Dagur - 16.04.1992, Page 14

Dagur - 16.04.1992, Page 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 16. apríl 1992 Dulspeki Einar Guðmann Orkumyndir af Hkamanum - byltingarkennd uppgötvun á sviði ljósmyndunar og sjúkdómsgreininga Við höfum áður tekið til umfjöllunar svonefnda Kirlian ljósmyndatækni. Pað er ljós- myndatækni sem hefur þann eiginleika að taka mynd af orku- sviði líkamans eða annarra lif- andi vera. Gallinn við þá ljós- myndatækni er sá að þrátt fyrir ýmislegt merkilegt sem lesa má út úr henni þá eru myndirnar sem fást einungis í tvívídd. Þessi tækni er að nálgast það að verða vísindagrein, svo viða- mikil er hún. Hægt að taka mynd af því sem einungis miðlar hafa séð Það byltingarkennda í þessari ljósmyndatækni er að þróuð hefur verið aðferð til þess að taka myndir í þrívídd. Ekki aðeins ljósmyndir heldur hreyfi- myndir í lit. Til þess að gera þér lesandi góður grein fyrir því hversu mikla þýðingu þetta hef- ur er vert að íhuga eftirfarandi: Munurinn á þessari tækni og Kirlian tækninni er að hægt er að taka mynd af manneskju í heild sinni. Ekki aðeins fingrum, fótum eða öðrum líkamshlutum sem þrýst er að Kirlian ljósmyndavélinni. Það sem þetta hefur að segja er að hægt er að sjá orkustöðvar lík- amans vel aðgreindar innan lík- amans og allar orkulínur sem umhverfis hann eru. Hingað til hafa einungis miðlar og annað dularfullt fólk eins og sjáendur og Yogar getað séð þessar orku- stöðvar. Yogar hafa skráð og teiknað upp þessar orkustöðvar fyrir mörg hundruð árum en vísindamenn nútímans hafa hingað til ekkert haft í höndun- um sem stutt getur það að þær séu raunverulega til. Núna er hins vegar hægt að sjá þær fyrir tilstilli þessarar tækni. Hér á Akureyri er fyrirtæki sem tekið hefur þátt í því að þróa þessa tækni í samstarfi við Bretann Harry Oldfield, en hann þróaði þessa þrívíddar ljósmyndatækni út frá Kirlian ljósmyndatækninni. Þetta fyrir- tæki hefur fengið í sínar hendur eina myndavél eins og hér um ræðir en ég mun e.t.v. síðar segja frá því hvernig þeirra starfsemi miðar hér á Akureyri. Mikill árangur í sjúkdómsgreiningum Harry Oldfield er prófessor í stærðfræði og lífeðlisfræði. Hann skrifaði bókina „The Dark Side of the Brain“ sem fjallar um þessa tækni og þann árangur sem náðst hefur í sjúk- dómsgreiningum fyrir hennar tilstilli. Þar erum við einmitt komin að aðal kjarnanum. Það hefur löngum verið kunnugt að miðlar og sjáendur sem geta séð orkusvið fólks geta jafnframt út frá því sem þeir sjá sagt til um hvaða sjúkdómur eða kvilli það er sem er að hrjá viðkomandi. Harry Oldfield hefur sýnt fram á það að „orkumyndir“ af lík- ama manns sem er sjúkur á einn eða annan hátt eru afbrigðilegar frá því sem eðlilegt telst. Þannig getur hann sýnt á vísindalegan hátt á ljósmynd það sem miðlar hafa í aldanna rás reynt að lýsa fyrir okkur. Yarla búin að slíta barnskónum Harry Oldfield er orðinn vel þekktur fyrir þessa starfsemi sína. Þessi grein er svo ný af nálinni að hún er varla búin að slíta barnsskónum en lofar þó góðu þar sem hann hefur náð undraverðum árangri í að sjúk- dómsgreina fólk. Sjálfur kvart- ar hann sáran undan því að geta hins vegar ekki læknað fólk. Það er ekki nóg að sjúkdóms- greina