Dagur


Dagur - 31.10.1992, Qupperneq 5

Dagur - 31.10.1992, Qupperneq 5
Laugardagur 31. október 1992 - DAGUR - 5 Fréttir Leikfélag Húsavíkur eignast loks eigið húsnæði: Ronja ræningjadóttir í sviðsljósið - í þýðingu bæjarstjórans Leikfélag Húsavíkur mun taka Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren í þýðingu Ein- ars Njálssonar, bæjarstjóra, til sýninga í vetur. Leikstjóri verður Brynja Benediktsdótt- ir. Verkið hefur ekki áður verið sýnt á íslandi en verið er að setja það upp í Borgarleikhúsinu, þó ekki í þýðingu bæjarstjórans. Töluvert margir leikendur munu taka þátt í sýningunni, að sögn Ásu Gísladóttur, formanns leik- félagsins. Stefnt er að því að æfingar hefjist eftir miðjan nóvember og verkið verði frum- sýnt um mánaðamótin jan.-feb. Leiklistarklúbbur Framhalds- skólans á Húsavík, Píramus og Þispa, er að æfa Jeppa á Fjalli eftir Holberg og er Sigurður Hallmarsson leikstjóri. Sýningar verða í Samkomuhúsinu. Leikfélag Húsavíkur hefur keypt Flókahús af Byggðastofn- un fyrir 2,5 milljónir króna. Hús- ið stendur neðan við Bakkann, rétt við höfnina og þar voru Húsvísk matvæli með starfsemi sína. Þetta er í fyrsta sinn í 92 ára sögu leikfélagsins sem það eign- ast eigið húsnæði. Húsið verður notað til smíða- og saumavinnu á vegum félagsins og þar verður einnig muna- og búningageymsla, en slíka aðstöðu sárvantaði leik- félagið. IM Leikfélag Húsavíkur sýndi Gaukshreiðrið á síðasta lcikári og fékk verkið gífurlega aðsókn. Áfengisvarnaráð: Vítavert er að lögregluyfirvöld skuli hafa látið undan bjórbruggurum Á fundi nýverið samþykkti Áfengisvarnaráð eftirfarandi: „Áfengisvamaráð lýsir vanþókn- un sinni á svokallaðri hátíð til heiðurs hóflausri bjórdrykkju og telur kaldhæðnislegt að á sama tíma og hún er haldin dynja yfir alls kyns hörmungar af völdum áfengisdrykkju. Með því að heimila slíka starf- semi er verið að ganga erinda þeirra gróðaafla er hag hafa af sem mestri vímuefnaneyslu um leið og brugðið er fölskum dýrðarljóma á einn mesta bölvald okkar tíma. Þarna er um að ræða ekki einasta bein- ar áfengisauglýsingar af ósvífn- asta tagi heldur auglýsingaher- ferð - og þarf varla að minna á að samkvæmt landslögum er bannað að auglýsa áfengi. Vítavert er að lögregluyfirvöld skuli hafa Iátið undan tillits- leysi, ágengni og frekju bjór- bruggara.“ Og áfram segir í samþykkt Áfengisvarnaráðs: „Áfengis- varnaráð minnir á þá staðreynd að 99% þeirra sem neyta ólög- legra vímuefna hafa byrjað á neyslu bjórs eða annars áfengis. Bjór„hátíðir“ sem þessi eru því bein ávísun á hvort tveggja: Aukna áfengisdrykkju og enn meiri og almennari neyslu ólög- legra vímuefna en nú er. Hörmu- legur er sá tvískinnungur og það ábyrgðarleysi sem birtist í því að ýmsir fjölmiðlar og einstaklingar hafa hampað þessari sölu- og auglýsingastarfsemi án þess að setja hana í eðlilegt samhengi við hörmungaratburði líðandi stundar. Væntir Áfengisvarna- ráð þess áð framvegis verði að því gætt að framfylgt sé íslensk- um lögum í þessum efnum sem öðrum.