Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 16. JÚLl 1994
19
Akafar umræður eru uppi um hvort mála eigi Pósthúsið rautt.
90 ár síðan höfundur
pósthússins hóf störf
Undanfarna daga hefur farið fram
umræða um lit pósthússins í Reykja-
'/ík og hefur ungur arkitekt réttilega
bent á að húsið hafi upphaflega verið
rautt. Þessi umræða er bæði þörf og
skemmtileg, ekki síst vegna þess að
einmitt nú eru liðin 90 ár síðan höf-
undur pósthússins, Rögnvaldur Á.
Ólafsson, hóf störf sem „ráðunautur
landsstjórnarinnar um opinberar
húsbvggingar", en hann hefur stund-
um verið kallaður fyrsti íslenski
arkitektinn. Ráöning Rögnvaldar er
enn eitt dæmið um framsýni og sókn-
arhug manna við upphaf heima-
stjórnar 1904 og starf hans var und-
anfari embættis húsameistara ríkis-
ins.
Fyrsta verk Rögnvaldar var afar
snotur krosskirkja í Hjarðarholti í
Dölum, sú fyrsta af þremur slíkum
sem hann teiknaði, og var hún vígð
fyrsta sunnudag í jólaföstu 1904.
Hjarðarholtskirkja er fyrsta kirkjan
sem teiknuð er af íslenskum arkitekt.
Berklaveiki
Rögnvaldur Ágúst Ólafsson fædd-
ist að Ytri-Húsum við Dýraíjörð 5.
desember árið 1874. Hann hóf skóla-
göngu nokkuð seint, las undir skóla
á ísafirði og ólst þar upp frá átta ára
aldri. Hann settist í Latínuskólann í
Reykjavík 1894 og lauk stúdentsprófi
aldamótaárið og svo heimspekiprófi
frá Prestaskólanum 1901, hvoru
tveggja með ágætiseinkunn. Hann
las guðfræði í eitt ár og var alla tíð
trúaður maður. Rögnvaldur varð
snemma berklaveikur og það háði
honum mjög í námi og starfi.
Rögnvaldur hlaut styrk af landsfé
til náms í húsagerð við Teknisk
Selskabs Skole í Kaupmannahöfn og
kom þangað 1901 en gat ekki stundað
námið af því kappi sem hann hefði
kosið vegna vanheilsu. Þar að auki
varð hann að vinna með náminu og
teiknaði um hríð hjá prófessor Fen-
ger, frægum húsameistara í Kaup-
mannahöfn.
Veturinn 1903-04 fór hann á heilsu-
hæli í Boserup og svo fór að hann
varð að lúta í lægra haldi fyrir berkl-
unum, hverfa frá námi vorið 1904 og
koma heim án þess að ljúka prófum.
Ráðunautur
um húsagerð
Rögnvaldur varð ráðunautur
landsstjórnarinnar um húsagerð ár-
ið 1904 og gegndi því á meðan hann
lifði. Hann varð þannig fyrstur
manna til að gegna því starfi sem
síðar varð embætti húsameistara
ríkisins. Hann sat í byggingarnefnd
Reykjavíkur um langt árabil, samdi
byggingareglugerðir fyrir mörg
kauptún landsins og að öllum líkind-
um lög um byggingareglugerðir 1905.
Hann var kennari við Iðnskólann
1905-16 og sat í skólanefnd þann tíma
og hann var einn af stofnendum
Verkfræðingafélags íslands og sat í
stjórn þess sem ritari til dauðadags.
Auk kirkjunnar í Hjarðarholti
teiknaði Rögnvaldur tvær aðrar
krosskirkjur, á Breiðabólsstað í
Fljótshhð og Húsavíkurkirkju, sem
er þeirra stærst og eflaust hans fræg-
asta verk.
Hann teiknaði einnig nokkrar stór-
ar skólabyggingar svo sem á Hvann-
eyri, Eiðum, Hólum í Hjaltadal og
Siglufirði og tugi smærri skóla um
land allt. Þá teiknaði Rögnvaldur
nokkur íbúðarhús í Reykjavík,
Kleppsspítalann og íbúðarhús Þórð-
ar Sveinssonar, yfirlæknis á Kleppi
(Prófessorshúsið), turninn á hús
Guðmundar landlæknis í Bernhöfts-
torfu og stækkun Fríkirkjunnar, svo
eitthvað sé nefnt.
Aðalverk hans og áhugamál síð-
ustu árin var hins vegar berklahælið
á Vífilsstöðum, vígt 1910. Hann gerði
alla uppdrætti að húsinu, var sjálfur
byggingameistari þess og sá um alla
efnisútvegun í bygginguna. Svo fór
að síðustu árin dvaldi hann sjálfur á
Vífilsstöðum og lést þar aðeins 43 ára
að aldri 14. febrúar 1917 úr berkla-
veiki.
Þótt starfsævi Rögnvaldar Ólafs-
sonar yrði stutt, aðeins 13 ár, og
heilsuleysi hrjáði hann kom hann
ótrúlega miklu í verk og eftir hann
liggja fjölmargar opinberar bygging-
ar af öllum stærðum. Sum verka
hans eru meðal þess fegursta sem til
er hér á landi á sviði húsagerðarlist-
ar og áhrif hans á íslenska húsagerð
eru ómæld.
TexthBjörn G. Björnsson
Söluturninn á Lækjartorgi, reistur
fyrir konungskomuna 1907.
Vonarstræti 12, hús Skúla Thorodd-
sen alþingismanns.
Hafnarfjarðarkirkja, byggð 1914.
ÍM
3
SO
jS
■O
s
'3
æ
'r
i*»
tö
u
3
:0
I
u
P
2
■o
&
t/i
Vannahlíð - Siglufjördur
Akureyri - Mývatn
COMBhCAMP
TJALDAÐ Á 15 SEKÚNDUM
Combi Camp Family Modena frá kr. 319.516,- stgr.
Combi Camp tjaldvagnar fyrir þá sem njóta
vilja útiveru og ferðalaga. Þá sem vilja
komast í náinn kynni við náttúruna og geta
á skömmum tíma slegið upp náttstað að
eigin vali með alvöru þægindum
I ,l£|
AÁMTI
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077
Laugardalur - Þingvellir - Laugarvatn - Þjórsárdalur
Gel'v
ð
ve
yðS*
Við bjóðum hag-
stætt verð á
gagnvörðu timbri
í sóipalla,
skjólveggi,
girðingar,
grindurog glugga.
Eigum einnig
vatnsklæðningu
fyrir timburhús
M
METRO
Lynghálsi 10
Reykjavík
Furuvöllum 1
Akureyri
Egilsstaðir - Seyðisfjörður - Evrópa - Haliormsstaður - Djúpivogur - Höfn - Skaftafell