það. Hins vegar hefur Harry tekið myndir af því þegar hönd læknanda, þ.e.a.s. manns sem læknar með handayfirlagn- ingu jafnar út orkulínur og orkustöðvar í sjúklingi og gerði þær beinni. Eftir það var sjúkl- ingurinn mun orkumeiri. Tölvutækni notuð við myndatökuna Notaðar eru ákveðnar stærð- fræðijöfnur sem tölva vinnur úr við þessa myndatöku. Prófessor Benoit Mandelbrot er höfund- urinn að þeim. Harry segir að með því að notast við mismun- andi stærðfræðijöfnur megi ná fram mismundandi fyrirbærum í líkamanum. „Ef við erum að fást við hreina stærðfræði erum við einnig að fjalla um hreina orku og stærðfræðireglur." í bókinni „Dark Side of the Brain“ segir frá því að kenning- in sem þetta byggist á sé að hver og ein fruma hafi ákveðna bylgjulengd eða rafsvið sem stjórnast af heilanum og því líf- færi sem hún tilheyrir. Fylgni á milli „óæskilegra rafsviöa“ og sjúkdóma Mikil umræða er að skapast um svokallaðar utanaðkomandi bylgjur og rafsvið sem stafa frá rafstöðvum, raflínum, raftækj- um, útvarpssendum og þess háttar fyrirbærum. Rök sem benda til þess að rafsvið hafi skaðvænleg áhrif á lífverur verða sífellt fleiri og búast má við að í framtíðinni verði lögð meiri áhersla á takmörkun „mengunar" frá rafstöðvum og öðrum fyrirbærum sem teljast hafa truflandi áhrif á menn og dýr. Þetta eru ósýnileg fyrirbæri en þó eru menn farnir að mæla áhrif af þessum völdum og sýna fram á fylgni á milli „óæskilegra rafsviða" og sjúkdóma. Rafsegulbylgjur geta einnig læknað Harry Oldfield hefur einmitt sýnt fram á það að utanaðkom- andi rafsvið geti ekki einungis valdið sjúkdómum í mannslík- amanum heldur einnig læknað. Sú grein sem snýr að því að nota rafsegulbylgjur til lækn- inga er ekki ný af nálinni. Engu að síður er hún enn að slíta barnsskónum þar sem miklar rannsóknir þarf til þess að vís- indamenn sannfærist um nota- gildið. Þær niðurstöður sem við stöndum frammi fyrir í dag eru þó svo afdrifaríkar að við þurf- um ef til vill áður en langt um líður að endurskoða allar okkar hugmyndir um læknisfræði, sjúkdóma, næringu og líkama okkar. Hjólreiðakeppni grunn- skólanema á Nordurlandi - verður haldin á Akureyri 30. apríi nk. Undir lok síðasta mánaðar þreyttu nemendur 7. bekkjar í grunnskólum bæjarins umferð- argetraun á vegum Umferðar- ráðs og lögreglu. Þeim nemend- ur sem stóðu sig best gefst kostur á að taka þátt í hjól- reiðakeppni grunnskólanema á Norðurlandi, sem haldin verð- ur á Akureyri þann 30. aprfl nk. Ætlunin er að halda keppnina á planinu sunnan við Lögreglustöðina (gamla Bif- reiðaeftirlitsplaninu). Keppnin fer fram með þeim hætti að lið frá hverjum skóla verður skipað fjórum nemendum og keppa tveir í spurningum úr umferðarreglunum og tveir í hjólreiðaþrautum. Til að auð- velda skipulag keppninnar er þess vænst að skólayfirvöld til- kynni þátttöku sína í keppnina fyrir kl. 17.00 mánudaginn 27. apríl. Tilkynna skal þátttöku til Lögreglunnar á Akureyri (Felix Jósafatsson eða Ólafur Ásgeirs- son) sími 96-12233, faxsími 96- 21575. Sem áður segir er þetta keppni grunnskóla á öllu Norðurlandi. Til nokkurs er að vinna, því auk þess sem sigurvegarnir kom- ast til Reykjavíkur í haust í keppni nemenda af öllu landinu, fá þeir