Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1994, Side 42
50
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1994
Afmæli
Margaret Scheving
Thorsteinsson
Margaret Scheving Thorsteinsson
hjúkrunarfræöingur, Efstaleiti 12,
Reykjavík, verður sjötug á mánu-
daginn.
Starfsferill
Margaret fæddist í Williamsport í
Pennsylvaniu í Bandaríkjunum og
ólst þar upp. Hún stundaði nám við
Montgomery, Clinton High School
1948-52, lauk hjúkrunamámi við
Pennsylvania Hospital School of
Nursing 1945 og stundaði fram-
haldsnám í svæíingum við Graduate
School, University of Pennsylvania
- School of anesthesia 1946.
Margaret var hjúkrunarkona við
St. Christopher’s Children Hospital
1946, Philadelphia Maternity Hos-
pital 1946-47, við skurðstofur Land-
spítalans 1948 og síðan þar í afleys-
ingum að meira eða minna leyti
næstu árin. Þá stundaöi hún sam-
hliða húsmóðurstörfum afleysingar
við Landakotsspítala allt til 1985.
Margaret hefur setið í kirkjunefnd
kvenna við Dómkirkjuna og starfar
í stúku Rebekkusystra í Oddfellow-
reglunni.
Fjölskylda
Margaret giftist 23.6.1946 Bent
Hillman Sveini Scheving Thor-
steinsson, f. 12.1.1922, fyrrv. fjár-
málastjóra Rafmagnsveitna ríkis-
ins. Hann er sonur Þorsteins Sch.
Thorsteinsson, lyfsala í Reykjavík,
og Guðrúnar Sveinsdóttur húsmóð-
ur.
Börn Margaretar og Bents eru
Gunnar Bent Sch. Th„ f. 13.4.1947,
stýrimaður í Reykjavík, og á hann
þrjú börn; Susan Auður Sch. Th„ f.
1.9.1950, félagsfræðingur í Odense í
Danmörku, og á hún tvö börn; Ca-
role Ann Sch. Th„ f. 22.3.1952, fóstra
í Kópavogi, og á hún einn fósturson;
Guðrún Margrét Sch. Th„ f. 28.3.
1958, kennari í Reykjavík, en sam-
býlismaður hennar er Símon Ólafs-
son verkfræðingur; Ósk Sólveig
Sch. Th„ f. 20.7.1960, húsmóðir í
Ytri-Njarðvík, gift Þórði Gíslasyni
stýrimanni og eiga þau þrjú börn;
Þorsteinn Sch. Th„ f. 28.7.1961,
stýrimaður, búsettur í Reykjavík og
á hann tvo syni; Ástríður Þóra Sch.
Th„ f. 16.8.1970, lögfræðinemi við
HÍ.
Bróðir Margaretar er Daniel
Wolfe, f. 1926, lengst af bifreiðasölu-
maður í Wilhamsport.
Hálfbróðir Margaretar er Willian
Faust, f. 1940, vöruflutningabílstjóri,
búsettur í Spencer í Iowa í Banda-
ríkjunum.
Margaret Scheving Thorsteinsson.
Foreldrar Margaretar voru Char-
les D. Wolfe, f. 1904, kaupmaður í
Williamsport og víðar, og Caroline
Ritter Faust, f. 11.1.1906, einkaritari.
Ætt
Foreldrar Charles voru Margaret
Rose og Charles D. Wolf, borgar-
stjóri í Williamsport.
Foreldar Caroline voru Maud B.
og Daniel W. Ritter póstafgreiðslu-
maður.
Margaret og Bent taka á móti gest-
um í Ásbyrgi á Hótel íslandi milli
kl. 16.00 og 18.00 sunnudaginn 17.7.
Til hamingju með afmælið 17. júlí
Heigi J. Jónsson,
Kópavoípbraut 1A, Kópavogi.
Halldóra Gröndal,
Ægisiðu 60, Reykjavík.
17.7., milli kl. 15.00 og 18.00.
Marta G. Jóhannsdóttir, :
Árskógtun 6, Reykjavík.
Xngunn Ingvudóttir,
Þórsmörk, Garðabæ'
Eirikur Guðmundsson,
Árvegi 2, Selfossi.
Marinó Tryggvnson,
Ægisgötu 22, Akureyri,
Pálína Ásgeirsdóttir,
Blómsturvöllum 16, Neskaupstað.
Íngvi Samúels-
son vélvirki,
Alíheimum -12.
Reykjavík.
Eíginkona hans
er Anna Kristín
Fríðbjarnardótt-
ir. Þau veröa aö
heiman á afmæl-
isdaginn.
ingi Sigurður B. Sigmarsson,
Maríubakka 10, Reykjavík.
