’ at shadows,
gullfallegt soul/blúslag, sem
minnir mikið á Peter Green og
Don’t you lie to me (I get evil),
léttleikandi blús sem að því er
virðist, er Chuck Berry lag, þótt
það sé ekki skrifað á hann. (Það
Menntskælingar héldu sína hefð-
bundnu Viðarstaukshátíð meö
pomþi og pragt á föstudaginn í
síðustu viku. Var þar að vonum
glatt á hjalla og fjölmenntu
nemendur í Möðruvallakjallara,
þar sem viðburðurinn fór fram að
venju. Voru það samtals tólf
hljómsveitir sem tóku þátt að
þessu sinni og sungu þær víst
hver með sínu nefi, eins og þar
stendur.
Nöfn hljómsveitanna voru líka af
ýmsum toga og sum býsna
kúnstug eins og t.d. Afsakið til-
veru okkar, Logn og blíða, Krist-
ur og systur og Brókin hans afa.
Lýsa þau ágætlega andanum
sem ríkti hjá hljómsveitarmeðlim-
um sjálfum, sem ekki tóku sig og
heitir bara Don’t you lie to me.)
Þá eru á plötunni tvær ballöður,
Separate ways og Nothing’s the
same, sem minna á fyrri verk
Moore af svipuðum toga. Gæti
það fyrrnefnda hæglega orðið
vinsælt. Ekki má svo gleyma Key
to love eftir John Mayall frá tíma
Eric Claptons í Bluesbreakers.
Fer Moore ágætlega með það.
Ekki ætlar Poppskrifari að full-
yrða um hvort After Hours nær
að fylgja Still got the blues eftir í
vinsældum, það verður tíminn að
skera úr um. Hún er hins vegar
meira en fullnægjandi arftaki
gæðalega séð og á því alla vel-
gengni skilið.
framgöngu sína allt of alvarlega.
Hvað tónlistina sem fram var bor-
in varðar, þá var hún af ýmsu
sauðahúsi, en ef marka má spil
þriggja af þeim fjórum hljómsveit-
um sem poppskrifari heyrði í og
sá, þá virðist blústónlist eiga vel
upp á pallborðið hjá mennt-
skælingum nú um stundir.
Skemmti poppskrifari sér vel
þessa stund sem hann sá sér
fært að staldra við á Viðarstauki
og vonar hann að tónlistarlíf í
Menntaskólanum haldi áfram að
blómgast og dafna. (Og þá ekki
bara á Viðarstauki.)
Hér með þessu greinarkorni var
meiningin að birta myndir, en af
óviðráðanlegum orsökum var því
ekki komið við.
Á Viðarstauki
áttum
Ur ýmsum
Rapprokkararnir í Beastie
Boys, sem siógu í gegn
með frumburði sínum Licence to
ill, snúa aftur eftir þriggja ára hlé
í aþríl. Kemur fyrst út EP skífa í
byrjun mánaðarins, en síðar
breiðskífa í lok hans. Nöfn enn á
huldu.
Suðurríkjaættaða rokksveitin
Black Crowes er tilbúin með
sína aðra plötu. Nefnist hún því
langa nafni The southem harm-
ony and musical companion og
kemur út 13. maí. Siglir hún í
kjölfar metsöluplötunnar Shake
your moneymaker sem út kom
1990.
Morrissey fyrrum söngvari
The Smiths sendir frá sér
Curve hefur vakið mikla athygli í
heimalandinu Bretlandi.
nýtt lag í apríl sem kallast We
hate it when our friends become
successful í apríl.
Meðal athyglisverðra platna
sem nýkomnar eru út má
nefna nýja plötu söngvarans lan
McCulloch, Mystery. Þá hefur
leiðtogi Talking Heads David
Byrne sent frá sér verk sem kall-
ast Uh-Oh (stutt og laggott).
Dúettinn kraftmikli Curve hefur
sent frá sér frumburð sinn Dopp-
elgangster og Eddi Reader fyrr-
um söngkona Fairground Attract-
ion hefur gefið út sólóplötu sem
kallast Mr. mama.
Nú eru háværar raddir um að
Vivian Campell, fyrrum gít-
arleikari Whitesnake og Dio m.a.
verði eftirmaður hins látna Steve
Clark í Def Leppard. Ekki hefur
fengist staðfest hvort það verði
að veruleika.
AKUREYRARB/ÍR
Bókavörður
Laus er til umsóknar staða bókavarðar í
útlánadeild Amtsbókasafnsins á Akureyri.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Ráðið verður í starfið frá 15. maí 1992.
Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Akur-
eyrarbæjar.
Upplýsingar um starfið gefa amtsbókavörður í
síma 24141 og starfsmannastjóri í síma 21000.
Umsóknarfrestur er til 8. apríl nk.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar Geislagötu 9.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Trésmiðir!
Trémál hf., Kópaskeri, óskar eftir 2-3 sam-
hentum trésmiðum í ákveðin verkefni strax.
Mikil vinna.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri.
Trémál hf.
Bakkagötu 10, Kópaskeri, símar 52123 og 52182.
BÆNDUR
Norræn ungmenni á vegum NORDJOBB
óska eftir sumaratvinnu.
Upplýsingar: NORDJOBB/Reykjavík s: 91-19670
eða Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri s: 96-
27599 milli kl. 9-12.
| _ | TÓNLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI
Staða skólastjóra
Við Tónlistarskólann á Akureyri er laus staða
skólastjóra frá 1. ágúst nk. Umsóknarfrestur
er til 21. apríl.
Einnig vantar að skólanum kennara á gítar og
málmblásturshljóðfæri svo og söngkennara.
Umsóknarfrestur er til 14. apríl.
Upplýsingar gefa skólastjóri og rekstrarstjóri í
Tónlistarskólanum í síma21788 og starfsmanna-
stjóri Akureyrarbæjar í síma 21000.
Móðursystir mín,
ANNA STEFÁNSDÓTTIR,
fyrrverandi kennari,
frá Eyjardaisá,
lést á Akureyri 27. mars.
Heiður Vigfúsdóttir.
Bróðir okkar,
JÓN INGIMAR KRISTJÁNSSON,
frá Brautarhóli,
er lést að Kristnesspítala laugardaginn 21. mars sl. verður
jarðsunginn frá Glerárkirkju mánudaginn 30. mars kl. 13.30.
Systur hins látna.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför,
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR,
Ásbrandsstöðum, Vopnafirði.
Börn, tengdabörn, barnabörn,
barnabarnabörn og bræður.