Dagur - 23.12.1994, Blaðsíða 20

Dagur - 23.12.1994, Blaðsíða 20
r' •l ! ! i • I V K * K K iS Islandsflug heldur áfram Siglufjarðarflugi ótímabundið - Ragnar Arnalds segir flug til Siglufjarðar í tengslum við Sauðárkrók arðbæra flugleið Islandsflug hyggst halda áfram áætlunarflugi til Siglu- fjarðar fyrst um sinn, en vegna anna samgönguráðherra hefur ekki verið hægt að koma í kring fyrirhuguðum fundi hans og for- svarsmanna íslandsflugs vegna umsóknar flugfélagsins til áætl- unarflugs frá Reykjavík til Ak- ureyrar, Egilsstaða, ísafjarðar og Siglufjarðar og ekki líklegt að það verði fyrr en milli jóia og nýárs. Gunnar Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri Islandsflugs, segir að áætlunarflug til Siglufjarðar verói óbreytt fyrst um sinn og því séu fyrri áætlunum um aó hætta flugi til Siglufjarðar um næstu áramót ýtt til hliðar í bili. I utandagskrárumræóum á Al- þingi 16. desember sl. sagði Ragn- ar Arnalds, þingmaður Norður- landskjördæmis vestra, að Islands- flug hefði sett fram þrjá kosti til úrbóta. I fyrsta lagi aö félagið fengi leyfi til milllilendinga á Sauðárkróki til að taka farþega og vörur; í öðru lagi að Islandsflug fengi hlutdeild í farþegaflutning- um milli Reykjavíkur og Akureyr- ar á leið sinni til og frá Siglufirði og í þriðja lagi aó opinberir aðilar veittu Islandsflugi styrk til Siglu- fjarðarflugs, en bæjaryfirvöld á Siglufirði munu ekki tilbúin til styrkveitinga að þessu sinni. Flug- ferðum til Sauðárkróks hefur fækkað á undanförnum árum og nýlega lét forstjóri Flugleiða þá skoöun í ljós að óvíst væri um áframhald flugs til Sauðárkróks þegar göng undir Hvalfjörð hefðu verið grafin. Ragnar Amalds sagði að ef Sauðárkróksflugið væri ekki látið drabbast niður heldur væri endurskipulagt í tengslum við Siglufjarðarflug, væri fullvíst að þar væri um flugleið að ræða sem ætti framtíð fyrir sér. Samgönguráðherra, Halldór Blöndal, segir í lok svars síns í utandagskrárumræðunni: „Viö er- um í viðræðum um þessi mál. Friðarganga á Akureyri í kvöld Friðarganga verður öðru sinni gengin á Akureyri í kvöld, að kvöldi Þorláksmessu. Safnast verður saman á bflastæði Menntaskólans og þaðan gengið á Ráðhústorg þar sem Júlíus Gestsson, læknir, ávarpar göngumenn og aðra miðbæjar- gesti. Lagt verður upp í gönguna kl. 20 og gengið niður Eyrarlandsveg, Kaupvangsstræti, út göngugötuna og á Ráðhústorg. Félagar úr Kór- um Akureyrar- og Glerárkirkna leióa jólasöng í göngunni. Að ávarpi Júlíusar Gestssonar loknu, en hann hefur tekió þátt í alþjóðlegu hjálparstarfi í Bosníu, verður sungið „Heims um ból“. Gengið veróur meó kyndla og hvetja aðstandendur göngunnar þá sem eiga kyndla frá í fyrra að koma með þá. Kyndlar verða einnig til sölu á kostnaðarverði við upphaf göngunnar. Þá hvetja aðstandendur göngunnar fólk til aó taka sér frí um stund frá hefð- bundnum jólaundirbúningi, íhuga friðarboðskap jólanna og eiga eft- irminnilega samverustund. JOH Flugleiðir og Islandsflug hafa ver- ið í viðræðum með Flugfélagi Norðurlands um innanlandsflugið í heild sinni en þær viðræður hafa ekki leitt til neinnar ákveðinnar niðurstöðu." GG INNANHÚSS- MÁLNING 10 lítrar frá kr. 3.990,- 0 KAUPLAND HF. Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565 RAFTÆKI í MIKLU ÚRVALI Vöfflujárn frá 4.880,- Kaffivél frá 2470,- 0 \4 KAUPLAND HF. Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565 Ný húsaleigulög 1. janúar 1995 taka gildi ný húsaleigulög. Húsnæðisnefndir sveitarfélaga veita almennar upplýsingar um efni og framkvæmd hinna nýju húsaleigulaga. Húsnæðisnefndir sveitarfélaga veita aðilum leigusamnings leiðbeiningar varðandi ágreiningsefni, sé þess óskað, og munu leitast við að sætta slíkan ágreining. Upplýsingabæklingur um nýju lögin liggur nú frammi hjá húsnæðisnefndum og félagsmálastofnunum sveitarfélaga, verkalýðsfélögum, Leigjendasamtökunum, Húseigendafélaginu, Búsetafélögum og Húsnæðisstofnun ríkisins. cSg HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: 569 6900 (kl. 8-16) BRÉFASÍMI: 568 9422 • 6RÆNT NÚMER (utan 91-svæðisins): 800 69 69 kohfekt islenskt

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.