Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Page 27
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994
35
; ■ r ..
„Glímumenn munu sýna listir sínar ásamt fjölbragðamönnum, kvæðamönnum, járninga- og beitningamönn
um og nokkrum karlakórum."
Nökkvi læknir fer
á samnorræna
karlaráðstefnu
Nökkvi læknir býr sig nú til farar
á samnorrænt karlaþing (Nordisk
solidaritet) sem haldið verður á
dönsku borginni Næstved í lok júlí.
Slík þing eru haldin reglulega svo
að norrænir karlar geti hist í friði
og rætt um reynsluheim sinn, þrár
og vonir. íslendingar eru hlutfalls-
lega íjölmennastir Norður-
landabúa á þessu þingi eins og
venjulega þegar eitthvað skemmti-
legteraðgerast.
Fjölbreytt dagskrá
Menn hafa vandað mjög til sér-
stakrar karladagskrár til að sýna
grannþjóðunum íslenska karl-
manninn í leik og starfi í 1100 ár.
Glímumenn munu sýna listir sínar
ásamt fjölbragðamönnum, kvæða-
mönnum, jáminga- og beitninga-
mönnum og nokkrum karlakórum.
Sýning verður á klæðnaði karla frá
ýmsum tímabilum (100 karlar),
gömlum norðlenskum karladöns-
um (89 karlar) auk vísnasöngs
karla frá Reyðarfirði (30 karlar) og
litgreiningar með tilliti til þarfa
karla (1 karl). Tölvufyrirtæki úr
Reykjavík kynnir sérstakan gagna-
banka fyrir karlmenn og hand-
verksmenn frá Hafnarfirði sýna
snyrtilega punghlíf úr steinbíts-
roði. Karlmenn af Suðurlandi
munu ganga um í fornmannabún-
ingum við alvæpni eina dagstund.
„Þetta er vönduð dagskrá,“ sagði
Nökkvi læknir eitt kvöld við Berg-
dísi konu sína, „enda er vel til
hennar vandað. Hér leggjast á eina
sveif bestu synir þjóðarinnar til aö
gera veg íslands sem mestan meðal
norrænna þjóða.“ „Sjáðu,“ bætti
hann við, „hér býður leikhópurinn
Rimmugýgur upp á sýningu sem
heitir-Njálsbrenna. Borinn verður
eldur að sérhönnuöu pappahúsi
með strábrúðum. Þannig ætlum
við að minnast Skarphéðins og
Njáls og fleiri karla sem lífið létu í
deilum sem stöfuðu af konum.
Karlar frá Djúpavogi munu auk
þess sýna hjólbarðaviðgerðir.
Nokkrir hárskerar af Vestfjörðum
munu sýna hárgreiðslu íslenskra
kalla í 1100 ár.“ En Bergdís lét sér
Á laáknavaktinni
Óttar
Guðmundsson
læknir
fátt um finnast eins og venjulega.
„Er þetta ekki bara enn ein fyllirí-
isferðin sem þú ferð í, Nökkvi
minn, undir nýju yfirskini."
Nei, og aftur nei
Nökkvi stundi þungan enda
leiddist honum mjög þessi um-
ræða. „Nei,“ sagði hann, „við erum
ekki að fara til að skemmta okkur.
Við ætlum að efla samhug norr-
ænna karlmanna og kynna okkur
reynsluheim þeirra og skoðanir
svo að við getum sameinaðir gengiö
mót nýrri öld.“ Þetta síðasta hafði
hann úr ræðu sem mikill karlrétt-
indapóhtíkus hafði haldið á bar-
áttudegi karla, 20. apríl. En Bergdís
var ekki af baki dottin. „Þetta er
nú meiri bölvuð vitleysan. Hverj-
um dettur eiginlega í hug að flytja
út 1400 kallpunga til að þinga í
Danmörku?" Nökkvi svaraöi ró-
lega: „Þetta er engin vitleysa,“
sagði hann. „Það er nauðsynlegt
fyrir íslenska karlmenn að koma
saman og ræða málin. Þama verða
t.d. nokkrir menn frá Raufarhöfn
og Dalvík. Ég hef aldrei hitt menn
frá þessum stöðum. Hugsa þeir eins
og ég? Er reynsluheimur þeirra
eins og minn? Þessu verð ég að fá
svarað.“ „En þarftu að fara tU Dan-
merkur til þess?“ sagði Bergdís og
glotti illyrmislega. „Já,“ sagöi
Nökkvi. „Auk þess hitti ég þama
menn frá Happaranda í Svíþjóð og
Álaborg í Danmörku; menn sem
hafa sína reynslu, sínar vonir, sín-
ar þrár. Hvemig gengur þeim að
láta óskirnar rætast? Þetta getum
við rætt á þinginu í rólegheitum í
friði fyrir ósanngjörnum kröfum
kvenþjóðarinnar um meiri tekjur
og viðveru."
