Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Page 21
LAUGARDAGUR 16. JÚLl 1994
21
Mörg verðlaun verða afhent á Islandsmótinu í hestaíþróttum sem haldið verður í Kópavogi dagana 21. til 24. júlí.
DV-mynd EJ
Keppt á nýjum velli
- á íslandsmótinu í Kópavogi
Miklar framkvæmdir hafa staðið
yfir við Glaðheima, keppnissvæði
Gusts í Kópavogi, undanfarnar vik-
ur. íslandsmótið verður haldið þar
dagana 21. til 24. júlí.
Vígður verður nýr 250 metra hring-
völlur en fyrir eru 200 og 300 metra
vellir. Svæðið hefur allt verið tekið
í gegn og fegrað og endurbætt.
Þá verður nýja Reiðhöllin notuð
fyrir veitingar og skipulag móts-
stjómar en auk þess eru bílastæði
við Reiðhöllina.
„Við sjáum fram á verulega þátt-
töku,“ segir Kristmundur Halldórs-
son í framkvæmdastjóm íslands-
mótsins. „Mörg frægu hrossanna frá
landsmótinu koma og flestalhr sterk-
ustu knapar landsins. Það verður
einnig metþátttaka frá Gusti. Svæðið
hefur tekið stakkaskiptum. Einn
Gustsfélaga sagði við mig nýlega:
„Svæðið er orðið svo flott að maður
þorir varla að ríða út lengur."
Keppni hefst fimmtudaginn 21. júlí
klukkan 16.00 með hlýðnikeppni og
klukkan 19.30 hefst keppni í fjórgangi
fullorðinna. Daginn eftir hefst
keppni klukkan 8.00.
A föstudeginum verður hindrunar-
stökk inni í Kópavogi á Vallargerðis-
velh og á laugardeginum undan-
keppni í tölti. Úrslit eru flest á sunnu-
deginum.
Okeypis verður inn á mótið fyrstu
dagana en á laugardeginum kostar
ihn 500 krónur fyrir fullorðna og 200
fyrir unglinga en frítt er fyrir börn.
-E.J.
Áttatíu og eins árs í verð-
launasæti á Nesodda
Jón Hallsson, áttatíu og eins árs, er enn að keppa á Nesodda. Með honum
á myndinni er Marteinn Valdimarsson, sveitarstjóri í Búðardal. Þeir voru
báðir í verðlaunasætum. DV-mynd E.J.
Dalamenn glöddust á Nesodda um
síðustu helgi er þeir vígðu nýjan
hringvöll. Keppt hefur verið á Nes-
odda frá árinu 1922 en einungis var
keppt í kappreiðum fyrstu árin.
Jón Hahsson í Búðardal, áttatíu og
eins árs, lætur ekki á sér bhbug
finna. Hann kom í A-flokkinn með
Gosa sinn og varð í öðru sæti með
8,02.
Þar sigraði Hrafnfaxi Skjaldar Stef-
ánssonar með 8,31 og var knapi Einar
Ö. Magnússon.
í þriðja sæti varð Sproti, sem íris
H. Grettisdóttir og Vignir Jónasson
eiga, en Vignir sat og fékk Sproti 7,95
í einkunn.
Landsmótshryssan
efst í B-flokki
í B-flokki sigraði hryssan Dags-
brún með 8,60. Eigandi er Alvhda Þ.
Ehsdóttir en knapi var Vignir Jónas-
son. Dagsbrún var í níunda sæti í
B-flokki á nýhðnu landsmóti.
Draumur, sem Marteinn Valdi-
marsson á og sat, varð annar með
8,49 en í þriðja sæti varð Demon
írisar H. Grettisdóttur, sem Grettir
B. Guðmundsson sýndi, með 8,33 í
einkunn.
Sveitarstjórinn
sigraöi í brokkinu
Marteinn Valdimarsson, sveitar-
stjóri í Búðardal, hefur löngum stað-
ið framarlega með hesta sína á Nes-
odda og tekur oft þátt í brokkkeppn-
inni.
Hann sigraði nú í 300 metra brokki
á Draumi sínum á 41,3 sekúndum.
í 250 metra unghrossahlaupi sigr-
aði Sokki Ólafs Pálmasonar á 20,5
sekúndum en knapi var Monika
Backman.
í 300 metra stökki sigraði Glófaxi,
Kristjáns Jónassonar á 25,3 sekúnd-
um. Knapi var Jens P. Högnason.
í 150 metra skeiði sigraði Shvia
Svandísar Sigvaldadóttur á 17,2 sek-
úndum. Knapi var Guðmundur Ól-
afsson.
í 250 metra skeiði sigraði Tópas
Jóns Geirmundssonar á 24,9 sekúnd-
um. Knapi var Jóhann Þorsteinsson,
sem kom úr Skagafirðinum að skeið-
leggja með Dalamönnum. -E.J.
Kvöldverdartilboö
vikuna 15/7 - 22/7
Eldsteikt humarkjöt
í estragonrjómasósu
*
Glóðað lambafillet
m/villtum jurtum og piparsoðsósu
Isdúett m/hnetum og ávöxtum
Kr. 1.950
Boröapantanir
í síma 88 99 67
Má bjóáa rauðan bistro?
Sumar í Grillinu
Þríréttaður kvöldverður á 2.200 krónur
I sumar bjóðum viðþrenns konarþríréttaðan kvöldverð,
hvttan, bláan og rauðan bistro,
til viðbótar við hefðbundinn matseðil. Bistro er létt
ogsumarleg máltíð og vitaskuldgerum við sömu
gœðakröfur til bistrorétta og annarra rétta í Grillinu.
Sumarkvöld í Grillinu á Hótel Sögu er gott kvöld.
Þar njótiðþið máltíðarinnar, útsýnis til allra átta,
þjónustunnar,— lífiins.
Borðapantanir í síma 91-25033.
í unglingaflokki stóð efst Ólöf I.
Guðjónsdóttir á Surti með 8,49, íris
H. Grettisdóttir varð önnur á Viðari
Hafþóri með 8,24 og Kristín E. Jóns-
dóttir varð þriðja á Þjóni með 8,39.
í barnaflokki stóð efstur Ath Andr-
ésson á Náttfara með 8,28, Auður
Guðbjörnsdóttir varð önnur á
Draumi með 8,18 og Birna Þórðar-
dóttir varð þriöja á Djákna meö 8,07.
í töltkeppninni sigraði Hrönn Jóns-
dóttir á Freyju Baldursdóttur, íris
H. Grettisdóttir varð önnur á Demon
og Svavar Jensson þriðji á Garra.
Verður þú sá heppni?
Combi Camp tjaldvagn að
verðmæti kr. 380.000 dreginn út
fyrir verslunarmannahelgina!
Áskriftarsíminn er
63*27*00
Island
Sækjum
þaö heim!