Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Síða 13
Skeifunni 8 - sími 81 35 00
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994
Margrét Eir hefur veriö á kafi í söng síðan hún sigraði í söngkeppni fram-
haldsskólanema fyrir þremur árum. Margrét stefnir nú á nám í Bandaríkjun-
um. DV-mynd ÞÖK
Margrét Eir sem sló í gegn með titillaginu í Hárinu:
„Ég er ekki hálfnuð þangað sem ég
ætla mér að komast í söngnum. Ég
ætla á hæsta tind sem hægt er að
komast upp á.“
Margrét Eir, sem syngur titiliagið
í söngleiknum Hárinu, er ekki í vafa
um hvað hún ætlar að leggja fyrir
sig. Hún hefur sótt um nám í söng-
skóla í Boston í Bandaríkjunum og
vonast til að geta farið utan um ára-
mótin.
Það var einmitt í Bandaríkjunum
sem hún uppgötvaði að söngur væri
það sem hún vildi leggja fyrir sig. „Ég
var skiptinemi í Vermont fyrir fjór-
um árum og fékk aðalhlutverkið í
sýningu á Jesus Christ Superstar
sem skólinn setti upp. Þetta kveikti
í mér að syngja ekki bara með kór,“
útskýrir Margrét.
Hún var aðeins sex ára þegar hún
byrjaði að syngja í kór í Hafnarfirði.
Hún lærði einnig á píanó og fiðlu.
Það var svo þegar Margrét sigraði í
söngkeppni framhaldsskólanna fyrir
þremur árum sem hún vakti fyrst
athygli hér heima.
Sigurinnvarð
stökkbrettið
„Þetta varð stökkbrettið. Eftir það
fékk ég vinnu í hljómsveitinni Svört-
um pipar og var í henni í næstum tvö
ár. Síðan fór ég að syngja í tríói með
Margréti Pálmadóttur og Jóhönnu
Þórhallsdóttur."
Margrét hefur tvisvar tekið þátt í
Evrópusöngvakeppninni og einnig í
landslaginu á Akureyri. Hún var í
klassísku söngnámi hjá Sieglinde
Kahmann í Tóniistarskólanum í
Reykjavík 1991 til 1993 en það nám
varð að víkja sökum anna í atvinnu-
söng. Núna er Margrét að stíga sín
fyrstu skref í djassinum auk þess
sem hún syngur í Hárinu. Hún er í
djassbandi með gítarleikaranum Ara
Einarssyni og þykir ákaflega gaman.
„Djassinn heillar mig mikið. Tækn-
in er miklu erfiðari en maður gerir
sér grein fyrir. Það finnst mér
ögrandi. Það eru ekki margir sem
ráða viö þetta. Mér finnst það hafa
hjálpað mér mikið að hafa verið í
klassísku námi. Það er ekki nóg að
hafa röddina."
Amman var
stórsöngkona
Að sögn Margrétar fæddist hún
með tónlistina í blóðinu. „Amma
mín, Björg Guðnadóttir, var stór-
söngkona í Reykjavík og stjórnaði
kór. Mamma mín, Sigurveig Hanna
Eiríksdóttir, er lærð söngkona úr
Söngskólanum í Reykjavík. Það eru
ýmsir fleiri í fjölskyldunni í tónlist."
Skólinn, sem Margréti langar að
stunda nám við í Bandaríkjunum,
hefur fengið góðan vitnisburð fyrir
kennslu fyrir þá sem vilja læra að
syngja í söngleikjum. Með því að
vera við nám þar ætlar Margrét að
slá tvær flugur í einu höggi. „Ég hef
líka verið í leikhst en ég get ekki
gert nema eitt í einu. Þarna fann ég
leið til að gera hvorutveggja."
Eií y mm
kJ er opið hjó okkur.
j. ! ÞaS er ekki góð tilfinning aÖ
sárvanta verkfæri eða efni í miðju
verki og koma að lokuðum dyrum í
öllum byggingavöruverslunum.
Með breyttum opnunartíma
okkar hefur jDetta breyst. Nú færðu
allar byggingavörur, sem þú þarft
- jaegar þú þarft og á sama lága
verðinu.
!iJ Verkfæri, inni- og útimálning,
garðvörur, hreinlætis- og
blöndunartæki, viðgerðar^
efni, lagnaefni, naglar^
skrúfur og ótal
margt fleira.
Opið alla daga
«►9
og um helgar líka!
BYGGINGAVORUR
Hallarmúla 4 - sími 3 33 31
Á hagstæðu verði ■ Þá áttu erindi
og góðum kjörum! n á Krókhálsinn.
OPIÐ: 10-18
virka daga
og 12-16 laugard.
MMC Pajero st.
1990, ek. 78 þús., V6 vél, gott
eintak. Kr. 1.490.000
Dodge Aries station
1987, ek. 89 þús., sjálfsk. o.fl.
Kr. 570.000. Nú á tilboði kr.
490.000
BMW 316i
1990, ek. 72 þús. Kr. 1.000.000
Einnig 1988 frá kr. 690.000
Honda Accord
1991, ek. 51 þús., sjálfsk., sóllúga
o.fl. Kr. 1.180.000
Renault Clio RT
árg. 1991, ek. 50 þús. Kr.
700.000. Einnig RN 1991, kr.
620.000. RN 1992 kr. 730.000
Renault 19 GTS
1990, ek. 60 þús. Kr. 680.000.
Einnig TXE 1991/1992
BMW 318iS
1992, ek. 19 þús. Glæsieintak.
Kr. 2.200.000
Suzuki Swift GL
1987, ek. 93 þús. Kr. 290.000.
Tilboð kr. 250.000
Bílaumboðið hf. Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633 Bilasalan Krokhaisi,
Einnig á staðnum m.a.
Arg. Slgr.
Mazda323 1988 390.000-Tilboð
BMWS20IA 1987 690.000 -Tilboð
Subaru 1800 st. 1989 820.000
CitroenAXH 1987 270.000
Toyota Corolla st. vsk. 1991 750.000
BMW520ÍA 1984 290.000-Tilboð
BMW520Í 1989 1.490.000—TilboA
Daihatsu Charade 1300 1991 670.000—Tilboð
FiatUno 45 1988 170.000—Tilboð
Saab 900i 1987 550.000
Lada 1500 st. 1991 290.000-Tilboð
Renault11 1984 190.000
Subaru 1800 st. 1985 450.000
Krókhálsi 3, Sími 676833
’ Ég ætla á hæsta tind
- hyggur á nám í söngskóla í Boston