Dagur - 23.12.1994, Blaðsíða 19
POPP
MA6NUS <SEIR CUÐMUNDSSON
AFISLENSKRIPOPP-
♦ ♦
VmiND OG PONKTREGÐU
Utangarðsmenn á sínum bestu dögum.
Nú til dags eru íslenskir popp-
aðdáendur með þeim gleggri
hvað varðar tónlist vænlega til
vinsælda. Það gerist t.d. oftar
en ekki hérlendis, að ýmis lög
eða plötur ná vinsældum löngu
áður en annars staðar. Lítið
dæmi en nýlegt og sem sýnir
þetta vel, er að ballaðan Ijúfa,
(l’m gonna) cry myself blind,
sem naut mikilla vinsælda hér í
sumar og haust, hefur nú fyrst í
byrjun desember veriö gefin út
á smáskífu í Bretlandi. Er ekki
að orðlengja það, að lagið fór
beint á topp óháða listans og á
örugglega eftir að gera það
gott á landslistanum líka. En
það hefur ekki alltaf verið
þannig að forsjálnin hafi verið
ríkjandi hjá íslenskum tónlistar-
aðdáendum. Gildir það ekki
hvað síst um blessað pönkið,
(sem nú hefur reyndar á nokk-
urn hátt snúið aftur) en það var
ekki fyrr en um 1970 sem það
skaut rótum hér, þremur árum
eftir upphaf sitt og snöggt al-
gleymi í Bretlandi 1977. Það er
ekki gott að segja hvað olli
þessari „pönktregðu", en víst er
að þegar pönkið náði loks
hingaó, kom þaö með krafti og
stíl. í Framvarðarsveit ís-
lenskra pönksveita voru
UNUN-Æ
UNAÐSÓMUR
Það var ekki laust við að nokkur
forvitni vaknaði hjá manni við að
frétta að „gömlu hetjurnar” Þór
Eldon gítarleikari Sykurmolanna
og Gunnar Hjálmarsson, Dr.
Gunni, söngvari, bassa- og gít-
arleikari s/h draums og Bless,
hefðu stofnað hljómsveit sam-
an. Hvað skyldi það nú fæða af
sér? Jú, fyrst hið skemmtilega
Hann mun aldrei gleym’enni
með „afanum” sjálfum Rúnari
Júlíussyni við hljóðnemann í
sumar, en síðan fyrir skömmu,
heil plata, Æ, sem skartar hinni
þokkafullu og þýðradda söng-
konu, Heiðu. Skipa þau þrjú
semsé hljómsveitina Unun og
hafa sér til fulltingis á plötunni
tvo trommara, Sigtrygg snilling
Baldursson og Arnar G. Ómars-
son. Tónlistin, blanda af poppi í
anda áttunda áratugsins, kraft-
miklu nýbylgjurokki ættuðu frá
upphafi níunda áratugsins og
nútímaslagtakti (á vondu máli
,,bíti“) sem ómar og hljómar
hreint UNAÐSLEGA á köflum.
Dæmi um grípandi og glæst
popplög eru, Lög unga fólksins,
Ást í viólögum og Síðasta sýn-
ing, en Hnefafylli, Föstudagur-
inn langi, Leðurskipið Vima og
Ég sé rautt, eru dæmi um ræki-
legt og rosagott rokk. Ekki má
svo gleyma textunum, sem eru
eins og sum áðurnefndra laga
gefa til kynna, glettnir með orða-
leikjum og e.t.v. ofurraunsæis-
legir sumir hverjir. íslenskir
poppunnendur ættu bara að
taka þessari plötu fagnandi, því
hún er hafin yfir alla meðal-
mennsku. Þeir sem eignast
hana munu áreiðanlega „una“
glaöir við sitt.
Fræbblarnir, Þeyr og síðan
Utangarðsmenn auðvitað. Nú
fyrir skömmu var einmitt gefið
út 15 laga safn með Utan-
garðsmönnum, Bubba, Danny
og Mike Pollock, Rúnari og
Magnúsi, sem er merk heimild
Það er engum blöðum um það
að fletta að einn vinsælasti og
besti lagahöfundur landsins
síðustu tvo áratugina, er
Magnús Eiríksson. Þau lög
sem hann hefur samið með
hljómsveitunum sínum Manna-
kornum og Blúskompaníinu og
önnur fyrir aðra tónlistarmenn,
t.d. Brunaliðið, Brimkló og
marga fleiri og orðið hafa vin-
sæl, verða ekki talin svo glatt
og vart er til það íslenska
mannsbarn, sem ekki þekkir
eitthvert lag eftir Magnús. Það
segir e.t.v. allt sem segja þarf
um orðspor höfundarins mikla
og áhrif, að dauðarokkssveit
ein góö, sem var og hét hér í
bæ, Exit, hafði eitt laga hans,
Garrún, á efnisskránni. Þetta
hljómar eflaust ótrúlega fyrir
marga, en er samt dagsatt. Á
þessu ári eru 20 ár frá því
Mannakorn hófu ferilinn. Af því
um þennan tíma og ágætur
minnisvarði um sveitina um
leið. Eru þarna lög á borð við
Hrognin eru að koma, Rækju
reggae, Tango og ýmis fleiri, í
útgáfum sem margir hafa ekki
heyrt.
