Dagur - 25.04.1992, Qupperneq 9
Unglingasíðan
Laugardagur 25. apríl 1992 - DAGUR - 9
Iris Guðmundsdóttir
Þórdís Jónsdóttir frá Svalbarðseyri var
fermd á sumardaginn fyrsta. Þegar ég
ræddi við hana stóð undirbúningurinn
fyrir daginn sem hæst en þó gaf hún sér
tíma til að spjalla við mig.
- Hvernig fer undirbúningurinn fyrir
ferminguna fram?
„Á Svalbarðseyri erum við aðeins tjögur
sem fermumst í ár þannig að presturinn
okkar Pétur Þórarinsson ákvað að við
skyldum vera í tímum með krökkunum frá
Grenivík. Við hittumst til skiptis á Greni-
vík, Svalbarðseyri og heima hjá prestinum
og þctta er miklu líflegra heldur en það
hefði verið hefðum við verið fjögur. Það
er búið að vera mjög skemmtilegt að kynn-
ast öllum þessum krökkum og presturinn
hefur verið alveg einstakur. Hann er svo
opinn og afslappaður og ég held að öllum
krökkunum hafi þótt þetta góðir tímar í vet-
ur. Við hittumst oftast á sunnudagsmorgn-
um um kl. 10 og ræðum saman um sálma,
bænir og Bíblíuna og hann hefur lagt meira
upp úr því að við skiljum textann heldur en
að við lærum þá utanbókar.
Hann hefur líka talað mikið um
lífið og hvemig ungt fólk
getur leiðst út á
að hlusta á prestinn en þetta þarf að lærast
eins og annað.“
- Getur verið að unglingar líti á ferm-
inguna sem útskriftfrá kirkjunni?
„Ja, það eru kannski einhverjir sem gera
það. Ég lít á ferminguna sem upphaf af trú-
arferli mínum en veit að ég á eftir að breyt-
ast og þá getur verið að ég verði ekki eins
áhugasöm og ég er núna en ég vona að ég
missi ekki trúna eins og svo margir gera.“
- Verður fermingarveisla hjá þér eftir
athöfnina?
„Já. Við höfum verið að undirbúa daginn
smátt og smátt en núna er allt í hámarki. Ég
eignaðist lítinn bróður í vetur og hef verið
með hann á meðan mamma og pabbi hafa
verið að undirbúa ferminguna mína. Ég hef
líka reynt að aðstoða þau á meðan hann sef-
ur og það er búið að vera skemmtilegt að
undirbúa veisluna þó þetta sé mikil vinna.
Ég hlakka til að hafa veislu vegna þess að
ég veit að ættfólk mitt utan af
landi ætlar að koma
og það
fróðlegt. Krakkarnir þurftu að læra 1-2
vers í 10 sálmum utanbókar og segir
Alda Sif að það hafi ekki verið erfítt en
heldur ekki mjög spennandi vegna þess
að hún skildi ekki alla sálmana. Ferming-
ardagurinn var svolítið fyrirkvíðanlegur
fyrir Öldu Sif vegna þess að hún þurfti
að ganga fyrst inn af krökkunum en hún
segir að þetta hafí verið ótrúlega auðveit
þegar að því kom.
- Finnst þér þú hafa lcert eitthvað í vet-
ur?
„Já, mjög mikið. Mér finnst ég skilja
trúna betur og ég er orðin trúaðri en ég var
fyrir. Ég er í æskulýðsstarfi kirkjunnar
núna og hef mjög gaman af því. Mér finnst
skrýtið hvað við erum fá vegna
þess að það er svo góð-
ur félagsskap-
við það að krakkar eru að metast um gjaf-
imar. Mér fannst mjög gaman að fá gjafir
og var mjög og er ánægð með allt sem ég
fékk. Mínar gjafir voru frekar stórar en það
er kannski vegna þess að ættingjar mínir
tóku sig saman og gáfu mér stóra gjöf í
staðinn fyrir margar litlar. Ég held að það
séu alltaf einhverjir sem láta fermast vegna
gjafanna þó ég þekki ekki marga.“
- Hvað fannst þér skemmtilegast áferm-
ingardaginn?
„Mér fannst allur dagurinn mjög
ánægjulegur en samt
fannst mér
villigötur og hann
fær okkur til að ræða það sem
hvílir á okkur og ræðir um það. Við tökum
svo þátt í undirbúningi fyrir messuna sem
byrjar kl. 2 og skiptumst á að hjálpa prest-
inum við upplestur og fleira í messunni. Ég
hef haft mjög gaman af þessu og ætla að
halda áfram í æskulýðsstarfi eftir ferming-
una.“
- Hvernig líður þér í kirkju?
