Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Side 17
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994 17 Útlenskar stúlkur gagnrýna íslandsdeild Alþjóðlegra ungmennaskipta eftir ársdvöl: Sjálfar í að útvega okkur dvalarstað Evelyn Bryner og Eudora Fay borguðu nær hálfa milljón til skiptinemasam- taka í heimalöndum sínum fyrir ársdvöl á íslandi. Þegar Eudora kom til landsins kom enginn til að taka á móti henni. Evelyn hefur verið atvinnulaus í nokkra mánuði. Þær eru harðorðar í garð fulltrúa skiptinemasamtakanna hérálandi. DV-mynd Brynjar Gauti Þegar Eudora Fay, 18 ára bandarísk stúlka, kom til Islands sem skipti- nemi kom enginn til að taka á móti henni á vegum skiptinemasamtak- anna Alþjóðlegu ungmennaskipt- anna eins og henni hafði verið lofað. Þegar hún hringdi á skrifstofuna svaraöi enginn. Þegar hún var loks- ins sótt átta klukkustundum eftir komuna var henni ekið á Hjálpræðis- herinn. „Það var búið að breyta símanúm- erinu sem ég hafði undir höndum. Ég hringdi kollekt heim til pabba míns í Bandaríkjunum og honum tókst einhvern veginn aö ná sam- bandi við skrifstofuna þannig að ég var sótt. En það var ekki fyrr en eft- ir átta klukkustundir,“ segir Eudora. Þetta gerðist í fyrrasumar. Nú er Eudora á förum, vonsvikin yfir frek- ari kynnum sínum af meintu skipu- lagsleysi hér. NærhálfmiIIjón fyrir íslandsdvölina Vinkona Eudoru, Evelyn Bryner frá Sviss, segir það í raun algjört ábyrgðarleysi af hálfu samtakanna hvemig komið hafi verið fram við Eudoru. „Ég er orðin 26 ára og get ráðið fram úr svona sjálf þó það sé ekki það sem maður hefur greitt fyr- ir nær hálfa milljón. En það er ekki hægt að koma svona fram við 18 ára ungling." Þegar Eudora hafði verið sótt til Keflavíkur var henni komið fyrir á Hjálpræðishernum. Daginn eftir var henni fjáö að hún ætti að fara á bóndabæ norður í land. „Mér hafði verið sagt að á bónda- bæjum ynnum við sveitastörf. En ég var látin passa börn. Húsbóndinn á bænum talaði ekki við mig þá tvo mánuði sem ég var þarna. Konan, sem var þýsk, talaði ensku við mig en ég var meðal annars komin til að læra íslensku. Sjálfboöaliði á vegum skiptinemasamtakanna, sem átti að vera stuðningsaðili minn, hafði aldr- ei samband. Sjálf mátti ég ekki hringja langlínusamtöl. Eftir nokkr- ar vikur fór ég til Reykjavíkur á tungumálanámskeið fyrir skipti- nema og þar kynntist ég Evelyn. Skiptinemarnir voru hvattir til að tjá sig en þegar þeir greindu frá högum sínum hafði enginn áhuga á að hlusta. Fólk var næstum grátandi en fékk þau svör aö þetta væru bara venjulegar aðstæður á íslandi. Eve- lyn talaði við sinn stuðningsaðila fyrir mig og bað hann að hafa sam- band við skrifstofuna en ekkert gerð- ist. Það var svo fólk á nágrannabæ sem bauö mér að koma til sín en það hafði í raun ekki efni á því svo að ég var þar bara í tvær vikur.