Dagur - 17.09.1994, Qupperneq 20
Akureyri, laugardagur 17. september 1994
Unnið aila síðustu helgi við vinnslu á Smuguþorski hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar:
Ekki verið helgarvinna í húsinu í tvö ár
- atvinnuástand mjög gott í Olafsfirði
Togarar frá Ólafsfírði hafa
sótt í Smuguna að undan-
förnu og hefur Hraðfrystihús Ól-
afsfjarðar hf. fengið þann ísfisk
sem þaðan hefur borist til
vinnslu. Karl Guðmundsson,
framkvæmdastjóri HÓ, segir að
þorskurinn úr Barentshafmu
hafi breytt nokkuð vinnsluferl-
inu í húsinu og gert það að verk-
um. að lengur hefur verið unnið.
Um sl. helgi var í fyrsta skipti í
tvö ár unnið heila helgi í frysti-
húsinu, bæði laugardag og sunnu-
dag frá klukkan 6 á ntorgnana til 5
á daginn. Húsinu var lokað í þrjár
vikur í ágústmánuði vegna sumar-
leyfa á móti aðeins einni viku árið
1993 og því hafi minna verið unn-
ið af fiski þar en húsið hafi átt
Vélsmiðjan Akureyri hf. lýst gjaldþrota:
Samningar tókust ekki um yfir-
töku Iðnlánasjóðs á fasteignum
Vélsmiðjan Akureyri hf. var í
gær lýst gjaldþrota hjá Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra á
Akureyri að beiðni forsvars-
manna vélsmiðjunnar. Vélsmiðj-
an Akureyri hf. hefur verið í
fímm mánaða greiðslustöðvun
sem lauk 31. ágúst sl.
Halldór Brynjarsson, fram-
kvæmdastjóri Vélsmiðju Akureyr-
ar hf., segir að fyrst og fremst hafi
strandað á því að selja fasteign fé-
lagsins við Gránufélagsgötu 47,
en í viðræðum við Iðnlánasjóð,
sem var stærsti einstaki kröfuhaf-
inn, voru viðraðar hugmyndir um
yfirtöku sjóðsins á fasteign félags-
ins en það gekk ekki eftir. Lífeyr-
issjóðir voru einnig stórir kröfu-
hafar.
„Þær áætlanir gengu ekki eftir
og því voru aðrir bjargir nánast
bannaðar. Bæjarsjóður Akureyrar
kom einnig inn í viðræðumar um
kaup á húsnæðinu með áhvílandi
skuldum og losa þannig Iðnlána-
sjóð út úr þessu dæmi. Síðan hefði
þá verið ráðist í það að selja ýms-
ar vélar og andvirði þeirra hefði
runnið til Iðnlánasjóðs. Vélasalan
ein og sér dugði ekki til að létta á
kröfum, en algjör forsenda þess að
komist yrði hjá gjaldþroti var að
húsnæðinu yrði komið í verð með
sölu. Það eru því ekki aðrar leiðir
færar í dag en að leggja fram
gjaldþrotabeiðni," sagði Halldór
Brynjarsson. GG
möguleika á. Það sem af er þessu
ári hefur svipað magn af fiski far-
ið gegnum húsið og á sama tíma
1993.
„Fiskurinn úr Smugunni fer
ekki í eins verðmætar pakkningar
og sá sem fæst hér við land vegna
lakari gæða, auk þess sem nú er
ekki auðvelt að selja verðmætustu
pakkningamar af þorskinum.
Fiskurinn sem togararnir eru að fá
í stærstu holunum er ekki í nógu
góðu ástandi og því verðminni
kominn til kaupenda, en á móti
kemur að það fer miklu meira
magn í gegn í blokkarfrantleiðsl-
una,“ sagði Karl Guðmundsson.
Um 70 manns starfar hjá HÓ í
u.þ.b. 50 stöðugildum, þar af um
30 konur í vinnslusal en skortur er
á konum til vinnu eftir hádegi.
