Dagur


Dagur - 08.04.1993, Qupperneq 9

Dagur - 08.04.1993, Qupperneq 9
Fimmtudagur 8. apríl 1993 - DAGUR - í I í" '''■ ' ■ - // ; 1§11 ? 2 * 'P ' ■ Arnar Páll Hauksson í hljóðveri Ríkisútvarpsins á Akureyri við Fjölnisgötu. „Viðbrögð við fréttum úti á landi eru mun harðari og meiri en í Reykjavík. Ég hef haldið því fram að það sé vegna þess að landsbyggðin hafi verið, sem ég vil kalla, niðurgreidd í fréttum,“ segir Arnar Páll m.a. í viðtalinu. r. ♦** i i rm 1 i Fjölskylda: Arnar Páll Hauksson er fædd- ur í Reykjavík árið 1954. Eig- inkona hans er Aldís Norð- fjörð, arkitekt á Teiknistof- unni Formi á Akureyri. Þau eiga tvo syni; Odd Árna 17 ára og Atla Hauk 15 ára. Skólaganga: Stúdent frá Menntaskólanum við Tjörnina árið 1975. Var í eitt ár í landafræði í Háskóla íslands og stundaði síðan nám á árunum 1977-1982 í landa- fræði, félagsfræði og umhverf- isfræði í Osló í Noregi. Störf: Blaðamaður á DV 1983-1986, fréttamaður á Bylgjunni 1986- 1988, fréttamaður á fréttastofu útvarps 1988-1992 og deildar- stjóri Ríkisútvarpsins á Akur- eyri frá 1992. að fréttamaðurinn sé á réttri leið. Oft er vitnað til bandarísks blaðamanns í þessu sambandi sem sagði að hann væri aldrei ánægður fyrr en hann fengi grjót inn um gluggann hjá sér! Það væri til vitnis um að hann væri með góða frétt í höndunum. i Fréttamenn fá ekki endilega neikvæð við- brögð vegna þess að þeir hafi farið rangt með, heldur hefur fréttin komið við kaun- : inn á hlutaðeigandi. Ég fagna því síður en svo alltaf þegar ég fæ jákvæð viðbrögð. Ég held því fram, þó að það hljómi undarlega, að jákvæðu viðbrögðin séu oft verri en þau neikvæðu. í þessu sambandi dettur mér í hug að sem blaðamaður DV var ég sendur á aðalfund Stéttarsambands bænda á Isafirði og skrifaði síðan opnu um hann í blaðið. Ingi Tryggvason, þáverandi formaður Stétt- arsambandsins, hringdi í mig og þakkaði mér sérstaklega fyrir umfjöllunina. Ég hef oft velt því fyrir mig hvort ég hafi átt að gleðjast yfir þessu eða ekki. Það kann að vera að upphringingin hafi verið til vitnis um að mér hafi ekki tekist nógu vel upp.“ Landsbyggðin var niðurgreidd í fréttum „Viðbrögð við fréttum úti á landi eru mun harðari og meiri en í Reykjavík. Ég hef haldið því fram að það sé vegna þess að landsbyggðin hafi verið, sem ég vil kalla, niðurgreidd í fréttum. Með því á ég við það að landsbyggðin hefur vanist því að fá ekki sömu meðhöndlun í fréttum og Reykjavík, fjölmiðlar hafa farið mýkri höndum um Iandsbyggðarfólkið. Það kann að koma til af því að úti í hinum dreifðu byggðum eru fréttaritarar sem taka ekki og geta í raun ekki tekið á málum sem upp koma, en eru þó fréttnæm. En sem betur fer held ég að þetta heyri sögunni til. Um leið og frum- kvæði fólks í atvinnulífinu úti á landi hefur aukist hefur fréttamennskan þar breyst til hins betra. Hins vegar bera viðbrögð oft þess merki að menn þola ekki að tekið sé á málum sem þarf að taka á.“ Fréttastofa útvarps góður skóli Árið 1988 færði Arnar Páll sig yfir á fréttastofu útvarpsins og miðlaði fréttum frá Alþingi. „Á fréttastofu útvarps ríkja gamlar hefðir og þar er byggt á gömlum grunni. Menn fá gott aðhald og ég vil segja að vinna þar sé einskonar háskólanám fyrir frétta- menn. Á fréttastofunni bætti ég geysilega miklu við þekkingu mína og ég lærði agaðri vinnubrögð. Með því fyrsta sem ég gerði á útvarpinu var að fara heim til Þorsteins Pálssonar, morguninn eftir að Jón Baldvin og Steingrímur nánast slitu stjórnarsam- starfinu í beinni útsendingu. Þetta var frek- ar átakanlegt, Þorsteinn var einn heima og hann virtist gera sér grein fyrir því að hann væri búinn að tapa leiknum. Þetta voru miklir umbrotatímar í frétta- mennskunni. Beinum útsendingum hafði fjölgað mjög og áður en ég byrjaði sem þingfréttamaður útvarps hafði Átli Rúnar innleitt nýja stefnu í fréttaflutningi frá Alþingi. Áður gátu ráðherrar rétt frétta- manninum spurningar og hann sagði nánast frá öllum málum sem voru lögð fram á Alþingi. Einhvern tímann varð ég vitni að því að þingmaður Framsóknarflokksins kom upp á þingpalla, beygði sig yfir blaðamann Tímans og sagði: „Heyrðu, ég er hérna með tillögu að fyrirsögn!