“ Fékk starf með aðstoð annars skiptinema Eudora bendir á að í reglunum um starfsemi skiptinemasamtakanna standi að þau eigi að útvega húsnæöi og starf. Næsta starf hafi hún hins vegar fengið fyrir tilstilii annars skiptinema. Það starf var á bóndabæ á Suðurlandi. Eftir vikudvöl þar skildu hjónin sem Eudora var komin til að starfa hjá. „Þegar ég hafði sam- band við skiptinemaskrifstofuna var mér sagt að fara norður til hjónanna sem höföu ekki efni á að hafa mig. Þau voru í fríi þannig að ég fór ekki strax. Eftir viku á þeim bæ gat ég fengið að koma í staðinn fyrir annan skiptinema á nálægum bæ.“ Þangaö fékk Eudora sendan lista frá skrifstofu skiptinemasamtak- anna með nöfnum um 15 stofnana og fyrirtækja. Skiptinemar áttu að merkja við þá vinnustaði sem þeir höfðu mestan áhuga á. Eftir um það bil hálfs árs sveitastörf áttu annars konar störf að taka við og málin skyldu rædd á ráðstefnu í janúar, að því er Eudora og Evelyn greina frá. Mikilvonbrigði „Á ráðstefnunni fengum við hins vegar þær fréttir að mörg þessara fyrirtækja og stofnana höfðu engin störf að bjóða, þetta væri ekki hent- ugur tími og svo framvegis. Við urð- um náttúrlega fyrir miklum von- brigðum. Ég gat fengiö að fara til Torfastaða í Biskupstungum en vissi í raun ekkert um starfsemina þar,“ segir Eudora. „Þegar ég kom þangað héldu hús- ráðendur að ég væri bara að koma í viðtal. Ég brotnaði niður og hringdi í Evelyn og bað hana að sækja mig. Ég fékk að dvelja hjá henni í nokkra daga í Sólheimum í Grímsnesi þar sem hún vann. í gegnum skiptinema- skrifstofuna fékk ég svo vinnu í Arn- arholti. Þar var gott að vera en það var þó erfitt að starfa í marga mán- uði innan um geðveikt fólk svo að ein starfsstúlkan þar útvegaði mér barnapíustörf hjá systur sinni á Suð- urnesjum. Það er alveg ágætt að vera þar. Eg lét skrifstofuna ekki vita að ég skipti um vinnustað en þá varð fólk æst yfir því. Stuðningsaðili minn haföi samt ekki hringt í mig nema einu sinni frá áramótum." Eudora borgaöi um 350 þúsund krónur til skiptinemasamtakanna í Bandaríkjunum fyrir íslandsdvöl- ina. Innifalið er flugfargjald og trygg- ingar. Afgangurinn er notaöur til starfsemi samtakanna í Bandaríkj- unum. Atvinnulaus í marga mánuði Evelyn, sem er kennslukona frá Sviss, greiddi 400 þúsund krónur til að komast til íslands. í umsókn sinni lagði Evelyn áherslu á að hún vildi læra íslensku. „Ég var send austur á land þar sem húsmóðirin er portúgölsk. Fólkið þar haföi beðið um einhvern sem talaði portúgölsku og spænsku og ég tala spænsku. Þetta var ekki það sem ég haföi beðið um og því fór ég þaðan eftir mánuð. Ég fékk vinnu á Sól- heimum í Grímsnesi fyrir tilstilli skrifstofu skiptinemasamtakanna og var þar þangað til í janúar. Mér hk- aöi mjög vel þar, vann við gróður- setningu, tók upp kartöflur og vann í vefstofu. í janúar varö ég atvinnu- laus og þá tók stuðningsaðili minn mig heim til sín. Skrifstofan á að útvega mér vinnu en ég þurfti sjálf að leita og það gekk ekki vel. Ég tal- aði við yfirhjúkrunarkonuna í Arn- arholti þar sem Eudora vann þá. Ég fékk að koma þangað í mánuð og hélt að ég heföi verið að ráða mig í vinnu og fengi greitt fyrir. Það var ekki svo og var þetta bara misskiln- ingur milli mín og yfirhjúkrunar- konunnar. Það er ekki við neinn