„Mér líður yfirleitt vel. Ég hef verið
frekar dugleg við að fara í messu með for-
eldrum mínum undanfarin ár þannig að ég
er ekki óvön. Það líður ekki öllum vel í
kirkju því mörgum finnst erfitt að slappa af
í þögninni og friðnum og einbeita sér að því
verður gaman
að fá þau öll. Það eru
margir sem ég hef ekki hitt í eitt ár
og þess vegna verður gaman að allir getir
hist.“
- Láta unglingar ferma sig vegna gjaf-
anna?
„Ég held að það séu alltaf einhverjir sem
gera það þó held ég að það séu ekki margir.
Mér finnst mjög spennandi að hugsa til þess
að fá gjafir, mér finnst alltaf gaman að fá
gjafir. Eg er samt miku spenntari fyrir at-
höfninni og það að fá fjölskylduna mína í
heimsókn."
Alda Sif Magnúsdóttir fermdist á skírdag
í Akureyrarkirkju. í vetur hefur hún
gengið til altaris undir handleiðslu séra
Birgis Snæbjörnssonar og séra Þórhalls
Höskuldssonar og segir að það hafí verið
misjafnlega skemmtilegt en yfirleitt mjög
þessu og við
lærum um svo margt
annað en trúna. Ég veit um
marga sem finnst hallærislegt að vera
æskulýðsstarfi og þá sérstaklega stelpum.
Það eru krakkar í hópnum sem vilja ekki að
aðrir viti af því að þeir séu í æskulýðsfélag-
inu vegna þess að þá myndu vissir aðilar
gera grín að þeim. Mér finnst þeir ótrúlega
óþroskaðir sem gera grín að því sem aðrir
velja sér og það eru kannski einmitt þeir
sem ættu að koma í kirkjuna og starfa með
okkur. Unglingar í dag eru margir svo
taugaveiklaðir að þeir geta ekki slappað af
og þess vegna finnst þeim kirkjustarfið frá-
hrindandi. Mér líður oftast vel í kirkju og
ég held að það sé vegna þess að ég hef eig-
inlega alltaf farið í messu á jólunum og svo
förum við mamma stundum á sunnudögum
þannig að ég er að verða vön.“
- Eru fermingargjafirnar orðnar eins
stórar og fjölmiðlar hafa látið í skína núna
fyrir fermingarnar?
„Það er mjög misjafnt. Sumir fá alveg
rosalegar gjafir en ég held að meirihlutinn
sé innan eðlilegra marka. Ég hef orðið vör
skemmtilegast að
bræður mínir sem búa úti á
landi skyldu koma hingað með fjölskyld-
ur sínar sem ég hef ekki hitt lengi. Það
voru líka fleiri ættingjar sem komu utan af
landi og mér þótti vænt um að allir þeir sem
komu væru að gera sér ferð hingað til að
halda upp á daginn með mér. Þetta var
langur og erfiður dagur en mjög skemmti-
legur."
Dagur Fannar Dagsson fermdist 14. apríl
í Akureyrarkirkju. Hann var ánægður
með daginn sem hann segir að hann komi
alltaf til með að muna. Hann fékk marg-
ar og góðar fermingargjafír og veislan
heppnaðist mjög vel.
I 4 ár hefur hann verið að undirbúa ferm-
ingarárið á þann hátt að hann hefur safnað
öllum peningum sem honum hefur áskotnast
vegna þess að í haust ætlar hann að fara er-
lendis með móður sinni, systur og mági.
Dagur er trúaður en er ekki í æskulýðsfélag-
inu vegna þess að hann hefur lengi verið í
skátunum og fundir þeirra rekast á við fundi
æskulýðsfélagsins. Dagur þekkir einn strák
sem lét ekki ferma sig en hann veit ekki hver
ástæðan fyrir því var. Hann segir að þessi
drengur sé látinn í friði með þessa ákvörðun
sína enda er það alfarið hans mál.
Þórdís Jónsdóttir.
Alda Sif segir að lítla aðsókn ungs fóiks í kirkju megi kannski
rekja til þess aO margir eiga erfitt meO aO skilja ræOu prests-
ins. Hún heldur aO þaO sé möguleiki á aO breyta þessu til aO
unga fólkiO fari aO láta sjá sig í messu.
Degi fínnst þaO algjör vitleysa þegar fjölmiðlar eru aO tala
um aO öfgarnar í gjöfum séu vegna heimtufrekju í krökkun-
um. Honum finnst þetta rangt vegna þess aö foreldrar sem
láta undan þessari heimtufrekju geti sjálfum sér um kennt,
þaö eru þó þeir sem gefa þessar gjafir.