Ægir B. Friðleifsson,
Stjömusteinum 2:1, Stokkseyrt.
Marta Sigríður Hermannsdóttir,
Hraunbæ 85, Reykjavík.
Friðrikka Sigurðardóttir,
Frostafold 12, Reykjavik.
Hörður Jónsson,
Ásbuö 63, Garðabæ.
Björn Laxdal,
Sólborg, Akureyri.
Ilreinn Ölafson,
Helgadal, Moslellsbæ. ;
Jón Sturla Ásmttndsson,
Starrahólum 10, Reykjavík.
Friðrik Georgsson,
Háaleiti 29, Keflavík.
Þórhildur Sigurjónsdóttir,
Vestursíðu 5B, Akureyrí.
Lísa Thomsen,
Búrfelli HI, Grímsneshreppi.
Lísa tekur á móti ættingjum og vinum
Jóhanna Mar- grét Árnadóttir 1 OddfeUow-husinu, VaUholti 19, Sel- fossi, á morgun kl. 17.00-19.00.
húsfreyja, áður að Brávallagötu 40 ára
sambýlinu að Blesugróf 29, Reykjavík, sem Kolbrún Sigurðardóttir, Furugrund 42, Kópavogi. Fáll Eyvindsson,
er rekiö af styrktarfélagi li:'i Hratmbæ 40, Reykjavík. Þorvaldur H. Þórðarson,
vangeflnna. Hún tekur á móti gestum
í Bjarkarásí við Stjörnugróf á morgun,
Þíngási 55, Reykjavík.
Skák
Tartakower var snjall
David Bronstein hafði að orði að sá af gömlu meisturunum sem hefði haft
mest áhrif á hann, væri Tartakower, sem hann kvað hafa verið stórlega
„Skákin er ævintýri 1001 afleikjar"
sagði skákmeistarinn frægi Savielly
Tartakower, sem þekktur var fyrir
hnyttin tilsvör, sem mörg hafa lifað
eftir hans dag. Tartakower var um
árabil einn fremsti skákmeistari
heims, þótt aldrei kæmist hann ná-
lægt því að tefla um heimsmeistara-
titilinn.
Þegar David Bronstein var staddur
hér á landi fyrr á árinu var hann
spurður að því hver af gömlu meist-
urunum hefði haft mest áhrif á hann.
Hann nefndi nafn Tartakowers, sem
hann kvað hafa verið stórlega van-
metinn.
Víst er það svo að margar af hug-
myndum og orðum Bronsteins ber
aö taka með fyrirvara en engu að
síður varð þetta til þess að ég fór að
velta þessum Tartakower fyrir mér.
Margt má raunar sjá líkt með þeim
skákbræðrum Bronstein og Tar-
takower. Frumleiki í hugsun og list-
rænar leikfléttur einkenna þá báða
sem hafa kosið að fara sínar eigin
leiðir, fremur en að herma eftir öðr-
um. Tartakower lætur t.a.m. eftir sig
fjölmörg afbrigði í skákbyrjunum,
sem enn eru í fullu gildi, eins og í
franskri vöm og drottningarbragði.
Stundum átti hann þó til að fara út
fyrir „velsæmismörk” eins og á stór-
mótinu í New York 1924 er hann hóf
tvær skákir með 1. e4 e5 2. f4 exf4 3.
Be2!? sem vitanlega hefur æ síðan
verið við hann kennt.
Tartakower var pólskur gyðingur,
fæddur 1887, sótti lögfræðimenntun
til Sviss og Austurríkis og settist síð-
an að í París. Bestu sigrum sínum
náði hann um og eftir 1920 og urðu
þeir allmargir áður en yfir lauk. Tar-
takower lést í París 1956.
Tartakower var margt til lista lagt.
Hann orti kvæði á þýsku, rússnesku
og frönsku, skrifaði bækur um skák
og fjölda tímaritsgreina. Þá var hann
þekktur fyrir áhugasemi um íjár-
hættuspil - einhverju sinni sást til
hans laumast í rúllettuhjólið milli
leikja á skákmóti.
Skákstíllinn var glæfralegur sem
kannski var ástæða þess að hann
Skák
Jón L. Árnason
komst ekki upp á blátindinn. En
margar skáka hans em hreint
augnayndi. Skákina við Réti í Hast-
ings um áramótin 1926/27 telur hann
sjálfur meðal sinna allra bestu. Æv-
intýramennska Tartakowers í skák-
inni er raunar með minna móti en
þó er skemmtilegt að fylgjast með því
hvemig hann kryddar stöðubarátt-
una með lævísum brellum hér og
þar.
