Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Side 2
2
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994
Fréttir
Leigutaki segir leigu hafa verið algjört okur fyrir ófullnægjandi húsnæði:
Leiga fyrir Hressó er
hálf milljón á mánuði
- fráfarandi leigutaki skuldar hátt í sex milljóna króna „blóðpeninga“
„Þið selduð ykkur alkóhólinu en
nú eruö þið með yfirklór. Ég hafði
ekki meiri blóðpeninga til að greiða
ykkur fyrir leiguna. Húsaleigan var
slíkt okur fyrir hús sem ekki er í
betra ástandi," sagði Sigurður Óla-
son, fráfarandi leigutaki Hressingar-
skálans, við Helga Elíasson, rekstr-
arstjóra KFUM, og blaðamann DV
fyrir utan Hressó í Austurstræti í
gær.
Hressó er í eigu KFUM. Helgi upp-
lýsti DV um að mánaðarleigan fyrir
húsið heföi á þessu ári veriö 500 þús-
und krónur. Upphæðin hefði verið
600 þúsund krónur á síðasta ári en
hún hefði veriö lækkuð að teknu til-
liti til þess að ástand hússins hefði
ekki verið fullnægjandi. Húsnæðið
er um 500 fermetrar, að sögn Helga.
Leigusamningi við Sigurð hefur
verið sagt upp. Þegar Helgi hlustaði
á yfirlýsingar Sigurðar sagði hann
að leigutakinn væri tapsár, það væri
skiljanlegt. Helgi sagði að liið rétta í
máhnu væri að samningnum hefði
verið sagt upp á þeim forsendum að
leigutakinn hefði ekki staðið í skil-
um. Hann skuldaði KFUM nú á sjöttu
milljón króna aö vöxtum meðtöldum.
Með þessu vísaöi Helgi á bug athuga-
semdum Sigurðar um að samningn-
um hefði eingöngu verið sagt upp
vegna þess að vínveitingar hefðu
verið í rekstri Hressó - vanskilin
hefðu einnig verið ástæðan.
Aðspurður hvort búið væri að fá
nýja leigjendur sagði Helgi aö allt
væri óákveðið í þeim efnum en ljóst
væri að engar áfengisveitingar yrðu
í þeim rekstri eins og verið hefði.
„Ég hef ekki meiri blóðpeninga til að borga ykkur með,“ sagöi Sigurður Ólason, t. h., fráfarandi leigutaki Hressó,
við Helga Elíasson, rekstrarstjóra KFUM, fyrir framan Hressó í gær. Mennirnir deildu hart fyrir utan veitingahús-
ið. Leigutakanum hefur verið sagt upp og veitingahúsinu lokað. Helgi sagði Sigurð vera tapsáran og það væri
alveg Ijóst að vínveitingar yrðu ekki i framtíðinni á Hressó. DV-mynd BG
Hann sagöi jafnframt aö leigutakinn að reka kaffihús án þess að hafa vín- En ef staðurinn veröur ekki rekinn
ætti eftir að flytja út úr húsnæðinu. veitingaleyfi. „Þú rekur ekki staðinn áfram mun miðbærinn verða tóm-
Sigurður sagði að engin leið væri á kaffisölu einni. Það er alveg klárt. ur,“ sagði Sigurður.
Andstæðingar dómhússins ráða ráðum sínum næstu daga:
Tilbúin að skoða málið
ef ráðuneytið vill það
- segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
íbúð lögð i rúst
íbúð 86 ára gamallar konu á
Siglufiröi var bókstaflega lögð í
rúst af 9 og 10 ára drengjum á
meðan konan var í sinni fyrstu
utanlandsferð.
Skemmdarverkin uppgötvuð-
ust þegar konan kom heim i vik-
unni. Máliö var kært til lögregl-
unnar sem komst fijótt að þvi
hverjir voru að verki. Drengimir
sem búa í nágrenni við konuna
voru yflrheyrðir af lögreglunni i
gær og telst málið aö fullu upp-
lýst.
