Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Page 9
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ1994
Sumarmyndasamkeppni DV og Kodak:
Litríkar sumarmyndir
Töluverður íjöldi sumarmynda
hefur borist í Sumarmyndasam-
keppni DV og Kodak-umboðsins.
Eins og í fyrrasumar eru þetta margs
konar myndir bæði teknar hér á
landi og erlendis. Þau eru greinilega
óteljandi augnablikin sem fest eru á
filmu á hveiju sumri enda er ljós-
mynd besta minningin um skemmti-
legt atvik. Ennþá er nægur tími til
að skila inn myndum því lokaskila-
dagur verður ekki fyrr en 25. ágúst.
Úrsbtin verða síðan kynnt 17. sept-
ember.
í dómnefnd keppninnar sitja Gunn-
ar V. Andrésson og Brynjar Gauti
Sveinsson, ljósmyndarar DV, og
Gunnar Friðbjömsson frá Kodak.
Það er til mikils að vinna fyrir þátt-
takendur í keppninni því vegleg
verðlaun era í boði. Fyrstu verðlaun
eru ferð með Flugleiðum til Flórída
að verðmæti 90 þúsund krónur, önn-
ur verðlaun era myndavél af gerð-
inni Canon EOS 500 að verðmæti 43
þúsund krónur, en það er nýjasta
SLR myndavélin frá Canon og jafn-
framt nettasta og léttasta SLR vébn
á markaðnum nú. Þriðju verðlaun
eru Kodak Photo CD geislaspilari að
verðmæti 37.600 krónur en þessi spil-
ari getur bæði sýnt myndir og spilað
tónlist.
Fjórðu verðlaun eru Canon AS-1
vatnsmyndavél að verðmæti 19.900
krónur. Loks eru það 5.-6. verðlaun,
sem eru þrjár Canon Prima AF-7
myndavélar, að verðmæti 8.490 krón-
ur hver.
Þeir sem ætla sér að senda inn
myndir í keppnina era minntir á að
merkja þær vel og vandlega með
nafni og heimihsfangi. Þá sakar ekki
að láta þess getið hvar myndin er
tekin og af hvaða tilefni. Utanáskrift-
in er:
Skemmtilegasta sumarmyndin
DV, Þverholti 11
105 Reykjavík
Margrét Ólafsdóttir, Asparfelli 6 i
Reykjavík, tók þessa mynd sem hún
nefnir „í sólinni'*.
Þessi prúðbúna hnáta gæti sem
best verið að segja: „Mamma! Ég
skal gefa þér fjólur“ en það er ein-
mitt heiti myndarinnar. Hana tók
Sigríður Fr. Halldórsdóttir, Selási 13,
Egilsstöðum.
Björn Steingrimsson, Digranesvegi 44, Kópavogi, sendir þessa skemmti- „Morgunstund gefur gull i munn“ heitir þessi mynd sem tekin var á trillu út
legu mynd sem skýrir sig sjálf. af Vestfjörðum. „Veitingamaðurinn" er Anton Magnússon, en myndina tók
faðir hans, Magnús Karlsson, Hafnarstræti 45 á Flateyri.
Islensk þjóðlög á afmœlisári lýðveláisins
Hrakkar ör Hamrashöla siingja:
| Öxarviðána |
1 Sóiskinummýrarogmóa 1
f Voriðgóðagrœntoghlýtt f
i Núersumar |
| Viðgöngum svo léttir ílundu \
§ Frjálst er íjjaUasal i 1
1 Vorlag |
B Ó blessuð vertu sumarsól 1
E Krummavísur |
Jöhann Sigurðarson leikari
les þjoðsögurnar af
Gilitrutt
I
I
karlsdœtrunum þremur
Helgu karlsdóttur
Gípu 1
sálinni hansjóns míns
karlssyni, Litlum,
Trítli ogfuglunum
Þú fœrð hana í nœstu hljómplötuverslun,
á hensínstöðvum Esso og víðar
KRINGLUNNI SIMI: 600930
STÓRVERSLUN LAUGAVEGI 26 SÍMI: 600926
LAUGAVEGI 96 SÍMI: 600934
I