Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Blaðsíða 28
36 LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ1994 Iþróttir Markahrókurinn Þórður Guðjónsson tekst nýkvæntur á við slaginn 1 þýsku Bundesligunni: Ekki meira en svo að ég geti stigið í fætuma Þórður og Anna Lilja skera brúðartertuna brosandi á svip. Sigurður Sverrisscm, DV, Akranesi: „Ég var að koma af fyrstu æfing- unni minni eftir sumarleyfið og það eru engar ýkjur að það er ekki meira en svo að ég geti stigið í fæt- uma,“ sagði Skagamaðurinn Þórð- ur Guðjónsson er DV ræddi við hann i Bochum í vikunni. Hann var þá nýkominn heim frá Bandaríkj- unum þar sem hann var í brúð- kaupsferð ásamt eiginkonu sinnu, Önnu Lilju Valsdóttur, en þau gengu í það heilaga þann 25. júní sl. Anna Lilja er kunn knatt- spyrnukona, lék með meistara- flokksliði ÍA til margra ára. „Brúð- kaupsdagurinn var meiri háttar, stærsti dagur lífs míns,“ sagði Þórður. Sumarleyfi atvinnumanna í þýsku Bundesligunni er ekki langt, aðeins 4 vikur, og þann tíma notaði Þórður til að taka lífinu með ró, ekki síst til að jafna sig á meiðslum sem hafa hrjáð hann ítrekað frá því í byrjun apríl. Fram aö þeim tíma hafði hann sloppið algerlega við meiðsl á ferlinum ef undan eru skildir smápústrar. Reif liðfestingu „Þetta byijaði með því að ég reif liðfestingu í ökkla. Ég var búinn að fá mig góðan af því þegar ég fékk spark aftan í löppina strax í fyrsta leik á eftir. Ég lék þó áfram næstu tvo leiki en í þeim síöari var ég mikið deyfður. Afleiðingin varð sú að ég missteig mig illa og tognaði á ökklanum. Ég hef verið aö ná mér hægt og bítandi en er þó enn ekki orðinn fullgóður, það fann ég vel á æfingunni í dag. Annars hefði maður þurft að hreyfa sig meira í fríinu en ég gerði. Það er nauðsyn- legt að skokka þrisvar til fjórum sinnum í viku til þess að halda sér í formi eins og ég gerði t.d. í jólafrí- inu.“ Það kom ekki mörgum á óvart þegar Þórður hélt utan í atvinnu- mennsku sl. haust eftir að hafa orðið markakóngur 1. deildar og jafnað markamet þeirra Péturs Péturssonar og Guðmundar Torfa- sonar, 19 mörk. VFL Bochum varð fyrir valinu og Þórður gerði þriggja ára samning við félagið. Fram- kvæmdastjóri þess er Klaus Hilpert sem einmitt þjálfaði Skagamenn sumarið 1979. Þórður var fljótur að aðlagast og festi sig í sessi í liðinu aðeins nokkrum vikum eftir að hann hélt utan. Hann lék síðan alla leiki liðs- ins á keppnistímabilinu ef undan eru skildir þeir sem hann missti af vegna meiðslanna. Hann skoraði þrívegis fyrir liðið í deildakeppn- inni. Meira andlegt álag „Munurinn á áhuga- og atvinnu- mennsku er enn meiri en ég hafði gert mér í hugarlund. Og sérstak- lega er það andlegt álag sem er margfalt meira. Hér er þetta spurn- ing um peninga og árangur og það er ekkert gefið eftir til þess að ná megi sem bestum árangri. Það að ég skoraði ekki nema þrjú mörk í vetur tel ég mega rekja til þess að ég hef einfaldlega ekki verið að leika næstum því eins vel og ég get best. Þama spilar margt inn í, ekki síst sú staðreynd að það tekur dijúgan tíma að laga sig að breytt- um aðstæðum. Ég tók þá stefnu að leggja áherslu á að ná tökum á þýskunni og fékk til mín einka- kennara þrisvar í viku. Fyrir vikið hef ég náð málinu vel.“ - Hefurðu þá ekki saknað þess að leika ekki lengur hér heima? „Ég neita því ekki að ég fékk mikinn fiðring í fæturnar þegar ég fylgdist með fyrrum félögum mín- um í Skagaliðinu í leik fyrir stuttu. En þaö þýöir ekkert að velta sér upp úr slíku. Ég tók þá ákvörðun að freista gæfunnar í atvinnu- mennsku og ætla að leggja allan minn metnað í að gera eins vel og ég get.“ - Nú er Hilpert við stjórnvölinn hjá félaginu, telurðu að það hafi e.t.v. hjálpaö þér eitthvað? „Hann var mér innan handar fyrst eftir að ég kom og það hefur eflaust hjálpað upp á sakirnar en hann getur starfs síns vegna ekki leyft sér neina miskunn í garð ein- stakra leikmanna. Hans hlutverk er að ná sem bestum árangri og þá skiptir ekki máli hver þú ert eða hvaðan þegar valið er í lið.