Dagur - 28.03.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 28. mars 1992
Stjörnuspá
„Án ábyrgöar“
■H^w+ut*
21. mars - 19. apríl
Þetta verður alveg einstaklega skemmti-
leg helgi hjá hrútum. Hvort sem þú ferð út
að skemmta þér með tilheyrandi bægsla-
gangi eður ei, verður líf og fjör allt í kring-
um þig. Fjörið endist fram á mánudag.
Fimmtudagur og föstudagur verða líka
sérlega hagstæðir dagar til framkvæmda
af öllu tagi. Það er reyndar hvergi ský á
þínum himni.
7\)au+
20. apríl - 20. maí
Ákveðnu erfiðleikatímabili í vinnunni/skól-
anum lýkur nú um helgina og við taka ólíkt
skemmtilegri tímar á þeim vettvangi. Ástin
dafnar þessa dagana, sem líka eru heþpi-
legir til listsköpunar. Það er eitthvert
óraunsæi í gangi. Helgin verður ekki eins
leiðinleg og síðasta helgi, en leiðinleg
samt. Þriðjudagur og miðvikudagur verða
frábærir.
Tví buPaP
21. maí-20. júní
Það eru umhleypingar hjá tvíburunum
þessa vikuna. Það er spenna í ástarmál-
unum. Á mánudaginn skiptir úr langvar-
andi velgengni í sex vikna erfiðleika í vinn-
unni. Eftir ánægjulega helgi lendir þú í
óvæntum vandræðum á þriðjudaginn sem
tengjast bæði vinnunni og ástinni. Þrefald-
ur bömmer. ( tvo daga. Á fimmtudags-
morgun færðu óvæntar gleðifréttir. Svo er
bjart framundan.
Kpabbi
21. júní - 22. júlí
Þér líður ekki sem best þessa dagana
vegna einhverrar skerðingar á hreyfi- og/
eða samskiptagetu þinni. Annað hvort ertu
bundin(n) við rúmið, bæinn og landið. Þetta
lagast um næstu helgi. Þessi helgi verður
aftur á móti hvorki fugl né fiskur. Á þriðju-
dag eða miðvikudag færðu óvænt símtal.
Farðu varlega fimmtudag og föstudag.
Enn ein bömmerhelgin. Þær hafa verið
erfiðar helgarnar undanfarið, en þessi
verður sýnu verst. Þú ert beinlínis í slysa-
hættu. En nú er líka botninum náö, verra
verður það ekki. Ákveðnu vandræða- og
óvissuástandi sem varað hefur síðan um
miðjan febrúar lýkur, með eða án þinnar
vitundar, annað kvöld og framundan eru
friðsælir og græðandi tímar.
AÁeyja
23. ágúst - 22. september
Eftir átakalausa helgi mæta þér breyttar
kringumstæður í vinnunni/skólanum á
mánudag. Ef til vill gerir þú þér ekki grein
fyrir því strax en nú er upp hafið erfiðasta
tímabil ársins á þeim vettvangi. Því lýkur
ekki fyrr en í byrjun maí. Oheilindi og
fantasíur veröa einkenni þessa tímabils.
Meyjar þola hvorugt. Hvikaðu hvergi.
Sigfús E. Arnþórsson
fyrir vikuna 28. mars til 3. apríi 1992
23. september - 22. október
Steiiagei+
22. desember- 19. janúar
Vogir eru alltaf að leita að nýjum þroska-
leiðum. Allt lífið eru þær að reyna aö koma
á jafnvægi þar sem ójafnvægi er fyrir, jafnt
á öllum sviðum eigin lífs sem á öllum svið-
um umhverfisins. Þær verða fyrir vikið oft
ráðagóðir öldungar. Helgin verður þroska-
vænleg og skemmtileg, en farðu varlega á
fimmtudag og föstudag.
Eftir kyrrláta helgi munt þú merkja já-
kvæða breytingu í vinnunni/skólanum í
næstu viku. Þriöjudag og miðvikudag
mætir þú velvild úr óvæntri átt. Á fimmtu-
dag og föstudag ertu í ákveðinni óhappa-
hættu og ættir því að láta lítið fara fyrir þér
þá. Annars eru tímarnir almennt heppileg-
ir til ásta eða annarrar listsköpunar.
SpopðcKeki
23. október - 21. nóvember
Það verða einhverjar væringar á heimilinu
í dag eða á morgun og mun eima af þeim
fram á mánudagskvöld. Aöstæður í vinn-
unni/skólanum munu breytast þér í hag á
komandi vikum ef þú kemur auga á tæki-
færin. Þriðjudagur og miðvikudagur verða
skemmtilegir í vinnunni/skólanum og ást-
ríkir á heimilinu. Bestu dagar vikunnar til
hvers sem er.
22. nóvember - 21. desember
Va+kAsberi
20. janúar - 18. febrúar
Þetta er þín helgi og því tilvalin til upplyft-
ingar af einhverju tagi. Fyrir hina flug-
greindu vatnsbera þýðir það sennilega
æsispennandi fyrirlestur um félagslegt
misrétti, eða eitthvað þess háttar. Eða
kannski leikhús. Já, þú drífur þig í leikhús í
kvöld. Þá sé ég einhver óvænt en
skemmtileg atvik á fimmtudag eða föstu-
dag.
