Dagur - 31.10.1992, Page 13
Laugardagur 31. október 1992 - DAGUR - 13
í UPPÁHALDI
„Vona aö við dettum í lukkupottinn”
- segir Smári Garðarsson
Smári Garðarsson er
starfsmaður Golfklúbbs
Akureyrar og vall-
arvörður á Jaðri. Hann
er jafnframt yfírtippari golf-
klúbbsmanna og hefur verið
mikið í sviðsljósinu að undan-
fömu vegna þess að vinning-
amir hafa sópast upp á Jaðar.
Það þykir varla tiltökumál
lengur þótt seðill með 13 rétt-
um og nokkrar tólfur komi í
hlut kerfiskarlanna uppi á Jaðri,
hvort sem það eru fáeinir ein-
staklingar sem detta í lukku-
pottinn eða stór hópur.
Hvað gerirðu helst ífrístundum?
„Allur minn frítími fer í
félagsstörf. Annars spila ég
golf.”
Hvaða matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
„Ég er alltaf að verða sann-
færðari um það að það sé lamb-
ið mitt góða. Svo er ég alæta á
alla deserta og eftirrétti, gjaman
með vel af rjóma.“
Uppáhaldsdrykkur?
„Ég held að kaffi hljóti að vera
þar fremst í flokki."
Ertu hamhleypa til allra verka á
heimilinu?
„Nei, yfirleitt er allur þróttur úr
mér þegar heim er komið og ég
er því ekki til stórræðanna."
Spáirðu mikið í heilsusamlegt
líferni?
„Já, ég spái mikið í það en það'
Smári Garðarsson
er minna um framkvæmdir.“
Hvaða blöð og tímarit kaupirðu í
áskrift?
„Ég kaupi Dagblaðið og síðan
fæ ég erlent blað fyrir vall-
arstarfsmenn.“
Hvaða bók er á náttborðinu hjá
þér?
„Það em bara getraunaforrit og
kerfi.“
Hvaða hljómsveit/tónlistarmaður
er í mestu uppáhaldi hjá þér?
„Ætli ég segi ekki bara Simply
Red. Annars hef ég gaman af
dægurlögum almennt.“
Uppáhaldsiþróttamaður?
„Ég hef alltaf haldið upp á
Alfreð Gíslason og tekið mér
hann til fyrirmyndar og við hlið
hans set ég Þorbjöm Jensson.
Þetta eru menn sem hafa virki-
lega sýnt og sannað hvað hægt
er að ná langt með þrotlausum
æfingum.“
Hvað horfirðu helst á í sjónvarpi?
„íþróttir."
A hvaða stjórnmálamanni
hefurðu mest álit?
„Ég hef ekki álit á neinum
stjómmálamönnum. Eftir á að
hyggja þá finnst mér mesta
glóran vera í því sem Ámi
Steinar var að segja á sínum
tíma.“
Hvar á landinu vildirðu helst búa
fyrir utan heimabœinn?
„Helst hvergi annars staðar. Ég
er svo rosalega heimakær.“
Hvað myndirðu kaupa ef þú feng-
ir 100 þúsund krónur upp úr
þurru?
„Getraunaseðla, alveg með það
sama.“
Hvernig myndirðu eyða þriggja
vikna vetrarfríi?
„Á einhverjum stað erlendis þar
sem ég gæti slappað af, leikið
mér í golfi og skoðað mig um.“
Að lokum, hvað œtlarðu að gera
um helgina?
„Númer eitt, tvö og þrjú að
fylgjast með getraunum og vona
að við dettum í lukkupottinn. Á
sunnudaginn ætla ég að gera
eitthvað fyrir sjálfan mig.“
SS
Hvað er að gerast?
Kristniboðssamkomur hjá KFUM og KFUK
Bókamarkaður verður í félags- I komukvöldin og að samkomun-
heimili KFUM og KFUK sam- um loknum verða kaffiveitingar.
Opið hús hjá Samtökum
krabbameinssj úklinga
og aðstandenda
Kristniboðssamkomur verða á
vegum KFUM og KFUK í félags-
heimili félaganna í Sunnuhlíð
dagana 1. til 3. nóvember næst-
komandi og hefjast þær kl. 20.30
hvert kvöld.
Ræðumenn á samkomunum
verða Jónas Þórisson, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar, Guðlaugur Gunnars-
son, kristniboði og Skúli Svavars-
son, kristniboði, er allir hafa starf-
að fyrir íslenska kristniboðið í
Afríku og hafa verið að störfum
bæði í Eþíópíu og Kenýa. Á
samkomunum verður kristniboð-
ið kynnt í máli og myndum.
Samtök krabbameinssjúklinga
að aðstandenda verða með
opið hús að Gierárgötu 36 á
Akureyri, þriðju hæð, nk.
mánudagskvöld, 2. nóvember,
kl. 20-22.
Samtökin bjóða nýja félaga
velkomna á fundinn. 1 frétt frá
samtökunum kemur fram að
Elísabet Hjörleifsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur í krabbameins-
hjúkrun, hafi verið ráðin í 20%
starf hjá Krabbameinsfélagi
Akureyrar og nágrennis.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Aðalfundur á
Akureyri í dag
Aðalfundur Hjálparstofnunar
kirkjunnar verður haldinn á
Akureyri í dag og hefst klukk-
an 11.00 fyrir hádegi í Safnaðar-
Akureyri:
Aðalfundur
heimili Akureyrarkirkju.
Venjuleg aðalfundarstörf fara
fram á fundinum en að honum
loknum er boðað til fundar með
fulltrúum sókna í Eyjafjarð
Prófastsdæm'i þaf sem ræuvcrí
um samskipti og samsian aun
og Hjálparstofnunar kirkjunnar.
S.ÁÁ með
fræðslunámskeið
S.Á.Á.-N. efnir til fræðslunám-
skeiðs fyrir aðstandendur alkó-
hólista nk. þriðjud. 3. nóvember kl.
18. Nánari upplýsingar og skráning í
göngudeildinni Glerárgötu 28 í síma
27611.
Framsóknar
Framsóknarfélag Akureyrar heldur
aðalfund nk. mánudag, 2. nóvem-
ber, að Hafnarstræti 90, kl. 20.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
verða lagabreytingar, kosning full-
trúa á kjördæmisþing og flokksþing.
Gestur fundarins verður Jóhannes
Geir Sigurgeirsson, alþingismaður.
I
A
MERKISMENNHF