Dagur - 25.04.1992, Page 3
Fréttir
Laugardagur 25. apríl 1992 - DAGUR - 3
Heimild Landsbankans til innsetningar að Móasíðu 1 á Akureyri:
Málinu hefur verið skot-
ið tB ríkissaksóknara
Kristján Gunnarsson og Svan-
hildur Karlsdóttir á Akureyri
hafa farið þess á leit við rann-
sóknarlögreglu ríkisins eða
embætti ríkissaksóknara að
rannsakaður verði aðdragandi
innsetningar Landsbanka
íslands á hluta húseignarinnar
Móasíðu 1 á Akureyri, en þar
hefur Söluturninn Gosinn m.a.
verið til húsa.
kom í innsetningarbeiðni bank-
ans að hann hafi ekki fengið
afnot af verslunarhúsnæðinu þar
sem uppboðsþoli hafi ekki fengist
til að afhenda lykil að húsnæð-
inu. Bæjarfógetaembættið á
Akureyri féllst á innsetninguna
15. apríl sl. og síðar sama dag var
skipt um skrá í verslunarhúsnæð-
inu.
í kæru þeirra Kristjáns Gunn-
arssonar og Svanhildar Karls-
dóttur til embættis ríkissaksókn-
ara og eða rannsóknarlögreglu
ríkisins er óskað eftir að rann-
sakaður verði aðdragandi „að-
gerða Landsbanka íslands þenn-
an dag.“
í kærunni eru einnig gerðar
athugasemdir við að Landsbank-
inn hafi aldrei átt neinn rétt til
veðskuldabréfs, sem í uppboðs-
afsali sé talið heimila útlagningu
til bankans. óþh
Úrval af nýjum
Mazda bflum!
sýningarsalur
Laufásgötu 9, Akureyri, sími 26300.
Aðdragandi þessa máls er sá
að í nóvember 1990 fór fram upp-
boð á hluta þessar húseignar,
sem gengið hefur undir nafninu
„verslun 11“, og keypti Lands-
banki íslands hana. Bankinn
fékk uppboðsafsal með úrskurði í
uppboðsrétti á Akureyri 15.
janúar sl. og í því kemur fram að
bankinn hafi greitt og fullnægt
uppboðsskilmálum.
Landsbankinn óskaði síðan
eftir því í lok mars sl. að hann
yrði settur inn í húseignina. Fram
Fegurðardrottning
Islands 1992:
María Rún Haf-
liðadóttir krýnd
með viðhöfti
Val á fegurðardrottningu
íslands 1992 fór fram að
kvöldi síðasta vetrardags að
Hótel íslandi í Reykjavík.
Ungfrú ísland 1992 var kjörin
María Rún Hafliðadóttir.
Hin nýkjörna fegurðardrottn-
ing er 19 ára gömul, nemandi í
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð, og hefur m.a. starfað í þrjú
ár við fyrirsætustörf erlendis.
María Rún var jafnframt valin
besta ljósmyndafyrirsætan.
Pálína Halldórsdóttir, fegurð-
ardrottning Norðurlands, var ein
18 stúlkna er tóku þátt í „Ungfrú
ísland“. Pálína var verðugur full-
trúi Norðurlands þótt hún næði
ekki einu af fimm fyrstu sætun-
um. í öðru sæti varð Heiðrún
Anna Björnsdóttir, í þriðja sæti
Pórunn Lárusdóttir, í fjórða sæti
Ragnhildur Sif Reynisdóttir og í
fimmta sæti varð Jóhanna Dögg
Stefánsdóttir. Keppendur völdu
einnig vinsælustu stúlkuna úr sín-
um hópi, Erlu Dögg Ingjalds-
dóttur. ój
Fjörustillur Gármanns:
Síðustu sýn-
ingardagar
„Fjörustillur“, grafíksýning
Guðmundar Ármanns Sigur-
jónssonar, hefur hlotið lof
gagnrýnenda. Sýningunni lýk-
ur um helgina, en hún er til
húsa í vinnustofu listamannsins
í Grófargili á Akureyri.
Á sýningu listamannsins eru 32
verk, dúkristur og einþrykk.
Fjöldi verka hefur selst. „Aðsókn
hefur verið góð. Áhugi Akureyr-
inga fyrir myndmennt og mynd-
list er mikill. Myndlistamenn
bæjarins eru í sókn og Listagil er
mikill aflvaki. Sem nafn sýning-
arinnar bendir til er fanga leitað í
flæðarmálið þar sem svalvindar
blása og báran brotnar.“ ój
OsTLtysi
^ Skokkaðu út í búð og kauptu ost?~
Nægilegt kalk alla daga
og holl hreyfing hamlar gegn
beinþynningu.
Byggðu upp - borðaðu ost.