Dagur - 28.03.1992, Blaðsíða 3
Laugardagur 28. mars 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Leikfélag Húsavíkur:
Með Gaukshreiðrið
í Hafnarijörð
Leikfélag Húsavíkur mun
bregða sér suður með Gauks-
hreiðrið og vera með 26.-28.
sýningu á verkinu í Bæjarbíói í
Hafnarfirði 9.-11. aprfl. Þetta
verða jafnframt allra síðustu
sýningar lcikfélagsins á verk-
inu en síðustu sýningar þess á
Húsavík verða 3.-4. apríl.
Verkið hefur yfirleitt verið
sýnt fyrir fullu húsi og fengið
mjög góða dóma.
Leikferðin á höfuðborgarsvæð-
ið er til komin vegna fjölda fyrir-
spurna að sunnan, ekki síst frá
Þingeyingafélaginu í Reykjavík,
að sögn Ásu Gísiadóttur, for-
manns félagsins. Ása sagðist
vona að leikfélagið fengi góða
aðstoð félagsmanna og fleiri aðila
við uppsetningu sýningarinnar.
Þess mætti t.d. geta að einn
brottfluttur Húsvíkingur hefði
hringt frá Hornafirði og boðist til
að koma til Hafnarfjarðar og
aðstoða. Talsvert fyrirtæki er að
flytja sviðsmyndina suður og
koma henni upp í Bæjarbíói. Alls
fer 30 manna hópur frá Húsavík
suður með sýninguna og fyrstir
verða sviðsmennirnir sem hefja
vinnu sína mánudaginn 6. apríl.
Vinna við uppsetningu Gauks-
hreiðursins hófst um miðjan
október og síðan hefur mikið
vinnuálag verið á þeim sem að
sýningunni starfa og leikendum,
þó jólafrí væri gefið.
„Ég vona að við fáum góða
aðsókn,“ sagði Ása. Leikfélagið
hefur áður sýnt í Bæjarbíói fyrir
nokkrum árum. Það var uppsetn-
ingin á Síldinni og þá var miða-
pantanasíminn rauglóandi allan
daginn.
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir var gestur leik-
félagsins á sýningu 20. mars sl.
Að sögn Ásu óskaði forsetinn
leikstjóranum, Maríu Sigurðar-
dóttur, sérstaklega til hamingju
með sýninguna. Hafði frú Vigdís
einnig á orði að hún hefði heyrt
vel látið af sýningunni en það
væri ekkert oflof. IM
Sæluvika Skagfirðinga:
LeMélagið ekki með
Sæluvika Skagfirðinga hefst nú
um helgina og í dag opnar
Elías B. Halldórsson, sýningu
á olíu- og grafíkverkum í Safna-
húsinu á Sauðárkróki. Til stóð
að Leikfélag Sauðárkróks væri
með bamaskemmtun, en henni
hefur verið frestað vegna for-
falla.
Þetta verður í fyrsta sinn í
mörg ár sem Leikfélag Sauðár-
króks verður ekki með sýningu í
Sæluviku, en til stóð að vera með
barnaskemmtun þar sem margar
persónur úr vinsælum barna-
leikritum hittust. Af þeirri sýn-
ingu verður ekki svo Sæluvikan
verður nær eingöngu helguð
söngnum að þessu sinni.
Auk söngsins verður ein mynd-
listarsýning í Sæluvikunni og er
það Élías B. Halldórsson sem
sýnir olíu- og grafíkmyndir í
Safnahúsinu og verður hún opin
kl. 15-19 virka daga, en kl. 14-18
um helgar. SBG
Húsaleiga helst obreytt
Leiga fyrir íbúðarhúsnæði og
atvinnuhúsnæði, sem sam-
kvæmt samningum fylgir vísi-
tölu húsnæðiskostnaðar eða
breytingum meðallauna, helst
óbreytt mánuðina aprfl/júní frá
því sem hún hefur verið tíma-
bilið janúar/mars 1992.
Þá hefur Hagstofan reiknað
launavísitölu fyrir marsmánuð
1992 miðað við meðallaun í
íebrúar sl. Er vísitalan 127,8 stig
eða óbreytt frá fyrra mánuði.
Samsvarandi launavísitala,
sem gildir við útreikning greiðslu-
marks fasteignaveðlána, er
einnig óbreytt og er því 2.795 stig
í apríl 1992.
Frábœrt úrval hornsófa í
leðri, lúxefni og áklœði
Stórglœsileg ítölsk
leðursófasett á frábœru verðl
Sófasett 3+1+1
verð frá kr. 128.720 stgr.
TRYGGVABRAUT 24 PÓSTHÓLF 266 602 AKUREYRI SlMI (96)21410
Þeirsem láta þessi
síöustu tilboö fram
hjá sér fara sjá eftir
því meðan þeir iifal
Hrisalundi 5
Kjallara
Opið: Laugard. kl. 10:00-18:00
Sunnud. kl. 13:00-18:00- Siðasíi dagur
á Grams-markaðinum má
velja sér úr hundruðum bóka
á sértilboðsborði:
12 BÆKUR FYRIR 500 KR.
• hOnnunardeld