Dagur - 31.10.1992, Blaðsíða 23

Dagur - 31.10.1992, Blaðsíða 23
Gerð: Toyota Corolla GLi, 5 dyra, 5 manna fólksbíll, vél aö framan, framhjóladrif, Vél og undirvagn: 4-strokka, fjórgengis bensínvél, vatnskæld, 2 yfirliggjandi knastásar, 4 ventlar viö hvern strokk, slagrými 1587 cm3, bor- vídd 81,0 mm, slaglengd 77,0 mm, þjöppun 9,5:1, 114 hö viö 6000 sn/mín., 145 Nm við 4800 sn/mín., bein eldsneytisinn- sprautun. Drif á framhjólum. 4-þrepa sjálfskipting. Sjálfstæð fjöörun aö framan meö þríhyrndum þverörmum og McPherson gormlegg. Jafnvægisstöng. Aö aftan langs- og þverarmar, gormar og demparar. Jafnvægis- stöng. Aflstýri (tannstangarstýri), aflhemlar, diskar að framan, skálar að aftan, handbremsa á afturhjólum. Hjólbarðar 175/65 R 14 H, eldsneytisgeymir 50 lítra. Mál og þyngd: Lengd 429,5 cm; breidd 168,5 cm; hæð 137,5 cm; hjólahaf 246,5 cm; sporvídd 146,0/145,0 cm; eigin þyngd ca. 1.120 kg; hámarksþyngd 1.595 kg. Framleiðandi: Toyota Motor Corporation, Japan. Innflytjandi: Toyota á íslandi, P. Samúelsson hf., Kópavogi. Umboð: Bílasalan Stórholt, Akureyri. Verð: Ca. kr. 1.275.000 (sjálfskiptur). Bílar Úlfar Hauksson Nýja útgáfan er sú sjöunda ■ röðinni og er með þetta japanska útlit sem flestir bílar skarta um þessar mundir. Myndir: Robyn Corolla 1,6 GIi „Ég kunni umsvifalaust vel við mig undir stýri.“ Undirvagninn er ekki mjög frábrugðinn þeim sem finna mátti í eldri gerðinni, en þó er fjöðrun- in á einhvern hátt þægilegri án þess að það kosti nokkra fórn í aksturseiginleikum. Veghljóðið er heldur minna en áður og það vantar aðeins herslumuninn til að Corollan geti talist hljóðlátur bíll. Toyota Corolla Liftback 1,6 GLi kom mér ánægjulega á óvart. Þessi bíll, sem verður að teljast til venjulegra fjölskyldu- bíla, getur sem best gert sunnu- dagsrúntinn ánægjulegan með óvenju líflegum og skemmtileg- um aksturseiginleikum. Vélin er aðalsmerki bílsins ásamt sérlega fallegum frágangi á flestu, smáu og stóru. Hún er 4 þrepa, og hefur þægi- legar skiptingar. Aksturseiginleikarnir þóttu mér bæði öruggir og skemmtileg- ir. Corollan er lífleg og það er freistandi að aka henni dálítið létt. Bíllinn er stöðugur og rás- fastur við flestar aðstæður, þó e.t.v. megi finna lítilsháttar los á afturendanum við álagsbreytingu (ef slegið er af í beygju eða víkja þarf snögglega). Það er þó alls ekki meira áberandi en gengur og gerist í sambærilegum bílum. Vökvastýrið er mjög nákvæmt og þægilegt og sama er að segja um hemlana, sem vinna vel. Farangursrýmið er rúmgott og mjög aðgengilegt. Toyota Toyota Corolla hefur verið fram- leiddur frá árinu 1966 og alls hafa verið seldir meira en 17 milljónir bíla með þessu tegundarheiti. Þessi útgáfa er sú sjöunda í röð- inni og hefur þetta nýja japanska útlit, bogadregnar línur, mjög hallandi rúður og lágan fram- enda. Ég verð að játa að ég á orðið í óttalegu basli með að þekkja sundur japanska bíla á færi. Samkeppnin er mikil milli japanskra framleiðenda í þessum flokki bíla og flestir tefla fram nýjum gerðum þessa dagana. Toyota Corolla á því marga keppinauta um hylli kaupenda bæði hér á landi og annars staðar. Nýja Corollan fæst í mörgum útgáfum, 3, 4, og 5 dyra, bein- skiptur eða sjálfskiptur. Bíllinn sem ég ók var 5 dyra og sjálf- skiptur. Allar gerðirnar eru frem- ur geðþekkar útlits, einkum í návígi, því frágangur á yfir- byggingunni er afar góður, jafnt innan sem