Dagur - 02.12.1995, Side 13

Dagur - 02.12.1995, Side 13
Laugardagur 2. desember 1995 - DAGUR - 13 Ólöf Halblaub er hér við poka sem hún sauniaði í hjólastói. Þessi poki var pantaður frá lækni á Blöndósi fyrir fatlaða stúlku og er sérsniðinn þannig að hann passi í stólinn sem stúlkan á Mynd: BG Þegar frost bítur kinn og napur vindur blœs er nauðsynlegt að eiga eitthvað hlýtt til að bregða sér í. Kuldagallarnir standa vel fyrir sínu en henta þó ekki öllum og því er gott að geta leitað til hugvitsamra saumakvenna. Olöf Halblaub rekur Saumastofuna Þel á Akureyri og eitt afþví sem hún saumar eru gœrupokar handa ungbörnum og gœrupokar í hjólastóla fyrir fatlaða. Ungbarnapokana hefur hún saumað og selt í nokkur ár. Gærupokarnir i lijólastóla eru hins vegar tiltölulega nýir af nálinni og segir Ólöf að mikill áthugi sé fyrir þessum pokum. Ólöf er fædd og uppalin í Þing- eyjarsýslu en hefur búið á Akur- eyri í mörg ár. Eftirnafnið, Hal- blaub, segir hún komið frá afa sín- um sem var þýskur. Hún hefur rekið Saumastofuna Þel í 18 ár, þó með nokkrum hléum. í febrúar flutti hún í nýtt húsnæði í Strand- götunni beint á móti BSO leigu- bílastöðinni og var það mikil breyting til batnaðar en í nokkur Gærupokar fyrir ungahöm og fatlaða ár hafði hún verið með saumastof- una heima hjá sér í bílskúmum þar sem plássið var lítið. Grænt ljós frá Tryggingastofnun „Ég hef oft séð fólk í hjólastólum með teppi. Teppin tolla oft illa og fólki er kalt og ég hugsaði með mér að það hlyti að vera hægt að búa til góða poka svo þessu fólki myndi líða betur,“ segir Ólöf, þegar hún er spurð hvemig hug- myndin af gærupokunum í hjóla- stóla hafi kviknað. Viðbrögðin við pokunum hafa verið mjög góð. Margar pantanir liggja fyrir og nú hefur Tryggingastofnun samþykkt að taka þátt í kostnaðinum ef fatl- aðir í hjólastól vilja fá sér svona poka. Allir pokamir eru úr vönd- uðum gærum sem Ólöf kaupir frá Starfsfólk Skeljungs hf. bregður á leik í jólamánuðinum með lauf- léttum spurningaleik. A næstu dögum mun birtast í Morgunblað- inu og Degi seðlar með spumingu sem fólki gefst kostur á að svara og vinna jólatré að eigin vali. Þeir sem vilja taka þátt í leiknum þurfa að fylla út seðilinn og fara síðan með hann á næstu Shellstöð fyrir 11. desember. Dregið verður úr réttum svörum og munu fimmtán heppnir vinningshafar fá að gjöf heimilisjólatré að eigin vali. Það er ekki tilviljun að Shell- stöðvarnar minna á sig með þess- um hætti þegar jólin nálgast. Und- anfarin þrjú ár hefur Skeljungur hf. verið í samstarfi við Skógrækt rrkisins um umfangsmikið skóg- ræktarátak og hefur þetta samstarf miðað að því að efla skógrækt í Skinnaiðnaðinum og þeir eru klæddir efni að utan sem ver pok- ana fyrir veðri og vindum. Verðið á gærupokunum getur verið misjafn og fer eftir efni og vinnu. Pokinn sem Ólöf sýnir blaðamanni er sérsaumaður í sér- stakan hjólastól og því óvenjudýr, eða um 38 þúsund. Miðað við aðra valkosti sem fatlaðir hafa eru pokarnir þó ekki dýrir. „Ég fór í hjálpartækjamiðstöðina í Reykja- vík í haust og sá þar innflutta poka. Þeir voru mjög litlir, bara úr ullarefni og vatteraðir en ekki úr gærum og kostuðu samt 30 þús- und krónur,“ segir Ólöf. Mest að gera í viðgerðum Gærupokar í bamaburðarstóla hafa líka verið vinsælir hjá Ólöfu landinu og að bæta aðgengi að þeim skógum sem fyrir eru. (Úr fréttatilkynningu frá Skeljungi hf.) og mikil sala í þeim.