Dagur - 28.03.1992, Side 22
22 - DAGUR - Laugardagur 28. mars 1992
Svarta skikkjan
- sett á bekk með Dances With Wolves
Sumarið
nálgast
Enn er óráðstafað
þremur stórglœsileg-
um sumarhúsalóð-
um í Stekkjarhvammi
í Bárðardal. Lóðirnar
eru 7 km sunnan
Fosshóls, afgirtar og
fullfrágengnar.
Höfum hús til
afgreiðslu í vor.
Til sýnis eftir nánara sam-
komulagi, eða fáið send-
ar upplýsingar.
,TRÉSMIÐJAN A\
MOGILSF.fm
SVALBARÐSSTROND S 96-21570
Kvikmyndasíða
Jón Hjaltason
Krókurinn aftur á stjá
Við hverju má búast þegar þeir
leggja saman krafta sína leik-
stjórinn Steven Spielberg og Ieik-
ararnir Robin Williams, Dustin
Hoffman, Julia Roberts og Bob
Hoskins? Ekki spyrja mig. En
hitt er staðreynd að í nýjustu
Peter Pan myndinni stilla fimm-
menningarnir saman strengi sína;
Robin Williams er miðaldra lög-
maður, á tvö börn og fallegt
heimili. Mörgum árum fyrr var
þessi fundarkæri lögmaður sjálf-
ur Pétur Pan en því hefur hann
gleymt. Þar kemur að hinn gamli
andstæðingur hans kapteinn
Krókur (Dustin Hoffman) lætur
til skarar skríða og stelur börnum
lögmannsins. Gömul frænka hans
verður þá tii þess að segja honum
sannleikann um fortíðina og lög-
maðurinn leggur upp í ferð til
Einskis lands að bjarga börnum
sínum. Þar kemur góða álfkonan
Mick Jagger á
hvíta tjaldinu
Mick Jagger er ekki frábitinn því
að leika í kvikmyndum. Stjarna
hans hefur þó aldrei risið hátt á
því sviði og ég verð að játa það
hreinskilnislega að ég man ekki
eftir neinni kvikmynd þar sem
rokkarinn heimsfrægi hefur látið
til sín taka. Nú er nokkur von til
þess að þar verði breyting á. Að
minnsta kosti hljómar söguþráð-
ur Freejacket, en þar fer Jagger
með stórt hlutverk, afspyrnu vel
fyrir unnendur spennumynda.
Emilio Estevez fer með hlut-
verk kappakstursmanns er slepp-
ur lifandi úr alvarlegu slysi en
færist um leið ein 20 ár fram í
tímann og lendir þar í miðju sam-
NISSAN
IMISSAN
Bílasýningr
verður í sýningarsal okkar að
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar,
Óseyri 5, laugardaginn 28. mars og sunnu-
daginn 29. mars frá kl. 14-17 báða dagana.
Sýndur verður Nissan Patrol
með 4.2 bensínvél, sjálfskiptur,
einn sá fullkomnasti á markaðnum í dag.
særi sem hvert annað peð. Jagger
er einn hátæknivæddra manna-
veiðara þess tíma og fljótlega
kemst Estevez að því að Jagger
er á hælunum á honum. Þess má
geta að Anthony Hopkins, úr
hljóðlátu lömbunum, fer einnig
með bitastætt hlutverk í þessari
kvikmynd.
Tinkerbell (Julia Roberts) hon-
um til aðstoðar ásamt fleiri kunn-
ingjum.
Satt best að segja hefur þetta
nýjasta framlag Spielbergs fengið
nokkuð blendnar móttökur en
það er ástæðulaust fyrir okkur
hér norðan heiða að fella dóma á
grundvelli skrifa erlendra
skríbenta, bíðum myndarinnar
og dæmum eftir eigin tilfinning-
um og smekk.
Bob Hoskins í hlutverki Smees,
hjálparmanns Króks.
Kapteinn Krókur ógnar Pétri Pan.