“ Harmonikufélag Þingeyinga: Lífleg og mikil starfsemi - allir áhugamenn velkomnir Vetrarstarf er að hefjast hjá Harmoníkufélagi Þingeyinga og er stefnt að því að halda árshátíð félagsins 14. nóv. að Breiðumýri í Reykjadal. Rúm- lega 100 manns, bæði konur og karlar, eru félagar í Harmoníkufélaginu og er for- maður þess Stefán Þórisson. Aðalstarfsemi félagsins í vetur verður að undirbúa landsmót harmóníkuunnenda sem haldið verður á Egilsstöðum um miðjan júní. Par mun spila stórhljóm- sveit frá Þingeyingum, 8-10 manns. Landsmótin eru haldin á þriggja ára fresti. Harmoníkufélagið er opið öll- um sem áhuga hafa á tónlist af þessu tagi. Milli 20-30 spilarar eru í félaginu, að sögn Stefáns. Hann segir að mjög samhentur og skemmtilegur hópur starfi í félaginu, þar sé lífleg og mikil starfsemi og séu skemmtiferðirn- ar annálaðar. Tvær utanlands- ferðir hafa verið farnar á vegum félagsins, einnig hefur verið farið í heimsóknir innanlands, m.a. í Dali og Borgarfjörð. Félagið er 14 ára, var stofnað 1978. IM Eyjafjarðarsveit: Samstarfshópuriim Hagar hendur flytur um set Samstarfshópurinn Hagar hendur í Eyjafjarðarsveit hef- ur fengið inni í vetur fyrir starf- semi sína í íbúðarhúsi á bæn- um Stekkjarflötum. Þar verð- ur haldið áfram vinnu á þeirri braut sem mörkuð var í fyrra- vetur þegar starfsemin fór af stað. Síðastliðinn vetur var starfsemin til húsa í Melgerði og í vor var staðan metin í ljósi fyrstu starfs- mánaðanna. Pétur Þór Jónasson, sveitarstjóri, segir að í samstarfi við sveitarstjórn hafi hópnum svo verið útvegað nýtt húsnæði til starfseminnar á Stekkiarflötum. JÓH RAFMAGNSOFNAR VIFTA sem getur blásið heitu eða köldu HITASTILLIR ÞRÍSKIPTUR ROFI á 1500 w ofninum (600+900=1500 w) TVÍSKIPTUR ROFI á 1200 w ofninum (600+600=1200 w) 2ja ára ábyrgð EINFÖLD OG ÓDÝR LAUSN! LAUSTENGDIR, BARA AÐ STINGA í SAMBAND HENTA VEL HVAR SEM ER: í fbúðina, bflskúrinn, geymsluna, sumarbústaðinn, vinnustaðinn ... Þ. BJÖRGÚLFSSON HF HAFNARSTRÆTI 19-600 AKUREYRI • SÍMI 25411 ■» S.Á.Á.-N BINGÓ OG BALL laugardaginn 31. október kl. 22.30 í Húsi aldraðra. Spilað verður bingó og hljómsveitin Kredit heldur uppi fjörinu. Húsið verðuropnað kl. 22.00. Miðaverð kr. 700. ★ Allir velkomnir. Nefndin. ^ -----------------:.. Aðalfundur Framsóknarfélags Akureyrar verður haldinn mánudaginn 2. nóvember nk. í Hafnarstræti 90, kl. 20.30 e.h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing og Flokksþing. Önnur mál. Jóhannes Geir Sigurgeirsson alþingis- maður mætir á fundinn. Félagar eru hvattir til að fjöimenna. Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar. <B> MYUHÍHI Pony 5 dyra hlaðbakur Eigum nokkra 5 dyra Pony árg. ’92 á sérkjörum. • útvarp/segulband - 4 hátalarar • 84 hestafla vél • tölvustýrð fjölinnspýting • 5 gira beinskipting eða 4 þrepa tölvustýrð sjálfskipting • veltistýri • rafknúnar rúðuvlndur • rafknúin samlæsing • litað gler • samlitir stuðarar og hliðarspeglar • hvarfakútur Beinskiptur: Verð 884.000 kr. (með vsk.) - Verð 710.040 kr. (án vsk.) Sjálfskiptur: Verð 949.000 kr. (með vsk.) - Verð 762.249 kr. (án vsk.) ÞÓRSHAMAR HF BÍLASALA Glerárgötu 36, símar 1 1036 & 30470 <

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.