Hvítt: Richard Réti
Svart: Saviely Tartakower
Drottningarbragð
1. Rf3 R£6 2. d4 d5 3. c4 e6 4. Rc3 Be7
5. Bg5 h6
Þetta afbrigöi drottningarbragðs-
ins (raunar er 5. - 0-0 6. e3 h6 vin-
sælh leikjaröö) er einmitt kennt við
Tartakower og hefur notið mikilla
vinsælda eftir hans dag, sbr. ótal
skákir í heimsmeistaraeinvígjum.
Algengast er að teílist nú 6. Bh4 0-0
7. e3 b6 o.s.frv. en síðasti leikurinn
er raunverulegur upphafsleikur af-
brigðisins.
6. BxfB Bxffi 7. e3 0-0 8. Db3 dxc4
Traustara þykir 8. - c6 og áfram
t.d. 9. Hdl Rd7 10. Bd3 b6 11. cxd5
cxd5 12. e4 dxe4 13. Bxe4 Hb8 14. 0-0
b5 15. Hfel Db6 16. Bbl Bb7 og tafliö
er að heita má í jafnvægi, Kasparov
- Karpov, 3. einvígisskák í Moskvu
1985.
9. Bxc4
Betra er 9. Dxc4! eins og Kortsnoj
sýndi fram á í skák við Aaron á milli-
svæðamótinu í Stokkhólmi 1962. Eft-
ir 9. - b6 10. 0-0-0! Ba6 11. Da4 Bxfl
12. Hhxfl De7 13. Re4 hefur hvítur
undirtökin.
9. - c5!
Svartur nær nú að losa um sig og
á gott tafl.
10. dxc5 Rd7 11. Re4 Rxcð! 12. Rxf6+
Dxf6 13. Dc2 b6 14. 0-0 Bb7 15. Rd4
Hac8 16. De2 e5 17. Rb3?
vanmetinn.
Hvítur leitar eftir uppskiptum og
vonast til þess að geta stýrt taflinu í
jafnteflishöfn. Næsti leikur Tar-
takowers er dæmigeröur fyrir slótt-
ugan stílinn.
17. - b5!!
Eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Hugmyndin er sú, að eftir 18. Bxb5
er c-línan opin svörtum hrók og með
18. - Rxb3 19. axb3 Dg6 20. e4 (20. f3
Hc2 vinnur) Bxe4 21. f3 Hc2 22. fxe4
(eða 22. Dxe4 Dxg2 mát) Hxe2 23.
Bxe2 Dxe4 vinnur svartur létt.
18. Rxc5 Hxc5 19. Bb3 a5! 20. e4
Reynir að loka hornalínunni
hættulegu. Hér var möguleiki að
falla í gildruna 20. Hacl? Dc6! og
vinnur hrók vegna máthótunarinn-
ar.
20. - Hfc8!
Betra en 20. - a4 21. Bc2 Hfc8 22.
Bd3 og nú er biskupinn kominn á
betri stað.
21. Hadl a4 22. Bd5 Ba6! 23. De3 b4 24.
Hcl
Tartcikower gefur upp laglega leið
eftir 24. Hfel Hc2 25. Hbl, sem við
fyrstu sýn virðist halda í horfinu.
Eftir 25. - a3! 26. bxa3 H8c3 27. Da7
Hc5! 28. £3 Hxg2+! 29. Kxg2 Hc2+ 30.
Kgl Dg5 + blasir við mát í næsta leik.
24. - Hc2! 25. Hxc2 Hxc2 26. Hbl He2
27. Df3 Bd3!
Mun betra er 28. gxf3 Bd3 29. Hcl
og hvítur á jafnteflisvon. Auðvitað
gengur ekki 27. Dxd3? vegna 27. -
Dxf2+ og mátar.
28. Hcl Hxb2 29. Dxí6 gxf6 30. Hc8+
Kg7 31. h3 Bbl 32. Hb8 a3 33. g4
33. - b3!
Vinningsleikurinn. Lakara er hins
vegar 33. - Bxa2 34. Bxa2 Hxb2 35.
Hxb4 meö góðum jafnteílismöguleik-
um í hróksendataflinu.
34. Hxb3
Ef 34. Bxb3 Bxa2 og vinnur mann,
eða 34. axb3 a2 35. Ha8 Bxe4! 36. Bxe4
Hbl+ 37. Kg2 al = D 38. Hxal Hxal
og svartur vinnur með tið og tíma.
34. - Hxb3 35. Bxb3 Bxe4
Biskupaendataflið er unnið á svart,
þótt enn þurfi að gæta nákvæmni.
36. Kh2 f5! 37. gxf5 Bxí5 38. Kg3 f6 39.
Kh4 Bg6 40. Kg4 Í5+ 41. Kh4 KÍ6 42.
Bc2 f4 43. Bb3 Bf7 44. Bxf7 Kxf7 45.
Kg4 Kg6
- Og hvítur gafst upp.