“ I dag eru fjölmiðlarnir mun sjálfstæðari gagnvart Álþingi. Fréttamennirnir ákveða hvað þar er fréttnæmt og þeir eru með bollaleggingar um pólitíkina sem þekktust ekki áður.“ Brennivínsmál Magnúsar Thoroddsen Arnar Páll er sammála því að ein frétt standi upp úr þegar hann lítur yfir feril sinn sem blaða- og fréttamaður. Þetta var sann- kölluð stórfrétt, frétt sem átti eftir að setja þjóðfélagið á annan endann. Hver man ekki eftir brennivínskaupum Magnúsar Thor- oddsen, forseta Hæstaréttar? „Þetta er stærsta frétt sem ég hef komist í fyrr og síðar,“ sagði Arnar Páll. „Það má segja að fréttin hafi rekið á fjörur mínar og það liðu einn eða tveir dagar frá því að ég komst á snoðir um málið þangað til fréttin fór í loftið. Um leið og ég var kominn á sporið vissi ég að ég væri kominn með stóru fréttina. Ég labbaði inn á fréttastofu þegar ég var kominn með málið og það hvarflaði að mér að þar kynni ég að mæta einhverri stirfni. Ég var staðráðinn í því að ef sú staða kæmi upp, þá gengi ég umsvifalaust út. En þessi ótti var ástæðulaus og Kári fréttastjóri var aldrei í vafa um að þetta væri rétt og hann spurði mig aldrei um hver væri heim- ildarmaður fréttarinnar. Þegar ég var kom- inn með allar upplýsingar um málið fór ég á fund Ólafs Ragnars, fjármálaráðherra, og sagði honum að ég væri með allar upplýsing- ar og bauð honum upp á viðtal. Ólafur Ragnar sá að ég var kominn með málið og í ljósi þess féllst hann á að tjá sig um það. Fjármálaráðuneytið er í næsta húsi við Hæstarétt og eftir að hafa tekið viðtal við Ólaf Ragnar ákvað ég að fara á fund Magn- úsar Thoroddsen á skrifstofu hans í Hæsta- rétti, en ég hafði aldrei hitt hann áður. Það er mér mjög minnisstætt að Magnúsi brá heldur betur í brún þegar ég bar upp erind- ið. Hann sá greinilega strax á þessu augna- bliki að þarna var mikil hætta á ferðum fyrir hann og spilaborgin var hrunin. Magnús neitaði staðfastlega viðtali, en sagði að hann hefði ekkert brotið af sér.“ í kjölfarið var Arnar Páll krafinn í undir- rétti um að gefa upp heimildarmann fyrir brennivínsfréttinni. Því neitaði hann stað- fastlega og vísaði til siðareglna Blaða- mannafélags íslands og útvarpsins, auk þess sem hann lagði á það áherslu að fréttin sem slík liafi engu breytt um staðreyndir málsins. „Hefði ég gefið upp minn heimild- armann, þá liggur fyrir að ferli mínum í fréttamennsku hefði þarmeð lokið. Grund- vallaratriði í fréttamennsku er að trúnaður ríki milli heimildarmanna og fréttamanna. Jón Steinar Gunnlaugsson, verjandi Magn- úsar, gat áfrýjað málinu til Hæstaréttar, en hann ákvað að gera það ekki.“ Deildarstjóri RÚVAK Arnar Páll tók við starfi deildarstjóra Ríkisútvarpsins á Akureyri snemma árs 1992 og hann segir að sér líki það mjög vel. „Ég var alls ekki orðinn leiður á því að vinna á fréttastofu útvarps. En málin æxluð- ust þannig að konan mín, sem er arkitekt, fékk vorið 1991 verkefni á Akureyri og ég leysti af í hálfan annan mánuð þá um sumar- ið í fréttunum á svæðisútvarpinu. Mér líkaði mjög vel hér og kunni strax ágætlega við mig. Héðan fór ég vestur á ísafjörð og leysti þar af í einn mánuð. Þess á milli vann ég við að gera upp sumarhús, sem fjölskyldan á fyrir vestan. Ég kunni því vel að fara frá höfuðborginni og það varð úr að ég sótti um og var ráðinn í starf deildarstjóra Ríkisút- varpsins á Akureyri. Hér kann ég vel við mig.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.