viðurkenningar fyrir árangur sinn og þeir skólar sem verða í fyrstu sætunum fá mynd- varpa og bókagjafir. Stuðnings- aðili keppninnar á Norðurlandi eru útibú Landsbankans á Norðurlandi. -KK Úr gömlum degi Togari strandar í Ólafsfírði Aðfaranótt sl. laugardags strand- aði belgískur togari á Ósbrekku- sandi, rétt vestan við Ólafsfjarð- arkauptún. Dimmviðri var á og allmikið brim er skipið kenndi grunns. Skipshöfnin hafðist við í skipinu um nóttina, en um morg- uninn var skotið björgunarlínu út í skipið og mennirnir dregnir í land í björgunarstól. Tókst björgunin slysalaust, og var lokið um hádegi á laugardag. Skip- brotsmennirnir eru enn í Ólafs- firði, og líður þeim öllum vel. Skipið er talið lítið brotið, en er sokkið all djúpt í sand og fullt af sjó. Telja Ölafsfirðingar ólík- legt að takist að ná því út. (27. febrúar 1941) Rafmagnsleysi Rafstraumur frá Laxárvirkjun- inni kom aftur síðastliðið fimmtu- dagskvöld. Var þá bráðabirgða- aðgerð lokið í Ljósavatnsskarð- inu. Hafði bærinn þá verið að mestu rafmagnslaus í nærfellt eina viku. Illt er, þegar slík ævintýri gerast. (13. mars 1941) Björgunarafrek Þann 11. þ.m. féll drengur á Síla- læk í Aðaldal niður um vök á ísi lögðum bæjarlæk og barst með straumi út undir ísinn. Móðir drengsins sá atburðinn og kallaði á mótbýlismann sinn, Friðjón Jónasson til hjálpar. Stakk hann sér þegar niður um aðra vök, er var nokkru neðar og kafaði móti straumi 20-25 metra leið, náði drengnum og komst með hann sömu leið til baka. Voru báðir þjakaðir eftir volkið, en hresstust brátt. (27. mars 1941) Eru boðorðin til þess að brjóta þau? Undanfarið hefir bæjarstjórinn birt tilkynningar í blöðum bæjar- ins um bann við því að búfé sé látið ganga laust í bænum og er eigendum hótað sektum ef þeir koma ekki fénaði sínum í búfjár- hagana hið bráðasta. Þótt margir dagar séu liðnir síðan þessi tilkynning var fyrst birt og hér sé verið að auglýsa ákvæði úr samþykktum bæjarins, þá bólar ennþá ekkert á fram- kvæmdum. Hvað hefir lögreglan annað þarfara að gera um þessar mund- ir en að sjá um það, að banni þessu sé framfylgt? Sauðfé spásserar á víð og dreif um bæinn, í matjurtagörðum og skrúðgörðum, veldur spjöllum og vandræðum, stendur þversum á götum og gatnamótum, rétt eins og hér væri engin bæjarstjórn, engin lögregla og engin boðorð. Ekki væri það nema stundar- verk fyrir góða smala að koma þessu fé í hagana, eða í hús, og láta eigendurna sæta ábyrgð. Eru boðorðin til þess eins að brjóta þau; er ekkert gert með ákvæði bæjarsamþykktanna? Hvað segir lögreglan? - Borgari. (21. maí 1941) íþróttahússmálið Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti á fundi sínum 29. f.m. að leggja fram úr bæjarsjóði 75 þús- und krónur til byggingar íþrótta- húss í bænum. Af hálfu bæjar- stjórnar voru kjörnir tveir menn í framkvæmdanefnd íþróttahúss- byggingarinnar, og hlutu kosn- ingu bæjarfulltrúarnir Árni Jóhannsson og Þorsteinn Þor- steinsson. Munu þá handbærar allt að 200 þús. kr. til byggingarinnar, en þess, sem á vantar þá upphæð, hefir íþróttahússnefndin ákveðið að afla með 5 króna veltu, og auðvitað gengur það eins og í sögu. (21. ágúst 1941) SS tók saman

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.