að sakast. Ég fékk fæði og húsnæði," segir Evelyn sem hefur búið hjá stuðningsaðila sínum síðan hún varð atvinnulaus. „Þrátt fyrir allt vorum við ákveðn- ar í aö þrauka út ráðgerðan dvalar- tíma sem rennur út í júlílok," segja þær stöllur. Vísa gagnrýninni á bug - ekki hægt að tryggja vinnu fyrir alla „Það voru mistök að stúlkan var bandi við fólkið þar. Það sér hins Alþjóðleg ungmennaskipti hafa ekki sótt strax út á flugvöil. Að vegar enginn hiónaskilnað fyrir.“ verið starfrækt frá þvi snemma á öðru leyti vísa ég gagnrýni þeirra Um ásakanir Evelyn um að hún sjöunda áratugnum. Venjulega á bug,“ segir Sigurlaug Gunnlaugs- hafiekkifengiðaðstoðviðatvinnu- koma 12 til 15 ungmenni erlendis dóttir hjá skrifstofú samtakanna leit segir Sigurlaug það rangt. frááhverjuáriogeruþauáaldrin- Alþjóðleg ungmennaskipti. „Vegna atvinnuástandsins í um 18 til 27 ára. Þau eru kölluð Hún segir að á nágrannabænum, Reykjavík hefur því miður ekki skiptinemar þó að þau komi til sem bauöst til að taka Eudoru til verið hægt að útvega öllum vinnu. starfa en ekki náros. Ungrnennin sín, hafi verið aðili sem hafi tengsl Það heföi verið hægt aö útvega teljast ekki vinnuafl og fá í raun- við skrifstofuna. „Þegar við frétt- Evelyn vinnu úti á landi en hún inni aðeins vasapeninga í flestum um að hún nyti ekki alúðar á fyrsta vildi vera i Reykjavík." tilvikum auk húsnæðis og feeðis. dvalarstaðnum og að þessi bær Aðspurð segir Sigurlaug ekki Það er þó breytflegt. Héðan fara gæti veitt henni aöstoð buðum viö hægt aö tryggja ungmennunum jafnmargir utan og koma hingað hennistraxflutningþangaðenhún vinnu út dvalarárið áður en þau en íslensk ungmenni á aldrinum vildi bíða aðeins. Varðandi koma. Stofnunum sem koma til 18 til 19 ára fara í skóla erlendis bóndabæinn á Suöurlandi var það greina sé óvænt lokað og einnig yfir veturinn. Þau greiða um 330 reyndar skiptinemi sem benti á þá fyrirtækjum og það hafi tfi dæmis þúsund krónur til samtakanna, aö vist en við höföum verið í sam- gerst í vetur. því er Sigurlaug greinir fró. Fljúgið akið skoðið • s • -y- sjaio og upplifið meira FLUG OG BÍLL^" Vinsælasti ferðamátinn á ári fjölskyldunnar ► Amsterdam flug og bíll Verð frá 29.200 kr. á manninn m.v. 4 í bíl í A-flokki í eina viku, 2 fullorðna og 2 börn, 2ja -11 ára. Frá 39.585 kr. á manninn m.v. 2 í bíl í A-flokki í eina viku.* ► Lúxemborg flug og bíll Verðfrá 27.465 kr. á manninn m.v. 4 í bíl í A-flokki í eina viku, 2 fullorðna og 2 börn, 2ja -11 ára. Frá 36.150 kr. á manninn m.v. 2 í bíl í A-flokki í eina viku.* Úrvals bílaleigubílar frá (iVíV^ £® d) 0 Al%ASi» *Bókunarfyrirvari er 14 dagar. Allt verð er með flugvallarsköttum. ► Kaupmannahöfn flug og bíll Verðfrá 30.565 kr. á manninn m.v. 4 í bíl í A-flokki í eina viku, 2 fullorðna og 2 börn, 2ja -11 ára. Frá 41.750 kr. á manninn m.v. 2 í bíl í A-flokki í eina viku.* Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300 (svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 - 19 og á laugard. frá kl. 8 - 16.) FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.