tilefni hefur Magnús ásamt fé-
laga sínum og vini úr Manna-
kornum, gefið út afmælisplötu
með 20 af vinsælustu lögum
Mannakorna í órafmögnuðum
útsetningum. Er þetta
skemmst frá sagt hrá og
ómenguð plata, form sem
hentar lögum Magnúsar ein-
mitt svo vel og gefur mörgum
þeirra nýtt líf. Meðal laganna
eru perlur á borð við O þú,
Reyndu aftur, Blús í G, Elska
þig enn, Gamli skólinn og
Þorparinn. Eina lagið sem ekki
er eftir Magnús er Lilla Jóns,
sem er eftir Ray Sharpe, en
telst óumdeilanlega til vinsæl-
ustu laga Mannakorna. Útgáf-
an sem nánar tilgreint nefnist
Spilaóu lagið, er áreiðanlega
ánægjuefni fyrir marga og ber
því aö fagna henni vel og inni-
lega. Þarf ekki að orðlengja
það meir.
Pað hljómar ótrúlega,
en Skífan hf. segist á
þessu ári hafa selt nú
þegar (12. des.) yfir 80.000
eintök af (slenskum plötum,
eóa fleiri eintök en allt árið í
fyrra. Stefnir í að salan verði
sú mesta frá upphafi hjá fyrir-
tækinu. Fjórar söluhæstu
plöturnar hjá Skífunni til
þessa eru 3 heimar með
Bubba ( 7500 eintökum, Þó
l(ði ár og öld með Björgvini
Halldórssyni í 4200, Töfrar
Diddúar í 4000 eintökum og
Blóð með SSSól ( 2600 ein-
tökum. Hefur Bubba nú fyrir
skömmu verið afhent gull-
plata fyrir 5000 seld eintök.
ú herma fregnir frá
Bandaríkjunum að
Metaliica, stórrokks-
sveitin mikla, verðí aó öilum
líkindum áfram hjá Elektra út-
gáfunni og ekkert verði af
málavafstri fyrir dómi milli að-
ila. Það lítur sem sagt út fyrir
að nýir yfirmenn Eiektra ætli
aó fallast á hinn svonefnda
jafnræðissamning, sem Met-
allica var búin aó gera áður
við fráfarandi stjórnendur.
Höfðu hinir nýju (fyrstunni al-
farið neitað að viðurkenna
samninginn, þannig að Met-
allica hótaði málshöfðun. Ef
rétt reynist, verður um tíma-
mótasamning að ræða, sem
m.a. þýðir að Metallica hefur
framvegis hönd ( bagga með
hvernig og hvenær tónlist
híjómsveitarinnar er gefin út.
Þá þykir líklegt að samningur-
inn muni hafa fordæmisgildi.
Van Halen, holl-
ensk/bandaríska
rokksveitin vinsæla,
hefur nú lokið gerð sinnar nýj-
ustu plötu og kemur hún út
seinni hluta janúar. Mun hún
bera heitið Balance og verða
níunda hljóðversplatan frá
1978. Næsta sumar verður
Van Halen svo ( góðum fé-
lagsskap Bon Jovi í tónleika-
ferð til Bretlands.
MAGNÚS MIKLI
Föstudagur 23. desember 1994 - DAGUR - 19
Bestu jóU-
og nýársóskir
sendum við öllum viðskiptavinum okkar og
landsmönnum öllum.
Pökkum viðskiptin á árinu.
ISPAN HF
EINANGRUNARGLER
Furuvöllum 15 •Akureyri • Sími 22333
Bestu jóla-
og nýirsóskir
sendum við öllum viðskiptavinum okkar og
landsmönnum öllum.
Pökkum viðskiptin á árinu.
S.J.S. verktakar
Furuvöllum 6 • Akureyri
Við sendum ættingjum okkar
og vinum í Eyjafjarðarsýslu
bugbeiUr
bátíóaóskir
þakkir og kveðjur.
Nanna og Skúli
Húnabraut 14, Blönduósi.
Bestu jóU-
og nýársóskir
sendum við starfsfólki okkar og
Qölskyldum peirra, viðskiptavinum og
landsmönnum öllum.
Eökkum viðskiptin á árinu.
m
Skinnaiðnaður hf.