Nánast allt gólfefni í íbúöinni
er ónýtt. Búið var að sletta máln-
ingu út um allt og saur var á víö
og dreif um íbúðina. Persónulegir
munir voru eyðilagðir, svo sem
gamalt orgel. Þá voru heimilis-
tæki, elns og sjónvarp og útvarp,
eyðilögö.
Andstæðingar byggingar nýs dóm-
húss Hæstaréttar á bfiastæöinu bak
viö Safnahúsið viö Hverfisgötu ætla
að hittast einhvern næstu daga tíl
að ræða hvernig brugðist verði við
byggingarframkvæmdum á lóðinni
en fyrsta skóflustungan var tekin í
gærmorgun. Skúli Norðdahl arkitekt
segir að rætt verði hvernig hægt
verði að fá ráðuneytið til að skoða
aðrar lóðir undir dómhúsið.
„Það er yfirmáta ruddaskapur af
hálfu ráðuneytisins í garð borgar-
stjóra og aUra þeirra sem hafa mót-
mælt staðarvalinu að hefja fram-
kvæmdir án þess að svara bréfi borg-
arstjóra um þaö hvort önnur stað-
setning komi til greina. Vinnubrögð
ráöuneytisins eru siðlaus og alveg
óverjandi. Við drögum þá ályktun
að ráðuneytismenn viti upp á sig
skömmina og reyni að drífa máhð
áfram,“ segir SkúO.
„Við erum búin að gefa út leyfi fyr-
ir byggingu þessa hús en við erum
auövitað tílbúin að skoða málið ef
dómsmálaráðuneytið vUl skoða
það,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri eftir fund með
andstæðingum dómhússins í gær.
Sérstæð deila 1 gangi milli hópa innan Reykjavikurlistans
Skagaflörður:
Dauðan hrútmeð
áverka á höfði
rakíLundey
ÞóriiaHur Asmundssson, DV, Sauðárkr.
Menn á veiðum í Lundey innst
í Skagafiröi sáu nýlega að dauðan
hrút rak með flóðinu upp að
eynni. Þegar betur var að gáð
kom í ljós að hrúturinn hafði
áverka á höfði, var bólginn mjög
og annað augað sokkið.
Reyndist þar vera kominn einn
þriggja hrúta Sigurðar Sigurðs-
sonar yngri á Sleitustöðum sem
hann keypti frá Reykhólahreppi
á Barðaströnd í fyrrahaust. Rek
hrútsins á þessum slóðum þykir
nokkuð einkennilegt vegna
strauma ffá ósi Kolkuár.
„Þegar ég frétti að hrúturinn
hefði fundist í Lundey kom fyrst
í hugann að hann hefði álpast út
á Kolkubrúna, hvekkst við bOa-
umferö og stokkið í ána sem var
í miklum vexti. Menn sem vit
hafa á straumum ff á ósum Kolku
segja úfilokað aö hrútinn hafi
rekið á svo skömmum tima í
Lundey,“ segir Sigurður á Sleitu-
stöðum sem mjög hafði leitaö að
hrútnum.
Menn sem spáð hafa í hvarf
hrútsins grunar að ekið hafi verið
á hann og getgátur eru uppi um
aö honum hafi verið komið í sjó
lengra frá Sleitustöðum eða á
þeím slóðum sem straumar liggja
tO Lundeyjar.
Stuttar fréttir
Gjaidþrotá ísafirði
Skigasmíöastöðvar MarseOíus-
ar á ísafirði og Þorgeirs og EO-
erts á Akranesi voru lýstar gjald-
þrota i gær. Rjórar aðrar skipa-
smíðastöövar eru i vandræðum.
Sumarhátíð á vellimntt
VamarOðsmenn halda árlega
fjölskylduhátíö sína í dag og eru
aOir velkomnir.