Nausynlegtþing
Nökkvi læknir er tekinn að þreyt-
ast á þessu naggi Bergdísar. Hún
skilur greinilega ekki hversu nauð-
synlegt það er fyrir norræna karl-
menn að hittast reglulega, drekka
saman bjór og snaps, tala saman
og dást hver að öðrum. „Svona
skemmtiferðir með vísindalegum
blæ gefa lífinu gildi enda er nauð-
synlegt að efla samstöðu norrænna
karla í vaxandi kvenveldi." segir
Nökkvi. Hann hélt áfram að pakka
niður í ferðatöskur tvennum
jakkafótum, fommannabúningi,
nokkrum skyrtum, gaUabuxum og
frjálslegum íþróttabolum. Síðast
pakkaði hann niður stórum atgeir
sem hann átti að bera á skrautsýn-
ingu síðasta daginn. „Bara að hel-
vítis atgeirinn verði ekki gerður
upptækur í vopnaleitinni," tautaði
hann fyrir munni sér og glotti
vandræðalega.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað
uppeldismenntað starfsfólk í störf í neðan-
greinda leikskóla:
Hálsaborg v/Hálasel, s. 78360
Sólborg v/Vesturhlíð, s. 15380
Ægisborg v/Ægisíðu, s. 14810
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
Námskeið í flugumferðarstjórn verður haldið næsta
vetur. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og stendur
grunnnámskeiðið frá því í október 1994 fram í maí
1995.
Umsóknarfrestur er til 1. sept. nk. en stöðupróf í ís-
lensku, ensku, stærðfræði og eðlisfræði verða haldin
í september. Umsækjendur skulu vera á aldrinum
20-30 ára, hafa lokið stúdentsprófi, tala skýrt mál,
hafa gott vald á enskri tungu og standast tilskildar
heilbrigðiskröfur.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Flugmálastjórn
á annarri hæð flugturnsbyggingarinnar á Reykjavík-
urflugvelli og á skrifstofu flugvallarstjóra, Leifsstöð,
Keflavíkurflugvelli, einnig á umdæmisskrifstofum
Flugmálastjórnar á Akureyri, ísafirði, Egilsstöðum
og í flugturninum í Vestmannaeyjum. Umsóknum ber
að skila fyrir 1. september 1994 ásamt staðfestu af-
riti af stúdentsprófi og sakavottorði.
Kynningarfundur fyrir umsækjendur verður haldinn
i skóla Flugmálastjórnar þriðjudaginn 26. júli kl.
20.00.
Trygging hf.
óskar eftir tilboðum í neðanskráðar bifreiðar sem
hafa skemmst í umferðaróhöppum. Bifreiðarnar
verða seldar í því ástandi sem þær eru og kaupendur
skulu kynna sér á staðnum.
Toyota Corolla GLi 1993
Nissan Sunny Wagon 1992
Nissan Primera 1991
Subaru LegacyGL4WD 1990
Daihatsu Applause 1990
Seat Ibiza 1988
Ford Escort 1988
MMC Lancer 1988
MMC Lancerst. 1988
Lada Lux 1500 1988
Peugeot 309 1988
Fiat Uno 1987
Mazda 626 1987
Volvo 240 1986
Mazda 323 1986
Nissan Sunny 1984
BMW315 1983
Bifreiðarnar verða til sýnis mánudaginn 18. júlí 1994
í Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 8-16. Tilboðum ósk-
ast skilað fyrir kl. 16 sama dag til Tryggingar hf„
Laugavegi 178, 105 Reykjavík, sími 621110.