utan. Mælaborðið er mjög vel skipulagt, allir hlutir þar sem einna best er að hafa þá og mælar skýrir og læsilegir. Sætin eru góð og rýmið í framsætum ágætt. Aukið hjólahaf hefur í för með sér heldur meira fótarými fyrir aftursætisfarþega en í eldri gerðinni, en óþarflega þótti mér lágt til lofts aftur í, eins og reynd- ar í mörgum keppinautum Coroll- unnar. Utsýnið úr bílnum er all- gott nema aftur úr bílnum (Liftback). Farangursrýmið er rúmgott og mjög aðgengilegt. Aftursætið má leggja niður í tvennu lagi og fæst þannig enn stærra farangursrými. GLi gerðin er vel búin þægindum, rafdrifnar rúður, samlæsingar, rafdrifnir útispeglar og útvarp/segulband ásamt vökva- og veltistýri eru þannig innifalin í verðinu. Ég kunni umsvifalaust vel við mig undir stýri í Corollunni, sem segir sína sögu um skipulag stjórntækjanna. Sömuleiðis varð ég mjög fljótt dús við aksturseig- inleika bílsins. Ástæðan er eink- um stórskemmtilegir eiginleikar vélarinnar. Hún er 1,6 lítra, með 16 ventlum og skilar 114 hö við 6000 sn/mín. Hún virðist vel upp- lögð á hvaða snúningshraða sem er, og er þýðgeng og fremur hljóðlát, þó svo að til hennar heyrist auðvitað þegar hún nálg- ast 6000 sn/mín. Aflið er meira en nægjanlegt og bíllinn er mjög líflegur og auðveldur í akstri. Sjálfskiptingin er einnig góð, ein- föld í notkun og vinnur mjög vel. Laugardagur 31. október 1992 - DAGUR - 23 Jörð til sölu! Til sölu er Framnes í Kelduhverfi, N.-Þing. Á jöröinni er gott íbúðarhús, fjárhús og hlaða. Eignaraðild að Litluá. Upplýsingar gefur Eyjólfur Gunnarsson í síma 95- 11114 á kvöldin. Auglýsing um lausar íbúðarhúsalóðir í Giljahverfi III. áfanga eru lausar til umsóknar lóðir fyrir fjölbýlishús og raðhús. Fyrirvari er gerð- ur um hvaða lóðum verði úthlutað og hvenær þær verða byggingarhæfar. Umsóknarfrestur er til 13. nóvember nk. Eldri umsóknir ber að endurnýja. Akureyri 29. okt. 1992. Byggingafulltrúi Akureyrar. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Athygli er vakin á, að breyting hefur orðið á símatímum lækna Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Frá og með 1. nóvember 1992 eru símatímar lækna eftirfarandi: Ari H. Ólafsson Miðvikudaga ............. kl. 15.15-15.45 Baldur Jónsson Mánudaga-föstudaga ...... kl. 11.00-11.30 Brynjólfur Ingvarsson Mánudaga-föstudaga ....... kl. 10.00-10.30 Edward Kiernan Þriðjudaga ............... kl. 13.00-14.00 Fimmtudaga .............. kl. 13.00-14.00 Friðrik E. Yngvason Miðvikudaga .............. kl. 13.00-14.00 Föstudaga ............... kl. 13.00-14.00 Geir Friðgeirsson Mánudaga-föstudaga ....... kl. 11.30-12.00 IngvarTeitsson Mánudaga-fimmtudaga ...... kl. 12.00-12.30 Jón Ingvar Ragnarsson Miðvikudaga .............. kl. 13.30-14.00 Jón Þór Sverrisson Mánudaga ................. kl. 13.00-14.00 Föstudaga ............... kl. 13.00-14.00 Júlíus Gestsson Miðvikudaga .............. kl. 14.15-14.45 Magnús Stefánsson Mánudaga-föstudaga ....... kl. 10.30-11.00 Nick Cariglia Föstudaga ................ kl. 11.00-12.00 PállTryggvason Mánudaga-föstudaga ....... kl. 10.00-10.45 Sigmundur Sigfússon Mánudaga ................. kl. 10.00-10.30 Fimmtudaga .............. kl. 10.00-10.30 Þorkell Guðbrandsson Mánudaga ................. kl. 11.00-11.30 Miðvikudaga ............. kl. 11.00-11.30 Föstudaga ............... kl. 11.00-11.30 Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.