“ Það er sama sagan þar eins og með hjólastól- ana, að fólk hefur verið að vand- ræðast með teppi fyrir ungaböm- in,“ segir hún. Poka í bamaburðar- stóla byrjaði hún að saurna fyrir sex árum en ungbarnapoka sem hægt er að nota í vagni eða kerru hefur hún verið með frá því hún byrjaði með saumastofuna. Gærupokar eru langt frá því að vera það eina sem Saumastofan Þel framleiðir. „Ég sérsauma líka eftir pöntunum," segir Ólöf og eins tekur hún að sér viðgerðir. „Nefndu það bara og við björgum því,“ segir einmitt í auglýsingu frá saumastofunni. Að sögn Ólafar er langmest að gera í viðgerðum. „Ég geri við allt sem venjulegar saumavélar taka ekki eins og rennilása, úlpur, galla og smellur. Það kom meira segja einn með þrúgur og bað okkur að gera við þannig að ótrúlegustu hlutir koma til viðgerðar.“ Tíminn fyrir jól er annasamur tími fyrir mörg fyrirtæki. Ólöf segir þó að á saumastofnunni finni hún ekki mikið fyrir árstíðar- sveiflum. „Á sumrin geri ég við tjöldin og á vetuma eru það snjó- galjamir," segir hún og því alltaf nóg að gera á Saumastofunni Þeli. AI Hluthafafundur Hluthafafundur í Dagsprenti hf. verður mdnudaginn 11. desember 1995 kl. 18 að Strandgötu 31. Efni fundarins er breyting d samþykktum Dagsprents hf. vegna nýrra laga um hlutafélög. uxjsassnnnsin Skeljungur hf. með laufléttan jóla- spurningaleik Til leigu 90 fm. á II. hæð í Skipagötu 12. Húsnæðið er innréttað sem hársnyrtistofa. Upplýsingar í síma 462 6099, Bjarni, og 462 7466, Pétur. Nemendtir Borgarhólsskóla og Tónlístarskóla Húsavíkur flytja söngleíkínn JÓSEP eftír Tim Rice og A.L. Webber í þýðíngu Þórarins Hjartarsonar í Félagsheímíli Húsavíkur. Laugardagínn 2. desember kl. 20.30. Sunnudagínn 3. desember kl. 16 og 20.30. Mánudagínn 4. desember kl. 20.30. Stjómendur tónlistar: Hólmfríður Benedíktsdóttir og Valmar Valjatos. Leikstjórí: María Sigurðardóttír. Aðgangseyrir: 1000 kr. fyrír fullorðna og 500 kr. fýrír skólafólk. Gullbrúðkaup Hjónin Hulda Sigurbjörnsdóttir ogjóltann Pálssott áttu 50 ára brúð- kaupsafmœli 1. desember (í gær). Óskum við þeitn hjartanlega til hamingju með afmælið! FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU Menntamálaráðuneytið auglýsir lausa stöðu í fram- haldsskóla- og fullorðinsfræðsludeild ráðuneytis- ins: - vinna að þróun iðn- og starfsmenntunar, -vinna að námskrárgerð á sviði iðn- og starfs- menntunar, - að veita upplýsingar um iðn- og starfsmenntun, - umsjón með sveinsprófum. Umsækjendur skulu hafa þekkingu á skólastarfi á framhaldsskólastigi, einkum á sviði iðn- og starfs- menntunar. Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið há- skólaprófi. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir berist menntamálaráðuneytinu fyrir 15. des- ember næstkomandi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.