Dagur - 31.10.1992, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - Laugardagur 31. október 1992
Hús til sölu
Einbýlishús eða tvær íbúðir
Til sölu er Laugarbrekka 14, Húsavík, tveggja hæða
steinhús með stórri og góðri lóð.
Húsið er byggt 1947, endurnýjað og lagfært töluvert
1978-82 og 1991-92.
Húsið er til sölu í heild eða hvor íbúð fyrir sig.
Allar nánari upplýsingar um húsið og sölu þess
gefur Stefán Jón Bjarnason, Norðurvöllum 20, Keflavík.
Heimasími 92-14070, vinnusími 92-15200.
Aðstandenda-
námskeið
Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur alkohólista
hefst nk. þriðjud. 3. nóv. kl. 18.00.
Nánari upplýsingar og skráning í göngudeildinni
Glerárgötu 28, Akurkeyri, sími 27611.
S.Á.Á.-N.
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
BOSCH ©
handverkfæri
Kynningartilboð
föstudag og laugardag 30. og 31. október
20-30% afsláttur
Rafhlöðuborvél 12V
GBM 12 VES
Stiglaus hraðastilling.
Fram- og aftursnúningur.
Sjálfherðandi patróna.
Tveggja drifa.
Áður kr. 30.775.
Nú kr. 22.166.
Stingsög 550W
GST 60 PBE
Framsláttur á blaði.
Lykillaus blaðfesting.
Stiglaus hraðastilling.
Gráðustillanlegt aðhald.
Áður kr. 25.206.
Nú kr. 18.904.
Höggborvél 550W
CSB 550 RE
13 mm patróna.
Fram- og aftursnúningur.
Stiglaus hraðastilling.
Áður kr. 11.420.
Nú kr. 7.994.
Hefill 710W
PH0 20-82
Hefilbreidd 82 mm.
Hefildýpt 0-2 mm.
Áður kr. 17.750.
Nú kr. 12.425.
Nýr söluaðili á Akureyri
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
SÁLNARUSK Sr. Svavar A. Jónsson
Dúkrista (ein af sjö) sem Sigurborg Gunnarsdóttir í Málunardeild Myndlistaskólans á Akureyri gerði eftir þeim
hughrifum sem sálnarusk sr. Svavars kallaði fram.
Hrútafirðirnir
í tilverunni
Indíáni heimsótti hvítan mann í
stórborg. Framandi og ankanna-
legt fannst honum að vera í borg-
inni innan um mergð fólks og dyn
bíla.
Vinirnir gengu um götu.
Skyndilega þreif indíáninn í öxl
hvíta mannsins og sagði: „Heyrir
þú það sem ég heyri?“ Sá hvíti
lagði við hlustir og svaraði: „Ég
heyri aðeins bílflautur og véla-
hljóð. “ „En ég heyri í engi-
sprettu einhvers staðar hér í
grendinni,“ segir indíáninn. „Par
hlýtur þér að skjátlast, því hér
eru engar engisprettur. Og þó að
hér væru einhverjar, væri ómögu-
legt að heyra í þeim í þessum
hávaða, “ svarar borgarbarnið.
Indíáninn gekk nokkur skref
áfram og staðnæmdist við
húsvegg. Þar óx vínviður villtur.
Hann fletti blöðum vínviðarins
sundur - og viti menn! Þar var
engispretta!
Hvíti maðurinn sagði: „Þið
indíánar eruð svo sannarlega
heyrnarbetri en við hvíta fólkið!“
Indíáninn andmælti: „Þar skjátl-
ast þér. Leyf mér að sanna það. “
Hann kastaði fimmtíu senta pen-
ingi á gangstéttina. Það klingdi í
peningnum á hellunum og fólk,
sem var þar í margra metra
fjarlægð, nam hljóðið og leit við.
„Sjáðu bara, “ sagði indíáninn,
„engisprettan var ekki háværari
en þessi litli peningur. Margt
hvíta fólksins heyrði engu að síð-
ur í peningnum. Ástæðan fyrir
því er sú, að við heyrum best
það, sem við erum vön að hafa á
góðar gætur. “
Óþekktur höfundur.
Aldrei fannst mér fallegt í
Hrútafirði, fyrr en ég kom þang-
að í fyrsta skiptið, en átti ekki
bara leið um hann. Þá gafst mér
tími til þess að staðnæmast þar og
njóta fegurðar fjarðarins.
Þá sá ég Hrútafjörð í fyrsta
skiptið. Hrútafjörð eins og ég
held að Guð hafi meint hann.
Og þannig er það með margt
annað. Við getum þekkt mann án
þess að þekkja hann í raun og
veru og heyrt lag, án þess að
heyra það.
Þannig er gjörvöll tilveran.
Hún er full af Hrútafjörðum. Við
heyrum það, sem við viljum
heyra en erum blind á það, sem
við viljum ekki sjá. Þú getur
sparkað kæruleysislega í steininn
á götunni. Þú getur líka tekið
hann upp og skoðað hann og
undrast yfir fegurð hans.
Og kannski þarf ekki að fara í
fjarlægar heimsálfur til þess að
komast í ævintýraferðir. Hrúta-
fjörður getur nægt. Jafnvel þinn
eigin húsgarður.
Og kannski er fólkið í næsta
húsi jafnvel enn áhugaverðara og
forvitnilegra en fólkið, sem var
viðstatt Oskarsverðlaunaafhend-
inguna, ef okkur auðnast að sjá
það eins og Guð meinti það.
„Allir hlutir eru hreinum
hreinir, en flekkuðum og
vantrúuðum er ekkert
hreint, heldur er bæði hugur
þeirra flekkaður og sam-
viska.“
(Títusarbréfiö 1, 15)