Sjóðurinnfalsaður
Bjami S. Einarsson fornleifa-
fr æðingur segir allt benda tO þess
að sOfursjóðurinn frá Miðhúsum
sé falsaöur. Bylgjan greindi frá.
Uppgræðsiakynnt
Áform um uppgræöslu Hóla-
sands noröan Mývatns voru
kynnt í gær. Umhverfisráðherra
hefur óskað eftir umhverfismati
á henni. Hann segist ekki hafa
verið beöinn um að skera úr um
hvort ffamkvæmdin stangist á
við lög. RÚV greindi frá.
Þriggja tima lokun
Vömbfll með malarvagn valt á
mótum Reykjanesbrautar og
Krýsuvíkurvegar í gær og lokaði
veginum í þrjá tima. MikO um-
ferðarteppa myndaðist.
Deilt um greiðslur fyrir símhringingar
- erfiölega hefur gengið að fá laun borguð
Agreiningsmál er komið upp með-
al þeirra sem stóðu að Reykjavíkur-
Ostanum um greiðslur vegna sím-
hringinga til kynningar á Ostanum í
borgarstjómarkosningunum í vor.
Þeir sem defla eru annars vegar
kosningastjómin og hins vegar Helgi
Hjörvar og Hrannar B. Amarsson en
þeir sáu um að skipuleggja símhring-
ingar tO kynningar á Ostanum fyrir
borgarsfjómarkosningamar í vor.
í Velvakanda Morgunblaðsins sl.
þriðjudag kvartar Heiðrún Júfius-
dóttir yfir vangoldnum launum fyrir
símhringingar tfl kynningar, á
Reykjavíkurlistanum fyrir borgar-
stjórnarkosningar. Valdimar K.
Jónsson, fyrir hönd kosningastjórn-
ar ReykjavíkurUstans, svarar tveim-
ur dögum síðar og bendir á að þetta
verkefni hafi að öOu leyti verið í
höndum þeirra Hrannars B. Arnars-
sonar og Helga Hjörvar. Samið hafi
verið um að þeir tækju það að sér
sem verktakar, greiddu þeim laun
sem þeir réðu til verka og bæm ann-
an tilfallandi kostnaö. Reykjavíkur-
listinn hafi greitt þeim Hrannari og
Helga fyrir verktökuna og lagt til
húsnæði og síma. Verkið hafi því
ekki verið unnið á vegum kosninga-
skrifstofu ReykjavíkurUstans og ef
ekki hafi verið staðið við umsamdar
greiðslur til starfsmanna sé einungis
við þá Helga og Hrannar að sakast.
Samkvæmt heimfldum DV voru
það rúmlega 50 manns sem unnu við
símhringingarnar. Flestir vom í
sjálfboðavinnu. Þeir Hrannar og
Helgi telja sig ekki hafa fengið neinar
greiöslur frá Reykjavíkurlistanum
vegna þessa. Þeir séu hins vegar
sjálfir búnir að leggja út tvö til þrjú
hundruð þúsund krónur í kostnað
vegna hringinganna. Helgi og
Hrannar munu hafa fengið 500 happ-
drættismiða frá ReykjavíkurUstan-
um tO að selja upp í kostnað en ann-
aö telja þeir sig ekki hafa fengiö
greitt.
„Allir sem hafa óskað eftir launa-
greiðslu hafa fengið greitt eins og um
var samið en flestir unnu þetta í sjálf-
boðavinnu. Það dróst, fyrir einhver
mistök, að borga stúlkunni. Henni
var vísað manna á mUli á skrifstofu
R-listans en nú hefur henni verið
greitt ríflega. Það gerðist strax sama
dag og athugasemd hennar birtist í
Velvakanda," segir Hrannar B. Arn-
arsson við DV. Hann vfldi annars
ekki tjá sig frekar um máUð að svo
stöddu.