Kiskar*
19. febrúar - 20. mars
Þótt eitthvað sé úfinn sær í ástamálunum
hefur þó verið líf og fjör í vinnunni/skólan-
um, en nú fer senn að anda köldu þar líka.
En annars verður helgin óvenju skemmti-
leg og mánudagur líka. Þriðjudag og mið-
vikudag skaltu fara varlega, en fimmtu-
dagur og föstudagur eru árangursríkustu
dagar vikunnar.
Helgin þarf ekki að verða með öllu tíðinda-
laus. Það er helst á sviði ástamálanna
sem eitthvað nýstárlegt gæti gerst. Að því
slepptu verður hún hins vegar óvenju lit-
laus. Á mánudag hefst uppgangstímabil í
vinnunni/skólanum, sem vara mun fram í
maí. Þú finnur rækilega fyrir þessu á
þriðjudag og miðvikudag, sem verða
bestu dagar vikunnar.
Matarkrókur
Rækju/melónukokteill
í forrétt og
lúðuragú í aðalrétt
- Skarphéðinn Jósepsson í matarkrók
Ingveldur Jóhannesdóttir sem
var í Matarkróknum fyrir
hálfum mánuði, skoraði á
skólabróður sinn Skarphéð-
inn Jósepsson að taka upp
þráðinn og er hann mœttur
hér með girnilegar uppskrift-
ir. Skarphéðinn kemur frá
Hafnarfirði en stundar nám
við Sjávarútvegsdeild Háskól-
ans á Akureyri. Skarphéðinn
segist vera töluvert í eldhúsinu
og reyndar sé nokkuð jöfn
skipting á eldhússtörfunum
eins og öðrum heimilisstörf-
um á milli hans og konunnar.
Hann segist vinna frekar eftir
nefinu við matseldina og því
hafi verið nokkuð erfitt að
koma uppskriftum sínum nið-
ur á blað. Skarphéðinn er
mikið fyrir fisk og er með
uppskriftir af fiskréttum,
rœkju/melónukokteil í forrétt,
lúðuragú í aðalrétt og svo
glóðaðan ís með perum og
piparmyntusúkkulaði í eftir-
rétt. Uppskriftirnar miðast við
fjóra.
Rœkju/melónukokteill
(Forréttur)
250 g rœkjur
>/2 lítil melóna (gul)
2 dl súrmjólk
2 msk. mayonaise
sítrónusafi
Melónan skorin í litla bita og
sett í botninn á desertglasi.
Rækjunum skipt í u.þ.b. fjóra
hluta (geyma 10-15 stk. til að
skreyta með) og settar ofan á
melónubitana. Súrmjólk og
mayonaise hrært vel saman,
kryddað með sítrónusafa og
hellt yfir. Skreytt með rækjum,
sítrónu- og gúrkusneið.
Lúðuragú
(Aðalréttur)
400 g smálúðuflök (roðlaus og
beinlaus)
2 stk. stór rauð epli
1 stk. vœnn laukur
15 stk. meðalstórir ferskir
sveppir
1 stk. paprika (appelsínugul)
2 dl rjómi
Krydd/hveitiblanda:
100 g hveiti kryddað með
Lemmon’n Herb (McCormick),
hœgt er að nota t.d. sítrónupipar
eða sítrónuduft og malaðan
svartan pipar í staðinn
paprikuduft
hvítur pipar
salt (varlega þó)
Laukur, sveppir og paprika
sneitt niður og smjörbrúnað á
pönnu, fært á disk og látið bíða.
Eplin eru flysjuð og skorin í
bita, velt upp úr hveitiblönd-
unni og brúnuð á pönnunni,
fært á disk og látið bíða. Lúðu-
flökin eru skorin í teninga sem
velt er upp úr hveiti og snögg-
steiktir á pönnu þar til þeir eru
gullinbrúnir. Allt er síðan sam-
einað á pönnunni, rjómanum
hellt yfir og látið malla í 10-12
mínútur. Jafnað með afgangin-
um af hveitiblöndunni ef með
þarf. Borið fram með soðnum
kartöflum eða hrísgrjónum,
snittubrauði og grófu hrásalati.
Glóðaður ís með perum
og piparmyntusúkkulaði
(Eftirréttur)
V2 dós niðursoðnar perur
‘/2 l vanilluís
8-12 stk. After Eight
Perurnar settar í eldfastar
skálar, ísinn ofan á og After
Eight sneiðarnar lagðar yfir.
Glóðað í ofni (grill 250°C) í
eina eða tvær mínútur (þar til
súkkulaðið er vel bráðið).
Skarphéðinn skorar á kunn-
ingjakonu sína, Hönnu G.
Magnúsdóttur, húsmóður að
Goðabyggð 17 á Akureyri og
mun hún mæta með uppskriftir
í Matarl^ók að hálfum mánuði
liðnum.
-KK