Auglýst hefur verið el'tir fólki til
vinnu eftir hádegi en viðbrögðin
hafa verið sáralítil.
Aðeins 4 eru á atvinnuleysis-
skrá í Ólafsfirði, og það er fólk
sem ekki getur tekið hvaða vinnu
sem er. Þrír eru í átaksverkefni á
vegum bæjarins við að ganga frá
svæðum kringum félagsheimilið
Tjarnarborg og tjömina. Atvinnu-
ástand er því mjög gott í Ólafs-
firði, ekki síst í Ijósi þess að að-
eins þrír menn eru í atvinnuátaks-
verkefni á vegum bæjarfélagsins.
GG
Frystikistur
Verð frá kr. 28.830
0
\4 KAUPLAND HF.
1 » Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
Sauðárkrókur:
Ahugi fyrir starfi
félagsmálastjóra
#95 árgerðin af Toyota er komin
Fimmtudaginn 15. september
rann út umsóknarfrestur um
starf félagsmálastjóra hjá Sauð-
árkrókskaupstað. Leitað var að
félagsráðgjafa eða einstaklingi
með sambærilega menntum í
starfið.
Snorri Bjöm Sigurðsson, bæj-
arstjóri á Sauðárkróki, sagði að þó
nokkrar umsóknir hefðu þegar
borist um starfið og hugsanlegt
væri að einhverjar umsóknir væru
enn á leiðinni í pósti.
Snorri sagðist gera ráð fyrir því
að farið yrði yfir umsóknirnar í
næstu viku þegar öruggt væri að
allar umsóknir, sem hefðu verið
póstlagðar fyrir 16. september,
hefðu skilað sér. KLJ
Slippstöðin-Oddi hf.:
Margir sýna starfi
forstjóra áhuga
Eiríkur Jóhannsson, forstöðu-
maður hagdeildar Lands-
bankans, og stjórnarformaður
Slippstöðvarinnar-Odda hf. á
Akureyri, segir að um 20 manns
hafi sent inn umsóknir um starf
O HELGARVEÐRIÐ
I dag veröur hæg suðvest-
læg átt og víðast léttskýjað.
Hlýtt verður í veðri, allt að
10-15 stiga hiti. Á sunnudag
er spáð sunnangolu eða
kalda. Þá verður skýjað
með köflum og jafnvel lítils-
háttar rigning úr skilum sem
eru á leið norður af landinu.
Að sögn veðurfræðings
Veðurstofunnar verður
áfram hlýtt í veðri.
forstjóra Slippstöðvarinnar-
Odda hf. og hugsanlega eigi eftir
að Qölga í þeim hóp. Starfið var
nýlega auglýst laust til umsókn-
ar.
Fjallað verður um umsóknirnar
á stjórnarfundi Slippstöðvarinnar-
Odda í síðustu viku þessa mánað-
ar og þá væntanlega tekin ákvörð-
un um hver hlýtur starfið. Ekki er
mögulegt að halda stjórnarfund
fyrr, en í stjórninni sitja auk Eiríks
Jóhannssonar, Þorsteinn Már
Baldvinsson, framkvæmdastjóri
Samherja hf. og Kristján Eldjám
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
DNG rafeindaiðnaðar hf.
Núverandi forstjóri, Guðmund-
ur Tuliníus skipaverkfræðingur,
var ráðinn tímabundið til starfa er
fyrirtækið lenti í greiðslustöðvun
og síðan nauðasamningum. GG
hjá Bílasölunni Stórholt um helgina
Frumsýnum á Norðurlandi hinn stórglæsilega RAV4.
Toyota býður upp á góðan kost og gott verð
hvort heldur sem er í fólksbíl, jeppa eða sendibíl.
Líttu til okkar að Óseyri 4 um helgina og bragðaðu á veitingum frá
Coca Cola og Maarud á meðan þú skoðar glæsilega bíla.
Reynsluakstur, Corolla, Carina, 4Runner diesel.
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 13-17.
TOYOTA
- tákn um gæði
Bílasalan Stórholt
Óseyri 4 • Akureyri • Sími 23300