“ - Hvernig komið þið til með að haga undirbúningnum fyrir keppnistímabilið? „Við erum rétt að fara í gang en máhn eru tekin föstum tökum. Við æfum 2-3 sinnum á dag og leikum mikið af æfmgaleikjum við málið. í næstu viku eru t.d. sex æfinga- leikir á prógramminu þannig aö það er ekki slegið slöku við.“ Þrír nýir leikmenn - Hafa orðið einhverjar breytingar á mannskap frá því í vor? „Félagið er búið að kaupa þrjá leikmenn, Eric Wynalda og svo þá Frontzek og Schneider frá Stutt- gart. Þrír leikmenn hafa hætt vegna meiðsla og tveir fóru til fé- laga í lægri deildunum. Að öðru leyti er mannskapurinn óbreytt- ur.“ - Hversu margir útlendingar eru hjá félaginu auk þín? „Við erum fjórir. Þar á meðal eru tveir sem léku í úrslitakeppni HM í Bandaríkjunum, Wynalda og einn leikmaðurfrá Suður-Kóreu." Boch- um hefur um langt árabil átt sæti í þýsku Bundesligunni en af og til fallið niður í 1. deildina. Félagið hefur aldrei unnið til stórverð- launa en forráðamenn þess hafa hug á að breyta því. Að sögn Þórð- ar hefur verið ráðinn nýr „scout“, njósnari, til félagsins, gamalreynd- ur landsliðsfyrirliði Þjóðverja, og honum er ætlað að laða til félagsins unga og efnilega leikmenn með það að markmiöi að byggja upp fram- tíðarlið Bochum. Þá verður allt unglingastarf félagsins tekið til gagngerrar endurskoðunar. Eldskírn gegn Bayern - Hvaða væntingar gera menn sér hjá Bochum um komandi keppnis- tímabil? „Það verður auðvitað megin- markmið hjá félaginu að halda sæti sínu í deildinni. Við getum reyndar ekki fengið erfiðari byrjun því við mætum Bayern Munchen á ólympíuleikvanginum í fyrsta leiknum í deildinni þann 20. ágúst. Bikarkeppnin hefst viku fyrr og þar mætum við Rot Weiss Essen.“ Þórður á ekki slæmar minningar frá viðureign við Bayem því hann skoraði annað tveggja marka Boch- um í æfingaleik gegn félaginu íljót- lega eftir að hann kom út í fyrra- haust. „Þjóðverjar eru ákaflega hjátrúarfullir og ég veit fyrir víst að það að ég skoraði gegn Bayem í fyrra kemur til með að auka lík- urnar frekar en hitt á því að ég verði í byrjunarliðinu.“ Martin Dahlin vill ekkert af föður sín- um vita. Nat Akins fær líklega aldrei tækifæri til að tala við son sinn framar. Ekki skrifa mér aftur - sænska knattspyrnuhetjan Martin Dahlin hafnar föður sínum Martin Dahlin, hinn skæði sóknar- leikmaður sænska landsliðsins í knattspyrnu, hefur ekki hitt föður sinn i 22 ár og samband feðganna er ekki upp á marga fiska. Dahlin er mjög óhress út í föður sinn og hefur í raun gefið honum rauða spjaldið. Faðir Dahlins heitir Nat Akins og er fæddur í Nígeríu. Hann er 59 ára, hefur í 40 ár búið í London og slæm liðagigt hefur gert hann óvinnufær- an. Akins lék á bongótrommur í þekktri danshljómsveit frá Nígeríu á hljómleikum í Svíþjóð. Ástir tókust með honum og sænsku stúlkunni Lisbeth Dahlin. Hún varð ófrísk og Martin Dahlin kom í heiminn. Þau Akins og Lisbeth vom saman næstu þrjú árin. Mikil ferðalög vegna starfsins í hljómsveitinni áttu öðru fremur þátt í að þau slitu samvistum. Þegar Akins kom heim úr einni hljómleikaferðinni var Lisbeth horf- in með son sinn og Akins fann þau hvergi. Ekki er langur tími liðinn síðan Nat Akins uppgötvaði aö sonur hans væri knattspymustjama. „Ég var mjög stoltur þegar ég komst að þessu og það er æðsti draumur minn að við náum sem fyrst saman. Ég mun allt- af elska Martin en ég fæ mig ekki til þess lengur að fara á völlinn og horfa á hann leika. Það veldur mér alltof miklum sársauka," segir Akins og bætir við: „Þegar ég tala um þessa .hluti get ég ekki varist gráti. Innst inni ert ég ótrúlega stoltur af syni mínum en hann vill bara ekki sjá mig framar.“ Akins sagðist ekki hafa áhuga á að hitta son sinn vegna peninga hans. „Mig langar bara til að hitta hann en hann vill ekki gefa mér tækifæri til þess.“ Martin Dahlin segir að hann hafi átt annan pabba í áraraðir og litið á hann sem sinn eina foður í lífinu: „Ég finn alls ekki til sársauka eða haturs í garö Nat Akins. Ég ber engar til- finningar til hans og við eigum aldr- ei eftir að hittast," segir Dahlin. Þeir Dahhn og Akins hafa skrifast á en nú sér fyrir endann á samskipt- um þeirra. Síðasta bréfið sem Akins fékk frá syni sínum var stutt og skýrt: „Ekki skrifa mér aftur."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.