Strákarnir rétta Pétri hjálparhönd.
Cape Fear
- De Niro gengur af göflunum
Ofbeldi og mannát er í tísku
þessa dagana. Kannski hleypti
Hannibal þessu af stað, eða var
anginn ef til vill byrjaður að
skjóta rótum eitthvað fyrr? Nú
hefur Martin Scorsese hleypt
nýju blóði í blóðelsku bíófara
með því að endurgera kvikmynd
J. Lee-Thompsons, Cape Fear,
frá árinu 1962. Um þá kvikmynd
skrifaði Leslie Halliwell: Óvið-
felldin og teygð spennumynd
með veigalitlum persónum og
stöðluðum aðstæðum. - (Kvik-
myndahandbókin 1, Reykjavík
1987, bls. 250.)
í aðalhlutverkum nýju Cape
Fear eru Robert De Niro, og
þykir víst takast sérstaklega vel
upp, og Nick Nolte. Til gamans
eru þeir hafðir með Robert
Mitchum og Gregory Peck en
þeir fóru með aðalhlutverkin í
62-útgáfunni. Geggjunin er ekki
langt undan. De Niro er sá snar-
ruglaði, Nolte er lögfræðingurinn
sem á um sárt að binda eftir
ofsóknir geðsjúklingsins. En sá
hefur horn í síðu lögmannsins og
isdóm er á hann var lagður fyrir
nauðgun. í fangelsinu hefur De
Niro menntast nokkuð til líkama
og sálar og sýnt að honum er
ýmislegt til lista lagt. Pannig sam-
einast í honum góðar gáfur og
sálarflækjur sem enginn kann ráð
til að greiða úr. Sá gáfaði er um
leið ruglaður, andinn andfúll, sál-
in vitlaust tengd. En hvað væri
varið í það að fást við einfalda
geðsjúklinga, rugludalla er sjá
aðeins eina braut og þó öllu held-
ur aðeins eina leið til að fara
þessa braut?
Einnig sýnum við Nissan Sunny.
Komið og kynnið ykkur frábæra bíla.
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
i.’ig-t-Yl'.'i
NI55AN
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða2.
Hver man ekki Driving Miss
Daisy. Nú hefur leikstjóri hennar
Bruce Beresford framkallað ann-
að snilldarverk sem starfsbræður
mínir í útlandinu keppast um að
mæra. Black Robe heitir þessi
nýja kvikmynd Beresfords og er
sögð betri en Mission og standa
fyllilega jafnfætis Dances With
Wolves. Ástæðan fyrir því að
þessar myndir eru þornar saman
er augljós, allar gerast þær meðal
villimanna í harðbýlu landi.
Black Robe segir sögu af Jesúíta-
prestinum Laforgue (sem
kanadfski leikarinn Lothaire
Bluteau leikur) og ferð hans vet-
urinn 1634 um óbyggðir Kanada
á fund Huron-indíána. Markmið-
ið er að kristna heiðnar sálir og
jafnvel leita píslardauða meðal
villimanna. Laforgue, sem kemst
í náin kynni við indíána á leið
sinni, verður undrandi og svolítið
miður sín yfir þeirri uppgötvun er
hann gerir; villimaðurinn er eftir
allt saman með sál og hefur
margt til brunns að bera sem
prýða myndi hinn besta
guðsmann. Klerkurinn lendir í
sálarháska og líkamlegar raunir
verða einnig með mesta móti.
Iroquios-indíánar ráðast á leið-
angursmenn, taka þá höndum og
pína.
Ég ætla ekki að reyna að hafa
eftir öll lofsyrðin er hafa fallið
um þessa kvikmynd Beresfords
en get aðeins vonað að einhver
bíóeigandinn íslenskur verði til
þess að kaupa eintak af henni
hingað til fslands - og svo auðvit-
að að Arnfinnur okkar sjái sér
fært að bregða henni á tjald
Borgarbíós.